Morgunblaðið - 30.08.1996, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.08.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1996 33 YNGVIMARINO GUNNARSSON + Yngvi Marinó Gunnarsson var fæddur í Kast- hvammi í Laxárdal 23. júní 1915. Hann lést 9. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Gunnar Trygg\'i Marteins- son frá Bjarnar- stöðum í Bárðardal, f. 25. maí 1878, d. 1925, og kona hans Þóra Gunnarsdótt- ir, f. 11. febrúar 1878, d. 11. mars 1957, sem einnig var ættuð úr Bárðardal. Systk- ini Yngva voru Gunnlaugur Tryggvi, f. 1908, ókv. bóndi í Kasthvammi. Kristbjörg Þóra, f. 1912, ógift bústýra í Kast- hvammi. Bergsteinn Loftur, f. 1918, giftur Aðalbjörgu Jónas- dóttur frá Þverá, f. 1928, bóndi í Kasthvammi og eiga þau 4 börn, og Petrína Kristín, f. 1922, gift Helga Björnssyni frá Ólafsvík. Áttu 3 börn og búsett í Garðabæ. Yngvi kvæntist 18. júlí 1964 Ástheiði Fjólu Guðmundsdóttur frá Akureyri, f. 27. júní 1940. Foreldrar hennar voru Valný Benediktsdóttir og Guðmundur Jóhannesson. Sonur hennar og fóstursonur Yngva: Aðalsteinn Dalmann, f. 1958, kvæntur Þór- dísi Másdóttur og á 3 börn. Dóttir hennar og kjördóttir Yngva: Inga Hildur, f. 28. febr- úar 1965. M. hennar Vignir Baldur Almarsson, hún á 3 börn. Börn Yngva og Ástheið- ar: Gunnar Jón, f. 20 júní 1965, kona hans er Sig- rún Gestsdóttir og eiga þau eina dótt- ur. Þóra Valný, f. 7. nóvember 1966, hún er búsett í Eng- landi og á enskan mann. Barnsmóðir Ingegerd Nyberg, síðar Ingegerd Fri- es, f. 12. október 1921 í Uppsala. Faðir Hinrik Ny- berg, prófessor við Uppsalaháskóla. Sonur þeirra Gunn- ar Hinrik Nyberg, f. 11 desember 1951. Kona hans er Agneta Nyberg og eiga þau 3 börn. Fósturforeldrar Yngva frá 11 ára aldri voru Jón Marteins- son á Bjarnarstöðum, f. 11. jan- úar 1867, d. 1961, og kona hans Vigdís Jónsdóttir, f. 30 apríl 1873, d. 1953. Börn þeirra og fóstursystkini Yngva. Jón, f. 1899, d. 1983, Þorsteinn, f. 1902, d. 1987, Marteinn, f. 1904, d. 1935. Kristín, f. 1908, giftist Jóni Tryggvasyni, bjuggu á Einbúa í Bárðardal og á Möðru- völlum í Eyjafirði, áttu 9 börn. Gústaf, f. 1910, d. 1968, kvænt- ur Jónínu Egilsdóttur, byggðu nýbýlið Rauðafell úr landi Bjarnarstaða, áttu 6 börn, og María og Þuríður, f. 1915. Einn- ig ólst upp á Bjarnarstöðum Hjördís Kristjánsdóttir, f. 1930, dótturdóttir Halldórs Marteins- sonar frá Bjarnarstöðum. Útför Yngva fór fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ 12. júlí. Nú er farinn hann frændi minn og frið og gleði um veginn sinn hann eigi á æðri leiðum. Æskunnar gleði, afl og þor aftur finni við hvert eitt spor og sólskin frá himni heiðum. Honum var ekki alltaf í geði glatt og gat stundum fundist lífið bratt en orti sig frá því aftur. Því náðargjöf honum gefin var að geta stuðlað í hendingar sem fylgdi kyngikraftur. Og þó að oft væri örðug leið ófæran ströng og virtist breið var alltaf þó áfram þokað. En bamanna umhyggja, ást og tryggð var uppskeran af hans mestu dyggð uns lífsbókinni var lokað. Útför Yngva var gerð frá Vída- línskirkju í Garðabæ. Séra Bragi Friðriksson jarðsöng. Við þá athöfn var sungið vígsluljóð Vidalínskirkju, en það orti Yngvi og það var sung- ið fyrst við vígslu kirkjunnar fyrir ári. Við útförina flutti séra Bragi einnig kveðju mína hér á undan. Að undangenginni