Morgunblaðið - 14.08.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996 35
ÍDAG
BRIDS
Umsjón GuAmundur l'áll
Arnarson
Eftir fyrsta slaginn getur
sagnhafii nánast teiknað
upp skiptinguna á öll um
höndum. En það er eitt að
vita hvernig spilin liggja,
og annað að finna leið að
tólf slögum.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ KG
¥ 2
♦ ÁG987543
+ Á5
Vestur Austur
♦ D106 ♦ 8542
¥ 876543 llllll ¥ -
♦ KD102 111111 ♦ -
♦ - ♦ KG10987632
Suður
♦ Á973
¥ ÁKDG109
♦ 6
♦ D4
Arnað heilla
60
ÁRA afmæli. í dag,
miðvikudaginn 14.
ágúst, er sextug Gunnhild-
ur Birna Þorsteinsdóttir.
Eiginmaður hennar er
Bergur Jónsson. Þau hjón-
in taka á móti gestum í
sumarbústað sínum í
Grímsnesi, laugardaginn
17. ágúst frá kl. 15.
Ljósmyndastofan Nærmynd
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 1. júní í Lágafells-
kirkju af sr. Valgeiri Ástr-
áðssyni Eyrún Baldvins-
dóttir og Stefán Jóhanns-
son. Heimili þeirra er í Oð-
insvéum.
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 5 lauf 5 hjörtu
Dobl 6 tíglar Pass 6 hjörtu
Dobl Pass Pass Pass
Útspil: Tígulkóngur.
Þegar austur hendir laufi
í tígulásinn, liggur ljóst fyr-
ir að hann er svartur frá
hvirfli til ylja. Sennilega er
hann með 4-9 í svötu litun-
um, því vestur hefði komið
út með lauf ef hann ætti
það til. Suður getur því spil-
að sem á opnu borði. En
hvernig?
Hann byrjar á því að taka
sex slagi á hjarta og gætir
þess að losa sig við laufás-
inn í borði í eitt trompið!
Síðan svínar hann spaða-
gosa, tekur spaðakóng og
spilar laufi í þessari stöðu:
Norður
♦ -
¥ -
♦ G98
♦ 5
Vestur Austur
♦ 10 ♦ 85
¥ - llll * -
♦ D102 11 1111 ♦ -
♦ - ♦ KG
Suður
♦ Á9
¥ -
♦
♦ D4
Vestur reynir að villa um
fyrir sagnhafa með því að
henda spaðadrottningu und-
ir kónginn og austur fylgir
því eftir með því að spila
spaða þegar hann er inni á
laufkóng. En sagnhafi lætur
ekki taka sig á svo einföldu
bragði, heldur stingur upp
ásnum og fellir tíuna.
SKAK
Umsjón Margeir
Pítursson
HVITUR leikur
og vinnur
SKÁK hafin með 1. b4 sást
oft á mótum í kringum 1970,
en nú sést leikurinn sífellt
sjaldnar. Þessi skák, sem
tveir Tékkar tefldu á opnu
móti í Tumov í Tékklandi í
sumar, gæti þó orðið til að
endurvekja áhuga einhverra:
Hvitt: Marek Vokac
(2.470), svart: Petr Bazant
(2.295)
1. b4 - d5 2. Bb2 - Rd7
3. Rf3 - Rgf6 4. e3 - g6
5. c4 - dxc4 6. Bxc4 - Bg7??
7. Bxf7+! og svartur gafst
upp. Hann tapar drottning-
unni eða verður mát eftir
7. - Kxf7 8. Rg5+
Ljósm. Harpa, Ljósm.stofu Þóris
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júní í Vídalíns-
kirkju af Ásmundi Magnús-
syni Ingibjörg María Hall-
dórsdóttir og Ómar Línd-
al Marteinsson. Heimili
þeirra verður í Uppsölum,
Svíþjóð.
Ljósrayndastofan Nærmynd
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 6. apríl sl. í Garða-
kirkju af sr. Braga Friðriks-
syni Ásthildur Magnús-
dóttir og Jóhannes Stef-
ánsson. Heimili þeirra er á
Kaplaskjólsvegi 89, Reykja-
vík.
