Morgunblaðið - 14.08.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.08.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR AÐSENDAR GREIIMAR Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir LISTAKONURNAR tólf; f.v.: Valgerður Sigurðardóttir, Jóna Júlíusdóttir, Guðbjörg Alda Sigurðardótt- ir, Hólmfríður Kristmannsdóttir, Jóna Gunnarsdóttir, Edda Guðmunsdóttir, Aðalheiður Steingrímsdótt- ir, Sigríður Róbertsdóttir, Þorgerður Karlsdóttir, Drífa Jónsdóttir, Marie Robin og Kristín Halldórsdóttir. Myndlistarsýning á Vopnafirði Vopnafirði. Morgunblaðið. ÁHUGAHÓPUR 12 kvenna um myndlist á Vopnafirði hélt myndlist- arsýningu í íþróttahúsinu á Vopna- firði nýlega. Hópurinn hefur komið saman undanfarin 3 ár og iðkað list sína. Á sýningunni voru 222 mynd- verk. Yngsti listamaðurinn, 16 ára að aldri, seldi öll verkin sín 10 að tölu. Sýningin var mjög vel sótt en á sýninguna komu um 600 gestir. Flest verkanna voru unnin með vatnslitum, pastel, olíu, akríl og blýanti. Konurnar hafa fengið lista- menn til að koma á svæðið og leið- beina þeim tíma og tíma, greinilega með góðum árangri. Þær sögðust þó eiga margt eftir ólært, þær væru aðeins að byrja og myndu halda ótrauðar áfram í listsköpun sinni. Lífið er keila KVIKMYNPIR RTóhöllin. Bíóborg- in, Sagabíó, Nýja bíó Ke Í1 a ví k TVEIR SKRÝTNIR OG EINN VERRI „KINGPIN“ ★ ★Vi Leikstjórar: Peter og Bobby Farrelly. Handrit: Fanaro og Mort Nathan. Aðalhlutverk: Woody Harrelson, Randy Quaid, Vanessa Angel og Bill Murray. Rysher Entertainment. 1996. ÞESSI önnur gamanmynd Farr- ellybræða er ekki á nándar nærri því eins lágu plani og fyrsta mynd þeirra, Heimskur heimskari, þar sem kúk- og pissbrandarar óðu uppi. Það er meira að segja sæmilegur söguþráð- ur í Tveimur skrýtnum og einum verri um þá sem verða einhvern veg- inn alltaf undir í lífinu. Hún er um ungan mann sem gæddur er einstök- um hæfileikum í keilu og stefnir á heimsfrægð en glatar öllu saman eftir ein mistök og í stað hinnar dýrmætu keiluhandar kemur stál- krókur. Sautján árum seinna finnur hann gott efni í treggáfuðum Amis- hmanni og saman stefna þeir á miilj- ón dollara keilukeppni í Reno. Svo- sem engin meistarasmíð þetta en dugir í skemmtilega vegamynd með Woody Harrelson í hlutverki kapteins Króks og það sem er enn betra, Randy Quaid í hlutverki undrabarns- ins úr Amishhéruðunum. Enginn er hressilegri ferðafélagi í vegamynd en Quaid eins og þeir vita sem muna eftjr „The Last Detail“. I Tveimur skrýtnum og einum verri er nóg af góðum bröndurum til að endast út myndina og gera hana að prýðisgóðri skemmtun. Þetta er hrein- ræktuð gamanmynd án allra fínstill- inga eða smekklegheita. Reyndar er smekkleysa höfuðeinkenni Farelly- bræðranna - þeir eru engir Coen- bræður - og kemur hún berlega fram þegar þeir lýsa lággróðri mannlífsins. Klæðaburður og hárgreiðsla aðalper- sónanna, séramerísku köflóttu og röndóttu buxumar og skyrturnar og óborganlegar skallagreiðslumar, em með eindæmum hallærislegar í með- förum þeirra. Hárgreiðsla Bill Murra- ys ein er bíómiðans virði. Aðferð bræðranna er að vaða áfram beint af augum og oftar en ekki hitta þeir naglann á höfðuðið. Heimskuhúm- orinn úr Heimskur