Morgunblaðið - 14.08.1996, Síða 12

Morgunblaðið - 14.08.1996, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ Stórbætt afkoma hjá íslandsbanka fyrstu sex mánuði ársins Hagnaður jókst um 123% ÍSLANDSBANKI hf. skilaði 252 milljóna króna hagnaði fyrstu sex mánuði ársins samanborið við 113 milljónir á sama tímabili í fyrra. Nemur aukningin 123% og er helsta skýringin aukin umsvif bankans og dótturfélaga hans. Framlag á af- skriftareikning útlána nam 364 milljónum króna og er það um 11% lækkun frá sama tímabili í fyrra. Helstu lykiltölur úr rekstri bankans eru birtar á meðfylgjandi töflu. Innlán og útlán íslandsbanka juk- ust um 9% frá ársbyijun til loka júnímánaðar. Á sama tíma námu hreinar vaxtatekjur 1.444 milljónum króna og er það 8% aukning frá sama tímabili á síðasta ári. Vaxta- munur, þ.e. vaxtatekjur að frá- dregnum vaxtagjöldum í hlutfalli af meðalstöðu heildarfjármagns lækkaði hins vegar úr 4,3% í 4,2% milli ára. Aðrar rekstrartekjur námu 884 milljónum og jukust um 4% miili ára eða um 32 milljónir. Geng- ishagnaður, aðallega af veltuverð- bréfum í eigu bankans, nam 156 milljónum króna og var 69 milljón- um meiri en á sama tíma í fyrra. Gætir þar áhrifa af vaxtalækkun á verðbréfamarkaði á fyrri hluta árs- ins. Onnur rekstrargjöld lækkuðu um 9 milljónir króna eða 1% frá sama tíma í fyrra. Launakostnaður hækk- ar þó um 47 milljónir eða 6% sam- kvæmt kjarasamningum. Afskriftir rekstrarfjármuna halda áfram að lækka og nema nú 134 milljónum króna samanborið við 188 milljónir í fyrra. Nemur lækkunin 29% og hefur fjárfesting vegna stofnunar VIÐSKIPTI ÍSLANDSBANKI iwr inumi^ppgian irmxo Rekstrarreikningur *Kir Jan.-júní 1996 Jan.-júní 1995 Breyting 1995-96 Vaxtatekjur 3.467 2.993 +16% Vaxtagjöld 2.023 1.654 +22% Hreinar vaxtatekjur 1.444 1.339 +8% Aðrar rekstrartekjur 884 852 +4% Hreinar rekstrartekjur 2.328 2.191 +6% Önnur rekstrargjöld 1.693 1.702 -1% Framlag í afskriftareikning -364 -411 -11% Skattar -19 35 Hagnaður tímabilsins 252 113 +123% Efnahagsreikningur 30/61996 Skuldir Milljc Snir króna Eignir: Milljónir króna Skuldir við lánastofn. 8.265 Innlán 37.924 Sjóður, innistæður og verðbréf 6.094 Lántaka 21.731 Útlán 57.672 Aðrar skuldir 939 Markaðsverðbr. og eignarhlutir 6.870 Víkjandi skuldir 552 Aðrar eignir 3.741 Eigiðfé 4.966 SAMTALS 74.377 SAMTALS 74.377 bankans nú verið afskrifuð að fullu. Björn Björnsson, framkvæmdastjóri íslandsbanka, segir að mikil aukn- ing í viðskiptum bankans sé ánægju- leg og endurspegli batnandi hag þjóðarbúsins. „Afkoma íslands- banka og dótturfyrirtækja hans er nú betri en verið hefur um langa hríð. Við erum ekki svartsýnir á síðari hluta ársins og verði ekki breyting á ytri aðstæðum lítur út fyrir að arðsemi bankans verði ekki lakari á árinu í heild en fyrstu sex mánuðina." 364 milljónir á afskriftareikning Há framlög í afskriftareikning útlána hafa verið til umræðu á aðal- fundum íslandsbanka á undanförn- um árum. Framlagið minnkar um 11%, í 364 milljónir úr 411 á sama tíma í fyrra. Björn segir að afskrift- ir hafi farið stiglækkandi síðustu misseri og stefnt verði að því að þær lækki enn frekar. Fyrstu sex mánuði ársins var ávöxtun eigin fjár 10,4% á árs- grundveili miðað við 5,1% á sama tímabili í fyrra. Verð hlutabréfa í bankanum hefur haldið áfram að hækka. í ársbyrjun var gengið skráð 