Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 41 EIRÍKUR ELLERTSSON + Eiríkur Ellerts- son fæddist í Keflavík 6. desem- ber 1960. Hann lést á heimili sínu Keflavík 16. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Ellert Eiríksson bæjarstjóri Reykjanesbæ, f. 1. maí 1938, og Birna Helga Jóhannes- dóttir, f. 24. nóvem- ber 1941, d. 9. febr- úar 1993. Núver- andi eiginkona Ell- erts er Guðbjörg Á. Sigurð- ardóttir nemi, f. 2. nóvember 1958. Systkini Eiríks eru: Jó- hannes Ellertsson, kennari, f. 13. september 1962, maki Katrín Sólveig Guðjónsdóttir nuddari, f. 7. nóvember 1951, dóttir þeirra er Birna Helga; Elva Ell- ertsdóttir nemi, f. 2. mars 1965, unnusti Gústaf Adolf Skúlason sljórnmálafræðingur, f. 12. júní 1969. Útför Eiríks fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ó, dauði, taktu vel þeira vini mínum, sem vitjað hefur þreyttur á þinn fund. Oft bar hann þrá til þín í huga sínum og þú gafst honum traust á banastund. Nú leggur hann það allt, sem var hans auð- ur, sitt æviböl, sitt hjarta að fótum þér. Er slíkt ei nóg? Sá einn er ekki snauður, sem einskis hér á jörðu væntir sér. (Tómas Guðm.) Kæri vinur, þitt líf var mér ávallt hulin ráðgáta, þú lifðir hratt, valdir erfíða leið sem ég hélt í einfeldni minni að hlyti að finnast bót á. Margt höfum við spjallað um lífið og tilveruna og þú kallaðir mig ávallt galdranorn en alltaf hafðir þú þolinmæði til að hlusta á mínar „spekulasjónir" þó þín tilvera væri allt önnur en mín. Kæri vinur, ég vonaði alltaf innst inni að hægt væri að ráða bót á þínu meini en þú valdir erfiða leið til lífsþroska í þessu lífi. Kæri vinur, þínir mannkostir fóru ekki framhjá neinum sem kynntust þér enda af sómafólki kominn. Litla dóttir mín, fyrsta barnabarn föður- foreldra sinna og það eina, var þér ávallt mjög hjartfólgin enda bar hún nafn þinnar ástkæru móður sem lést um aldur fram hinn 9. febrúar 1993, harmdauði öllum sem til þekktu. Mér er efst í huga þakk- læti fyrir allt sem þú varst Bimu minni, rauðu gönguskóna sem voru hennar fyrstu og þú varst svo stolt- ur af að hafa gefið henni ásamt öðru. En ekkert var of mikið fyrir litlu prinsessuna, hana Birnu Helgu. Móðir mín hafði oft orð á því hversu rausnarlegur þú varst við litlu frænku þína. Þú lést þig líka alltaf varða um hinar dætur mínar og fylgdist alitaf grannt með öllu sem þær voru að gera. Hinn 13. september átti bróðir þinn, sambýlismaður minn, afmæli og þá birtist þú með einn þann stærsta blómvönd sem ég hef séð. Eg brosti og sagði: Það munar ekki um það þegar Eiríkur er annars vegar. Kæri vinur, það er skrýtin tilviljun að síðasta máltíðin sem þú borðaðir hjá mér sl. fimmtudag skyldi vera uppáhaldsmaturinn þinn. Mér fínnst dálítið einkennilegt að um það leyti sem þú varst að skilja við þá var ég að lesa það sem á hug minn allan í dag, elstu heilsu- fræði veraldar, Ayurveda, og segi við Jóa bróður þinn: Nú er ég búin að finna út hvað hjálpar Eika bróð- ur þínum. En ég fékk aldrei tæki- færi til að segja þér frá þessu, þú hefðir hlegið mikið. Kæri vinur, megi sál þín öðlast frið og hvíla í friði. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín mágkona, Katrín Sólveig. Vertu yfir og allt um kring með eiiífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson.) Elsku hjartans frændi minn. Mig lang- ar að þakka þér fyrir allt sem þú varst mér. Elsku frændi, þú gafst mér mína fyrstu gönguskó, hárauða skó sem ég reyni enn að troða mér í þó of litlir séu. Þegar ég var skírð spurðir þú mömmu og pabba hvort ég væri búin að fá bankabók og þegar þau svöruðu nei varst þú ekki lengi að opna bók með bestu vöxtum sem til eru í dag og lagðir inn veg- lega upphæð. í skírnargjöf fékk ég mikið af skartgripum og gafst þú frænku litlu fallegt, hjartalaga skartgripaskrín undir skartgripina sína. Elsku frændi, mamma sagði mér að þú hefðir sagt að ég væri það barn sem þér þætti vænst um. Þakka þér fyrir allt, elsku frændi minn. Þín frænka, Birna Helga. Þegar Eiríkur Ellertsson fæddist var hann mér nánast eins og litli bróðir, því hann bjó í fyrstu með foreldrum sínum hjá okkur á Suður- götunni meðan þeir voru að koma sér upp eigin húsnæði. Alla tíð leit- aði hann mikið til afa síns og ömmu, foreldra minna, þar sem við hitt- umst oft og áttum góðar stundir því með okkur héldust alltaf kær- leikar. Glaðværð hans og smitandi hlátur settu jafnan svip á umræð- una. En ekki var okkur alltaf hlátur í hug. Eiríkur var nefnilega oft á valdi þess böls sem mörgum hefur gert lífið leitt. Hann hvarf dögum og vikum saman og skiidi eftir sig óvissu, áhyggjur og söknuð. Öllum ber saman um að hann hafi