heimskari er nokk- uð áberandi en hér er kannski meira í hann spunnið. Þeir geta gert ákaf- lega fyndið kynlífsatriði sem er eins og samkmll úr „The Graduate" og „Bad Boy Bubby“ og atriðin hjá Amishbændunum em yfirleitt mjög góð og eiga vel við. En einstaka sinn- um fara þeir yfír strikið út í einhvem absúrdhúmor sem virkar algerlega óþarfur í þessu samhengi. I leiðinni tekst þeim að búa til skemmtilegt ferðalag og spennandi lokakeppni í keilu þar sem Murray er senuþjófurinn. Gott Ieikaralið á ekki hvað sístan þátt í því að gera myndina að ákjósanlegri skemmtun. Harrelson með sína skallagreiðslu og skelfilega fatasmekk lítur einmitt út eins og maður sem lífið hefur sett í gjaldþrot. Það er sífellt verið að hamra á því í myndinni okkur til gamans og Harrelson finnur sig vel í þeirri rullu að vera sár og svekktur og svikinn. Quaid gerir marga góða hluti sem hinn heimski og lítt verald- arvani sértrúarmaður tómur eins og keila í framan. Vanessa Angel er ný leikkona sem slæst í för með þeim og Murray slær allt út með ótrúleg- um stælum í lokakeppninni. Arnaldur Indriðason Kraftlitlir kuklarar Af skáld- konum Islands I OPNU húsi í Norræna húsinu á fimmtudaginn kl. 20 verður dag- skrá í Norræna húsinu í umsjá Þóreyjar Sigþórsdóttur leikkonu, þar sem kynntur verður skáldskap- ur eftir ungar íslenskar skáldkon- ur. Þetta er þriðja uppfærsla Þó- reyjar á þessari dagskrá í Norræna húsinu þetta sumarið, en alls verða þær fjórar. Seinasta uppfærslan er 22. ágúst. Dagskráin hefst með einleiknum „Skilaboð til Dimmu“ eftir Elísa- betu Jökulsdóttur í þýðingu Ylvu Hellerud. Einleikurinn verður flutt- ur á sænsku. Einnig verða flutt ljóð eftir El- ísabetu Jökulsdóttur, Gerði Kristnýju, Kristínu Ómarsdóttur, Lindu Vilhjálmsdóttur. Ylva Hell- erud þýddi. Dagskráin verður flutt á ís- lensku og sænsku. Allir eru vel- komnir og aðgangur ókeypis. KVIKMYNPIR Stjörn ubíó NORNAKLÍKAN („The Craft") ★ Leikstjóri Andrew Fleming. Hand- ritshöfundar Peter Falardi, Andrew Fleming. Kvikmyndatökusljóri Alexander Gruszynski. Tónlist Gra- eme Revell. Aðalleikendur Robin Tunney, Nancy Fairuza, Rachel True, Neve Campbell. Bandarísk. Columbia 1996. GLANSPÍURNAR fjórar sem fara með aðalhlutverkin í Nomaklíkunni eru ekki pastursmiklar, minna frekar á poppstjömur á tónlistarmyndbandi á MTV en eitthvað nomakyns. Það er þó enginn að biðja um vörtur á nefin, barðamikla hatta, kústsköft eða kartneglur heldur örlítinn trú- verðugleika svo áhorfandinn komist í einhvern takt við myndina. En því er ekki að fagna. Ekki svo að skilja að allt sé það leikkonunum að kenna, þær eru ekki stóri gallinn við mynd- ina heldur handritið og leikstjómin. Nornaklíkan hefst er ung stúlka, Sara (Robin Tunney), flyst til Los Angeles og er uppgötvuð á fyrsta skóladegi af „nornaklíkunni" („The Bitches of Eastwich") sem hinn bráð- nauðsynlegi fjórði meðlimur hennar. Sara reynist búin yfirnáttúrlegum hæfileikum og hefja nú stöllurnar særingar og kukl, einkum til að ná sér niðri á fjandsamlegu umhverfi. En allt fer úr böndunum. Söguþráðurinn er einkar ómerki- legur og kastað til höndunum við handritsgerðina. Reynt er að byggja upp einhveija dramatík með því að gera