Morgunblaðið - 17.08.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 15
ERLENT
Tveimur stúlkum bjargað
úr klóm baraaklámhrings
Ræningjarnir fundust eftir ábendingar athuguila borgara
Brussel. Reuter.
BELGÍSKA lögreglan fann seint í
fyrrakvöld tvær stúlkur sem verið
höfðu í klóm fólks sem talið er að
tilheyri samtökum er framleitt hafa
barnaklám. Annarri þeirra var rænt
í síðustu viku og hinni í lok maí.
Pjórtán ungum stúlkum og dreng
hefur verið rænt á undanförnum sex
árum. Fimm þeirra hafa fundist lát-
in en átta er enn saknað. Einungis
stúlkurnar tvær sem fundust í fyrra-
kvöld hafa skilað sér aftur á lífi.
Stúlkurnar tvær, Laetitia Delhez,
sem er 14 ára, og Sabina Dardenne
12 ára, fundust í leynilegri og hljóð-
einangraðri smákompu á bak við
fataskáp í raðhúsi skammt frá borg-
inni Charleroi í suðurhluta Belgíu.
Mikill fögnuður
Tveir karlmenn og kona voru
handtekin í húsinu og sögðu belgísk
blöð að mennirnir hefðu áður komist
í kast við lögin vegna barnakláms.
Tímaritið Economist fjallar um
norræna áfengisstefnu
Ahyggjur af
heilsufari og
ríkisfjármálum
BRESKA tímaritið The Econom-
ist gerir norræna áfengisneyslu
að umtalsefni í nýjasta hefti sínu.
Tímaritið segir evrópsku bind-
indishreyfinguna hafa unnið
stærsta sigur sinn á þessari öld
er áfengisbanni var komið á í
Finnlandi, Noregi og íslandi á
þriðja áratugnum. Svíar hafí
hafnað áfengisbanni í þjóðarat-
kvæðagreiðslu en tekið upp
skömmtunarkerfi á áfengi er
ekki var fellt úr gildi fyrr en á
sjötta áratugnum. Danir hafi
hins vegar haldið áfram að
drekka eins og ekkert hafi í skor-
ist%
Áfengisneyslan er enn mest í
Danmörku samkvæmt hagtölum
og Danir eru jafnframt eina
Norðurlandaþjóðin, sem ekki býr
við einkasölu ríkisins á áfengi
og háa áfengisskatta. Tímaritið
segir hins vegar að það kunni
að breytast á næstunni með að-
ild Svía og Finna að Evrópusam-
bandinu. Þessi ríki hafí þegar
neyðst til að gefa heildsölu
áfengis fijálsa og nú sé þrýst á
þau af öðrum aðildarríkjum að
taka upp svipað fyrirkomulag og
í Danmörku.
Vígin að falla?
Fyrsta vígið til að falla verða
líklega þau mörk sem eru á inn-
flutningi einstaklinga á áfengi
til einkaneyslu frá öðrum ESB-
ríkjum. Svíar og Finnar fengu
undanþágu frá evrópskum regl-
um hvað þetta atriði varðar en
hún fellur úr gildi um áramótin.
Viðræður um framhaldið hefjast
í haust.
Ýmsir aðrir þættir áfengis-
stefnunnar eru nú til umfjöllunar
hjá dómstólum. Mál sem höfðað
var í Svíþjóð þar sem einkasalan
er sökuð um að bijóta evrópskar
samkeppnisreglur verður að öll-
um líkindum tekið fyrir hjá Evr-
ópudómstólnum í Lúxemborg.
Kvótar á innflutning hafa einnig
verið kærðir í Svíþjóð.
Stjórnmálamenn í Svíþjóð og
Finnlandi beijast fyrir því að fá
að viðhalda ríkjandi áfengis-
stefnu og nýlega greindi Erik
Ásbrink, fjármálaráðherra Sví-
þjóðar, framkvæmdastjórninni
frá því að það væri nauðsynlegt
út frá heilbrigðissjónarmiðum.
