Morgunblaðið - 26.09.1996, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
IRA-
maðurinn
var óvopn-
aður
BRESK yfirvöld viðurkenndu
í gær, að IRA-maðurinn
Diarmuid O’Neill, sem skotinn
var á mánudag, hefði verið
óvopnaður. Talsmaður lög-
reglunnar sagði hins vegar,
að talið hefði verið að hann
væri vopnaður og hættulegur
og enginn tími gefist til að
kanna það nánar þegar ráðist
var inn í hús í London þar sem
IRA eða írski lýðveldisherinn
var með sprengjuverksmiðju.
Þar fundust 10 tonn af
sprengiefni og fimm menn
voru handteknir. Sinn Fein,
stjórnmálaarmur IRA, hefur
gagnrýnt bresku lögregluna
vegna þessa máls en ljóst
þykir, að sprengjufundurinn
geri út um vangaveltur um,
að IRA hafi verið í þann veg-
inn að endurnýja 17 mánaða
gamlt vopnhlé.
Mikilvægur
fundur
MENN, sem leitað hafa að
braki úr TWA-þotunni, sem
fórst skammt frá New York,
hafa hugsanlega fundið hluta
af aðaleldsneytistanki vélar-
innar. Verið getur, að í hon-
um sé að leita ástæðunnar
fyrir slysinu en margt bendir
til, að sprengingin í vélinni
hafi orðið þar. Áður höfðu
fundist brot úr honum, sem
svöruðu alls til 65% tanksins,
en ekki úr miðjum tankinum
fyrr en nú.
Njósnaði fyr-
ir S-Kóreu
ROBERT Kim, tölvusérfræð-
ingur, sem starfaði fyrir
leyniþjónustudeild banda-
ríska sjóhersins, hefur verið
handtekinn og sakaður um
njósnir fyrir Suður-Kóreu. Er
hann fæddur í S-Kóreu en
hefur verið bandarískur þegn
frá 1974. Starfaði hann ekki
sjálfur að njósnum en hafði
samt aðgang að ýmsum leyni-
legum upplýsingum.
Mafíu-
morðingi
handtekinn
LÖGREGLAN í Liege í Belgíu
hefur handtekið mann frá
Sikiley, Angelo Romano, en
hann er grunaður um að vera
mafíumorðingi. Er hann tal-
inn’ hafa myrt tvo menn úr
annarri mafíufjölskyldu á Sik-
iley og verður trúlega fram-
seldur þangað. Þá hefur verið
gefin út alþjóðleg handtöku-
tilskipun á hendur tveimur
mönnum frá Túnis en talið
er, að þeir hafi verið fengnir
til að myrða vallónska stjórn-
málamanninn Andre Coois.
Mannfall á
Sri Lanka
HERMENN Sri Lankastjómar
hafa fellt eða sært meira en
500 tamílska skæruliða í nýrri
sókn gegn aðalbækistöðvum
þeirra í norðurhluta landsins.
Að sögn talsmanna hersins
hefur hann sjáifur misst 58
menn og 115 hafa særst.
Varnarmálaráðherrar NATO fjalla um friðargæslu >
Skipuleggja fram-
hald á friðargæslu;
Frakkar og Bandaríkjamenn deila um áhrif í NATO
Björgvin. Reuter.
Stríðsglæpa-
réttarhöld í
Rúanda
ALÞJÓÐLEGI stríðsglæpadóm-
stóllinn, sem var skipaður til að
fjalla um stríðsglæpamál í Rú-
anda, kom aftur saman í Arusha
í Tanzaníu í gær eftir réttarhlé
síðan í maí. Engin réttarhöld eru
enn hafin á vegum hans, en áætl-
að er að þau fyrstu hefjist í dag.
Aðeins 21 maður hefur verið
ákærður og þrír eru í gæsluvarð-
haldi hjá dómstólnum í Arusha.
Talið er að um 80 þúsund
manns séu í fangelsum í Rúanda
og bíði þess að lagðar verði fram
ákærur og réttarhöld hefjist, eða
þeir verði látnir lausir.
Hér sjást nokkrir Hútúar, sem
eru í haldi í Gikondo-fangelsinu
í Kigali í Rúanda.
KOMIST var að þeirri niðurstöðu á
óformlegum fundi varnarmálaráð-
herra aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) í Björgvin í gær að
allt útlit væri fyrir að gera yrði fram-
hald á friðargæslu alþjóðlegra sveita
(IFOR) undir forystu NATO í Bos-
níu. í upphafi var gert ráð fyrir að
sveitirnar yrðu til 20. desember.
Bandarískir embættismenn sögðu
í gær að William Perry, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, hefði varað
við því að fela þeim sveitum, sem
tækju við af IFOR, auknar lögreglu-
skyldur og bætti við að Bandaríkja-
menn hefðu lítinn áhuga á því að
bandarískir hermenn yrðu sendir til
að hafa hendur í hári stríðsglæpa-
manna.
