Morgunblaðið - 22.09.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.09.1996, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ JltargtuiMafeito BRÉF HL BLAÐSINS ÉG S'i'NDl HONU/M UVER pAG> EJZ.SBM R/BOU1Z HBR... tKMPAVÍÍ) 6-Z6 Tommi og Jenni Ljóska Ferdinand Smáfólk Það var teiknari við rétt- Ég var að velta því arhöldin í dag. fyrir mér hvort hún hefði teiknað þig. Mér líkaði Hún iét mig líta út eins það ekki. og Andrés Ond. Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Kveðja til Jóns Egilssonar og félaga Frá Gunnari Páli Ingólfssyni: ÞAÐ vakti hjá mér skemmtilegar kenndir og þar á meðal var sú að stinga niður penna þegar ég las frá- sögn Morgunblaðsins á Akureyrar- síðu 17.9. um kaffidrykkju Jóns Egils- sonar forstjóra á Hótel KEA sl. 50 ár. Þessi áfangi segir glöggt um hversu skemmtilegan stíl menn geta haft og verið trúir umhverfi sínu. Það út af fyrir sig að íhaldsborð skuli hafa þrifíst jafnlengi innan veggja kaupfélagsvaldsins er gaman- saga í háum gæðaflokki. Samskipti þeirra félaga við kaup- félagsborðið lýsa félagslegum þroska á báða bóga. Og þegar vínarbrauðin byijuðu að fljúga á milli til að hafa þá góða, eins og Jón segir, þá lýsir það hrokalausum húmor af besta tagi. Þessi frásögn riijaði upp fyrir mér þriggja mánaða dvöl í Vestmannaeyj- um fyrir 35 árum (1961) þegar ég starfaði þar sem hljómsveitarmaður. Þá hafði ég kost í mötuneytinu hjá henni Jónu (Hótel Berg) sem var dugnaðar- og gæðakona. Með mér til borðs sátu ekki ómerkari menn enn: Freymóður (fógeti), Stebbi pól (yfirlögregluþjónn), Jói á Hól (kaup- maður í Drífanda), Andrés (klæð- skeri) og margt mætra manna sem komu og fóru vegna atvinnu sinnar. Að sjálfsögðu voru menn á önd- verðum meiði í mörgum málum og má þar nefna: áfengismál, pólitík, þjóðmál og dægurmál af ýmsu tagi. A stundum gátu menn orðið nokkuð hástemmdir og urðu þá háværir og óðamála, en oftast nær réðu hlátra- sköllin ríkjum og þegar hæst lét mátti vænta athugasemda frá ráðs- konunni Jónu (sem yfírleitt sagði ekki mikið) eins og t.d. „ykkur væri nær að tala minna og gera matnum betri skil“, um leið og hún bætti á fötin því ekkert var skorið við nögl í þessu mötuneyti. Það var eitt af því fáa sem gat framkallað bros á andliti Jónu ráðskonu, að menn tælqu vel til matar síns. Með þessa reynslu í farteskinu get ég rétt ímyndað mér andrúmsloftið við borð þeirra félaga. Ég bið Morg- unblaðið að bera Jóni Egilssyni og félögum kveðju mína og segi bara áfram með smjörið, drengir. En þetta undirstrikar það sem ég hef lengi sagt „það þarf ekki að fara til út- landa til að læra mannlega fram- komu, farið bara til Akureyrar". GUNNAR PÁLLINGÓLFSSON hljómlistarmaður. Svartur september Frá Guðmundi Steinarri Gunnarssyni: NÚ Á haustdögum, þegar rignt hef- ur stöðugt í mánuð eða lengur, er byijað að vinna við snjóflóðavarna- garða á Flateyri og segir í fréttum að því verði lokið haustið 1997. Þetta eru verstu veðurfarslegar aðstæður sem hugsast geta á þessu svæði. Það er búið að missa af besta tím- anum til þeirra framkvæmda. Þeir fáu íbúar sem eftir eru á svæðinu við Ólafstún og Hjallaveg eru fluttir eða á förum á öruggari staði á Flateyri, eða annað. Rústir þeirra húsa er lentu í snjóflóðinu hafa ekki enn þá verið hreinsaðar. íbúðir einhverra þeirra sem fluttu af flóðasvæðinu eru þegar á uppboðum vegna vanskila og verða ekki bættar, og eru ekki seljanlegar vegna vantrúar fólks á þessum að- gerðum. Ég tel að þama sé um hreina eignaupptöku að ræða. I stað þess að kaupa íbúðimar af þessu fólki er ráðist í kostnaðarsamar og vafasamar aðgerðir fýrir þessi svæði og svæði sem ekki verða byggð samkvæmt nýjum skipulagstillögum. Það er ekk- ert vitað um veðurfarsleg áhrif og snjósöfnun á svæðinu eftir þær að- gerðir, sem fýrirhugaðar era. Það er heldur ekki vitað hver hugsanlegur íjöldi íbúa á Flateyri verður í framtíð- inni. Þama er verið að fara í fram- kvæmdir að óathuguðu máli. Ef spurt er hversvegna, er svarið þetta. „Þetta er gert að ósk heimamanna og hreppsnefndar Flateyrar." Sem hefur svo ekki trú á þessum framkvæmdum innst inni, þegar á hólminn er komið. Þegar spurt er um tæknilegan undir- búning er ávallt svarið að þar sé feng- in besta ráðgjöf og reynsla og völ er á, og jafnframt að þetta sé fyrsta stórverkefni þeirra sem með þau mál fara á þessu sviði. Það er sem sé ekki verið að flana að neinu í þessum efnum! Ábendingum manna og fyr- irspumum er nánast ekki svarað. Sjá skrif Önundar Ásgeirssoanr um þetta efni: Niðurstaðan hlýtur því að verða þessi: Það er verið að fara eftir ein- hveiju tilfmningalegu og óraunhæfu mati sem bendir á ráðaleysi og ráð- deildarleysi misviturra stjómvalda sem með þessi mál fara og er það ósæmilegt vegna skattborgaranna. Sá granur læðist að manni að þar séu ekki hagsmunir íbúanna og skatt- borgaranna hafðir í fyrirrúmi. Höfundur hefur átt heima á Flat- eyri í 40 ár og er starfsmaður Vega- gerðarinnar á ísafirði og meðal ann- arra verka þar tekið þátt í skráning- um og athugunum á snjóflóðum. Einnig hefur hann aðstoðað starfs- menn Veðurstofunnar lítilsháttar við úrkomumælingar og öflun upplýs- inga á svæðinu við Flateyri gegnum árin. GUÐMUNDUR STEINARR GUNNARSSON, Hafraholti 8, ísafirði. Hvað skai segja? 19 Væri rétt að segja: Fólk streymdi á fundinn hvaðanæva að. Svar: Hvaðanæva merkir: úr öllum áttum. Þess vegna væri réttara: Fólk streymdi á fundinn hvaðanæva. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.