Morgunblaðið - 26.09.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ingvar
KASSI vörubifreiðarinnar gaf sig þegar reynt var að koma
henni á réttan kjöl og dreifðist fiskur um slysstaðinn.
Vörubifreið valt
við Vesturlandsveg
og því þótti ástæða til að grípa til
viðeigandi ráðstafana.
Fiskur flæddi út
Þegar því starfi var lokið hófust
menn handa við að koma bifreiðinni
á réttan kjöl og var krani fenginn
til verksins. Átakið virðist hafa ver-
ið meira en geymslan fyrir fiskinn
þoldi þvi hún brotnaði og flæddi
fiskur yfir næsta nágrenni.
Ekki urðu teljandi meiðsli á fólki.
FLUTNINGABÍLL með farm af
fiski valt skömmu fyrir hádegi í gær
þegar hann ætlaði að beygja af
Suðurlandsvegi inn á Vesturlands-
veg. Beygjan virðist hafa verið of
kröpp og fór bifreiðin á hliðina og
hafnaði utan vegar.
Slökkviliðið í Reykjavík fór á
staðinn til að dæla olíu og bensíni
úr bifreiðinni, en iítið eitt af elds-
neyti lak úr geymum hennar. Ótt-
ast var að eldhætta gæti skapast
Esju-
skaflinn
hvarf síð-
ast 1969
FANNIR Esjuhlíða hafa ver-
ið til umræðu upp á síðkast-
ið af því tilefni að þær eru
nú minni en gerzt hefur í
áratugi. I frétt í blaðinu í
vikunni voru fyrri fregnir
þess efnis að skaflinn í
Gunnlaugsskarði væri horf-
inn bornar til baka, enda
sést hann vel frá Reykjavík
með berum augum.
Eftir veðurfræðingum er
haft, að skaflinn hafi aldrei
horfið frá árinu 1964. Þetta
mun ekki vera rétt, ef
marka má frásögn í Veðr-
inu, „tímariti handa alþýðu
um veðurfræði“ frá 1969.
Þar er frá því sagt, að sum-
arhlýindi hafi í ágústmánuði
þess árs náð að eyða skaflin-
um í Gunnlaugsskarði. Or-
sökin er sögð, auk sumar-
hlýindanna, vera óvenjulegt
snjóleysi undangengins
vetrar, sem þó var kaldur.
Samkvæmt upplýsingum
Reynis Eyjólfssonar, lyfja-
fræðings og áhugamanns
um náttúrufræði, sem fylgzt
hefur með fönnum Esju í 25
ár, mun í raun vera um tvo
skafla að ræða. Sá nyrðri
sé stærri, um 30 m að lengd
og 17 m á breidd þar sem
hann er breiðastur. Sá syðri
sé um 15 m á lengd og 7 m
á breidd. Rétt sé, að skafl-
arnir hafi minnkað mikið,
en mjög ólíklegt sé að þeir
muni hverfa í ár, enda farið
að kólna.
Stækkun á flugstöð
Leifs Eiríkssonar
Staða skólasljóra Vesturhlíðarskóla
Berglind Stef-
ánsdóttir ráðin
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum á þriðjudag að ráða Berg-
lindi Stefánsdóttur í stöðu skóla-
stjóra Vesturhlíðarskóla, sam-
kvæmt tillögu fræðsiuráðs Reykja-
víkur. Berglind er stjórnarformaður
Samskiptamiðstöðvar heyrnar-
lausra og heyrnarskertra og hefur
kennt táknmál og táknmálsfræði í
Háskóla íslands og Menntaskólan-
um við Hamrahlíð. Hún er einnig
formaður Félags heyrnarlausra.
Staðan var auglýst laus til um-
sóknar í byijun ágúst. Umsóknar-
frestur rann út 23. ágúst sl. og
höfðu þá borist tvær umsóknir, frá
þeim Berglindi Stefánsdóttur og
Málfríði Gunnarsdóttur. Þriðja um-
sóknin barst svo 10. september sl.,
frá Gunnari Salvarssyni, fráfarandi
skólastjóra Vesturhlíðarskóla.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
fræðsluráði lögðu til að umsókn
Gunnars yrði tekin til greina, jafn-
vel þótt umsóknarfresturinn væri
runninn út. Sú tillaga var felld af
, fulltrúum Reykjavíkurlista, með
> þeim rökum að tveir hæfir einstakl-
ingar hefðu sótt um stöðuna innan
auglýsts frests og öllu undirbún-
ingsferli vegna ráðningarinnar
hefði verið lokið þegar þriðja um-
sóknin barst. Ennfremur var tekið
fram að umsækjandi sem skiiaði
umsókn sinni eftir lok umsóknar-
frests ætti engan sjálfsagðan rétt
á því að umsókn hans yrði tekin til
meðferðar.
