Morgunblaðið - 25.09.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Nýir gripavagnar auka hag-
kvæmni í fi árflutningum
Höfn. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Stefán Ólafsson
NÝR gripavagn Kaupfélags Austur-Skaftfellinga.
FYRIR skömmu flutti Kaupfélag
Austur-Skaftfellinga inn tvo gripa-
vagna í samvinnu við Bílabúðina
H. Jónsson og co. Annan vagninn
notar KASK til að flytja fé fyrir eig-
ið sláturhús en hinn vagninn keypti
Sláturfélag Suðurlands.
Vagnarnir eru bandarískir að upp-
runa en fluttir inn notaðir frá
Kanada. Þeir eru um 13 metra lang-
ir og geta flutt allt að 320 fjár á
þremur hæðum. Stytta þurfti vagn-
ana nokkuð vegna hámarkslengdar
sem leyfð er hér á landi. Til að auka
hreinlæti og um leið bæta aðbúnað
íjárins voru smíðaðar trégrindur á
öll gólf sem eru hreinsuð með há-
þrýstidælum eftir hvetja ferð.
Að sögn Pálma Guðmundssonar,
kaupfélagsstjóra, hefur gripavagn-
inn staðist allar væntingar og sé
hann grundvöllur þess að sækja fé
jafn langa leið og nú er gert enda
lækkar flutningskostnaður með til-
komu hans. KASK hefur nú leyfi
til að flytja fé allt frá Jökulsá á
Sólheimasandi og hefur jafnframt
sótt um leyfi til að halda vestar.
Aður en vagninn var tekinn í notk-
un heyrðust úrtöluraddir og efasemd-
ir um að slíkur vagn væri nothæfur
við íslenskar aðstæður. Pálmi telur
að reynslan, þó stutt sé, sýni annað.
Þetta sé stór vagn sem ekki komist
hvert sem er en henti prýðilega þar
sem rúmt er. Vel gengur að koma
fénu í vagninn en það gengur upp
landganginn beint af jörðinni og inn.
Fyrst er fyrsta hæðin fyllt, þá sú
þriðja og að lokum miðhæðin. Tók
tæplega eina klukkustund að setja í
hann um 300 fjár i Kerlingardal sl.
sunnudag og innan við hálftíma að
tæma hann á Höfn. Aksturstíminn
þessa 270 km leið var um 4'h klukku-
stund. Vel fór um féð enda rúmt um
það. Loftræsting er ákaflega góð og
því myndast enginn raki vegna svita
af fénu og ekkert virðist ná að rigna
inn í vagninn þrátt fyrir loftræstigöt-
in á hliðum hans.
Islenskur sjávarútvegur
og Evrópusambandið
Sjávarútvegsráðstefna Evrópusambandsins
og sjávarútvegsráðuneytisins
Hótel Sögu - 27. september 1996
Ráðstefna um sjávarútvegsmál og samskipti ESB og íslands á sviði sjávarútvegs.
Ráðstefnan er ætluð forystumönnum í sjávarútvegi, stjórnmálamönnum, opinberum
aðilum, fulltrúum launþega, forystumönnum í verslun og viðskiptum og áhugafólki um
sjávarútvegsmál og Evrópumálefni.
11:30 Innritun
12:00 Hádegisverður með Emmu Bonino í Arsal
Ávarp flytur Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra
13:30 Sjávarútvegsstefiia ESB og samskiptin við Island
Emma Bonino, framkvæmdastjóri sjávarútvegsdeildar ESB í Brussel
13:50 Fyrirspurnir
14:00 Efnahagslegt mikilvœgi fiskveiðistjórnunar
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur Landssambands íslenskra
útvegsmanna
14:20 ESB og sjávarútvegsmál; sjónarmið íslenskra fiskimanna og fiskverkafólks
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Alþýðusambands íslands
14:40 Nœstum því aðild
Þórunn Sveinbjarnardóttir, talsmaður Evrópusamtakanna
15:10 Kaffihlé - veitingar
15:30 Okkar leið - stjórnkerfi með framseljanlegum aflakvótum
Einar Svansson, framkvæmdastjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf.
15:50 ESB og sjávarútvegshagsmunir Islendinga
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands
16:10 ísland og Evrópusambandið
John Maddison, sendiherra ESB á íslandi og Noregi
16:30 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri: Ólafur Þ. Stephensen, blaðamaður hjá Morgunblaðinu.
Ráðstefnucjald, sem innifelur hádegisverð og kaffi, er kr 2.500,- Vinsamlega tilkynnið þátttöku til
KOM ehf. í síma 562 2411 eða með faxi 562 3411, fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 25. september nk.
Ræður erlendra ræðumanna verða túlkaðar samtímis af ensku yfir á íslensku. Fyrirspurnir verða
leyfðar eftir hvert erindi.
Skipuleggjendur ráðstefnunnar áskilja sér rétt til að breyta dagskrá vegna ófyrirsjánlegra atvika.
Umsjón og skipulag KOM ehf.
Ráðstefnan er haldin af Evrópusambandinu (ESB) og sjávarútvegsráðuneytinu
í samvinnu við Fiskveiðasjóð
Hvernig
sjónvarpstæki
fengirðu þér ef þú
ynnir 44 milljónir
í Víkingalottóinu?
V 1 K 1 N G A
L«1 fTð
Til mikils að vinna!
Alla miðvikudaga fyrir kl. 16.00.