Stefna Norðurlandanna væri
trúverðugri, segir Economist, ef
ljóst væri að takmarkanirnar á
Afengisneysla á mann í
nokkrum löndum
Evrópu árið 1994
Litrar af hreinu alkahóii
0 2 4 6 8 10 12
kland
áfengisneyslu þjónuðu sínum til-
gangi. Raunveruleikinn sé hins
vegar sá að framleiðsla á landa
sé útbreidd og miklu áfengi
smyglað til Norðurlandanna. Því
sé áfengisneysla Svía líklega
mun hærri en hinar opinberu
tölur gefi til kynna.
Einungis taki tuttugu mínútur
að fara með feiju yfir Danmerk-
ur þar sem áfengi sé fáanlegt á
lægra verði í almennum verslun-
um. Tollayfirvöld í Helsingborg
áætli að á hverri klukkustund
sé smyglað inn 15 þúsund flösk-
um af dönskum bjór til Svíþjóðar
í tengslum við feijuferðir. Þetta
hefur leitt til þess að sala á
áfengi hefur dregist verulega
saman, ekki síst hjá útibúum
einkasölunnar í suðurhluta Sví-
þjóðar.
Á móti megi hins vegar nefna
að færri Svíar en Danir deyja
af völdum áfengistengdra lifrar-
sjúkdóma. Hlutfallið í Svíþjóð sé
0,6 á hveija hundrað þúsund
íbúa en í 1,4 í Danmörku.
Miklar tekjur
Áhyggjur Ásbrink af heilsu-
fari Svía kunni því ekki að vera
ástæðulausar. Tímaritið segir
hins vegar líklegt að sænski fjár-
málaráðherrann hafi jafnmiklar
áhyggjur af sænskum ríkisfjár-
málum. Tekjur af áfengisskött-
um hafi numið rúmlega 130
milljörðum íslenskra króna á síð-
asta ári, sem sé hið sæmilegasta
hlutfall af heildartekjum ríkis-
sjóðs. Að auki hagnist ríkið á
einkasölunni sjálfri. Breytt
stefna gæti því dregið verulega
úr tekjum hins opinbera.
Fögnuðu fjölmiðlar björgun stúlkn-
anna mjög.
Gífurlegri leit var hrundið af stað
um alla Belglu í síðustu viku er
Delhez hvarf í borginni Betrix í suð-
urhluta landsins. Var henni rænt er
hún gekk heim til sín frá sundlaug
en þar er spölkorn á milli.
Lögregla fann stúlkurnar eftir að
hafa notfært sér upplýsingar athug-
ulla borgara sem tekið höfðu eftir
bíl er mannræningjarnir notuðu.
Reuter
ÍBÚAR í borginni Kain í Belgíu brenna auglýsingaspjöld um
horfna stúlku, Sabine Dardenne, eftir að henni var bjargað úr
klóm ræningja seint í fyrrakvöld.
Kanaríveisla
20. október með
Sigurði Guðmundssyni
frá kr. 4T.632
Heímsferðir hefja nú aftur haustferðir sínar til Kanaríeyja þann 20. október
og er okkur ánægja að bjóða ótrúlega hagstæð tilboð í sólina þar sem þú
nýtur hins besta á Kanaríeyjum og flýgur þangað í beinu flugi Heimsferða.
Við kynnum nú glæsilega nýja gististaði og nú býður
Sigurður Guðmundsson Heimsferðafarþegum
spennandi dagskrá í sólinni, leikfimi og kvöldvökur
sem gera ferðina ógleymanlega.
Bókaðu strax - aðeins fyrstu 50 sætin á sértilboði, til 23. ágúst.
Fyrstu 50 sætin á
sértilboði, til 23.
ágúst
Vinsælasta hótelið - Corona Blanca
Verð kr.
47.632
A októbei^^^
Verð kr.
59.960
Brottför
20. október - 4, 5 vikur
19. nóvember - vika
26. nóvember - 3 vikur
Sigurður Guðmunds-
son býðurspennandi
dagskrá í vetur.
Fjöldasöngur
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17 • sími 562 46 00