Hermt var að Þjóðverjar, Kanada-
menn, Hollendingar og Tyrkir hefðu
verið áfram um að umboð gæsluliðs
í Bosníu yrði aukið og tæki til leitar
að stríðsglæpamönnum.
Bandaríkjamenn varkárir
Bandaríkjamenn hafa viljað fara
varlega í sakirnar og forðast skuld-
bindingar varðandi framtíð friðar-
gæslu í Bosníu vegna forsetakosn-
inganna, sem haldnar verða í Banda-
ríkjunum 5. nóvember.
Engar bindandi ákvarðanir voru
teknar á fundinum í Björgvin, en
bandalagið er nú fyrst að viðurkenna
opinberlega að framlengja friðar-
gæslu í Bosníu.
„Grunnurinn að samkomulagi um
nýja [friðarjaðgerð er að koma í
ljós,“ sagði Volker Rúhe, varnar-
málaráðherra Þýskalands, og bætti
við að markmiðið yrði „fæling og
að koma á stöðugleika".
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, sagði að engin ákvörðun hefði
verið tekin enn um það hvort friðar-
gæslu yrði haldið áfram, en engin
þjóð hefði lagst gegn hugmyndinni.
Frakkar og Bandaríkjamenn ,
deila
Charles Millon, varnarmálaráð- *
herra Frakklands, hótaði í gær að P
falla frá áætlunum um að taka full-
an þátt í starfi NATO á ný vegna
ágreinings við Bandaríkjamenn um
það hver eigi að verða yfirmaður á
varnarsvæði NATO í suðurhluta
Evrópu.
Frakkar, sem hættu þátttöku í
hernaðarstarfi NATO 1966 vegna
ágreinings um áhrif Bandaríkja- L
manna í bandalaginu, en tóku áfram
pólitískan þátt, hafa sagt að það sé j'
skilyrði fyrir þátttöku á ný að vegur p
Evrópu verði aukinn.
Bandaríkjamenn halda því fram
að þeir þurfi að fara með yfirstjórn
suðursvæðisins (AfSouth) vegna
þess mikla herafla, sem þeir hafi
jafnt í lofti sem á legi á Miðjarðar-
hafssvæðinu.
Þetta mál hefur ekki verið áber-
andi í umræðum á fundinum í Björg- |
vin, en það hefur verið rætt í hliðar-
sölum og jafnvel er óttast að það 9
geti staðið tilraunum til umbóta í ^
NATO fyrir þrifum.
EFTA-dómstóll
kveður upp
álit um vinnurétt
Dómsmálaráðherrar ESB-ríkja þinga í Dublin
L
1
l
Höfuðstöðvar Europol
!
t
Europol verði beitt 1
gegn barnaníðingum
EFTA-dómstóllinn kvað í gær upp
ráðgefandi álit í tveimur norskum
málum, sem varða túlkun á tilskipun
Evrópusambandsins um vemd laun-
þega við eigendaskipti að fyrirtækj-
um, atvinnurekstri eða hiuta atvinnu-
rekstrar, en hún gildir á öllu Evr-
ópska efnahagssvæðinu. Niðurstaða
dómstólsins varð sú að í ákveðnum
tilvikum geti sú aðstaða, að einn þjón-
ustuaðili taki við af öðrum, fallið
undir ákvæði tilskipunarinnar. Hins
vegar sé nýjum vinnuveitanda ekki
skylt að greiða iðgjöld til fijálsra líf-
eyristrygginga, sem fyrri vinnuveit-
andi greiddi vegna starfsmanna sinna.
í fréttatilkynningu frá dómstólnum
kemur fram að tveir héraðsréttir í
Noregi, Gulating lagmannsrett og
Stavanger byrett, hafi óskað eftir
ráðgefandi áliti í málum, sem þar eru
til meðferðar. í báðum máiunum krefj-
ast launþegar þess að nýr vinnuveit-
andi þeirra greiði til frjálsra lífeyris-
trygginga, iikt og fyrri vinnuveitandi.
Annar maðurinn var starfsmaður
þjónustufyrirtækis, sem sá um veit-
ingar og þrif á olíuborpöllum í Norð-
ursjó, en hinn hjá fyrirtæki sem sá
um pípulagnir á olíuborpöllunum. í
máli annars hátt-
aði svo til að eftir
lok samnings við
fyrri vinnuveit-
anda hans var
gerður samningur
við Stavanger Cat-
ering um sömu
þjónustu. Fyrir-
tækið, sem hinn maðurinn vann hjá,
var hins vegar keypt af nýjum þjón-
ustuaðila, Norske Fabricom.
