Morgunblaðið - 26.09.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 23
Reuter
DIMITRA Liana, ekkja Andreas Papandreous, ræðir við blaða-
menn eftir að hafa greitt atkvæði í kosningununi um helgina.
Dimitra Liani
gengur fram
af Grikkjum
DIMITRA Liani, ekkja Andreas Pap-
andreous, fyrrverandi forsætisráð-
herra Grikklands, hefur valdið upp-
námi meðal Grikkja, jafnt stuðnings-
manna sem andstæðinga, sem telja
að hún hafí gengið of langt í að
opinbera sorg sína. Liani hefur kom-
ið fram í grískum sjónvarpsþáttum
þar sem sýndar hafa verið myndir
af ekkjunni syrgja Papandreou,
biðja, kveikja á kertum og kyssa
helgimyndir í kapellu einbýlishúss
sem hann lét reisa handa henni í
einu úthverfa Aþenu. „Ég þrái þetta
einstaka samband og ég held í allt
sem var svo sérstakt, veru hans hér
og minningamar og ég hlakka til
þeirrar stundar þegar við hittumst
aftur," sagði hún í þættinum.
„Nú er komið nóg, Dimitra,“
sagði í fyrirsögn dagblaðsins Eleflt-
herotypia, sem lýsti framgöngu
hennar sem smekklausri tilraun til
að fá samúð almennings. Dagblöð,
sem styðja Sósíalistaflokkinn,
brugðust einnig ókvæða við þáttun-
um. „Við studdum hana. Við sættum
okkur jafnvel við athyglissýki henn-
ar,“ sagði dagblaðið Ethnos. „Nú
hefur hún þó farið yfir strikið. Þeir
sem sáu hana leika syrgjandi ekkj-
una í dýrum, svörtum kjól og vera
með látalæti fyrir framan helgi-
myndirnar fylltust reiði og viðbjóði.“
Papandreou, sem var 77 ára þeg-
ar hann lést í júní, skildi við fyrri
konu sína og kvæntist Liani, sem
var 36 árum yngri, árið 1989. Hún
var mjög umdeild meðal sósíalista
og margir þeirra óttuðust að hún
hygði á frama í stjórnmálum en þau
áform urðu að engu við andlát eig-
inmannsins.
Simitis sver eiðinn
Eftirmaður Papandreous, Costas
Simitis, sór embættiseið sem for-
sætisráðherra Grikklands við hátíð-
lega athöfn í gær. Athöfninni var
sjónvarpað í beinni útsendingu og
hún hófst með því að svartklæddir
prestar sungu blessunarorð og 42
ráðherrar og aðstoðarráðherrar
sóru embættiseiðinn hver á fætur
öðrum á eftir forsætisráðherranum.
Sósíalistaflokkurinn bar sigur úr
býtum í þingkosningunum á sunnu-
dag. Forsætisráðherrann myndaði
nýja stjóm sem er blanda af reyndum
ráðherrum og nýrri kynslóð stjóm-
málamanna, sem vilja koma á viðam-
iklum umbótum og áttu stóran þátt
í að koma Simitis til valda er Andre-
as Papandreou lét af embætti í janúar.
Vðggusæiigur,
vöggusett,
SkóbvArðustig 21 Simi 551 4050 Reykjavtk.
Premium
PC
Bestu kaupin I tölvu í dagi
Turnkassi
Pentium 133 örgjörvi
16MB EDO minni
1280MB diskur
2MB PCI S3 skjákort
8 hraða CD-drif
Soundblaster 16VE
10W Hátalarar
15" hágæða litaskjár
Lyklaborð og mús
Windows 95 uppsett
Aðeins kr. 144.900 stgr.
Digital á íslandi
Vatnagarðar 14-104 Reykjavík
Sími 533-5050 - Fax 533-5060
ERLENT
Arásir Alexanders Lebeds á stjórnvöld í Kreml
Varar við hættu á
uppreisn í hemum
Moskvu, Brussel. Reuter, The Daily Telegraph.
ORVÆNTING er orðin svo mikil í
röðum rússneska hersins vegna
vangoldinna launa og ömurlegra
lífsskilyrða að þar gæti komið til
uppreisnar á næstunni, að sögn
Alexanders Lebeds, yfirmanns ör-
yggisráðs Rússlands. Lebed, sem
ekki á sæti í ríkisstjórn Víktors
Tsjernomýrdíns forsætisráðherra,
gagnrýnir harkalega stjórnina í við-
tali við rússneskt dagblað sem birt-
ist í gær. Hann segist vita hveriiig
eigi að koma í veg fyrir algert hrun
í iandinu en hafi ekki völd til að
framfylgja hugmyndum sínum.
Hann lýsir einnig harðri andstöðu
við stækkun Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) og fordæmir árásir
Bandaríkjamanna á írak.
Ummæli Lebeds í viðtali við
breska blaðið The Daily Telegraph,
sem birtust í fyrradag, hafa einnig
valdið írafári. Þar ræðst hann harka-
lega á Vesturveldin fyrir áætlanir
um að taka fyrrverandi leppríki Sov-
étríkjanna inn í NATO. Boðar hann
m.a. refsiaðgerðir gegn vestrænum
flárfestum í Rússlandi ef af verði.
