Morgunblaðið - 26.09.1996, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MIMNIMGAR
t
Faðir okkar,
ÞÓRIR FRIÐGEIRSSOIM
fyrrverandi bókavörður,
Sjúkrahúsi Húsavíkur mánudaginn 23. september.
Dætur hins látna.
lést
t
Elskuleg systir okkar og mágkona,
MARGRÉT ÁRNADÓTTIR,
Leirubakka 12,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 14. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þökkum innilega sýnda
samúð. Sérstakar þakkir til starfsfólks
á deild 14G.
Árni H. Árnason,
Einar H. Árnason,
Rannveig Árnadóttir,
Ólafur H. Árnason,
Gunnar H. Árnason,
Jytte Árnason,
Borgþór H. Jónsson,
Magnúsfna Guðmundsdóttir,
Margrét Steingrfmsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
RÚTUR ÓSKARSSON,
Svalbarði 12,
Hafnarfirði,
lést í Landspítalanum 24. september.
Karl Rútsson,
Óskar Loftur Rútsson,
Sumarliði Jóhann Rútsson,
Ingi Borgþór Rútsson,
Rútur Sigurður Rútsson
og barnabörn.
Sigríður Karlsdóttir,
Anna Þorsteinsdóttir,
Helena Kolbrún Leifsdóttir,
Kristjana Guðrún Guðbergsdóttir,
Gréta Rögnvaldsdóttir,
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
FRIÐRIKKA GUÐBJÖRG
EYJÓLFSDÓTTIR,
sem lést á sjúkradeild Hrafnistu,
Hafnarfirði, 17. september, verður jarð-
sungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudag-
inn 27. september kl. 13.30.
Asta Lárusdóttir,
Karlotta Einarsdóttir,
Eyjólfur Einarsson,
Ingveldur Einarsdóttir,
Nikulína Einarsdóttir, Sigfús Svavarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar,
ELÍSABET MAGNÚSDÓTTIR,
Sogavegi 112,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 27. september kl. 13.30.
Herdis Helgadóttir,
Skúli Helgason
og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær sonur minn, stjúpsonur, bróðir,
mágur og frændi,
EIRÍKUR ELLERTSSON,
Ásabraut 16,
Keflavík,
•cem lést af slysförum á heimili sínu
hinn 16. september sl., verður jarð-
sunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtudag-
inn 26. september kl. 14.
Ellert Eiriksson, Guðbjörg Á. Sigurðardóttir,
Jóhannes Ellertsson, Katrín Sólveig Guðjónsdóttir,
Elva Ellertsdóttir, Gústaf Adolf Skúlason,
Birna Helga Jóhannesdóttir.
BRYNJÓLFUR
GUÐJÓN
ÁRSÆLSSON
+ Brynjólfur Guð-
jón Ársælsson
fæddist í Reykjavík
7. ágúst 1918. Hann
lést á Landspítalan-
um 19. sept. síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Ársæll
Brynjólfsson, f.
1888, d. 1960, og
Arndís Helgadóttir,
f. 1892, d. 1986.
Systkini hans eru:
Anna, f. 1913; Helgi,
f. 1915, d. 1996;
Svava, f. 1916, Har-
aldur, f. 1920, Sig-
rún, f. 1924, Ásdís, f. 1926, Bald-
vin, f. 1928, og Hreiðar, f. 1929.
Hinn 15. desember 1945 kvænt-
ist Brynjólfur Þóru Sigríði Ingi-
mundardóttur, f. 10. febrúar
1918 á Kletti í Gufudalssveit,
Núna þegar tengdafaðir minn,
Brynjólfur Guðjón, hefur lokið þess-
ari jarðvist, minnist ég hans með
þakklæti fyrir samveruna. Nonna
og Þóru kynntist ég fyrir tæpum 30
árum á Bústaðaveginum, þegar ég
kom þangað með syni þeirra. Síðan
hefur aldrei fallið skuggi á vináttu
okkar og aldrei fallið styggðaryrði
okkar í milli.
Nonni var trúaður maður og
margar góðar stundir áttum við
saman í umræðu um lífið og tilver-
una og ekki síst lífið eftir dauðann.
Stundum réðum við saman drauma,
en Nonni var berdreyminn og hafði
gaman af því að glíma við merkingu
draumanna, bæði sinna og annarra.
Hjá okkur var ævinlega glatt á hjalla
og oft hlegið dátt. Eftir að Þóra
mín dó varð samband okkar enn
nánara því Nonni lagði sig allan fram
að vera börnum okkar og barna-
barni sem allra bestur.
