Morgunblaðið - 13.07.1996, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR
Guðspjall dagsins:
Réttlæti faríseanna.
(Matt. 5.)
ÁSKIRKJA: Safnaðarferð kirkju-
kórs og Safnaðarfélags Áspresta-
kalls. Lagt upp frá Áskirkju kl.
8.15. Messa í Vík í Mýrdal og
kvöldverður snæddur á Skógum.
Sjá nánar í dagbók. Árni Bergur
Sicjurbjörnsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Bragi Skúla-
son. Organisti Kjartan Ólafsson.
GRENSASKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Kjartan Örn Sigur-
björnsson. Organisti Árni Arin-
bjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Org-
eltónleikar kl. 20.30. Karel Pau-
kert orgelleikari frá Bandaríkjun-
um leikur.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Forsöngvari Jón Þorsteinsson
óperusöngvari. Organisti Pavel
Manasek. Helga Soffía Konráðs-
dóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Org-
anisti Sesselja Guðmundsdóttir.
Kór Langholtskirkju (hópur II)
syngur. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Engin
guðsþjónusta vegna sumarleyfa.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Orgel og kórstjórn Reynir Jónas-
son. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Prestur sr. Hildur
Sigurðardóttir. Organisti Kristín
Jónsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Dr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson annast guðsþjón-
ustuna. Organleikari Sigrún Stein-
grímsdóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Síðasta guðs-
þjónusta fyrir sumarleyfi starfs-
fólks kirkjunnar. Samkoma Ungs
fólks með hlutverk kl. 20. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Sólveig
Sigríður Einarsdóttir. Gunnar Sig-
urjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30. Prestur Hreinn
Hjartarson. Organisti Pavel Maná-
sék. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Þórey Guð-
mundsdóttir prestur á Desjamýri
prédikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti Kristjana Ásgeirsdóttir.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
PCI lím og fúguefni
Stórhöfða 17, við Guliinbrú,
sími 567 4844
Ert þú
EINN
í heiminum
Hefurðu engan að
tala við?
VINALÍNAN
561 6466 • 800 6464
öll kvöld 20-23
fellur niður vegna sumarleyfa
starfsfólks. Sóknarbörnum er
bent á guðsþjónustu afleysinga-
prests í Breiðholtskirkju. Kristján
Einar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJ A: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Örn Falkner.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20. Sr. Ágúst Einarsson
prédikar. Laufey Geirlaugsdóttir
syngur einsöng. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Sóknarpestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík:
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Sunnudag: Hámessa kl. 10.30.
Messa kl. 14. Messa á ensku kl.
20. Mánudaga til föstudaga:
messur kl. 8 og kl. 18. Laugar-
daga: messa kl. 8 og messa á
þýsku kl. 18, messa á ensku kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelf-
fa: Almenn samkoma kl. 20.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Niðurdýfingarskírn.
MESSIAS-FRÍKIRKJA: Rauðar-
árstíg 26, Reykjavík. Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 20 og fimmtu-
dag kl. 20. Altarisganga öll sunnu-
dagskvöld. Prestur sr. Guðmund-
ur Örn Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8.
Almenn samkoma kl. 11. Ræðu-
maður Ásmundur Magnússon.
Fyrirbænaþjónusta/bænaklútar.
Allir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20. Köre og
Reidun sjá um samkomuna.
MOSFELLSPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta kl. 11. Kirkjukór Lága-
fellssóknar. Organisti Guðmundur
Ómar Óskarsson. Jón Þorsteins-
son.
SAURBÆJARKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónusta kl. 11. Fermd
verður Ágústa Kristín Kristins-
dóttir. Gunnar Kristjánsson, sókn-
arprestur.
VÍDALÍNSKIRJA: Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20.30. Leikmenn annast
athöfnina. Bragi Friðriksson.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsjjjón-
usta kl. 14. Færeyskir unglingar
taka þátt í athöfninni ásamt jafn-
öldrum sínum úr Kjalarnespróf-
astsdæmi. Kristín Þórunn Tómas-
dóttir, guðfræðingur, prédikar.
