Morgunblaðið - 17.08.1996, Side 4
4 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
_________________________________FRÉTTIR
Mánaðartekjur landverkafólks í ASÍ á 1. ársfjórðungi
Kaupmáttur hefur
aukist um 4,7%
GREITT tímakaup Iandverkafólks
innan ASÍ hækkaði um 6,4% frá
fyrsta ársfjórðungi 1995 til fyrsta
ársfjórðungs 1996 en á þessu
tímabili var gengið frá nýjum
kjarasamningum á vinnumarkaði.
Neysluverðsvísitala hækkaði um
1,9% á sama tímabili, þannig að
kaupmáttur greidds tímakaups í
dagvinnu jókst um 4,4%, að því
er kemur fram í launakönnun
Kjararannsóknarnefndar.
Mánaðartekjur landverkafólks í
LÖGREGLUNNI í Keflavík var
síðdegis á fimmtudag tilkynnt að
báturinn Haförn hefði fengið lík í
trollið, 1,8 sjómílur norður af
Garðsskaga. Báturinn kom með
líkið til Keflavíkur þar sem strax
var hafist handa við að reyna að
fullu starfi hækkuðu að meðaltali
um 6,9% á ofangreindu tímabili
og kaupmáttur mánaðartekna
jókst því að meðaltali um 4,7%.
Þetta er talsvert meiri hækkun en
á greiddu tímakaupi og stafar það
af því að vinnutími hefur lengst
að meðaltali um 0,6 stundir á viku.
Tímakaup afgreiðslukvenna
hækkaði mest
Samkvæmt úrtaki kjararann-
sóknarnefndar hækkaði greitt
bera á það kennsl. í gær var það
flutt til Reykjavíkur til krufningar.
Rannsóknin beinist að því hvort
um geti verið að ræða lík af Leif
Johan Carlsson, 26 ára gömlum
sænskum manni, sem féll útbyrðis
af Gylli fyrir rúmri viku.
tímakaup afgreiðslukvenna mest
frá 1. ársfjórðungi 1995 til 1. árs-
fjórðungs 1996 eða um 9,5%.
Tímakaup verkafólks og skrif-
stofukvenna hækkaði um 6,2-8,6%
og tímakaup afgreiðslu- og skrif-
stofukarla um 5,3 og 5,7%. Tíma-
kaup iðnaðarmanna hækkaði
minnst á tímabilinu, eða um 4,1%.
Launabreytingar meðal
ASÍ fólks 4-13%
Kjararannsóknarnefnd skoðaði
einnig sérstaklega launabreyting-
ar þeirra einstaklinga sem voru í
úrtaki nefndarinnar bæði á 1. árs-
fjórðungi 1995 og aftur 1996 til
að draga úr skekkjuáhrifum.' Þá
kom í ljós að launabreytingar
meðal ASI fólks voru á bilinu
4-13% en algengustu hækkanirnar
voru 5% og 8%. Algengasta hækk-
un meðal verkafólks var 8-9%,
8-10% meðal afgreiðslukvenna en
5% hjá skrifstofukonum.
Fékk lík í trollið
Lyklum að lög-
reglustöð stolið
BROTIST var inn í sýningarskáp
í Árbæjarsafni fyrir skömmu og
stolið þaðan munum, sem voru á
sýningu Lögreglufélags Reykja-
víkur, sem þar hefur staðið í sum-
ar.
Um er að ræða fimm pör af
handjárnum, fjögur erlend, bæði
gömul og nýleg, og ein sérsmíðuð
íslensk; þijá lykla að gömlu iög-
reglustöðinni í Vestmannaeyjum,
sem einnig eru íslensk sérsmíði;
bandaríska herlögreglufiautu með
festingu og tvær litlar lögreglu-
kylfur sem eru minjagripir, önnur
frá Nýja Sjáiandi og hin frá 50 ára
afmæli Lögreglufélags Reykjavík-
ur. Aliir þessir gripir eru í einka-
eign og voru lánaðir safninu til
sýningar.
