Morgunblaðið - 13.07.1996, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBIJSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Læra bjargsig
og sprang
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
KRAKKAR í Eyjum hafa undan-
farið verið á námskeiði þar sem
þeir hafa lært undirstöðuatriði í
bjargsigi og sprangi. Það er Tóm-
stundaráð Vestmannaeyjabæjar
sem stendur fyrir námskeiðshald-
inu og leggur til leiðbeinanda,
Armann Höskuldsson, sem séð
hefur um að leiðbeina krökkunum
og sést hér sýna þeim hvernig ber
að fara að, segir að þeir hafi ver-
ið mjög áhugasamir um námið en
um 25 krakkar, bæði strákar og
stelpur, tóku þátt í námskeiðinu.
Sprang er nokkurskonar þjóð-
aríþrótt í Vestmannaeyjum og
margir krakkar fara að spranga
ungir að árum. Því hefur verið
talið rétt að ieiðbeina þeim sem
áhuga hafa í þessum efnum til
Morgunblaðið/Þorkell
GSM-símum
fjölgaði um
65% frá
áramótum
að þeir læri að gæta fyllstu varúð-
ar í berginu og bera sig rétt að
í fjallamennskunni.
Armann sagði í samtali við
Morgunblaðið að námskeiðið
hefði gengið mjög vel og krakk-
arnir hefðu sýnt mikinn áhuga á
að læra réttu tökin og handbrögð-
in við að síga í bergið og spranga.
Þeir hefðu þarna lært undirstöðu-
atriði og áhersla væri lögð á við
þá að gæta fyllstu varúðar þegar
þessar íþróttir væru stundaðar
því hætta stafaði af ef ekki væri
rétt að farið. Hann sagðist telja
að krakkarnir hefðu mjög gott
af þessu og einnig væri með þessu
haldið við þessari rótgrónu íþrótt
Eyjamanna að spranga og síga í
björg.
Mýrafellið flaut upp
og sökk aftur
Tálknafirði. Morgunblaðið.
TILRAUNIR til að ná Mýrafelli ÍS 123
af sjávarbotni hafa staðið undanfama
daga á Bíldudal, þangað sem báturinn
var dreginn neðansjávar af pramma.
Mýrafell, sem er 15 tonna stálbátur,
sökk í mynni Aniarfjarðar 26. júní.
Skipveijamir fjórir komust á kjöl og
var bjargað um borð í Guðnýju IS.
Byrjað var að koma böndum á
bátinn á föstudaginn í síðustu viku
og var hann síðan dreginn af pramma
inn Arnaríjörð í fylgd Daggar BA
frá Bíldudal. Björgunaraðgerðirnar
tóku langan tíma og kom leiðangur-
inn ekki til hafnar í Bíldudal fyrr
en um hádegi á sunnudag.
Frá því á sunnudag hefur verið
unnið að því að flarlægja úr honum
veiðarfæri, fisk og annað_ lauslegt,
auk þess að þétta lestina. Á fimmtu-
dagskvöld var því verki að mestu
lokið og var þá hafist handa við að
dæla vatni úr lestinni til að mynda
loftrými inni í bátnum. Eftir aðeins
skamma stund lagðist báturinn á
hliðina og bytja varð upp á nýtt.
Verkið lá niðri á flóðinu vegna
þrýstingsins sem þá er á sjávarbotni
en aftur var byijað á fjöru á hádegi
í gær. Skömmu síðar flaut báturinn
Reiknistofa
fiskmarkaða
Flytur út
hugbúnað
REIKNISTOFA fiskmarkaða í
Reykjanesbæ hefur gert samning við
bandarískt fyrirtæki í Massachusetts
vegna markaðssetningar og sölu á
tölvukerfi fyrir fiskmarkaði. Kerfið
er alhliða uppboðs- og sölukerfí og
er notað við uppboð í mörgum ís-
lenskum fiskmörkuðum.
Bandaríski kaupandinn er í
tengslum við fiskmarkað í New Bed-
ford í Massachusetts-fylki. Samið
var um afnotarétt á sjálfum hugbún-
aðinum og að Reiknistofan myndi
þýða hann á ensku og laga að banda-
rískum söluaðferðum.
Þá hefur bandaríski kaupandinn
tekið að sér markaðssetningu og
sölu á kerfinu í Bandaríkjunum og
Kanada.
• ■ Flytur úttölvukerfi/12
upp, skuturinn fyrst, en lagðist svo á
hliðina og sökk aftur. Talið er að sá
fiskur, sem eftir var í lestinni og orð-
inn var morkinn, hafi stíflað dælumar
og valdið því að báturinn sökk aftur
en fiskurinn rann allur fram í lest
þegar báturinn flaut upp.
I gær var verið að hreinsa afgang-
inn af fiskinum enn betur úr lestinni
og átti að freista þess að láta bátinn
fljóta réttan upp en hætt er við að
hann sökkvi aftur takist það ekki.