Tengdafaðir minn var ákaflega
sterkur maður til líkama og sálar
og hann og Binni unnu mikið saman
alla tíð, við byggingu sumarbústaðar
fjölskyldunnar, auk þess sem Nonni
var alltaf mættur ef eitthvað stóð
tii hjá okkur.
Alltaf var Nonni jafn rólegur og
duglegur, allt lék í höndunum á hon-
um og virtist vera svo auðvelt þegar
hann var til staðar.
Betri tengdaföður hefði ekki verið
hægt að hugsa sér. Nonni minn,
aldrei gleymi ég því hversu mikinn
stuðning og skilning þú sýndir mér
við fráfall bróður míns.
Að endingu langar mig til þess
að þakka þér fyrir vináttu þína alla
tíð, og hversu góður þú varst okkur
öllum. Þín er sárt saknað.
Far þú í friði.
Ragnheiður.
Kæri Brynjólfur. Það er svo sárt
að setjast niður og kveðja þig í hinsta
sinn. Alltaf kemur dauðinn manni í
opna skjöldu og þá sérstaklega þeg-
ar þú átt í hlut, þú sem alltaf varst
svo hress og kátur og barst þig
ætíð vel þrátt fyrir veikindi þín.
Mikið höfðum við Hreiðar gaman
af þegar þú renndir í hlað á Volvóin-
um þínum, þá var alltaf flautað
tvisvar til að tilkynna komu sína og
síðan setið að spjalli yfir kaffibolla.
Þetta voru ánægjulegar stundir og
d. 21. febrúar 1985
á Landspítalanum.
Sonur Brynjólfs og
Þóru er Brynjólfur
Þór, f. 13. júní 1949
í Reykjavík. Eigin-
kona hans er Ragn-
heiður Jónsdóttir,
f. 13. október 1950
í Reykjavík. Börn
þeirra eru: Guðrún,
f. 20. júlí 1972 í
Reykjavík, Jón Ág-
úst, f. 14. desember
1975 í Reykjavík,
og Brynjólfur Guð-
jón, f. 29. apríl 1983
í Reykjavík. Barn Guðrúnar er
Ragnar Þór Magnússon, f. 9.6.
1990.
Útför Brynjólfs fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
þú lífgaðir upp á tilveruna með þínu
hressa og skemmtilega fasi. Margar
ánægjulegar samverustundir áttum
við saman á ferðum hér innanlands
að ógleymdum óviðjafnanlegum
tíma sem við Hreiðar áttum með þér
í Búlgaríu; tími sem aldrei gleymist.
Ekki var heldur amalegt að heim-
sækja þig á þitt glæsilega heimili,
hvort heldur var á Bústaðaveginum,
þar sem við áttum margar góðar
stundir eða í Hraunbænum, það
hefði sómt hvaða hússtjórnarkenn-
ara sem var, slíkur var myndarskap-
urinn hjá þér í öllu sem þú tókst þér
fyrir hendur, þegar á reyndi eftir
að þú misstir þína góðu, myndarlegu
konu hana Þóru. Ollu heimilinu var
eins vel við haldið og hún hefði ver-
ið að verki, það var sama hvort það
var í matseld, sem þú varst snilling-
ur í, og eins gast þú brugðið fyrir
þig saumaskap ef á þurfti að halda
og allt jafn vel af hendi leyst. Bíllinn
þinn bar natni þinni gott vitni.
Að lokum bað Arndís okkar, sem
stödd er í Danmörku, fyrir bestu
kveðjur til þín og hún þakkar þér
fyrir allan stuðninginn við sig, sama
gera öli okkar börn og eins Heiða
litla, sem saknar þín.
Elsku Nonni, þessar fáu línur eiga
að flytja þér hinstu kveðju og þakk-
læti fyrir allt frá okkur Hreiðari
fyrir allar góðu samverustundirnar,
við vitum að þú tekur á móti okkur
hress og kátur þegar við komum.
Ég veit þú fékkst engu, vinur, ráðið um það,
en vissulega hefði það komið sér betur,
ef lát þitt hefði ekki borið svo bráðan að
við bjuggumst við að hitta þig oft í vetur,
og nú var um seinan að sýna þér allt það
traust
sem samferðafólki þínu hingað til láðist
að votta þér. Það var svo ástæðulaust
að vera að slíku fyrst daglega til þín náðist.
