Morgunblaðið - 26.09.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 27
Astin á tímum
kólerunnar
KVIKMYNPIR
Rcgnboginn
HESTAMAÐURINN Á
ÞAKINU
„LE HUSSARD SUR
LE TOIT“ ★ ★ ★
Leikstjóri: Jean-Paul Rappeneau.
Byggð á sögu eftir Jean Gino. Aðal-
hlutverk: Juliette Binoche, Olivier
Martinez, Gerard Depardieu í litlu
gestahlutverki. Frakkland. 1995.
EINN mesti stórmyndasmiður
Frakka um þessar mundir er Jean-
Paul Rappeneau sem fyrir sex árum
sendi frá sér Cyrano De Bergerac.
Nýjasta myndin hans er einnig epísk
ástarsaga og heitir í íslenskri þýðingu
Hestamaðurinn á þakinu, „Le hussard
sur le toit“. Hún er gerð eftir þekktu
skáldverki Jean Gino og er einskonar
sambland af Jane Austen og Victor
Hugo. Rappeneau tengir viðkvæma
franska rómantík við taktfastan og
hraðan frásagnarstíl Hollywood-
mynda, sem gefur Hestamanninum
öra og hressilega innspýtingu. Hver
spennandi flóttinn rekur annan í leit
aðalpersónanna að áfangastað með
skelfilegan kólerufaraldur í bakgrunni
og einstaklega bælda ástarsögu í for-
grunni.
Sagan gerist árið 1832 í suðurhér-
uðum Frakklands. Angelo (Olivier
Martinez) er ítalskur aðalsmaður og
föðurlandsvinur sem er hundeltur af
útsendurum Austurríkis um frönsk
þorp og sveitir plagaðar af bráðdrep-
andi kóleru. Á flótta sínum kynnist
hann hefðarmeyjunni Pauline (Juli-
ette Binoche) í örvæntingarfullri ieit
að eiginmanni sínum og hann gerist
nokkurskonar lífvörður hennar og
íylgdarmaður.
Astin kviknar á milli þeirra á þess-
um tímum kólerunnar en þau fara
fínt með það. Ekkert er sagt berum
orðum, engin snerting eða blíða að-
eins þijóska og ákveðni hans í að
vernda hana og þögult þakklæti henn-
ar fyrir umhyggjuna. Tilfinningamar
halda sig allar undir yfirborðinu og
ást þeirra virðist dauðadæmd vegna
aðstæðna þeirra. Rappeneau býr þeim
umhverfi sem enn eykur á kaldan
tómleikann í ást þeirra. Yfir þeim
vofir dauðinn í sinni skelfilegustu
mynd; það virðist aðeins tímaspurs-
mál hvenær þau veikjast. Við sjáum
hvað getur orðið um þau á næsta
leiti; afskræmd fómarlömb kólerunn-
ar liggja eins og hráviði hvar sem þau
fara. Hræfuglar sveima yfír þeim og
æstur múgur reynir að handtaka þau.
Talandi dæmi um ofsóknaræðið sem
Rappeneau tekst að lýsa svo ágætlega
er lítið atriði þar sem Pauline sest inn
hjá yfirstéttinni í nálægum bæ og það
verður uppvíst að hún hefur ferðast
um kólerusvæðin.
Myndin er oft gullfallega tekin í
frönsku sveitinni. Endursköpun tíma-
bilsins og kólemfaraldursins hefur
tekist með mestum ágætum og ástar-
sagan umkringd dauðanum á allar
hliðar er svo hófstillt en samt svo
sterk að hún fleytir myndinni yfir
veikleikana. Martinez er einstreng-
ingslegur og brattur í hlutverki Ang-
elo en fellur í skuggann af Binoche
sem er hjartað og sálin í myndinni;
hryggð hennar og staðfesta og al-
vöruþrungin fegurð sem glóir.
Arnaldur Indriðason
Lést
Poeúr
hunda-
æði?
BANDARÍSKUR prófessor í
læknavísindum heldur því
fram að rithöfundurinn Edgar
Allan Poe, sem sagður er hafa
drukkið sig í hel, hafi í raun
dáið úr hundaæði. Þessu hélt
læknirinn, R. Michael Benitez,
fram á læknaþingi í Bandaríkj-
unum.
Poe lést árið 1849 í Balti-
more. Ekki voru allir sáttir við
þá skýringu að hann hefði
drukkið sig í hel þar sem hann
hafi þolað áfengisneyslu svo
illa síðustu árin að hann hafi
orðið veikur af einu vínglasi.
Hafði ofskynjanir
Samkvæmt lýsingum á
veikindum hans síðustu dag-
ana hafði hann ofskynjanir og
varð síðan mjög ofbeldis-
hneigður áður en hann róaðist
og lést, fjórum dögum eftir að
hann fannst meðvitundarlaus
á götu úti. Þá átti Poe mjög
erfitt með að drekka vatn sem
er eitt einkenna hundaæðis.
