Morgunblaðið - 19.09.1996, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
NÁGRANNAR Þórðar gáfu honum mynd af Skorradal, en á
henni sést heim að Haga og Hálsum þar sem hann ólst upp.
Hún var hengd upp i Skátaskálanum þar sem afmælisveisian
var haldin og sagði Þórður að best væri að leyfa henni að hanga
þar áfram.
Þórður í Haga hundrað ára
Það er erfitt
að búa í Haga
„ÉG FER nú ekki að safna blóm-
um, kominn á þennan aldur,“
varð Þórði Runólfssyni, bónda í
Haga í Skorradal, að orði þegar
blaðamaður Morgunblaðsins
færði honum blóm í tilefni hund-
rað ára afmælis hans. Ættingjar,
vinir og nágrannar Þórðar fögn-
uðu aldarafmælinu með honum í
gær.
Það lá vel á Þórði í afmælinu.
Hann spjallaði við gesti sína,
sagði sögur og gerði að gamni
sínu. Hann spurði menn frétta
og lýsti skoðunum á mönnum og
málefnum, en Þórður fylgist vel
með atburðum líðandi stundar,
jafnt þeim sem gerast í öðrum
löndum sem þeim er gerast í
Skorradal.
Þórður hefur verið bóndi í
Haga i 74 ár. Jörðin er frekar
lítil og þegar hann hóf búskap
var ræktað land þar ekkert og
húsakostur lítill. Þórður viður-
kennir að það sé erfitt að búa í
Haga. „Það er erfitt að búa í
Haga. Ég er ekki viss um að það
hefðu allir getað búið þar. Mér
hefur hins vegar liðið vel í Haga
og hef átt þar góða ævi.“
Þórður sagðist vera þakldátur
fyrir að hafa haldið góðri heilsu
alla ævina. „Það er dýrmætt að
vera laus við allar pestir. Það
eina sem er að mér er höfuðið;
það hefur svikið mig. Ég er alltaf
með svima og honum fylgir mátt-
leysi.“
Þórður var aldrei með mjög
stórt bú. Þegar flest var átti hann
um 100 kindur, 5-6 kýr og 5 hesta.
Hann á enn um 20 ær, en þær
verða felldar í haust og þar með
er búskap Þórðar í Haga lokið.
Maður þriggja alda
Bjarni Viimundarson, bóndi á
Mófellsstöðum, flutti Þórði
kveðju í veislunni frá sveitungum
hans. Hann sagði að það hefði
verið gott að eiga Þórð að sem
nágranna. Það sem einkenndi
öldunginn væri öðru fremur
þrautseigja og dugnaður.
Bragi Þórðarson bókaútgef-
andi benti á það í afmælinu að
Þórður væri fæddur á 19. öld,
Hundahald
leyft við
Neðstaleiti
UNGIR og gamlir heimsóttu Þórð á afmælinu. Hér heilsar Jón
Gíslason, bóndi á Skeljabrekku, Þórði, en þeir eiga sama afmæl-
isdag. Jón varð 74 ára í gær og var Þórður því 26 ára þegar
Jón fæddist. Með þeim á myndinni er Oddbjörg Leifsdóttir,
húsfreyja á Miðfossum, og barnabarn hennar, Agnar Daði
Krístinsson.
hefði nú lifað 20. öldina nær alla
og ætti góða möguleika á að lifa
fram á 21. öldina. Hann værí því
maður þriggja alda.
Margir sendu Þórði kveðjur á
afmælisdaginn og voru þær lesn-
ar upp í afmælisveislunni. Þórður
hlustaði með athygli á upplest-
urinn og var umhugað um að
átta sig á hveijir sendu kveðjuna.
Honum varð að orði þegar hann
heyrði nafn gamals vinar sins
undir einni kveðjunni „Já, hann
er lifandi enn.“
Þórður sagðist vera alveg hissa
á hvað margir hefðu komið í af-
mælið. Sumir hefðu lagt á sig
langt ferðalag. Hann sagði að það
hefði verið gaman að hitta allt
þetta fólk og hann væri því þakk-
látur.
Það verður mikið um að vera
hjá Þórði um heigina, en þá verð-
ur smalað i Haga. Auk þess hef-
ur hreppsnefnd Skorradals-
hrepps farið þess á leit við Þórð
að hann opnaði hitaveitu Skorra-
dals með formlegum hætti, en
framkvæmdum við hana er að
Ijúka.