Reglur um vernd launþega
geta átt við
I fréttatilkynningu dómstólsins
kemur fram að hann hafi komizt að
þeirri niðurstöðu að ofangreind til-
skipun Evrópusambandsins
(77/187/EBE) geti átt við, þótt fyrir-
tæki hafi keypt veitingaþjónustu og
þrif frá tilteknu fyrirtæki samkvæmt
samningi og síðan, eftir lok þess
samnings, samið um sömu þjónustu
við annað fyrirtæki. Til að ákvarða
hvort aðilaskipti hafí orðið að hluta
atvinnurekstrar, í skilningi tilskipun-
arinnar, verði hins vegar að líta til
ýmissa atriða, svo sem hvort aðila-
skipti hafi orðið að fjárhagslegri heild
með eigin auðkenni, sem séu óbreytt
eftir aðilaskiptin. I hveiju máli fyrir
sig verði t.d. að skoða hvort eignir
séu yfirfærðar og réttindi yfirtekin.
Þá þurfi að líta til eðlis og verðmæt-
is eignanna, hvort meirihluti laun-
þega eða þeir, sem búa yfir sérþekk-
ingu og reynslu, eru fluttir til hins
nýja atvinnurekanda, hvort aðila-
skipti verða að viðskiptasamböndum
og viðskiptavinum, hversu hliðstæð
starfsemi fari fram fyrir og eftir
aðilaskipti og hversu lengi starfsemi
liggi niðri, sé um það að ræða.
Aftur á móti komst dómstóllinn að
þeirri niðurstöðu að samkvæmt til-
skipuninni væri nýjum vinnuveitanda
ekki skylt að
greiða iðgjöld til
fijálsra lífeyris-
trygginga sem
fyrri vinnuveitandi
greiddi vegna
starsfmanna
sinna. „Að mati
dómsins verður
ekki skilið á milii iðgjalda til slíkra
lífeyristrygginga og uppsöfnunar
réttinda samkvæmt þeim. Það er, að
mati dómsins, óraunhæft að mæla
fyrir um greiðslu iðgjalda, þar sem
ekki er um frekari uppsöfnun réttinda
að ræða eftir aðiiaskipti,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Brussel. Reutcr.
DÓMSMÁLARÁÐHERRAR aðild-
am'kja Evrópusambandsins hefja
tveggja daga fund i Dublin í dag og
ræða aðgerðir til að hindra að glæpa-
hópar geti flutt börn milli landa og
selt þau í kynlífsánauð. Efnt er til
fundarins í kjölfar mikillar umræðu
um þetta vandamál vegna máls þarn-
aníðingsins Marcs Dutroux í Belgíu.
John Bruton, forsætisráðherra ír-
lands og gestgjafi ráðherranna,
kvaðst ætla að hvetja þá til að auka
umboð Europol, lögreglu ESB-ríkj-
anna, þannig að stofnunin geti tekið
á giæpahópum sem ræna bömum
og selja þau mönnum, sem misnota
þau kynferðislega.
Anita Gradin, sem fer með dóms-
mál innan framkvæmdastjórnar
ESB, kvaðst ætla að hvetja ríkis-
stjórnir aðildarríkjanna til að stað-
festa samning um Europol, þannig
að stofnunin geti hafið starfsemi að
fullu. „Ef við viljum ná þessum
glæpahópum, sem ræna bömum, þá
þurfum við að efla Europol."
Gradin kveðst ennfremur styðja
hugmyndir um að Europol verði falið
að koma upp gagnabanka um öll
börn sem saknað er í aðildarríkjum
ESB.
Móðir Dutroux krafðist
handtöku hans
Tólf manns hafa verið handteknir
í Belgíu vegna rannsóknarinnar á »
máli Marcs Dutroux, sem talinn er ■
hafa verið höfuðpaurinn í barna-
klámhring. Yfirmenn lögreglunnar
og embættismenn í dómskerfinu hafa
sætt harðri gagnrýni vegna málsins
og verið sakaður um að hafa leitt
hjá sér vísbendingar um glæpastarf-
semi Dutroux.
Móðir bamaníðingsins hefur skýrt _
frá því að hún hafi haft samband við
lögregluna í fyrra og krafist þess að
hann yrði handtekinn fyrir glæpi.
Lögreglan hafí þó ekkert aðhafst.
Móðirin leitaði til lögreglunnar til að
reyna að endurheimta íbúð, sem
Dutroux hafði lagt hald á. Hann hafði
ekki talað við móður sína í rúm 20 ár.
Lík tveggja átta ára stúlkna fund-
ust við leit í einu af húsum Dutroux
og í ljós kom að þær sultu í hel þeg-
ar hann hélt þeim föngnum eftir að g,
hafa rænt þeim. Tveimur stúlkum, 12
og 14 ára, var bjargað úr kjallaklefa
í öðru húsi í eigu Dutroux og tvær |
stúlkur til viðbótar fundust látnar í
húsi samverkamanns bamaníðingsins. i