Morgunblaðið - 13.07.1996, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 33
BREF TIL BLAÐSINS
Virðing fyrir
niðurstöðum lýðræð-
islegra kosninga
Frá Þorvaldi Kr. Gunnarssyni:
TILEFNI þess að ég lét nokkur orð
frá mér falla í bréfi til blaðsins 6.
júlí þessa mánuðar, voru skrif Þórð-
ar Halldórssonar þann 4. júlí. Það
voru skrif hans um Ólaf R. Gríms-
son, sem fóru sérstaklega fyrir
brjþstið á mér.
í lýðræðisþjóðfélagi er borin virð-
ing fyrir niðurstöðum lýðræðislegra
kosninga, öfugt við það sem gerist
í ólýðræðislegum stjórnarháttum
komúnismans. Þess vegna hlýtur
að vakna sú spurning hvort þeir sem
ekki bera virðingu fýrir lýðræðis-
kjörnum forseta landsins séu lýð-
veklissinnar.
í Morgunblaðinu 9. júlí spyr
Þórður hvar kommúnisminn sé
grafinn. Því ætla ég að reyna að
svara eftir bestu getu.
Kæri Þórður, eins og þú hlýtur
að vita er fjölflokkakerfi í öllum
fyrrverandi austantjaldsríkjum,
sem hafa þróast mikið síðan kom-
múnisminn fél! 1989. Markaðsbú-
skapurinn hefur komið í stað ham-
ars og sigðar kommúnismans.
Hinsvegar hefur stökkið úr kom-
múnisma í markaðsbúskap ekki
alltaf gengið auðveldlega né sárs-
aukalaust og þá sérstaklega í Rúss-
landi eins og þú réttilega bentir
á). Framþróunin varð ekki stöðvuð
af afturhaldsöflum sem kenna sig
við kommúnista og er það öllum
mikill léttir. Jafnvel Rússar hafna
kommúnismanum sem heims-
byggðin kvaddi við hrun Berlínar-
múrsins. Ef efnahagsþróunin verð-
ur þokkalega hagstæð fyrir austan-
tjaldsríkin fyrrverandi þá kemur
þessi draugur kommúnismans aldr-
ei aftur til með að ríkja. Þess vegna
ætti það að vera kappsmál fyrir
alla þá sem eru fylgjandi lýðræði
og fijálsræði að þeim takist sem
allra best að koma á alvöru mark-
aðshagkerfi.
Ef heimsmynd dagsins í dag er
borin saman við heimsmyndina, t.d.
1980, þá er öllum ljóst að kommún-
isminn er dauður. I staðinn fyrir
einsflokkakerfin í Austur-Evrópu
er komið fjölflokkakerfi. Einu al- -
vöru kommúnistaríkin sem enn eru
við lýði má telja á fingrum annarr-
ar handar, þ.e. Kína, Kúba og Norð-
ur-Kórea. Svo þess vegna ætla ég
að leyfa mér að ítreka mín fyrri
orð frá 6. júlí: Kommúnisminn er
dauður.
ÞORVALDUR KR. GUNNARSSON,
Grettisgötu 58b, Reykjavík.
AllAN
SOLAR-
HRING1NN
577
4200
48 si8no
hugmyndabæklingur
fyrir garðinn þinn.
Pantaðu ókeypis eintnk!
Landslags-
arkítektinn
leggur línurnar!
Okeypis ráðgjafarþjónusta BM»Vallá
Björn Jóhannsson landslagsarkitekt aðstoðar þig
við að útfæra skemmtilega innkeyrslu, gangstíg, verönd,
blómabeð eða annað með vörum frá BM'Vallá
og veitir margvísleg góð ráð um lausnir í garðinum.
Hringdu í 577 4200 og pantaðu tíma. Grænt númer 800 4200.
Hafðu með þér grunnmynd af húsi
og lóð í kvarða 1:100 og útlitsteikningu
eða góða Ijósmynd af húsinu.
Netfang: bmvalla.sala@skima.is
BM-VAILA
Breiðhöfða 3
112 Reykjavík.
AUGLYSINGAR
A TVINNUAUGL YSINGAR
Saltfiskmatsmaður
Saltfiskmatsmaður og menn, vanir söltun,
óskast á togara, sem mun stunda veiðar í
Barentshafi í sumar og salta aflann um borð.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Þ. Þorsteins-
son í vinnusímum 550 1000 og 550 1082 eða
heimasíma 551 17954.