MEIRIHLUTI borgarráðs hefur
samþykkt að heimila Kristínu 01-
sen að halda hund á heimili sínu
við Neðstaleiti 1, en húsfélagið
hafði lagt fram kröfu um að leyfi
til hundahalds yrði afturkallað.
Þar sem ágreiningur varð í borgar-
ráði var málinu vísað til endanlegr-
ar afgreiðslu borgarstjórnar.
Rangar forsendur
í tillögu borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, sem lögð var
fram á fundinum, var lagt til að
þar sem borgarráð hafi á sínum
tíma tekið ákvörðun um að veita
undanþágu frá banni við hunda-
haldi, þrátt fyrir að ekki lægi fyr-
ir samþykki allra íbúðareigenda í
Neðstaleiti 1, verði leyfi Kristínar
til hundahalds afturkallað. Ljóst
sé að samþykki borgarráðs fyrir
undanþágu frá banni við hunda-
haldi hafi verið byggt á röngum
forsendum, þar sem ekki hafi leg-
ið fyrir samþykki tveggja þing-
lýstra íbúðareigenda í húsinu.
Bent er á að samkvæmt samþykkt
um hundahald í Reykjavík frá 1.
júní 1989, sé algerlega óheimilt
að veita undanþágu frá banni við
hundahaldi í fjölbýlishúsi nema
allir íbúðareigendur séu því sam-
þykkir.
Frávísunartillaga
samþykkt
I frávísunartillögu borgarstjóra
var vísað til greinargerðar skrif-
stofustjóra heilbrigðiseftirlitsins
en ákvörðun um að heimila hunda-
hald byggði á henni og lagði borg-
arstjóri til að tillögu sjálfstæðis-
manna yrði vísa frá. Frávísunartil-
lagan var samþykkt með þremur
atkvæðum meirihluta gegn tveim-
ur atkvæðum minnihluta.
Tillagan um að hafna afturköll-
un leyfis var síðan samþykkt með
þremur atkvæðum gegn einu, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson greiddi
atkvæði á móti.
FÍB-Trygging hefur sölu bílatrygginga
á vegum Ibex Motor Policies hjá Lloyd’s
Býður FÍB-félög-
um þriðjungs
lækkun iðgjalda
FIB-Trygging, sem starfar á vegum
breska vátryggjandans Ibex Motor
Policies hjá Lloyd’s, hóf í gær starf-
semi á íslenska vátryggingamark-
aðnum og tilkynnti um leið hvaða
iðgjöld bílatrygginga yrðu í boði.
Félagið býður um 30-35% lækkun
iðgjalda frá iðgjöldum íslensku
tryggingafélaganna fyrir um 96-97%
félagsmanna. Tryggingamar eru
bundnar við félaga í FIB.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur um eins árs skeið leitað leiða
til að lækka iðgjöld félagsmanna
sinna af bílatiyggingum. Hefur fé-
lagið haldið því fram að íslensku
vátryggingafélögin áætli kostnað við
umferðarslys mun meiri en hann sé
í raun og veru. Mismuninn á áætlun
og raunverulegum tjónagreiðslum
hafi félögin lagt í svokallaða bóta-
sjóði og hafi þessir sjóðir verið að
stækka um 2 milljarða króna á ári.
FÍB ákvað að efna til útboðs á
tryggingum fyrir félagsmenn sína í
desember sl. og tókust samningar
við alþjóðlega miðlun um að annast
bílatryggingamar, en þær eru vá-
tryggðar hjá Ibex Motor Policies á
Lloyd’s tryggingamarkaðnum.
Ekki lækkun hjá þeim yngstu
Iðgjöld FÍB-tryggingar eru í sam-
ræmi við áhættu vegna viðkomandi
ökumanns. Yngstu ökumennimir fá
ekki lækkun iðgjalda frá því sem
áður hefur tíðkast og í sumum tilvik-
um eru iðgjöld þeirra jafnvel hærri
en hjá öðrum. Strax við 25 ára aldur
fá bíleigendur lækkun iðgjalda og
greiða að jafnaði 25-30% lægri ið-
gjöld en hjá öðrum tryggingafélög-
um, að því er fram kemur í greinar-
gerð FÍB. Þetta sést nánar af með-
fylgjandi dæmum sem FÍB-Trygging
hefur tekið saman.