Ljósmyndastofan Nærraynd
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 13. apríl sl. í Landa-
kotskirkju af sr. Patrick
Breen Guðrún Mary Ólafs-
dóttir og Leifur Grímsson.
Heimili þeirra er á Klappar-
stíg 1, Reykjavík.
I^ósmyndastofan Nærmynd
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júní í Víðistaða-
kirkju af sr. Pálma Matthí-
assyni Helena Björk
Magnúsdóttir og Jason
Kristinn Ólafsson. Þau em
búsett erlendis.
Ljósmyndastofan Nærmynd
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 25. maí sl. í Fríkirkj-
unni í Reykjavík af sr. Ægi
Sigurgeirssyni Anna María
Skúladóttir og Hálfdán
Þorsteinsson. Heimili
þeirra er í Lækjarhvammi
20.
STJÖRNUSPA
cftir Franccs Drakc
LJON
Afmælisbarn dagsins:
Metnaður er þér í
blóð borinn, og ekki
skortirþig dugnaðinn.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Góð samskipti við aðra veita
þér tækifæri til að bæta stöðu
þína. Þú þarft að koma til
móts við óskir ástvinar í kvöld.
Naut
(20. april - 20. mai)
Það er engu að treysta í við-
skiptum nema eigin hyggju-
viti. Varastu tilhneigingu til
að eyða of miklu í óþarfa við
innkaupin.
Tvíburar
(21. maí- 20. júní)
Starfsfélagi er óvenju hör-
undsár í dag, og þú þarft á
þolinmæði að halda til að
geta lokið áríðandi verkefni
í vinnunni.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí)
Með góðri samvinnu á vinnu-
stað kemur þú miklu í verk,
og í kvöld kanna ástvinir
möguleika á að skreppa í
ferðalag fljótlega.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft tíma útaf fyrir þig
í dag til að íhuga einkamál-
in. Láttu það ekki valda deil-
um þótt vinur sé afundinn í
kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú hefur unnið vel að undan-
förnu, og þér er óhætt að
slaka örlítið á í dag. Láttu
ekki smámál valda deilum
heima í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú þarft að sýna sérstaka
lipurð í samningum um við-
skipti í dag ef þú ætlar að
ná árangri. Þér verður trúað
fyrir leyndarmáli.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^§0
Þú ert eitthvað eirðarlaus
fyrri hluta dags, en félagi
er með hugmynd, sem vekur
áhuga þinn. Ástin blómstrar
í kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Taktu ekki mark á öllu, sem
þér er sagt í dag, því einhver
er nokkuð ýkinn. Þér býðst
tækifæri til að skreppa í
ferðalag.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Þér verður boðið til mann-
fagnaðar tengdum vinnunni,
en fyrst þarft þú að sinna
ættingja, sem þarfnast um-
hyggju. Kvöldið verður ró-
legt.
Vatnsberi
(20. janúar- 18. febrúar) í&L
Þú ert eitthvað eirðarlaus og
þarft að reyna að einbeita
þér að því sem gera þarf.
Svo slakar þú á í kvöld með
ástvini.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Varastu tilhneigingu til
óhóflegrar gagnrýni í garð
þinna nánustu. Vingjarnleg
orð skila betri árangri.
Hvildu þig í kvöld.
Hudosilkynning í Lyfju
í dag miðvikud. 14/8 kl. 16—20
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hlíiosif' húðvörurnar
tryggja húðinni
sigur
GLÆSIMEYJAN ER FLUTT
Nýjir eigendur
íslenskir Artimes velúr gallar - sloppar - buxur - pils
30% afsláttur af öllum fatnaði.
'lœsimepiM - í leiðinni
Glæsibæ ^Sími 553 3305 Sendum í póstkröfu
Ath. við hliðina á Holts Apótek
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur
húsbréfa í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
19. útdráttur
16. útdráttur
15. útdráttur
14. útdráttur
10. útdráttur
8. útdráttur
■ 7. útdráttur
4. útdráttur
■ 1. útdráttur
■ 1. útdráttur
- 1. útdráttur
LEIÐRÉTTING
Innlausnardagur er 15. október en ekki 15. ágúst
eins og misritaðist í fyrri auglýsingu.
Upplýsingar um útdregin húsbréf
liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
f I HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • Slttl 56? 6900