Bragi Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Tón-
listarguðsþjónusta kl. 11. Org-
anisti Hörður Bragason. Sr. Þór-
hallur Heimisson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
mpcco H 1Q
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 20.30. Kirkjukór-
inn syngur undir stjórn Steinars
Guðmundssonar. Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 17. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Steinars Guð-
mundssonar. Sóknarprestur.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Sumarguðs-
þjónusta verður í kirkjunni kl. 11.
Organisti Ester Ólafsdóttir. Hjört-
ur Magni Jóhannsson.
HVALSNESKIRKJA: Sumarguðs-
þjónusta verður í kirkjunni kl. 13.
Athugið breyttan guðsþjónustu-
tíma. Organisti Ester Ólafsdóttir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl.
10.30. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSPRESTAKALL:
Messa í Skálholtsdómkirkju kl. 17.
Sr. Stefán Lárusson, fyrrum prest-
ur í Odda prédikar. Organisti Hilm-
ar Örn Angarsson. Fluttir verða
þættir úr sumartónleikum helgar-
innar.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Almenn guðsþjónusta kl. 11.
Barnasamvera á meðan á prédik-
un stendur. Messukaffi.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Messa á Dvalar-
heimilinu Höfða kl. 12.45. Björn
Jónsson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta á sunnudag kl. 14.
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Áheyrilegur diskur
ÉG VAR að fá í hendur
geisladisk sem ber heitir
Númer þijú, en að honum
standa Siggi Ingimarsson,
Operation big beat, og
Góðu fréttimar. Efni þessa
disks er einkar vandað og
vil ég hvetja menn til að
kynna sér efni hans. Sann-
kallað eymakonfekt fyrir
unnendur vel fluttrar tón-
listar. Og ekki spillir það
að textarnir em tileinkaðir
Jesú Kristi.
Konráð Friðfinnsson
Skorið niður á
kostnað öryrkja?
BJÖRGVIN Kristbersson,
Kleppsvegi 138, hringdi og
taldi að nú væri fulllangt
gengið í niðurskurði á
þjónustu við öryrkja og
sjúklinga. Færa ætti þeim,
sem meira mega sín, pen-
inga á silfurfati á meðan
sjúklingar þurfa að borga
meira og meira.
Tapað/fundið
Leðurjakki
týndist
BRÚNN leðuijakki, hálf-
gerð úlpa með reim í miðj-
unni, týndist á Gaddstaða-
flötum á Hellu laugardags-
kvöldið 6. júlí. Að öllum
líkindum hefur jakkinn
týnst í stóra tjaldinu.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma
437-1969.
Borðdúkar
fundust
BORÐDÚKAR fundust á
mótum Kringlumýrar-
brautar og Suðurlands-
brautar miðvikudaginn 3.
júlí. Upplýsingar í síma
553-5092.
Fiskabúr selt
til Akureyrar
AKUREYRINGARNIR
sem keyptu fiskabúr af
konu í Reykjavík í maí em
vinsamlega beðnir að hafa
samband við Sturlu Hjart-
arson í síma 560-1750.
Konan seldi búrið án vit-
undar eigandans og er
höfðað til heiðarleika Ak-
ureyringanna. Sami Sturla
tapaði Zippo-kveikjara,
annaðhvort í Rósenberg-
kjallaranum eða á leiðinni
þaðan upp á Sólvallagötu.
Kveikjarinn er merktur
breska sjóhernum og hafi
einhver fundið hann er
hann beðinn að hringja í
ofangreindan síma. Fund-
arlaun.
Veiðidót fannst
VEIÐIDÓT fannst við
Gljúfurá á Mýram sl.
sunnudag. Upplýsingar í
síma 561-1443.
Gæludýr
Kolsvört læða
DIMMA er týnd. Hún var
með rauða hálsól með
rauðu merkispjaldi er hún
fór að heiman, úr Vestur-
bænum, 27. júní sl. Hún
hefur ekki sést síðan. Ég
bið þá sem e.t.v. hafa séð
læðuna eða vita hvar hún
er að hringja í síma
551-5301.
