Morgunblaðið - 14.08.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996 15
ERLEIMT
Rafmagnaðri ræðu Colin Powells vel fagnað á flokksþingi repúblikana í San Diego
Óður til hinna
amerísku
lífsgilda
Afturhaldssöm stefnuskrá
en umburðarlyndir ræðumenn
San Diego. Reuter.
KVEÐJA og hvatningarorð frá
Ronald Reagan og rafmögnuð
ræða Colins Powells voru stóru
stundirnar á fyrsta degi flokks-
þings Repúblikanaflokksins, sem
haldið er í San Diego í Bandaríkj-
unum. Föðurlandást var sú tilfinn-
ing, sem virtist einkenna samko-
muna í fyrradag, og Bob Dole von-
ast til að geta hleypt nýju lífi í
kosningabaráttuna með því að
sýna, að flokkurinn standi heill og
óskiptur að baki honum. Verður
áherslan út á við á umburðarlyndi
þótt stefnuskrá flokksins, sem
samþykkt var í fyrradag, gefi
mörgum dálítið aðra mynd af hon-
um.
Margir grétu þegar Reagan bar
flokksþinginu kveðju sína á mynd-
bandi en hann er illa haldinn af
Alzheimerssjúkdómnum. Flutti
Nancy, eiginkona hans, ræðu þar
sem hún sagði frá baráttunni við
þennan erfiða sjúkdóm og sagði,
að hver nýr dagur væri eins og
óendanlega löng kveðjustund.
Sagði hún, að þrátt fyrir það hefði
maður sinn ekki tapað sinni léttu
lund og væri trúr hugsjónum sínum
og flokksins.
Colin Powell hershöfðingi og
fyrsti blökkumaðurinn, sem verið
hefur yfirmaður bandaríska her-
ráðsins, tók því næst til máls en
varð oft að gera hlé á ræðu sinni
vegna fagnaðarláta áheyrenda.
Var ræða hans einn óður til hinna
amerísku lífsgilda, iðjusemi,
drengskapar og réttlætis, sem
hann kvað hafa lyft sér upp úr
fátækrahverfum New York til
æðstu metorða í hernum.
Ekki afhuga opinberu embætti
Powell vék ekki að stefnuskrá
flokksins, sem hafði verið sam-
þykkt nokkrum klukkustundum
áður, en lagði áherslu á, að hann
styddi rétt kvenna til að ákveða
fóstureyðingu og aðgerðir til að
ívilna minnihlutahópum og konum.
„Repúblikanaflokkurinn verður að
vera öllum opinn,“ sagði hann.
Powell, sem hugsanlega hefði
getað orðið forsetaframbjóðandi
Repúblikanaflokksins, hefði hann
viljað, sagði i viðtali við bandaríska
fréttastofur í gær, að hann útilok-
aði ekki, að hann tæki aftur við
opinberu embætti. Kvaðst hann
viss um, að Dole yrði næsti forseti
Bandaríkjanna og ef hann leitaði
til hans, myndi hann taka það til
athugunar.
Dole útnefndur í dag
Flokksþing repúblikana er
skipulagt út í ystu æsar með sjón-
varpið í huga. Ræður eiga að vera
stuttar og kraftmiklar og inn á
milli eru sýndar myndir af vand-
lega völdu „venjulegu fólki“, sem
segir frá lífi sínu og draumum.
Meginstefið er eins og áður segir
umburðarlyndi hvað sem líður
stefnuskránni. Á það lagði Gerald
Ford, fyrrverandi forseti, áherslu
í ræðu sinni en George Bush, sem
tapaði fyrir Bill Clinton í kosning-
unum 1992, sagði, að vegur for-
setaembættisins hefði minnkað
Reuter
COLIN Powell í ræðustóli á flokksþinginu í fyrradag. Varð hann oft að gera hlé á máli
sínu vegna mikils lófataks þingfulltrúa sem þótti ræða hans rafmögnuð.
NANCY Reagan á flokksþinginu. Margir grétu þegar hún sagði
frá baráttu manns síns við Alzheimerssjúkdóminn.
mikið á síðustu árum og Dole einn
gæti aukið hann á ný.