(Tómas Guðmundsson.)
Þínir vinir,
Guðbjörg og Hreiðar.
Vinur minn Brynjólfur Guðjón
Ársælsson er látinn eftir stutt veik-
indi. Við kynntumst fyrir rúmum 40
árum í varahlutaverzlun Kristins
Guðnasonar við Klapparstíg þar sem
hann var innanbúðar en ég sendi-
sveinn. Síðar stofnuðum við saman
fyrirtækið Brynco hf. Byrjað var að
selja sútaðar gærur til verzlana
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
Sendum
myndalista
MOSAIK
Hamursliöfði 4 - Rcvkjavik
sími: 587 1960-Jax: 5871986
varnarliðsins um allan heim. Þurr-
kloftið á Bústaðaveginum þar sem
Binni og kona hans Þóra bjuggu var
pökkunarstaðurinn. Við gáfumst
upp á þessum útflutningi og hófum
innfluting á bifreiðavarahlutum.
Fljótlega varð þurrkloftið of lítið og
leigðum við okkur bílskúr undir
starfsemina. Eingöngu var selt til
verkstæða úti á landsbyggðinni. Á
hveiju sumri voru farnar söluferðir.
Binni var frábær sölumaður. Hann
átti mjög gott með að tala við fólk,
var alltaf léttur í lund og vingjarn-
legur. Tímarnir breyttust, samgöng-
ur bötnuðu, og þörf fyrirtækja úti á
landi til þess að eiga varahluti á
lager hvarf. Smám saman lognaðist
fyrirtækið út af. Binni starfaði síðan
sem húsvörður hjá Landsbankanum
á Laugavegi 77. Þar var hann í ess-
inu sínu og honum leið vel.
Það var gott að líta inn á Bústaða-
veginn til Þóru og Binna og alltaf
var okkur hjónunum vel tekið. Oft
var glatt á hjalla við eldhúsborðið
þar sem gómsæta súkkulaðitertan
hennar Þóru rann ljúflega niður.
Vináttan var einlæg enda litu þau
nánast á okkur sem börnin sín og
iðulega þegar Binni var spurður um
samband okkar sagðist hann vera
fóstri minn. Þau hjónin voru ákaf-
lega samstillt um að halda heimili
sínu hreinu og fallegu og því hélt
Binni áfram eftir andlát Þóru sem
lést langt um aldur fram. Ekki var
bíllinn síðri, þar sem ekki var nóg
að þvo og bóna að utan, heldur var
vélin þrifin og farið í alla króka og
kima með tannbursta.
Sonurinn Brynjólfur Þór var
augasteinninn og samband þeirra
feðga mjög gott. Þegar hann giftist
Ragnheiði Jónsdóttur og barnabörn-
in og síðar barnabarnabam kom í
heiminn bættust þau í hópinn sem
hugsað var um af kærleika.
Binni var trúaður og hafði áhuga
á andlegum málefnum. Vonlaust var
að ræða þau mál við mig, en hann
sagði að ég væri sem betur fer vel
giftur og ræddu þau Ása andlegar
upplifanir og drauma en Binni var
mjög berdreyminn.
Fyrir nokkrum árum var Binni svo
lánsamur að eignast góða vinkonu,
Margréti P. Ormslev. Þau studdu
hvort annað, og voru dugleg að fara
og gera eitthvað skemmtilegt sam-
an. Það var yndislegt að sjá þau
saman svo glöð og ánægð þó að það
væri ekki annað en að kaupa í mat-
inn í Hagkaup. Alltaf þegar við hitt-
umst breiddi Binni út faðminn og
hafði eitthvað fallegt að segja við
okkur.
Við biðjum Guð að blessa og
styrkja fjölskyldu hans og ástvini.
Ása og Þorkell.
Ég horfi yfír hafíð
um haust af auðri strönd;
í skuggaskýjum grafíð,
það skilur mikil lönd.
Sú ströndin sttjála’ og auða,
er stari’ eg héðan af
er ströndin stríðs og nauða,
er ströndin hafsins dauða,
og hafið dauðans haf.
En fyrir handan hafíð,
þar hillir undir land;
í gullnum geislum vafið,
það girðir skýjaband.
Þar gróa í grænum hlíðum,
með gullslit blómin smá.
í skógarbeltum blíðum,
í blómsturlundum fríðum,
má allskyns aldin sjá.
(V. Briem.)
Minning Brynjólfs lifir.
Margrét.