Aðra tilraun til að ná bátnum af
sjávarbotni átti að gera upp úr mið-
nætti sl. nótt.
Innlausn 17,3 millj-
arða spariskírteina
Vextir
tæpir 10
milljarðar
RÍKISSJÓÐUR greiðir alls
um 9,8 milljarða í vexti af
þeim spariskírteinaflokkum
frá árinu 1986 sem komið
hafa til innlausnar i júlímán-
uði. Upphaflega var höfuð-
stóll skírteinanna um 3 millj-
arðar króna árið 1986, en
með verðbótum nemur
höfuðstóllinn um 7,5 millj-
örðum. Þar ofan á bætast
9,8 milljarðar í vexti þannig
að ríkissjóður þarf að standa
skil á 17,3 milljörðum til eig-
enda skírteinanna.
Umrædd spariskírteini voru
innleysanleg að sex árum liðn-
um frá útgáfu þeirra árið
1986, en hefðu að óbreyttu
borið vexti til fjórtán ára eða
fram til aldamóta. Nafnvextir
þeirra voru 8-9%, en stærsti
hlutinn var á 9% vöxtum, 11,5
milljarðar króna.
Með því að innkalla skír-
teinin nú og endurfjármagna
þau með útgáfu nýrra skír-
teina á svonefndum skiptikjör-
um, 5,2-5,4% raunávöxtun,
sparar ríkissjóður um 2 millj-
arða í vaxtagreiðslum á næstu
tveimur árum.
Forstjóri SVR heimilaði ekki ostaauglýsingar á strætisvögnum
Beinagrindur í
óæskilegu samhengi
EIGENDUM GSM-síma hefur
Ijölgað jafnt og þétt frá því
farsímakerfið var tekið í notk-
un fyrir um það bil tveimur
árum. Frá síðustu áramótum
hefur notendum fjölgað um
65%, þ.e.a.s. úr 9.375 í 16.200.
Hálfu ári eftir að GSM-kerf-
ið var tekið í notkun, þann 16.
ágúst árið 1994 voru notend-
urnir orðnir 2.119 talsins.
í verðkönnun sem gerð var
kemur fram að ódýrustu GSM-
símarnir kosta 29.900 krónur
en síðan eru þeir fáanlegir upp
í 79.900 krónur.
■ 65%fjölgun/16
FORSTJÓRI Strætisvagna Reykja-
víkur hefur ákveðið að leyfa ekki
birtingu ostaauglýsingar á vögnum
SVR vegna þess að þar séu farþegar
hluti af auglýsingamynd án þess að
þeir hafi ákveðið það sjálfir.
Auglýsingarnar áttu að vera
þannig úr garði gerðar að mynd af
sitjandi beinagrind væri fyrir neðan
rúðu strætisvagns, í bfeinu framhaldi
af höfði farþegans sem sæti inni í
vagninum.
„Ég tel að það sé ekki eðlilegt
að farþegar okkar séu hluti af aug-
lýsingamynd, án þess að þeir hafi
ákveðið það sjálfir,“ segir Lilja
Ólafsdóttir, forstjóri SVR. Hún segir
að samkvæmt samningi við Eureka,
sem leigir út auglýsingapláss á
vögnum SVR, eigi að bera aðrar
auglýsingar en borðaauglýsingar
undir SVR. Útfærsla auglýsinganna
sé háð samþykki forsvarsmanna SVR
sem séu annars ekki í neinum sam-
skiptum við auglýsendur.
Lilja segir því miður hafa láðst að
bera útfærslu auglýsingarinnar undir
SVR en það hefði átt að gera áður
en framleiðslu væri lokið og komið
að birtingu. Til stóð að líma auglýs-
inguna á vagna SVR í gærkvöldi.
Lilja segir ekki neinar skriflegar
reglur um auglýsingarnar á vögnum
SVR hafa verið gerðar en hins veg-
ar verði að meta hvort þær geti
komið sér illa fyrir fyrirtækið eða
viðskiptavini þess. „Eg vil virða far-
þega okkar og vil að ímynd þeirra
sé góð og jákvæð. Mér finnst ekki
huggulegt að farþegarnir okkar birt-
ist sem beinagrind utan á vögnun-
um,“ segir forstjóri SVR. •
Lilja segist ekkert hafa á móti
auglýsingunni sem slíkri, aðeins
samhenginu sem hún sé sett í. Mjög
auðvelt sé að færa beinagrindina
neðar á vagnana og jafnvel setja
haus af einhveijum ofan á hana.
„Sumum kann að þykja gaman að
birtast svo grannir að þeir séu orðn-
ir að beinagrind, öðrum kann að
þykja það verra. Öllum sem hafa séð
þetta hér [hjá SVR] þykir þetta
mjög hlægilegt en mörgum á kostn-
að þess sem er spyrtur við beina-
grindina. Mér þykir afar leiðinlegt
að þau mistök skyldu hafa hent að
ræða ekki við okkur strax, því það
hefði mátt koma í veg fyrir að þetta
mál færi svona langt,“ segir Lilja.