Morgunblaðið - 26.09.1996, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTEIMDUR
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Sláturtíðin að hefjast
Gervikeppir o g
brytjaður mör
ÁRLEG slátursala er að hefjast í
verslunum þessa dagana. Heilu flöl-
skyldumar taka saman slátur og njóta
samverunnar. Oft hefur „unga fólkið"
lent í að brytja mör eða sauma vamb-
ir við misjafnar vinsældir. En nú hef-
ur verið séð við því. Meðal hefðbund-
ins hráefnis er boðið upp á ýmislegt
til að létta fólki sláturgerðina eins og
brytjaðan mör og gervivambir.
„Við erum með ýmislegt forunnið
til sláturgerðar og þannig losnar fólk
við ýmsa þætti sláturgerðarinnar
sem þykja oft leiðinlegir," segir Árni
Ingvarsson, innkaupamaður hjá
Hagkaupi. Hann segir að hægt sé
til dæmis að kaupa slátur með saum-
uðum vömbum og brytjuðum mör,
gervikeppi sem framleiddir eru úr
náttúrulegum efnum og síðan laus-
frysta og ósoðna lifrarpylsu-, og
blóðmörskeppi.
Nú er búið að banna sölu á
óhreinsuðum sviðahausum og því eru
allir sláturkassar með hreinsuðum
sviðum.„Þeir sem vilja síðan einungis
lifrarpylsu eða meira af henni en
venja er geta keypt hana lausfrysta."
Hjá Hagkaup kosta til dæmis þijú
slátur frosin með saumuðum vömb-
um og biytjuðum mör 2.469 krónur,
kílóið af brytjuðum mör er á 99 krón-
ur, gervikeppirnir á 50 krónur og 5
ófrosin slátur á 2.795 krónur. Ófros-
in slátur fást einungis hjá Hagkaup
Skeifunni. Tilbúið frosið slátur er
hægt að fá með 3 lifrum, 3 hjörtum,
6 nýrum, 3 sviðahausum, 10 keppum
ósoðinni lifrarpylsu og 5 af blóðmör
á 3.689 krónur.
Ný hársnyrtistofa
• HÁRSNYRTISTOFAN Hár-
smiðjan, var opnuð á Smiðjuvegi 2,
við hliðina á Bónus, um síðustu
mánaðamót. Eigendur stofunnar eru
Lára G. Stephensen og eiginmaður
hennar Guðmundur A. Jóhannsson.
Lára er meistari í hársnyrtiiðn, og
starfaði áður á Hámý í Kópavogi.
Aðrir starfsmenn eru: Guðrún Bene-
diktsdóttir, meistari í hársnyrtiiðn
og fyrrverandi eigandi hársnyrtistof-
unnar Heru í Kópavogi, Berglind
Hallgrímsdóttir, hárgreiðslusveinn,
„Daddý“ Eyja Einarsdóttir, hár-
skerameistari, starfaði áður hjá Villa
Þór og Heru, segir í frétt.
Opnunartími Hársmiðjunnar er:
Kl. 9-18 mánudaga til föstudaga, kl.
10-15 laugardaga.
Hársmiðjan býður viðskiptavinum
hársnyrtivörur frá Sebastian og líf-
ræntræktaðar vörur frá Aveda
ásamt ýmsum öðrum vörum.
Póstur og sími um símtöl um stuttbylgju
Hækkun á símtölum
líklegri en lækkun
Gjaldskrá á símtölum til og frá skipum
í/á í nokkrum löndum
Þvskalandi
Grænlandi 79,-
íslandi kr. 51hver minúta
383,-
Enqlandi 370,-
Frakklandi 364,-
Belqíu 300,-
Hollandi 299,-
Danmörku 296,-
Svíþjóð 295,-
Finnlandi 238,- R m
Noreqi 165,-
Bandar. hæsta 157,- 1
Bandar. læqsta 146,- l I
Þjónustan er
miklu dýrari
annars staðar
„STAÐREYNDIN er sú að gjöldin
okkar fýrir símtöl í gegnum stutt-
bylgju eru miklu lægri heldur en
nokkurs staðar annars staðar í
heiminum þar sem við þekkjum til.