bálför var hann síðan jarðsettur að Þverá í Laxárdal 15. júlí. Þangað fylgdu honum börnin hans og fjölskyldur þeirra, utan Hinrik, sem býr í Sví- þjóð. Ættingjar og vinir á Norður- landi komu þar saman og fylltu litlu kirkjuna. Kirkjukór Lundarbrekku- kirkju söng undir stjórn Dagnýjar Pétursdóttur. Séra Sigurður Ægis- son flutti minningarorð og bæn og las frásögn eftir Yngva sem ber heitið „Fermingarförin". Var það ferðasaga frá vorinu 1929 er hann ásamt þremur fermingarsystrum sínum fékk að fara frá Bjarnarstöð- um í Bárðardal til Húsavíkur. Eng- in stúlknanna hafði áður komið út úr sveitinni og Yngva fannst að eigin sögn hann vera hinn veraldar- vani maður. Auk unglinganna fóru hjónin á Bjarnarstöðum og sonur þeirra, sem ók nýjum vörubíl, en það var farkosturinn. Einfalt hús var á bílnum, en bekkir á palli. Ferðin tók tvo daga og hluti nætur fór í heimferðina. Allt var þetta mikið ævintýri. Að lokum var öllum kirkjugestum boðið að þiggja veitingar heima í Kasthvammi. Vorið 1925 veiktist Gunnar bóndi í Kasthvammi af lungnabólgu og andaðist. Þóra bjó áfram með börn- um sínum en það var erfitt fyrir fjölskylduna því auk alls annars voru fjárhagserfiðleikar. Það varð úr að þiggja boð Jóns Marteinsson- ar á Bjamarstöðum, föðurbróður Yngva. Hann bauðst til að taka hann í fóstur og sjá um uppeldi hans. Yngvi fór í Bjarnarstaði 1926, þá 11 ára gamall og átti þar heima a.m.k. til 1946. Upp frá því var hann barn þessara tveggja dala, Laxárdals þar sem vaggan stóð og móðir hans og systkini bjuggu og Bárðardals þar sem fósturheimilið var með átta ný syskini og síðan litla fóstursystur, sem nú setur þessi orð á blað. Viðbrigðin hafa eflaust verið mikil, heimilin ólík, söknuðurinn sár. Furðu fljótt mun hann þó hafa lagað sig að nýjum heimkynnum. Heimilið var mann- margt og þótt fara þyrfti sparlega með alla hluti var aldrei skortur í búi hvorki í mat né fatnaði. Öllum var gert jafnt undir höfði og engum ieiðst að mismuna öðrum í orði né verki. Hjartahlýja og heiðarleiki einkenndu heimilislífið frekar en glaðværð og gáski. Og þótt mönn- um sinnaðist var það aðeins storm- ur í vatnsglasi. í reynd mátti þetta fólk ekkert aumt sjá. Húsmóðirin, Vigdís Jónsdóttir frá Sigurðarstöð- um var ekki alltaf með blíðmælgi á vörum, en staðgóðan mat og heila og þurra sokka og vettlinga varð hver heimilismaður að fá, auk margs annars. Verkahringur henn- ar var stór og svefntíminn oft stutt- ur. Systkinin voru ekki öll heilsu- hraust. Friðrika fékk kíghósta sem barn og beið þess aldrei bætur. Marteinn fékk berkla og andaðist úr lungnabólgu 1935. Gústaf hafði fengið brjósthimnubólgu og var ekki þrekmikill. María fékk berkla í bak og lá í gifsi 1939-1946. Krist- ín giftist Jóni Tryggvasyni á Einbúa 1932. Ógiftu systkinin bjuggu með foreldrum sínum og síðar félagsbúi meðan líf og heilsa entist. í Kast- hvammi varð þróunin svipuð. Þóra eldri var sjúk heima mörg síðustu árin og var hjúkrað af börnum sín- um. Gunnlaugur og Þóra (Gogga) bjuggu með móður sinni og síðan hóf Bergsteinn búskap með þeim. Bergsteinn og Bogga búa nú ein í Kasthvammi og Mæja og Þura ein- ar í gamla húsinu á Bjarnarstöðum, en þar býr að vísu ung fjölskylda í nýju húsi. En hverfum nú aftur til þriðja áratugarins. Yngvi tók þátt í öllum störfum sem til féllu og einkum