Söru manneskjulegri en aðra meðlimi klíkunnar en ekki gengur það upp heldur vafra þær á milli þess að vera vinir og óvinir, særing- arnar eru ómarkvissar og tilgangur- inn loðinn. Leikstjórinn treystir um of á brellumeistarana sem sýna fátt nýtt. Þá ofnotar hann hægagang í tökum, en sem flestir sómakærir menn hafa blessunarlega snúið bak- inu við slíku. Nokkur atriði eiga illa heima í heildarmyndinni, ein stúlknanna, sem allar stunda nám við skóla sem greinilega er ætlaður afkvæmum auðkýfinga, býr í niðurníddum hús- vagni ásamt ámóta fyrirgengilegri móður og stjúpa. Svo mætti lengi telja. Poppið dunar látlaust, ef eitt- hvað heldur Nornaklíkuni saman, er það hún. Undarlegt. Sæbjörn Valdimarsson Halló Akureyri menningarbær Það eru um 57 ár frá því að ég kom í fyrsta sinn til Akur- eyrar og er mér jafnan minnisstætt hve bær- inn verkaði vel á mig. Síðan hef ég marg- sinnis komið til Akur- eyrar, einkum á seinni árum og í hvert skipti glaðst yfir því hve Akureyri hefur vaxið ásmegin í kúltúr og aldrei hefur bærinn verið glæsilegiá en í sumar. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá, að mörg eldri hús hafa á glæsilegan hátt verið gerð upp og sum fengið nýtt hlutverk sem frá- bærir veitingastaðir. Reyndar hafa allir kaupstaðir og kauptún lands- ins tekið stakkaskiptum á síðustu áratugum og á malbikun og vax- andi skógrækt sinn mikla þátt í því. Það, sem kemur mér til að skrifa núna, er að þakka bæjarstjórn Akureyrar þá framsýni og mann- dóm, að vilja stuðla að því, að ung- dómur íslands geti komið saman í hjarta bæjarins á sem menningar- legastan hátt og án aðgöngugjalds. Átta barnabörn Á verslunarmannahelgum halda engin bönd ungu fólki til þess að geta hist og verið frjálst i sínum hópi, sem er eðlilegt og venjulega skemmtilegt. Eg var á Akureyri föstudags- kvöldið fyrir hina rómuðu helgi og aftur sunnudaginn eftir. Átta af fjórtán barnabörnum mínum á aldr- inum 15-21 árs voru þar í góðum fagnaði og léku lausum hala án þess að þurfa að þola dónaskap eða annað verra að heitið gat. Auðvitað sáu þau unglioga, sem ekki kunnu að fara menningarlega með áfengi. Eitt barnabarna minna, Ólafur Egill og unnusta hans Esther Talía Casey, höfðu tekið að sér ásamt nokkrum jafnöldrum, að færa upp götuleikrit á Ráðhústorginu, urðu því miður fyrir aðkasti og barsmíð- um meðan á sýningu þeirra stóð. Það var fullorðið fólk sem sýndi af sér þennan ruddaskap; vafalaust aðkomufólk, sem hvorki kann mannasiði né stígur í vitið. Slíkt hefði ekki átt að geta átt sér stað. Engin lögregla var til eftirlits. Dýrmæt reynsla Ein af ástæðunum fyrir þeim leið- inda atvikum, sem áttu sér stað, var hve lögreglan var fáliðuð. Ég sá engan lögregluþjón, sem ég gat tekið tali. Vegfarendur sögðu mér að það væru aðeins 4 lögreglumenn á vakt og það gat engan veginn dugað til að halda röð og reglu á tíu þúsund gestum, mest megnis mismunandi góðglaðir unglingar. Það var ógeðslegt og ólíkt Akur- eyringum að horfa upp á ungmenni óátalið brjóta flöskur með því að slengja þeim í götuna. Það ætti að leggja þungar sektir við slíku at- þess, að ég held að þeim sé annara um uppeldi barna sinna en flestum öðrum og er það ómetanleg