Það er því miklu raunhæfara að
ætla og mun líklegra að við þurfum
að hækka þessi gjöld heldur en
lækka enda hefur þessi þjónusta
verið rekin með verulegu tapi í lang-
an tíma. Það má segja að það sé
arfur frá fornri tíð. Þá var litið á
þessa þjónustu sem hluta af þjón-
ustu samfélagsins við sjávarútveg-
inn,“ segir Magnús Waage, yfir-
verkfræðingur hjá Pósti og síma, í
samtali við Verið.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í vikunni eru sjómenn á
Flæmska hattinum mjög óánægðir
með verðlagningu Pósts og síma á
símtölum milli rækjumiðanna og
íslands. Þeir hafa sent forystu-
mönnum hagsmunasamtaka sinna
skeyti og fara þeir fram á aðstoð
þeirra við að fá verðlækkun á sím-
tölum um stuttbylgju.
Niðurgreidd þjónusta
við sjómenn
Magnús nefnir að mun dýrara
sé fyrir nágrannaþjóðirnar að tala
á stuttbylgju frá skipum sínum í
heimastöðvarnar en það er fyrir
íslenska sjómenn. Sem dæmi mætti
nefna að Norðmenn þyrftu að
greiða 165 kr. fyrir mínútuna, Dan-
ir 296 kr. fyrir mínútuna, en íslend-
ingar aðeins 51 krónu á mínútuna.
Hann segir að nú sé verið að skoða
það hversu mikil verðhækkunin á
stuttbygljusímtölum þurfi að vera.
„í lögum um hlutafélagið stendur
að ef við veitum þjónustu í öryggis-
skyni eða vegna byggðasjónarmiða
skuli semja um það við ríkisstjórn-
ina. Það er allt af því ógerlegt fyr-
ir okkur, sama hversu gjöldin yrðu
há, að halda úti þjónustu sem þess-
ari og ætlast til þess að hún standi
undir sér því ef við myndum hækka
gjöldin of mikið myndi traffíkin ein-
faldlega minnka. Mjög erfitt er að
láta enda ná saman í þessum rekstri
enda er strandarstöðvaþjónustan
yfírleitt alls staðar rekin með til-
styrk frá ríkinu þrátt fyrir miklu
hærri þjónustugjöld í nágranna-
löndum okkar.“
Hallareksturinn upp
á 150-200 milljónir
Hluti af strandarstöðvaþjón-
ustunni felst í öryggis- og neyðar-
þjónustu við skipin. Einnig er hluti
fólginn í handvirkri tilkynninga-
skyidu og í þriðja lagi er um að
ræða einkasímtöl sjómanna. Hvem-
ig kostnaðurinn skiptist þarna á
milli er atriði sem verið er að skoða
í vinnuhópi þannig að á þessari
stundu er erfitt að fullyrða hversu
mikili hluti af strandarstöðvaþjón-
ustunni er vegna símtala sjómanna
heim. „Hallareksturinn af allri skipa-
þjónustu nemur um 150-200 millj-
ónum króna á ári en hvernig á að
taka á honum er til nánari útfærslu
og umræðu núna milli samgöngu-
ráðuneytisins og stofnunarinnar.
Tekjur af þjónustunni em hverf-
andi miðað við gjöld enda er veru-
legur hluti af tilkostnaðinum kom-
inn út af öryggis- og neyðarþjón-
ustu. Þegar í ljós kemur hvað ríkis-
valdið er tilbúið að greiða af þessri
þjónustu munum við taka ákvarð-
anir um verðlag á henni út frá því,“
segir Magnús Waage.
Á stuttbylgju eru notuð þijú
bylgjusvið og er verðlag misjafnt
eftir því á hvaða sviði talað er.
Svokölluð metrabylgja nær um 50
sjómílur út frá landinu líkt og far-
símar. Millibylgja er gjarnan notuð
ef skip_ eru stödd 50-400 mílur frá
landi. í þriðja lagi er svo stuttbylgj-
an notuð ef menn eru komnir á
þessi svokölluðu úthafsveiðisvæði
og lýtur kvörtun sjómannanna helst
að þeirri þjónustu.
Nýtt skip til
Hornafjaðar
GARÐEY SF 22 kom til heima-
hafnar á Höfn í Hornafirði í
þessum mánuði, en skipið er
keypt frá Raufarhöfn og hét
áður Atlanúpur. Eigandi Garð-
eyjar er samnefnt fyrirtæki og
er þetta þriðja skip fyrirtækis-
ins sem ber þetta sama nafn.
Fyrr á árinu seldi Garðey hf,
frystiskipið Andey til Súðavík-
ur. Skipið er búið línubeitingar-
vél og er gert út á línu.
Morgunblaöið/Stefán Ólafsson
Bkrndet Frugí
. •af.
Gulerodsmos
Gnmsagsblandíuí
aðeins þab besta er nógu gott fyrir barnið þitt! m
Barnamatur framleiddur úr lífrænum hráefnum
wmiíupa