Týndur köttur
HVÍT og grá síðhærð pers-
nesk læða tapaðist frá Álf-
hólsvegi 51, líklega sl.
mánudag. Hún er óvön að
vera úti og ómerkt. Hafi
einhver fundið hana er
hann beðinn að láta vita í
síma 554-1992 eða sím-
boða 846-3936.
HÖGNIHREKKVÍSI
Farsi
Víkveiji skrifar...
GLÖGGUR kunningi Víkveija
benti honum á að eftir for-
setakosningarnar hefði Morgun-
blaðið ekki tekið tillit til þess í
samanburði sínum á kosningaúr-
slitum og síðustu skoðanakönnun-
um fyrir kosningar að í könnunun-
um hefði ekki verið gert ráð fyrir
auðum og ógildum atkvæðum.
Þess vegna hefði verið rétt að
reikna út hlutfall hvers frambjóð-
anda af gildum atkvæðum, fremur
en öllum greiddum atkvæðum eins
og gert var í blaðinu, og bera það
saman við niðurstöður kannana.
x .x x
ETTA er hárrétt athugasemd
að mati Víkveija, sem tók
sig til og fann út kjörfylgið sem
hlutfall af gildum atkvæðum —
þ.e. sem féllu einhveijum fram-
bjóðenda í skaut. Af þeim komu
41,4% í hlut Ólafs Ragnars, 29,6
í hlut Péturs Hafstein, Guðrún
Agnarsdóttir fékk 26,4% og Ást-
þór Magnússon hlaut 2,6% gildu
atkvæðanna. Miðað við þessar töl-
ur var heildarfrávik talna í könnun
DV og Stöðvar 2 frá úrslitunum
minnst, eða 2,2%. Næst kom
Talnakönnun með 3,8%, þá Fé-
lagsvísindastofnun með 4,6% og
loks Gallup með 7,5% heildarfrá-
vik. Þetta breytir ekki röðinni á
því hversu nálægt hver könnun fór
úrslitunum, en rétt skal vera rétt.
xxx
VÍKVERJI hefur áður fjallað
um skort á hjólreiðastígum í
höfuðborginni fyrir þá, sem vilja
komast leiðar sinnar með um-
hverfisvænum og hollum hætti.
Annar vandi snertir hjólreiðamenn
hins vegar ekki síður og það er
skortur á stæðum fyrir reiðhjól. í
miðborginni er varla gert ráð fyrir
að fólk sé á hjóli. Fólk, sem vinnur
í bænum og hjólar í vinnuna, kvart-
ar undan því að hvergi sé hægt
að skilja hjólið eftir á sæmilega
öruggum stað — alltént þar sem
það þvælist ekki fyrir fótgangandi
vegfarendum læst við þakrennu
eða ljósastaur. Það þyrfti ekki að
vera mikið mál að koma fyrir reið-
hjólastæðum á helztu torgum
borgarinnar, til dæmis á Austur-
velli, Lækjartorgi og Ingólfstorgi.
xxx
REYNDAR fínnst Víkveija oft
að borgaryfirvöld hér syðra
standi sig ekki sérstaklega vel í
málum, sem varða útivist og
heilsurækt borgaranna. Víkveiji
heimsótti Akureyri á dögunum og
kom í Kjarnaskóg, eitt útivistar-
svæða Akureyringa. Skemmst er
frá því að segja að þar er unaðs-
reitur fyrir alla fjölskylduna,
skemmtilega skipulagður með
upplýstum skokkbrautum, merk-
ingum á tijám og öðrum plöntum
meðfram gangstígum, stórum
leiksvæðum fyrir börnin og að-
stöðu fyrir fjölda manns til að
grilla í góða veðrinu, sem alltaf
(eða næstum því alltaf) er á Akur-
eyri. Víkveiji er þeirrar skoðunar
að Reykvíkingar eigi ekkert sam-
bærilegt útivistarsvæði, þótt EIl-
iðaárdalurinn gæti eflaust orðið
slíkur sælureitur með réttri skipu-
lagningu. í þessu máli eins og
mörgum öðrum mættu Reykvík-
ingar taka Akureyringa sér til
fyrirmyndar.