Morgunblaðið - 17.08.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 33
FRÉTTIR
Jass
á Sólon
TRÍÓ Gunnlaugs Guðmundssonar
leikur í kvöld, laugardagskvöld, á
Café Sólon íslandus. Með honum
leika þeir Ólafur Jónsson, saxafón-
leikari og Eðvarð Lárusson, gítar-
leikari.
Tónleikarnir hefjast kl. 22.30.
------♦ ♦ ♦----
Vitni óskast
EKIÐ var á vínrauðan Opel Astra
skutbíl, ZA-610, á bílastæði við
Hamraborg 11 á bilinu 14.30-18
fimmtudaginn 15. ágúst. Vitni eru
beðin að hafa samband við Lögregl-
una í Kópavogi.
------♦ ♦ ♦----
■ JASSTÓNLEIKAR Jómfrúar-
inar verða í dag laugardag milli kl.
16 og l8. Tónlistarmenn dagsins eru
þeir Óskar Guðjónsson tenórsax,
Tómas R. Einarsson bassi, Matthí-
as Hemstock trommur. Gestur
þeirra er Kjartan Valdemrsson á
harmoníku.Tónleikarnir fara að
venju fram á Jómfrúartorginu bak
við Smubrauðsveitingahúsið
Jómfrúin.
■ AFMÆLISGANGA verður í
Grundarfirði á sunnudag í tilefni
af því að 210 ár eru liðin frá því
Grundarfjörður fékk kaupstaðarrétt-
indi. Staðurinn missti síðar þessi
réttindi er bæjarbúar ætla samt að
gera sér dagamun í tilefni afmælis-
ins. Lagt verður af stað kl. 13 frá
skrifstofu Eyrarhrepps og gengið á
Grundarkamb. Áætlað er að vera
þar klukkan 13.30. Þar verður geng-
ið um, rifjuð upp saga staðarins og
leiðar ummerkja hins forna Grundar-
fjarðarkaupstaðar. Síðan verður
gengið eða ekið til baka í kofabyggð-
ina í Kirkjufellsbæ þar sem verður
lokahóf um kl. 15.
AF LÚSUM
í HLÝJUNNI og veðurblíðunni
undanfarið hefur allur gróður
vaxið og dafnað einstaklega vel.
Plöntur sem venjulega blómstra
síðla sumars hafa aldeilis tekið
forskot á sæluna og skörtuðu
sínu fegursta snemma í júlí.
Gróska plantnanna hefur þó í för
með sér aðrar hliðar sem þykja
miður skemmtileg-
ar. Það er nefni-
lega svo að blaðlýs
una hag sínum sér-
staklega vel þessa
dagana. Þær hafa
náð að fjölga sér
frá því seint í apríl,
engin síðbúin vor-
frost hafa höggvið
skörð í frændgarð
þeirra og þær hafa
náð ansi mikilli út-
breiðslu.
Blaðlýs fjölga
sér með meyfæð-
ingum, þ.e.
mamman fæðir
litlar lifandi lýs án
þess að pabbinn
komi þar nokkurs staðar nærri.
Þegar mjög margar lýs búa orð-
ið á sama blettinum kemur að
því að sumar þeirra fá vængi og
fljúga að heiman í leit að öðrum
fábýili plöntum. Þar setjast þær
að, séu skilyrðin heppileg og taka
til við að fjölga lúsakyninu.
Uppáhaldsskilyrði lúsa eru
mjúkir og safaríkir plöntustöngl-
ar. Þá er helst að finna í ný-
vexti plantna og í kringum blóm-
knúppa. Þar raða iýsnar sér og
stinga rana sínum inn í gegnum
vefi plöntunnar, inn í æðarnar
sem flytja gómsætan plöntusaf-
ann til og frá í plöntunni. Blað-
lýsnar hreiðra einnig um sig á
neðra borði blaða. Þær hreyfa
sig ekki mikið úr stað á plönt-
unni. Eitt einkenni þess að lýs
hafa gert sig heimakomnar á
uppáhaldsplöntunum manns eru
litlar hvítar flyksur hér og þar á
plöntunni. Þetta eru hamirnir af
lúsunum en þegar þær stækka
og þroskast skipta
þær um ham. Annað
einkenni er það að
plantan virðist klístr-
uð og litlar svartar
flugur sækja í klístrið.
Þetta klístur er ekkert
annað en úrgangurinn
úr lúsunum.
Nú vill svo til að
ekki eru allar plöntur
lússæknar. Sumar eru
þannig úr garði gerðar
frá náttúrunnar hendi
að blaðlýs hreinlega
fúlsa við þeim. má þar
nefna sumarblóm eins
og tóbakshorn og pel-
argóníur, það heyrir
til undantekninga að
finna óþrif á þessum plöntum.
Aðrar plöntur eru hins vegar svo
lússæknar að það mætti í raun
kalla þær lúsablesa. í þeim hópi
eru m.a. skrautplöntur eins og
dahlíur, rósir og fúksíur og verð-
ur maður að hafa stöðugt eftirlit
með þeim allt sumarið til að lýsn-
ar nái ekki yfirhöndinni. Síðan
má einnig minnast á plöntur eins
og stjúpur. í venjulegu ári er
ekki mikið um það að lýs finnist
á stjúpum. Hættan á lúsafaraldri
á stjúpum eykst verulega ef þær
standa á hlýjum og skjólgóðum
stað og ef lús fer á annað borð
á stjúpur verða þær oft mjög iila
úti, lýsnar hreinlega mergsjúga
plönturnar. Nokkuð hefur borið
á því að lús sé á stjúpum í sum-
ar og verður fólk að vera á varð-
bergi gagnvart því.