varð hann fljótt handgenginn hrossunum á bænum og undi þeim störfum vel sem tengdust notkun þeirra. Hann gekk í farskóla i Bárðardal ásamt Mæju og Þuru og var fermdur í Lundarbrekkukirkju vorið 1929 ásamt sex öðrum börnum. Þau voru öll á lífi 1989 eftir 60 ár. Þá komu þau öll að fermingarmessu á Lund- arbrekku en þá voru líka fermd þar sjö börn. Yngvi gekk í Ungmenna- félagið Eininguna og hlaut þar sína t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR ARIMÞÓR ANDRÉSSON rafvirkjameistari, Stapasíðu 5, Akureyri, lést á heimili sínu miðvikudaginn 28. ágúst. Útförin ferfram frá Akureyrarkirkju mið- vikudaginn 4. september kl. 13.30. Sigrfður Garðarsdóttir, Garðar Guðmundur Sigurðsson, Arnar Sigurðsson og aðrir aðstandendur. t Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, BRYNJA SIGURÐARDÓTTIR Eyrarvegi 20, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 28. ágúst síðastliðinn. Magnús Stefánsson, Sigríður Jónsdóttir, Bára Stefánsdóttir, ingibjörg Stefánsdóttir, Sigríður H. Stefánsdóttir, Hrafnhildur Stefánsdóttir, Halldóra Stefánsdóttir, Gerður Olofsson, Smári Sigurðsson, Tommy Asp, Kári í. Guðmann, Grtmur Laxdal, Daði Valdimarsson, barnabörn og barnabarnabörn. fyrstu þjálfun í ræðumennsku og ritstörfum fyrir félagsblaðið Neista. í þeim félagsskap voru „æskuvin- irnir allir“ og allar „æskuástirnar“. Hann var oft í stjórn félagsins bæði sem æskumaður og eldri leið- togi. Á 100 ára afmæli „Einingar- innar“ sendi hann kveðju sína í ljóði og við ævilok bað hann þá er vildu minnast sín að láta Ungmennafé- lagið Eininguna í Bárðardal njóta þess. Hann fór í Héraðsskóiann á Laugum, líklega veturinn 1933-34. Leifur Ásgeirsson var skólastjóri og trúlega hefur Yngva notast nám- ið vel ekki síst í íslensku. Á þessum árum var hann sískrifandi og síyrkj- andi. Oft rómantísk ástarljóð og svo annað ekki prenthæft. Sálufélagi hans og nánasti vinur var Jónas Baldursson á Lundarbrekku. Hann orti reyndar ekki svo ég vissi til en var sískrifandi og svo báru þeir hvor undir annan. Þeir voru fram- sóknarmenn sem trúðu á nýja tíma, tækni og framfarir í landbúnaði og áttu. hugsjónir og vildu leggja sitt af mörkum. Haustið 1939 fór Yngvi svo í Bændaskólann á Hvanneyri og var þar í tvo vetur. Sumarið á milli vann hann í Borgarfirði að ég held. Síðan var hann í vinnu í Eyja- firði, m.a. á skurðgröfu og hélt þá til á Öngulstöðum, var í Hvassa- felli og viðar. Öll þessi ár lá leiðin heim í Kasthvamm og Bjarnarstaði til heimsókna og stuttra dvala ef færi gafst. En vorið 1946 tók hann á leigu til tveggja ára bú æskuvinar síns, Jónasar Baldurssonar á Lund- arbrekku. Jónas hafði hug á að sjá sig um í öðrum löndum og kynnast öðrum hliðum mannlífs en í Bárðar- dal. Foreldrar Jónasar voru þá á lífi og hélt Guðrún Jónasdóttir móð- ir Jónasar heimili fyrir þau og Bald- ur bónda sinn, farlama. Að liðnum tveimur árum, tók Jónas aftur við búi sínu og kvæntist 1950 Ingigerd Nyberg frá Uppsölum í Svíþjóð. Sambúð þeirra varð sviplega stutt. Jónas andaðist úr mislingum í jan- úar 1951. Mikill harmur var kveð- inn við fráfall hans að öldruðum foreldrum, eiginkonu og systkinum en líka að vinum, þar á meðal Yngva. Það vildi svo til að hann var heima á Bjarnarstöðum og hafði ætlað að fá sér einhveija vinnu eft- ir áramótin. Þá tók Yngvi