Þá var í gær skýrt frá því að FIB-
Tiygging og Bifreiðaskoðun íslands
hefðu gert samkomulag um að fyrir-
tækið annaðist tjónaskoðun fyrir
FÍB-Tiyggingu. Þá mun sérstakur
tjónauppgjörsfulltrúi, Smári Rík-
harðsson, starfa beint fyrir útgef-
anda tryggingaskírteinanna..
Dæmi um iðgjöld
í eftirfarandi dæmum er lækkun iðgjalda frá 26-37%. Aldur
bíleiganda og stærð ökutækis ræður mestu um iðgjaldið.
Ennfremur er lægra iðgjatd utan höfuðborgarsvæðisins og
Akureyrar. Dæmin eru tekin uÍTFabyrgðartryggingu ökutæk-
iáns með framrúðutryggingu og mjðað er við að bfleigandínn
Kafi fullan bógus (70%). Hægt erað fá 10% viðbótar afslátt af
ábyrgðartryggingunni með því að taka 29.000 kr. sjálfsábyrgð.
| DÆM111 | DÆMI41
|DÆMI7|
Aldur bíleiganda: 29 ára
Búseta: Höfuðb.sv. eða Akureyri
Bifreið: Toyota Corolla GL
Argerð bifreiðar: 1992
Tryggingafélög:
Vátryggingafélag ísl. - 35.258 kr.
FIB Trygging - 26.183 kr.
Verðmunur: 26% j
| DÆMI81
Aldur bíleiganda: 25 ára
Búseta: Höfuðb.sv. eða Akureyri
Bifreið: Subaru Justy GL 4WS
Árgerð bifreiðar: 1992
Tryggingafélög:
Tryggingamiðstöðin - 32.953 kr.
FIB Trygging - 23.206 kr.
Verðmunur: 33%
Aldur bfleiganda: 35 ára
Búseta: Höfuðb.sv. eða Akureyri
Bifreið: Nissan Micra GS
Árgerð bifreiðar: 1992
Tryggingafélög:
Sjóvá-Almennar - 31.546 kr.
FÍB Trygging - 20.638 kr.
Verðmunur: 35%
Aldur bfleiganda: 69 ára
Búseta: Egilsstaðir
Bifreið: Jeep Cherokee
Árgerð bifreiðar: 1990
Tryggingafélög:
VIS - 29.923 kr.
FÍB Trygging -19.113 kr.
Verðmunur: 36%
DÆMI21
DÆMI5
DÆMI9
Aldur bfleiganda: 45 ára Búseta: Höfuðb.sv. eða Akureyri Bifreið: Honda Accord EX Árgerð bifreiðar: 1989 Tryggingafélög: Trygging hf. - 32.635 kr. FIB Trygging - 24.567 kr. Verðmunur: 33% Aldur bíleiganda: 55 ára Búseta: Höfuðb.sv. eða Akureyri Bifreið: Subaru Legacy Árgerð bifreiðar: 1994 Tryggingafélög: Tryggingamiðstöðin - 39.140 kr. FIB Trygging - 24.567 kr. Verðmunur: 37% Aldur bfleiganda: 40 ára Búseta: Höfuðb.sv. eða Akureyri Bifreið: Volvo 760 Árgerð bifreiðar: 1990 Tryggingafélög: Vátryggingafélag isl. - 38.432 kr. FIB Trygging - 24.567 kr. Verðmunur: 36%
| DÆMI31 | DÆMI61 DÆM110
Aldur bfleiganda: 25 ára Búseta: Egilsstaðir Bifreið: Nissan Micra GS Árgerð bifreiðan 1992 Tryggingafélög: Skandia - 28.578 kr. FÍB Trygging -18.656 kr. Verðmunur: 35% Aldur bfleiganda: 35 ára Búseta: Húsavik Bifreið: Subaru 1800 Turbo Árgerð bifreiðan 1989 Tryggingafélög: VIS - 27.397 kr. FÍB Trygging -19.164 kr. Verðmunur: 30% Aldur bfleiganda: 56 ára Búseta: Höfuðb.sv. eða Akureyri Bifreið: Toyota Corolla Árgerð bifreiðar: 1996 Tryggingafélög: Sjóvá-Almennar - 35.592 kr. FÍB Trygging - 24.406 kr. Verðmunur: 37%
i
\
l