Ymis ráð eru við þessum vá-
gesti. Eitt af vistvænni ráðunum
er að baða blöð lúsugra plantna
upp úr daufu grænsápuvatni
(100 g í 10 1 af vatni), það drep-
ur lýsnar. Sumir vilja skola lýsn-
ar af með kröftugri vatnsbunu
en það getur brotið stöngla við-
kvæmra plantna auk þess sem
árangurinn er takmarkaður.
Ýmsar eiturtegundir eru til gegn
lúsum og er ýmist hægt að kaupa
efnin óblönduð og blanda þau
sjálfur eða að hægt er að fá efn-
in blönduð og tilbúin á úðabrús-
um. Eiturefnin hafa yfirleitt svo-
kallaða snertiverkan þannig að
lyfið verður að koma við lúsina
til að það virki. Það þýðir því
ekkert að úða á plönturnar nema
maður sjái að það sé á þeim lús.
Slík eiturefni ber að umgangast
með virðingu og nota skal viðeig-
andi hlífðarbúnað þegar eitrað
er. Auðvitað er öruggast að fá
til sín faglærðan aðila til að ann-
ast eitrun en ef um lítið magn
af lúsum á fáum plöntum er að
ræða þá er einfaldast að gera
þetta sjálfur.
Gu.He.
BLOM
VIKUNNAR
339. þáttur
Umsjón Ágústa
B j ö r n s d ó 11 i r
ATVINNA ÍBOÐI
Reykjavík
Leikskólakennarar
Leikskólakennari eða starfsmaður með aðra
uppeldismenntun, óskast í leikskólann Vest-
urrás í 50% starf.
Vinnutími er frá kl. 12.30-16.30.
Vesturás er heilsdagsskóli og þar starfa
22 börn.
Líttu við eða hafðu samband í síma 568 8816
fyrir hádegi.
Leikskólinn Vesturás,
Kleppsvegi 62,
104 Reykjavík.
Einbýlishús
Einbýlishús á eignarlóð á Seltjarnarnesi til
sölu. Ræktuð lóð, heitur pottur. Hitalögn í
innkeyrslu.
Hús, bílskúr og geymsla ca 165 fm.
Upplýsingar í síma 562 9015.
Eldsmíði
Eldsmíðinámskeið fyrir byrjendur verður
haldið dagana 19.-23. ágúst.
Kennari: Thomas Nörgaard.
Upplýsingar í síma 568 4654.
AUGLYSINGAR
Stöðupróf
Stöðupróf í framhaldsskólum fara fram í
Menntaskólanum við Hamrahlíð dagana
20.-23. ágúst næstkomandi sem hér segir:
Enska og tölvufræði þriðjudag 20. ágúst.
Norska, sænska,
danska og þýska miðvikud. 21. ágúst.
Stærðfræði fimmtud. 22. ágúst.
Franska, ítalska og
spænska föstud. 23. ágúst.
Öll próf hefjast kl. 18.00.
Stöðuprófin eru opin öllum framhaldsskóla-
nemum sem orðið hafa sér úti um einhverja
þekkingu umfram grunnskóla.
Skráning ferfram á skrifstofu Menntaskólans
við Hamrahlíð í síma 568 5140 kl. 9.00-
12.00 og 13.00-16.00 til og með 19. ágúst.
Prófgjald er kr. 1.500 og greiðist á prófdegi.
Menntamálaráðuneytið,
13. ágúst 1996.
SmOauglýs
í sambandi við Menningarnótt í
Reykjavík verður útisamkoma á
Laekjartorgi kl. 01.00 og á Ing-
ólfstorgi kl. 02.00.
Bæn og lofgjörð í Herkastalan-
um kl. 02.30-04.00.
Sunnudagur kl. 20.00 Hjálpræð-
issamkoma. Allir velkomnir.
Dagsferð18. ágúst
kl. 9.00 Fjallasyrpan, 7. ferð,
Högnhöfði. (1.030 m.y.s). Ekið
upp úr Laugardal hjá Miðdal og
upp á Miðdalsfjall. Gengið á fjall-
ið og síðan niður í Brúnarskörð.
Verð kr. 2.200/2.400.
Ath.: Nytjaferð er frestað um
eina viku, 5. ferð, sveppir.
Netfang:
http://www.centrum.is/utivist
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÚRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Dagsferðir
Laugardaginn 17. ágúst
Kl. 09.00 Stóra-Björnsfell sunn-
an Þórisjökuls. Góð fjallganga.
Verð 2.300 kr.
Sunnudaginn 18. ágúst
Kl. 08.00 Þórsmörk-Langidal-
ur. Verð 2.700 kr. Stansað 3-4
tima í Mörkinni.
Kl. 08.00 Hveravellir, dagsferð.
Verð 2.700 kr. M.a. stansað í
Hvítárnesi.
Kl. 13.00 Jórutindur-Jórugil.
Skemmtileg ganga um fjölbreytt
svæði norðan Hengils.
Verð 1.200 kr., frítt fyrir börn
með fullorðnum.
Brottför frá BS(, austanmegin,
og Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.
HJÓNABANDS-
SKÓLINN
Sími: 562-9911
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtaldri eign verður háð á henni sjálfri sem
hér segir:
Öldugata 8, Seyðisfirði, þingl. eig. L. Haraldsson hf., gerðarbeiðandi
sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 23. ágúst 1996, kl. 15.00.
16. ágúst 1996.
Sýslumaðurínn, Seyðisfirði.
Blað allra landsmanna!
JMtarQttnÞIiifeÍto
-kjarni málsins!