Að auki var tekin lögregluflauta
af einkennisbúningi umferðarlög-
reglu, sem þarna er til sýnis.
Starfsfólk Arbæjarsafns og Lög-
regiufélag Reykjavíkur skora á
þann sem tók gripina að skila þeim.
Viðkomandi getur annaðhvort
póstsent hlutina á Árbæjarsafn eða
komið skiiaboðum til skrifstofu
safnsins um það hvar hlutirnir eru.
Framkvæmdir hafnar við aðkomu að nýbyggingum við Efstaleiti
Aðkoma gerð
að fjórum
stofmmum
Mörgunblaðið/Þorkell
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við aðkomu að
fyrirhuguðum nýbyggingum við Efstaieiti.
Breytt fyrirkomulag lóða við Efstaleiti
FRAMKVÆMDIR við aðkomu að
fyrirhuguðum nýbyggingum við
Efstaleiti 3, 5, 7 og 9 eru hafnar.
Kynning á breyttri afmörkun lóð-
anna stendur yfir í sýningarsal
Borgarskipulags og byggingar-
fulltrúa til 27. ágúst nk. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri,
segir ónauðsynlegt að bíða eftir
að kynningunni ljúki því ekki sé
um breytingu á deiliskipulagi að
ræða. Alltaf hafi verið gert ráð
fyrir stofnunum með aðkomu frá
Efstaleiti á lóðinni. Eina breyting-
in felist í því að ekki sé lengur
gert ráð fyrir nýbyggingum á veg-
um Ríkisútvarpsins. Athugasemd-
ir íbúa í nágrenninu voru lagðar
fram í borgarráði 9. júlí sl.
íbúarnir segjast hafa áhyggjur
af umferðarþunga í tengslum við
fyrirhugaðar nýbyggingar og óska
eftir að lóðirnar verði áfram úti-
vistarsvæði fyrir hverfið.
„I hugum íbúanna hafa fyrir-
hugaðar byggingarframkvæmdir
eingöngu miðast við hugsanlega
stækkun Utvarpshússins í norður
en aldrei að svæðið allt yrði lagt
undir byggingar fyrir atvinnu-
rekstur. Þá er starfsemi heilsu-
gæslustöðvar og annarra aðila
sem fengið hafa vilyrði fyrir lóð.um
á þessu svæði í engu samræmi við
þá starfsemi sem Ríkisútvarpið
rekur,“ segir í bréfi íbúanna.
Aætlanir um
umferðarþunga óbreyttar
Borgarráð vísaði bréfí íbúanna
til umsagnar borgarverkfræðings
og borgarskipulags. í umsögn hins
fyrrnefnda er tekið fram að um-
ferð verði álíka mikil að lóðunum
og gert hafi verið ráð fyrir í tengsl-
um við hugmyndir um nýbygging-
ar á vegum útvarpsins. Áætlað sé
að umferð um Efstaleiti, næst
Listabraut, aukist um 20% og
umferð á Listabraut austan Efsta-
leitis um 5%.
Um byggingaframkvæmdir
segir, að ljóst sé að nokkurt rask
verði á meðan á byggingafram-
kvæmdum standi og verði að sjá
til þess, að fyllsta öryggis sé gætt
á þeim tíma. Breytingin á nýtingu
lóðarinnar auki hættuna þó varla
svo nokkru nemi. Hins vegar sé
æskilegt að stuðla að því að fram-
kvæmdum ljúki sem fyrst á öllum
4 lóðunum.
í umsögn Borgarskipulags er
vísað í umsögn borgarverkfræð-
ings varðandi umferðarþunga.
Borgarráð hefur samþykkt um-
sagnirnar og telur ekki ástæðu til
að taka tillit til athugasemda íbú-
anna.
Einni lóð
óráðstafað
Ingibjörg Sólrún minnti á að.
ekki væri um breytingu á deili-
skipulagi að ræða. Deiliskipulag
gerði ráð fyrir stofnunum á lóð-
inni með aðkomu frá Efstaleiti.