1,39 á Verðbréfaþingi en í gær urðu viðskipti á genginu 1,93. Nemur hækkunin frá áramótum því 39%. Blað um viðskipti á sunnudegi til sölu London. Reuter. BREZKT sunnudagsblað um við- skipti, Sunday Business hefur vakið áhuga nokkurra hugsanlegra bjóð- enda síðan það var auglýst til sölu að sögn aðstandenda blaðsins. Blaðið hefur meðal annars vakið áhuga annarra íjölmiðla að sögn Phils Hopkinsons, fjármálastjóra Group 2000, fjölþætta fyrirtækis í Leeds, sem útvegaði Sunday Busi- ness rekstrarfé í apríl, skömmu eftir að blaðið hóf göngu sína. Gordon Brown, forstjóri Group 2000, stjórnar fyrirtækjasamtökum sem íhuga tilboð í blaðið að sögn Hopkinsons og er ákvörðunar bráð- lega að vænta. Sunday Business er fyrsta brezka sunnudagsblaðið sem íjallar ein- göngu um viðskipti. Blaðinu var hleypt af stokkunum með miklum fyrirgangi, en skorti rekstrarfé nokkrum dögnm eftir að útgáfa þess hófst. CTE' Úr milliuppgjöri 1996 ^ÆT A Jan.-júní Jan.-júní Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 2.955 1.482 +99% Rekstrargjöld 2.910 1.425 +104% Rekstrarhagnaður / (- tap) Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) Reiknaðir skattar 45 30 (181 57 24 (191 -27% +25% -5% Hagnaður tímabilsins 57 63 -10% Efnahagsreikningur Miiijónir króna 30/6 '96 30/6 '95 Breyting ÍÆimtiGÁ Veltufjármunir 3.042 2.385 +28% Fastafjármunir 681 619 +10% Eignir samtals 3.723 3.005 +24% I SkuhHr og eigið lé: I Skammtímaskuldir 2.690 2.132 +26% Langtímaskuldir 174 157 +11% Eigið fé 859 715 +20% Skuldír og eigið fé samtals 3.723 3.005 +24% Kennitölur 1996 1995 Eiginfjárhlutfall 23% 24% Veltufjárhlutfail 1,13 1,12 Veltufé frá rekstri Miitjónir króna 79 72 +10% Rekstrartekjur SÍF tvöfaldast Hagnaður 57 milljónir króna HAGNAÐUR SÍF hf. fyrstu 6 mán- uði ársins varð alls 57 milljónir króna. Það er um 6 milljónum króna minni hagnaður en á sama tímabili á síðasta ári. Rekstrartekjur fyrir- tækisins eru nú tvöfalt meiri en á sama tíma á síðasta ári, tæplega 3 milljarðar króna. Rekstrargjöld hafa aukizt mikið, eða rúmlega tvöfaldazt milli tímabila og eru nú 2,9 milljarð- ar króna. Rekstur dótturfyrirtækja SIF er ekki inni í þessum tölum. Gunnar Örn Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri SÍF, segir að það sé aðallega tvennt, sem ráði því að hagnaður af rekstri SIF sé_ nú minni en á sama tíma í fyrra. „Utborgun- arhlutfall til framleiðenda er nú 89,6% af endanlegu söluverði og hefur það aldrei verið hærra. Á sama tímabili í fyrra var þetta hlutfall 88,7%, en hvert eitt prósent svarar til um 44 milljóna króna. Þá fellur á þennan hluta ársins töluverður kpstnaður vegna flutninga skrifstofu SÍF frá Reykjavík til Hafnarflarðar og loks eru mun meiri umsvif í kæligeymslum og fleiri þáttum en í fyrra,“ segir Gunnar Örn. Gunnar Örn segir að þrátt fyrir þetta _sé afkoman fyllilega viðun- andi. í lok ársins megi reyndar gera ráð fyrir að afkoma samstæðunnar verði ekki eins góð og á síðasta ári vegna kaupanna á saltfiskverksmiðj- unni La Bacladera á Spáni, en það hafi ekki áhrif á afkomu móðurfyrir- tækisins. „Hlutfall framleiðenda innan SÍF af endanlegu söluverði afurðanna hefur stöðugt farið hækkandi. Það er eðlileg afleiðing vaxandi sam- keppni en einnig markmið okkar hjá SÍF. Við erum því nokkuð sáttir við útkomuna á fyrri helmingi ársins,“ segir Gunnar Örn