Morgunblaðið - 26.09.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 25
MYNPLIST
Ingólfsstræti 8
MYNDVERK
Hulda Hákon. Opið miðvikudaga
til sunnudaga frá klukkan 14-18.
Til 6. október. Aðgangur ókeypis.
LÁGMYNDIN hefur fylgt Huldu
Hákon frá fyrstu tíð og þótt hún
hafi á stundum nálgast tvívíða flöt-
inn er jafnan stutt í upphleypt form
því hún hugsar mikið í fyrirferð
yfirborðsins. í verkum hennar í list-
húsinu Ingólfsstræti 8, örlar í
grunnatriðum ekki á miklum breyt-
ingum frá sýningu hennar í vestur-
sal Kjarvalsstaða fyrir rúmum tveim
árum sem þó er fjarri lagi að vera
áfellisdómur. Blómaformin bláu eru
hér komin aftur en nú prýða þau
Igrundað
hlutfeldi
fyrirferðarmikla ramma, sem um-
lykja texta og orðstef sem mikið eru
notuð til að gefa hvunndeginum lit
í margs konar mannlegum sam-
skiptum. Þau fylgja t.d viða á bak-
hlið miðanna sem vogir á almanna-
færi erlendis skila frá sér við notk-
un, og léttir brún margra, hvað svo
sem tölurnar á framhliðinni opin-
bera nú annars.
Orðspekin er ákaflega almenns
eðlis, ögrar á engan hátt og lyftir
ei andanum á flug, telst þannig
meinlaus skírskotun hvað innihald
snertir en þó fullgildur liður í því
myndræna ferli sem listakonan hef-
ur valið sér. Jafn-
framt er þetta mjög
í anda margs sem
getur að líta í núlist-
um tímanna, er
notkun stafa, orða,
setninga og máls-
greina hefur orðið
meira og meira
áberandi í sýningar-
sölum listhúsa og
safna.
Leikurinn er
ákaflega skreyti-
kenndur og nálgast
hugtakið „kitsch“,
Morgunblaðið/Golli
Hulda Hákon
og eru ekki mörg
ár síðan menn hófu
það til vegs vestan
hafs og var hér Jeff
Koons einkum stór-
tækur um glys og
hnoð.
Eldurinn er hér
einnig, í einn stað
sem skreyti á
ramma en í annan í
smækkuðu og fjöl-
földuðu formi, en
Hulda hefur gert 16
eintök af myndinni
„Eldur“, sem eru
akrýllitir á „hydrocal", eins og það
heitir í skrá. Orðið fyrirfinnst ekki
í bókum mínum, en mun sérheiti á
efni.
Þá er gamli sígildi skurðurinn,
sem Hulda er þekktust fyrir kominn
aftur í stærsta verki sýningarinnar,
sem dregur til sín athygli líkt og
segull. Samþjappaður fjöldi nafn-
lausra hausa fyllir myndflötinn, lík-
astur stefnulausri breiðfylkingu sem
líður hjá í einskinsmannslandi, star-
andi út í tómið og enginn veit hvað-
an kom né hvert stefnir. Hverful
veröid á skriði, ganghjól mannlegra
samskipta, brotabrot nafnlauss
múgs sem byggir þessa jörð en
skynjar hvorki stað né tíma.
Þetta allt persónugerir og speglar
sýninguna sem minnir á eitthvað í
biðstöðu frekar en að hún rífi í hugs-
anaferli skoðandans.
Bragi Ásgeirsson
Jazz 96
JAZZHÁTÍÐIN RúRek 96;
Fimmtudagur 26. september
Kl. 17. Jómfrúin: Norður-suður
kvartettinn. Frítt.
Kl. 20.30. Norræna húsið: Tríó
Wolfert Brederode. Kr. 1.000.
Menningarstofnun: Bandaríkjanna.
Einleikstónleikar Jon Webers. Frítt.
Kl. 22. Hótel Saga: Kvartett Skúla
Sverrissonar. Kr. 1.500.
Kringlukráin: Frú Pálína og félag-
ar. Frítt.
Hótel Borg: Kvartett Ómars Axels-
sonar. Frítt.
Píanó: Hljómsveit Carls Möllers.
Frítt.
------»~».-----
Jónas leikur á
Hvammstanga
NÚ er að hefjast 6. starfsár Tónlist-
arfélags Vestur-Húnvetninga,
fyrstu tónleikarnir verða föstudag-
inn 27. september kl. 21 í Félags-
heimilinu á Hvammstanga. Þar leik-
ur Jónas Ingimundarson á píanó
verk eftir Schubert, Beethoven,
Chopin o.fl.
Þetta eru eins og áður segir
fyrstu áskriftartónleikar félagsins í
vetur, en annars eru tónleikar
a.m.k. einu sinni í mánuði.
LJÓSMYND eftir Björn.
Björn sýnir
ljósmyndir í
Myndási
BJÖRN Valdimarsson opnar sína
fyrstu ljósmyndasýningu í Ljós-
myndastöðinni Myndási, Laugarás-
vegi 1, næstkomandi laugardag, 28.
september.
Björn býr á Siglufirði og hefur
haft ljósmyndun sem áhugamál í
nokkur ár. Á sýningunni eru lit-
myndir sem flestar eru teknar á
þessu ári og því síðasta í Siglufirði
og næsta nágrenni.
Sýningin verður opin virka daga
kl. 10-18 og á laugardögum kl.
10-16 til 18. október.
-----» »-------
Ljósmyndasýn-
ingí Kaffi 17
NÚ stendur yfir ljósmyndasýning
Krissýjar á Kaffi 17, Laugavegi 91.
Þetta er fyrsta einkasýning hennar
en hún hefur tekið þátt í tveim sam-
sýningum á Óháðu listahátíðinni ’92
og ’93.
Á þessari sýningu eru listrænar
Ijósmyndir frá tímabilinu ’88-’96,
eins konar yfirlitssýning.
Sýningunni lýkur 18. október.
Páskaliljur
30 blóm kr. 399,-
U fieimur
l' ..........
TILBO
30 túlípanar
I X * i*<* i
30 krókusar
blandaðir litir kr. 399,-