Eina breytingin fælist í því að
útvarpið hefði ekki talið sig þurfa
á allri lóðinni að halda og því skil-
að hluta hennar við Listabraut
aftur til borgarinnar. Nú er gert
ráð fyrir að lóðinni sé skipt niður
í fjórar smærri byggingarlóðir.
Byggingarfulltrúi hefur þegar
staðið fyrir grenndarkynningu á
byggingu heilsugæslustöðvar á
horni Listabrautar og Efstaleitis.
Efstaleiti 3 hefur enn ekki verið
úthlutað. SÁÁ hefur verið úthlut-
uð lóðin Efstaleiti 7 og RKÍ lóðin
Efstaleiti 9. Á kynningu Borgar-
skipulags og byggingarfulltrúa á
breyttri afmörkun lóðanna er sýnd
tillaga sem hlaut fyrstu verðlaun
í samkeppni um skrifstofuhús
RKÍ. Nýju lóðirnar ná samtals
yfir 10.483 fm svæði og minnka
lóð útvarpshússins um 12.200 fm.
Byggingarnar verða allt að 4 hæða
háar.
Að sögn Ingibjargar er nýting
lóðarinnar hin sama og gert hafði
verið ráð fyrir. „Þarna er gert ráð
fyrir fjórum lóðum en byggingar-
magnið er ekki aukið frá því sem
gert var ráð fyrir á þeim uppdrátt-
um sem áður höfðu legið fyrir. Á
sínum tíma hafði verið reiknað
með talsvert mikilli uppbyggingu
þarna í þágu útvarpsins," sagði
hún og tók fram að þó svo ekki
væri verið að gera breytingar á
deiliskipulagi hefði hún farið fram
á að framkvæmdirnar yrðu kynnt-
ar svo almenningur gæti áttað sig
á hvernig svæðið kæmi til með að
líta út í framtíðinni.
Samningnr
um æðri
menntun
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur fengið heimild ríkisstjórnarinnar
til að undirrita Norðurlandasamn-
ing um aðgang að æðri menntun.
Að því er stefnt að samningur-
inn, er gildir í þijú ár, verði undir-
ritaður í Kaupmannahöfn 3.
september nk. og að hann komi
til framkvæmda 1. janúar nk.
Samningur þessi kemur í stað
fyrri samnings um sama efni er
gerður var til tveggja ára 1994.
Meginatriði samningsins er að
allir norrænir stúdentar hafi jafnan
aðgang að öllum háskólum á Norð-
urlöndum. í samningnum eru
ákvæði um greiðslukerfi sem Dan-
mörk, Finnland, Noregur og Sví-
þjóð munu taka upp sín á milli.
Samkvæmt þessu kerfi skulu þau
ríki er senda frá sér fleiri stúdenta
en þau taka á móti greiða ákveðið
gjald fyrir mismuninn. ísland verð-
ur undanþegið frá þessum ákvæð-
um.
Á gildistíma samningsins næstu
þijú ár verður metið hvort hags-
munum íslands af samningnum
yrði betur borgið með þátttöku
okkar í greiðslukerfinu.
----» ♦♦-----
Sigurður G.
Tómasson
endurráðinn
HEIMIR Steinsson útvarpsstjóri
tók í gær þá ákvörðun að Sigurður
G. Tómasson sem gegnt hefur
stöðu dagskrárstjóra Rásar 2, verði
endurráðinn til næstu fjögurra ára.
Meirihluti útvarpsráðs studdi ráðn-
ingu Lilju Á. Guðmundsdóttur í
starfið, en 13 sóttu um stöðuna.
Heimir kvaðst í samtali við
Morgunblaðið hafa tekið þessa
ákvörðun á grundvelli starfa Sig-
urðar seinustu fjögur ár, en þar
hafi hann staðið sig með sóma.
„Þarna voru að vísu margir góðir
kostir í boði, en enginn áberandi
betri en Sigurður, þannig að mér
þótti eðlilegast að framlengja hans
ráðningu um fjögur ár,“ segir I
Heimir.