Fulltrúar stjórnvalda í Kreml
flýttu sér að segja að aldrei hefði
verið rætt þar um að svara stækkun
NATO með aðgerðum eins og lýst
er í viðtalinu. Það væri stefna
stjórnvalda að auka fijáls viðskipti,
stækkun NATO væri enn á um-
ræðustigi og því ekki hægt að fjalla
um hugsanleg viðbrögð við henni.
Ráðamenn hjá NATO í Brussel
lýstu áhyggjum sínum vegna um-
mæla Lebeds ef þau væru rétt eftir
höfð. í Washington lýsti talsmaður
utanríkisráðuneytisins í gær furðu
sinni og gaf í skyn að Lebed ætti
að draga ummælin til baka. Á skrif-
stofu Lebeds í Moskvu var sagt að
viðtalið í The Daily Telegraph væri
uppspuni. Lebed hefði aldrei rætt
við umrædda blaðakonu, Carey
Schofield, ljóst væri að menn væru
að reyna að auka misklíð milli
Rússa og Vesturveldanna með því
að leggja Lebed orð í munn.
Charles Moore, ritstjóri breska
blaðsins, vísar mótmælunum á bug
og lýsir furðu sinni vegna málsins.
Schofíeld hafi rætt tvisvar við Lebed
í Moskvu um síðustu helgi, alls hafí
samtöl þeirra varað í þijár klukku-
stundir. Hershöfðinginn fyrrverandi
er á hinn bóginn alræmdur fyrir að
vilja ekki kannast við það sem eftir
honum er haft í fjölmiðlum, einkum
þegar vestræn blöð eiga í hlut.
Upplausn í hernum
„Ríkisstjórnin ... hefur stungið
höfðinu í sandinn en mjög alvarlegir
atburðir eru að gerast. Við vitum
hvað gerðist þegar rússneski herinn
byijaði að leysast upp árið 1916,“
sagði Lebed í viðtalinu í gær sem
birtist í blaðinu Vetsjemaja Moskva.
Upplausn í hernum í fyrri heims-
styijöld var ein helsta orsök þess
að bolsévikkar gátu hrifsað til sín
völdin í Rússlandi 1917. Lebed, sem
er fyrrverandi hershöfðingi, virtist
með viðvörunarorðum sínum ekki
eiga við skipulegar aðgerðir af hálfu
helstu hershöfðingja heldur stað-
bundna óánægju meðal óbreyttra
hermanna og lágt settra liðsforingja
vegna lélegra kjara þeirra. Hann
sagði að það væri „þjóðarhneisa"
að hermenn hefðu ekki fengið laun
í þijá mánuði og liðsforingjar yrðu
að fá sér aukavinnu til að skrimta.
„Liðsforingjar eru á spítala
vegna vannæringar. Fjölmörg
sjálfsvíg eru framin í hernum. Menn
verða að betla og stela,“ sagði hann.
Rússneskir ijölmiðlar hafa lýst
hörmungum hermanna, einkum
ungra manna er gegna herskyldu
og verða að betla fyrir mat. í sum-
um tilvikum hafa liðsforingjar leigt
bændum heilu herflokkana sem
vinnuafl til að nota við uppskeru-
störf, hermenn selja vopn sín á
svörtum markaði og stofna lífi sínu
í hættu með því að fjarlægja
sprengjuhleðslur til að ná í verð-
mæta málma sem hægt er að selja.
Illa hefur gengið að koma á end-
urbótum, meðal annars fækkun í
heijunum í 1,5 milljónir manna en
kafbátar, flugskeyti og skriðdrekar
ryðga vegna umhirðuleysis. Á for-
síðu dagblaðs vamarmálaráðuneyt-
isins, Kraznaja Zvesda, í gær var
frétt um aukna tíðni sjálfsvíga með-
al liðsforingja.
„Þeir [stjórn Tsjernomýrdíns]
hafa ákveðið að grafa markvisst
undan hemum og gera varnarmála-
ráðherrann áhrifalausan,“ sagði
Lebed.
PERLUR
SjÖUNDA ÁRATUCARINS
í flutningi frábærra söngvara, dansara og
10 manna hfjómsveitar Cunnars Þóréarsonar
SÖNCVARAR:
Ari Jónsson, Bjami Arason, Björgvin Halldórsson,
Pálmi Gunnarsson og Söngsystur
7?VCcLtseffiLL
Œorréttiir:
‘P.jómalöguð sjávarréttasúpa.
fXðcilréttur:
'Eldsteiktur lambavöðin með tjljdðu grœnmeti,
djúpsteiktum jarðeplum og sólberjasósu.
'EftirréUur:
‘Terskjuís í brauðkörfu rneð fieitri karamellusósu.
Ver3 kr. 4.800 á kvöldverS og sýningu.
Verð kr. 2.200 á sýningu.
TILBOÐ
Á HÓTEL-
GISTINGU
Hljómsveitin SIXTIES
jeikur fyrir dansi í aðalsai eftir
sýningu.
Itom fyJAND
Miða- og borðapantanir í stma 568-7111