Kristjánsson. Hagnaður Jarðborana 7 milljónir fyrstu sex mánuði ársins Mikil umskipti í rekstri HAGNAÐUR Jarðborana hf. nam rúmum sjö milljónum á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra var tap á rekstrinum tæp- lega sjö milljónir króna. Sam- kvæmt milliuppgjöri var velta fyr- irtækisins 118 milljónir og er um að ræða 37% aukningu. Allar helstu lykiltölur úr milliuppgjöri Jarðborana koma fram á meðfylgj- andi korti. Bjartsýni um afkomu ársins Bent S. Einarsson, fram- kvæmdastjóri Jarðborana, segir að jafnan sé tap á rekstri fyrtækis- ins fram eftir ári þar sem lítið er um boranir hér á landi um hávet- ur. „Megnið af rekstartekjum fé- lagsins næst á sumrin og fram til áramóta. Hagnaður ársins 1995 var tæplega 31 milljón þrátt fyrir tap fyrstu sex mánuði ársins. Við höfum því fulla ástæðu til bjart- sýni um ársafkomuna 1996. Nýlega var undirritaður samn- ingur að upphæð 120 milljónir við Landsvirkjun um boranir fyrir Kröfluvirkjun. Samningurinn fylg- ir í kjölfar ákvörðunar stjórnar Landsvirkjunar um stækkun Kröfluvirkjunar. Að sögn Bents er það félaginu mjög mikilvægt að boranir eftir háhita eru hafnar á ný eftir nokk- urt hlé. „Vaxandi raforkuþörf krefst frekari framkvæmda á jarð- hitasviðinu því jarðgufuvirkjanir eru hagstæður virkjunarkostur ef raforkuþörfin fer hægt vaxandi. Þess er því að vænta að töluverðar háhitaboranir eigi sér stað hér á landi á næstu árum.“ Verkefni á Azoreyjum Jarðboranir hafa unnið að verk- efnum á Azoreyjum sem nemur liðlega 20% af veltu tímabilsins. Bent segir að alls hafi verið borað- ar 14 holur eftir fersku vatni fyrir bæjarfélög á eyjunum. „Við höfum átt i viðræðum um frekari boranir á Azoreyjum, bæði eftir heitu og köldu vatni, og vonumst eftir því að samningar náist innan tíðar. Það er félaginu afar mikilvægt að ná samfelldum verkefnum, sem þessi erlendu verkefni eru, ekki síst yfir vetrarmánuðina þegar erfitt er að halda borverkum í gangi hér heima,“ segir Bent. Ýmis sóknarfæri „Erlendu verkefnin hafa bæði styrkt fjárhagslega stöðu félagsins og aflað því nýrrar þekkingar. Mikil áhersla verður lögð á þátt erlendrar starfsemi á næstu miss- erum og eru ýmis sóknarfæri, ekki síst vegna mikillar íslenskrar jarðhitaþekkingar,“ sagði Bent að lokum. Hlutafé í Jarðborunum er sam- kvæmt milliuppgjöri 236 milljónir og var greiddur 8% arður til hlut- hafa. Gengi hlutabréfa Jarðborana var skráð 2,52 um síðustu áramót en 3,05 í gær sem er 21% hækkun. Jarðboranir hf ■ Úr miliiuppgjöri 1996 Jan.-júní Jan.-júní fíekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 117,8 86,4 +31% Rekstrarqjöld 1Q7.0 89.6 +19% Rekstrarhagnaður / (- tap) 10,8 (3,2) - Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (2,2) (2,3) . -3% Eiunarskattur (1.41 (1.1) +28% Hagnaöur (tap)tímabilsins 7,2 (6,6) HHRn Efnahagsreikningur Miiiiónir króna 30/6 '96 30/6 ‘95 Breyting | Eignir: | Veltufjármunir 228,2 188,5 +21% Fastafjármunir 330,0 308,3 +7% Eignir samtafs 558ji2 496,8 +12% I Skuldir og einid té: I Skammtímaskuldir 61,1 44,7 +37% Langtímaskuldir 16,6 10,7 +55% Eigið fé 480.5 441,4 +9% Skuldir og eigið té samtals 558,2 496,8 +12% Kennitölur 1996 1995 Eiginfjárhlutfali 86% Veltuf járhlutfall 3,73 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 23,9 9,2 +160%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.