arfleifð, sem á rætur sínar í dönskum kúltúr einnar mestu menningarþjóð- ar heims. Akureyri státar af næstelsta menntaskóla landsins og er háskólabær, en það gefur bænum auk- ið gildi sem uppeldi- smiðstöð. Aðstaða til að halda slíka skemmtun og Halló Akureyri, er líka betri en flestir aðrir staðir á landi hér. Vegna þéttbýlis- ins þar er minni hætta en ella á drykkjulátum og nauðgunum. Því þar ætti með fjölmennu gæsluliði að vera auðveldari varðstaða t.d. ef einhver úrhrök í karlmannsmynd sjást teyma drukkna stúlku í illum tilgangi. Agaleysi íslensku þjóðar- innar á sinn þátt í hömluleysi margra ungmenna m.a. vegna þess að unglingum er ekki kennt að umgangast vín með viðeigandi virð- ingu og án yfirborðsmennsku. Á mínu heimili skáluðum við og böm okkar fyrir nýju ári, þegar þau voru á 14. ári, svo dæmi sé nefnt. Um þær mundir átti ég sæti í Barnaverndarráði íslands. Af ýmsum tilefnum hef ég í blaðagreinum bent á hve mikill aflvaki kúltúrs áfengi er meðal vestrænna þjóða og harma þá fírru, sem hefur gripið suma ábyrgustu Mér þykir, segir Gunn- laugur Þórðarson, framtak Akureyringa lofsvert. menn, að leyfa sér að kalla áfengi fíkniefni eins og væri það kókaín eða annað verra eiturlyf. Slíkt er eingöngu til þess fallið að rugla fólk og ekki síst ungmenni. Áfengi blífur Meðal margra heimsfrægra vís- indamanna, sem ég hef vitnað til í skrifum mínum, var dr. Morris E. Chafetz, sem er höfundur margra merkra bóka um áfengis- mál t.d. „Liquor the servant of man“ 1966 og „Why drinking can be good to you“, 1976. Það er illt að bækur þessar hafa ekki verið þýddar á íslensku. Prófessor Cha- fetz leggur t.d. áherslu á að vín er mannasættir, ef vel er með það farið. Ekki verður litið fram hjá þeirri staðreynd, að áfengi verður ekki útrýmt úr þjóðfélögum vestrænnar menningar og því er höfuðnauðsyn að kunna að fara með það á mann- sæmandi hátt. Varhugavert fjölmiðlafólk Gunnlaugur Þórðarson. hæfí. Greinilegt var að hrapalleg mistök höfðu átt sér stað með snyrt- iaðstöðu, en þó ekki líkt því og á hinni frægu Þingvallaþjóðhátíð. Af þessu sést sést að þessi fyrsta menn- ingartilraun fór ekki sem skyldi, en þeir sem stóðu í þessu framtaki hafa fengið dýrmæta reynslu. Vegna fámennis lögreglunnar, dettur mér í hug að Akureyringar væru ekki í vandræðum með að leysa þann vanda t.d. með því að komið yrði upp hópi ungra kvenna og karla sem borgarvörðum við fjölmennum útihátíðum, eins og lög standa til. Lofsverð framsýni Hysterian í mörgu fjölmiðlafólki, eins og hún hefur birst í sambandi við Akureyrarhátíðina er slík að eitt helsta atriðið sé að geta svert unga fólkið sem mest með því birta í fjölmiðlum sem flestar myndir af þeim tiltölulega fáu skítbuxum og vanmetagemsum sem koma óorði á áfengi og í framhaldi af því orð- ið til þess að svona ágætt framtak eins og Halló Akureyri verði ekki haldið oftar. Hvílík vinnubrögð. Manni dettur í hug, að flest þessa fjölmiðlafólks hafi gleymt því hvernig það var sjálft á sama aldri og unglingarnir á Akureyri, sem fóru yfir strikið. Mér þykir þetta framtak Akur- eyringa lofsvert og ekki síst vegna Hðfundur er hæstaréttarlögmaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.