Gmmn
íþróttakennari
- æskulýðs- og íþróttafulltrúi
íþróttakennara vantar á Raufarhöfn.
Auk íþrótta- og sundkennslu þarf hann að sjá
um íþrótta- og æskulýðsstörf ásamt þjálfun
og umsjón með ungmennafélaginu Austra.
Góð laun.
A staönum er glæsilegt, nýtt íþróttahús, 16 m innisundlaug, heilsurækt,
sauna og Ijósabekkir.
Raufarhöfn er 400 manna þorp í 150 km fjarlægö frá Húsavík.
Sérstæð, villt og ósnortin náttúra. Mikið fuglalíf, einstök friðsæld, en einn-
ig fjörugt félagslíf, gott mannlíf og öll hugsanleg þjónusta.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí.
Upplýsingar gefur Líney Helgadóttir, skóla-
stjóri, í síma 465 1225 eða Hildur Harðar-
dóttir, formaður Austra og skólanefndar,
í síma 465 1339.
m solu
iörð til sölu
Jörðin Valshamar í Geiradal, Reykhólasveit,
er til sölu. Mikið undirlendi, tvær veiðiár og
fjallavötn. Stærð u.þ.b. 1500 ha. Tilboð.
Upplýsingar gefa Guðbjörg í síma 555 1766
eða Guðmundur í síma 587 8021.
Toppmyndir
gömlu meistaranna
Fyrir fjársterkan aðila leitum við að mjög
góðum verkum eftir t.d. Kjarval, Ásgrím, Jón
Stefánsson, Gunnlaug Scheving, Kristínu
Jónsdóttur, Þorvald Skúlason, Gunnlaug
Blöndal og Jóhann Briem.
Vinsamlegast hafið samband sem fyrst við
Gallerí Borg í síma 552 4211 frá kl. 12-18
virka daga.
BORG
v/lngólfstorg
Stóðhesturinn Frami
1. sæti í 5 v. flokki stóðhesta á fjórðungsmótinu 1996.
tekur á móti hryssum á Ragnheiðarstöðum.
Fyrra gangtímabíl frá 14. júlí, síðara gang-
tímabil frá 8. ágúst.
B: 8,0 - 8,3 - 7,3 - 8,7 - 9,8 - 7,5 - 8,5 = 8,36
H: 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,2 - 8,3 -*7,8 -8,5 = 8,12
Aðaleinkunn 8,24.
Uppl. og pantanir í Ástund, sími 568 4240
og á Ragnheiðarstöðum, sími 486 3366.
Myndlistarmenn athugið!
Innan skamms verður opnuð í Gallerí Borg
sérstök gjafavörudeild. Þarverður kappkost-
að að hafa til sölu úrval myndverka og ann-
arra listmuna sem henta vel til tækifæris-
gjafa, t.d. grafíkmyndir, vatnslita- og pastel-
myndir, lítil olíuverk, ásamt keramikmunum.
Vinsamlegast hafið samband við Gallerí Borg
í síma 552 4211 frá kl. 12-18 virka daga.
BORG
v/lngólfstorg.
Arkitektafélag íslands
Skrifstofa félagsins í Hafnarstræti 9, 101
Reykjavík, verður lokuð frá 15. júlí tii 1. ágúst
vegna sumarleyfa.
Stjórn Al.
Torta
í Biskupstungnahreppi
Deiliskipulag sumarbústaðahverfis
Hér með er lýst eftir athugasemdum við til-
lögu að deiliskipulagi sumarbústaðahverfis í
landi Tortu í Biskupstungnahreppi, sem unn-
in er samkvæmt staðfestu aðalskipulagi. Til-
lagan nær til 81,5 ha svæðis í landi Tortu.
Gert er ráð fyrir 18 lóðum og alit að 36 sum-
arhúsum.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Biskups-
tungnahrepps og hjá Skipulagi ríkisins,
Laugavegi 166 á skrifstofutíma, frá 15. júlí
til og með 9. ágúst 1996.
Athugasemdum skal skila til oddvita Bisk-
upstungnahrepps fyrir 12. ágúst 1996 og
skulu þæra vera skriflegar.
Oddviti Biskupstungnahrepps.
Skipulagsstjóri ríkisins.