Bob Dole kemur ekki á flokks-
þingið fyrr en í dag þegar hann
verður formlega útnefndur forseta-
frambjóðandi flokksins en kona
hans, Elizabeth, situr það allt.
Fyrsta verkið, sem beið þingfull-
trúa í fyrradag, var að samþykkja
stefnuskrá flokksins, sem einkenn-
ist fremur af afturhaldssemi en
umburðarlyndi og er í mörgum
greinum þvert á skoðanir Doles
og varaforsetaefnis hans, Jack
Kemps. Meðal annars er hvatt til,
að fóstureyðingar verði bannaðar
skilyrðislaust en Dole vill gera
undantekningu á þegar um líf eða
dauða konu er að tefla og þegar
nauðgun eða sifjaspell koma við
sögu.
Fréttaskýrendur segja, að skipu-
leggjendur flokksþingsins voni, að
stefnuskráin hafi fallið í skuggann
fyrir ræðu Powells og Nancy Reag-
ans. „Uppsetning á þinginu er
þessi: Afturhaldssöm stefnuskrá
og umburðarlyndir ræðumenn,"
sagði Allan Lichtman, stjórnmála-
fræðingur við American-háskól-
ann.
Friðsamar göng-
ur vekja upp
vonir um frið
Bellaghy. Reuter, The Daily Telegraph.
NORÐUR-írskir mótmælendur
gengu um götur í þrjá daga og
kaþólikkar efndu til fjöldasam-
komna um helgina án þess að til
átaka kæmi. Göngur félaga í
Óraníureglunni byggjast á göml-
um hefðum og eru tákn um sigur
mótmælenda á kaþólikkum í átök-
um fyrr á öldum. Til uppþota kom
í síðasta mánuði í bænum
Drumcree vegna gangna Óraníu-
manna og töluverð spenna ríkti
því er göngurnar áttu að hefjast
á ný.
Kaþólikkar í bænum Bellaghy
mótmæltu harðlega áformum um
göngu í bænum án samþykkis
þeirra en 85% íbúa eru kaþólskrar
trúar. Sögðust kaþólikkar hafa
fengið nóg af „trúalegri kúgun“
en mótmælendur sögðust hafa
„sögulegan rétt“ til að ganga um
götur.
Þegar upp var staðið og gangan
hófst á mánudag fór allt hins veg-
ar friðsamlega fram. Óeirðarlög-
regla hafði haft mikinn viðbúnað
allt frá því á sunnudag en á síð-
ustu stundu náðist málamiðlun er
kom í veg fyrir átök. Prestar og
lögreglumenn höfðu gengið á milli
hópanna með tillögur um lausn á
deilunni. Klukkan níu á mánu-
dagsmorgun lá fyrir samkomulag
um að mótmælendur myndu ein-
ungis ganga hluta hinnar hefð-
bundnu leiðar.
Hvorugir ánægðir
Hvorki kaþólikkar né mótmæl-
endur voru ánægðir með niður-
stöðuna en að mati margra er hún
góðs vísir varðandi þróunina á
Norður-írlandi. „Þetta var sögu-
legur viðburður,“ sagði Conor Fol-
ey, frá Solidar, samtökum evr-
ópskra hjálparstofnana, er fylgdist
með atburðum helgarinnar.
„Nefndir á vegum íbúanna sjálfra
voru reiðubúnar til samninga. Til
þess hefur hnefarétturinn frekar
verið látinn ráða.“
Paul Smith sem átti aðild að
samninganefnd mótmælenda
sagði: „Þetta er sigur hinnar al-
mennu skynsemi“.
□FNAR:
HELLUBORÐ:
16 geröir, með háhitahellum
eða hinum byltingarkenndu,
nýju Spansuðuhellum, sem
nota segulorku til eldunar.
Ný frábær hönnun á ótrúlega góðu verði.
Blomberri
Hefur réttu lausnina fyrir þig!
Einar Farestveit & Go. hf.
Borgartúni 28-S!mi 562 2901 og 562 2900
15 gerðir í hvítu, svörtu,
stáli eða spegilálferð, fjölkerfa
eða Al-kerfa með Pyrolyse
eða Katalyse hreinsikerfum.
Toppuninn
í eldunartækjum
Blomberci