I bókun sem fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks í fræðsluráði lögðu
fram lýsa þeir yfir vonbrigðum með
að meirihluti
fræðsluráðs
skuli hafna því
að taka umsókn
Gunnars tii
greina. Ljóst sé
að ástæður upp-
sagnar fráfar-
andi skólastjóra
séu. ekki lengur
fyrir hendi, nú
þegar Reykjavíkurborg hafi tekið
við stjórn skólans.
Við afgreiðslu málsins í borgar-»
ráði á þriðjudag óskaði Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson bókað að ákvörðun
R-listans um að taka umsókn fyrr-
verandi skólastjóra ekki til greina
vegna þess að hún hafi borist of
seint stæðist ekki. í því sambandi
vitnaði hann til fimmtu greinat' laga
um réttindi og skyidui' kennara og
skólastjóra þar sem segir að taka
megi til greina umsóknir sem ber-
ast eftir að umsóknarfrestur er lið-
inn, enda hafi staðan ekki þegar
verið veitt.
í bókun borgarráðsfulltrúa
R-listans segir að jafnræðisreglur
stjórnsýsluréttar leiði almennt til
þess að skýra beri slíka undanþágu
þröngt, þannig að heimildin sé að-
eins veitt í undantekningartilvikum.
Fulltrúar R-listans segjast enn-
fremur harma að ft'áfarandi skóla-
stjóri skuli ekki hafa ákveðið fyrr
að vilja vera meðal umsækjenda,
þannig að umsókn hans gæti feng-
ið sömu efnislega meðferð og þær
tvær umsóknir sem bárust innan
auglýsts umsóknarfrests.
Ellefu aðilar
sækja um
verkfræði-
þáttinn
ELLEFU aðilar hafa lagt inn um-
sókn um að fá í hendur útboðsgögn
um verkfræðiþátt stækkunar þeirr-
ar, sem ráðgerð er á flugstöð Leifs
Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli,
er umsóknarfrestur rann út í byijun
vikunnar. Umsóknirnar ellefu voru
opnaðar á mánudag hjá Fram-
kvæmdasýslu ríkisins (FSR).
í flestum tilvikum er um hópa
verkfræðistofa að ræða, sem sam-
einast um að svara öllum kröfum
um sérhæfingu, sem gerðar eru til
vinnslu verksins, sem felst í verk-
fræðilegri hönnun viðbyggingarinn-
ar. í fimm af þessum ellefu tilvikum
eru erlendir aðilat' meðal umsækj-
enda, í félagi við íslenzka.
Að sögn Oskars Valdimarssonar
hjá FSR, munu umsóknirnar vera
til ítarlegrar skoðunar næstu daga
og 1. október mun ákvörðun verða
tekin um, hvaða 6 aðilar verða vald-
ir úr og send öll nauðsynleg útboðs-
gögn. Endanleg tilboð munu síðan
verða opnuð þann 29. október.
Áætlað er að framkvæmdir við
stækkun flugstöðvarinnar heíjist
næsta vor. Verklok eru áætluð þann
1. júní 1998.
Heildarkostnaður við stækkunina
er áætlaður um 650 milljónir króna.
Að sögn hnútum kunnugra vei'k-
fræðinga mun sá verkþáttur, sem
um er að ræða í þessu útboði, vera
nálægt stærðargráðunni 4-6% af
heildarverkinu, sem samsvara
myndi um 26-39 milljónum króna.
Berglintl
Stefánsdóttir
Opið mánud.-
föstud. frá kl. 11-18,
laugard frá kl. 11-14.
Urval af fallegum vörum
Antik munir, Klapparstíg 40, sími 552 7977
Franskar dragtir
með og án kraga.
Ef keypt er fyrir 25.000 kr. eða meira fylgir taska
með kaupunum.
TKSS V“Ea,
p..... .......■*>vsími 562 2230
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Tilboðsdagar
Helgartilboð - 30% afsláttur.
Allt nýjar vörur.
Opið laugardaga frá 10-14.
SLIM-LINE
S t r e c h
buxur frá gardeur
OÓuntu^
tískuverslun v/Nesveg, Seltjamamesi, simi 561 1680
Góð veisla í glœsilegum sal!
Sunnusalur er glæsilegur salur sem hentar sérstaklega vel fyrir árshátíðir, afmæli,
brúðkaup og önnur veislusamsæti.
Kynnið ykkur góð kjör, athugið sérstakt árshátíðartilboð á föstudagskvöldum.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í söludeild í síma S52 9900.
-þín saga!
a
O
ÓTTU ÞESS BESTA
í MAT OG DRYKK.
ÞAÐ KOSTAR EKKl MEIRA
Xj,ÚKLINGALIFRAR „MOUSSE"
MEÐ „BALSAMICO
VINAIGRETTE".
pJFUSOÐIN STÓRLÚÐUKINN
MEÐ SÍTRUSENGIFER
„VINAIGRETTE".
‘TlRAMIZU.
SÝNISHORN ÚRMATSEÐLI -
BREYTIST DAGLEGA.
RELAIS &
CHATEAUX.
AU
w
BERGSTAÐASTRÆTI 37
SÍMI: 552 57 00. FAX: 562 30 25