að sér bú Jónasar í annað sinn. Með Ingi- gerði eignaðist hann sön, Gunnar Hinrik. Vorið 1952 flutti Ingigerður heim til Uppsala með drenginn. Nokkrum árum síðar giftist hún Sigurði Fries og eignuðust þau þrjú börn. Heimili þeirra hefur lengi verið í Umeá. Hinrik ólst upp hjá móður sinni og stjúpa en bréfasam- band var alltaf milli Yngva og Ingi- gerðar og þegar Hinrik stálpaðist kom hann nokkrum sinnum í heim- sókn bæði með fjölskyldu sinni og líka einn. Loks á áttræðisaldri fór Yngvi til Svíþjóðar og heimsótti Ingigerði, Hinrik og fjölskyldur þeirra, sér til mikillar ánægju. Yngvi fiutti að Kálfborgará í Bárðardal og bjó þar næstu árin í félagi við systkinin Guðna, Sigríði og Elísabetu Helgabörn. 1960 keypti hann Sandvík í Bárðardal og hóf búskap. Oft var hann einn en hafði stundum ráðskonur á sumrin. Ein þeirra var Ástheiður Fjóla Guðmundsdóttir frá Akureyri sem varð kona hans. Árið 1973 hættu þau búskap og fluttu í Garðabæ. Yngvi stundaði verk«í- mannavinnu, vann m.a. síðari árin í áhaldahúsi bæjarins. Þau hjónin slitu samvistum en eftir sem áður var hann á gamla heimilinu um jól og aðrar hátíðir fjölskyldunnar og samband hans og barnanna allra var náið og gott. Hjá Diddu og Helga átti hann líka athvarf þegar á þurfti að halda. Síðast var heim- ili hans í Kirkjulundi 8 í Garðabæ. Eftir að hann var hættur að vinna fyrir aldurs sakir varð það fastur liður í lífi hans að komast norður í dalina sína hvert sumar og var þá um tíma bæði á Bjarnarstöðum og í Kasthvammi. Þá fór hann aftur að skrifa og hefur sumt af því birst í Árbók Þingeyinga á undanförnum árum. Hann starfaði líka í Fram- sóknarfélagi Garðabæjar. Svo hrak- aði heilsunni og oftar og oftar lá leiðin á lungnadeildina á Vífilsstöð- um og á síðasta ári átti hann ekki afturkvæmt en var þar á hjúkrunar- deild uns pláss losnaði á Hrafnistú í Hafnarfirði. Þangað var hann nýlega fluttur er kallið kom. í öllu veikindastríðinu naut hann slíkrar ástar og um- hyggju barna sinna að fátítt má kalla. Mér er sagt að Gunnar Jöfi hafi heimsótt hann hvern einasta dag og hann lifði það að sjá litla dóttur hans. Inga Hildur heimsótti hann líka oft með bömin sín. Þóra Valný er búsett í Englandi en heim- sóknir hennar til landsins voru mestu hátíðirnar. Didda og Helgi reyndust honum enn sem fyrr sann- ir vinir og heimsóttu hann stöðugt þrátt fyrir að sjálf væri hún oft veik. Bergsteinn og Bogga fóru suður og heimsóttu hann og voru í stöðugu símasambandi við hann. Öllu þessu góða fólki er skylt að þakka. Guð blessi Yngva Marinó Gunn- arsson og alla ástvini hans. Hjördís Kristjánsdóttir. t Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, ESTHER JÓNSDÓTTIR, Haðalandi 9, Reykjavík, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 28. ágúst. Ari Einarsson, Kristin Aradóttir, Guðrún Aradóttir, Ragnheiður Aradóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, RAGNAR STEFÁNSSON, rafvirkjameistari, Hrafnistu, Hafnarfirði, sem lést aðfaranótt 27. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 2. september kl. 15.00. Guðrún Helga Helgadóttir, Ásta Þórey Ragnarsdóttir, Rósalind Kristin Ragnarsdóttir, Steinar Benediktsson, Ragnhildur Guðrún Ragnarsdóttir, Kristinn Ólafsson, Róbert Þór Ragnarsson, Hulda Olsen, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.