Þeir sem ekki trúa kenning-
unni um að áfengi hafi dregið
Poe til dauða benda á að lækn-
ir hans, sem kom henni af stað,
hafi verið mikill baráttumaður
fyrir bindindi og hafi viljað að
dauði Poes yrði öðrum víti til
varnaðar.
SIEMENS
Nýjar þvottavélar á ótrúlegu kynningarverði.
Fáðu þéreina!
,ens þvottavél!
s 53.900 kr. stgr.
Við bjóðum á næstu
vikum þessartvær
glæsilegu Siemens
þvottavélar á sérstöku
kynningarverði sem
ekki verður endurtekið.
Nú er lag að gera
góð kaup.
• 11 grunnkerfi fyrir suðuþvott, mislitan þvott,
straufrítt og ullarþvott.
•Stiglaus stilling á þeytivinduhraða:
500 - 800 sn./mín. (WM 20850SN),
600 -1000 sn./mín. (WM 21050SN).
• Vatnsborðshnappur.
• Skolstöðvunarhnappur.
• Hagkvæmnihnappur (e).
• Fíngangshnappur (aðeins á WM 21050SN).
• Sérstakt ullarkerfi.
• Frjálst hitaval frá köldu upp í 90° C.
• Ryðfrítt stál í belg og tromlu.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 511 3000
UMB0ÐSMENN 0KKAR
Á LANDSBYGGÐINNI:
Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs
Borgarnes:
Glitnir
Borgarf jörður:
fíafstofan Hvítárskála
Snæfellsbær:
Blómsturvellir
Grundarf jörður:
Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmur:
Skipavík
Búðardalur:
Ásubúð
ísafjörður:
Póllinn
Hvammstangi:
Skjanni
Sauðárkrókur:
Rafsjá
Sigluf jörður:
Torgið
Akureyri:
Ljósgjafinn
Húsavik:
Öryggi
Vopnaf jörður:
Rafmagnsv. Árna M.
Neskaupstaður:
Rafalda
Rcyðarf jörður:
Rafvélaverkst. Árna E.
Egí Isstaðír:
Sveinn Guðmundsson
Brciðdalsvík:
Stefán N. Stefánsson
Höfn í Hornafirði:
Króm og hvítt
Vik i Mýrdal:
Klakkur
Vestmannaeyjar:
Tréverk
Hvolsvöllur:
Rafmagnsverkst. KR
Hella:
Gilsá
Selfoss:
Árvirkinn
Grindavik:
Rafborg
Garður:
Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavik:
Ljósboginn
Hafnarf jörður:
Rafbúð Skúla,
Álfaskeiöi
f'""-
V j
Grænt númer
k /
'">///irí'
Símtal í grœnt númer er
ókeypis fyrir þann sem hringir*
*Gildir fyrir símtöl innanlands. Ef hringt er úr
farsíma, greiðir sá sem hringir farsímagjald.
PÓSTUR OG SÍMI
: m HELENA
Rubinstein
Kynnum
haustlitina
í dag og á
morgun.
Glæsileg snyrtitaska
ásamt vöru fylgir þegar
keyptir eru 2 eða fleiri
hlutir af haustlitunum.
Fjöldi annarra tilboða.
10% kynningarajsláttur.
snyrtivöruverslun
Strandgata 32, 22o
Hafnarfirði, sími 555 2615
KynAu þér feosfl Me Boac
# Vandað og margbreytilegt fjaðrakerfi sem tryggir réttan
stuðning, þægindi og endingu.
# Margar gerðir eru til þannig að allir geta fundið dýnu
við sitt hæfi, þungir eða léttir -það skiptir engu máli.
# Margar stærðir eru í boði, allt frá 80 sm.
# Góð yfirdýna fylgir öllum Ide Box fjaðradýnunum.
# Ide Box fjaðradýnurnar eru á tréramma og geta staðið
einar sér eða passa ofan í flest öll rúm.
# Hjón geta valið sitthvora dýnugerðina ef vill og eru
þá dýnurnar einfaldlega festar saman.
# Ide Box fjaðradýnurnar hafa leyst málin fyrir þær þúsundir
íslendinga sem kusu betri svefn.
# Ide Box fjaðradýnurnar eru alltaf til á lager
# Ide Box fjaðradýnurnar eru ekki dýrar.
Komdu og profaðu Ide Box tjaðradymjmaf.
berpjanao starrsTOK oxxar iexur vet a moo per.
Munið bara\
Ide Box fjaðra- >
dýnurnar fást *
\ aðeins hjá /
vv okkur.
r
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bildshbtði 20 -112 Rvik - S:587 1199