verið sjálfum sér verstur, því öðrum vildi hann ekkert illt. Þegar hann kom aftur, glaðvær og hjálpsamur, ekki síst við afa sinn og ömmu, kviknaði alltaf von um að nú færi að birta til. Á sinn hátt hefur nú birt til, því hann hefur kvatt þannig að böl hans er að baki en eftir lifa minning- ar og söknuður, en hvorki óvissa né áhyggjur. Nema áhyggjur af þeim samferðamönnum sem enn hafa ekki náð að slíta sig frá böl- valdinum. Bros Eiríks og gott hjartalag sannar að meðal þeirra er margur góður maðurinn. Megi þeir öðlast styrk til að breyta von í vissu um betra líf fyrir sjálfa sig, ættingja og vini. Eiríkur Guðnason. Eiki frændi er dáinn. Þó hann dæi ungur teljum við að hann hafi verið saddur lífdaga. Hann lifði lífinu hratt og var búinn að kynnast flest- um hliðum þess er hann lést. Við kveðjum hann með söknuði, við átt- um alltaf þá von að hann fengi bata, að hann losnaði úr klóm Bakk- usar, en svo fór sem fór. Eiki var bráðvelgefínn drengur, hann fylgdist vel með öllu sem fram fór í hvaða ástandi sem hann var. Það var alltaf gaman að spjalla við hann, öll umræðuefni komu til greina, hann var góður taflmaður og frábær bridgespilari, hann vissi allt um íþróttir og fylgdist vel með stjórnmálum og þjóðmálum al- mennt. Eiki var vinur allra og er okkur einlægur hlátur hans eftir- minnilegur. Það var alltaf gaman þegar hann lét sjá sig í fjölskyldu- boðunum, tók hraustlega til matar síns og spjallaði við alla um heima og geima. Eiki heimsótti okkur stundum og einnig hittumst við hjá ömmu og afa þar sem var hans annað heimili og er missir ömmu mikill, nú þegar afi er nýdáinn, en við huggum okk- ur við að þeim líði betur á nýjum stað. Burkni er í Þýskaiandi og getur ekki fylgt frænda sínum í dag en sendir fjölskyldunni bestu kveðjur. Við sendum Ellerti, Jóa, Elvu og fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur um leið og við þökkum frænda samfylgdina. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Æðruleysisbænin) Björk, Sóley, Börkur, Ösp, Burkni og fjölskyldur. Hugur okkar reikar aftur í tím- ann. Þegar við kynntumst Eiríki var ástand hans ekki mjög gott en þrátt fyrir það sem maður sá og heyrði kom hann okkur fyrir sjónir sem góður maður. Eiríkur var bróðir sambýlismanns móður okkar og varð strax einn af okkar fjölskyldu. Hann var mjög gjafmildur og gaf eins mikið og hann gat þótt hann ætti ekki einu sinni nóg fyrir sjálfan sig. Við sáum yfirleitt góðu hliðarnar á honum og munum við ætið minn- ast hans þannig. Minningamar em margar og góð- ar um þig, kæri vinur. Þú átt ávallt stað í hjarta okkar og við munum aldrei gleyma þér. Við þökkum fyr- ir stutta en góða samveru. Hvíldu í friði. Sandra og Stella Maris. Flestir hljóta einhvern tíma ævi sinnar að velta fyrir sér tilgangi lífsins. Sumir finna tilgang en aðrir eru leitandi lífið á enda. Heilbrigður og efnilegur sveinn, góðum gáfum gæddur, hefur eflaust leitað að hin- um rétta lífsvegi. Einhvers staðar á ieiðinni lenti hann í ógöngum og smám saman varð torfæran slík að ekki varð snúið til greiðari brautar að nýju. Vinur minn, Eiríkur Ell- ertsson, er látinn aðeins 35 ára að aldri. Flestir Keflvíkingar vita hver Eiríkur var. Ekki er ég samt viss um að margir hafi kynnst hans innri manni. Þess átti ég hins vegar kost og er ég afar þakklát fyrir það í dag. Fáa þekki ég sem er jafn annt um náungann og Eiríki var. Hann hafði mikla þörf fýrir að fá að fylgj- ast með gengi samferðamanna sinna og gladdist manna mest þeg- ar vel gekk. Aldrei hitti ég hann án þess að hann spyrði um líðan mína og minna nánustu. Og mörg samtöl áttum við á förnum vegi. Ekki fór á milli mála að þar fór maður sem vildi öllum vel og mátti ekkert aumt sjá. í huga mínum er ljóslifandi sú umönnun sem hann veitti ömmu sinni, Hansínu, vistmanneskju á Hlévangi þar sem ég vann, þegar hún þurfti tíðum að sækja heilbrigð- isþjónustu til Reykjavíkur. Þótt mörgum finnist ef til vill lítið til koma þá veit ég að það tímabil kostaði mikil innri átök hjá Eiríki. Væntumþykja hans og góðmennska urðu þar öðrum öflum yfírsterkari. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég góðan og ljúfan vin hinstu kveðju og þakka fyrir samfylgdina. Góður guð geymi minningu hans og gefí ykkur styrk, elsku Jói, Elva, Ellert, Hansína og aðrir aðstand- endur. Halla Þorsteinsdóttir. Meðan veðrið er stætt berðu höfuðið hátt og hræðstu eigi skugga á leið. Bak við dimmasta él glitrar lærvirkjans ljóð upp við ljóshvolfin björt og heið. Þó steypist í gep þér stormur og regn og þó byrðin sé þung sem þú berð þá stattu fast og vit fyrir vist þú ert aldrei einn á ferð. (Höf. ók.) Enn einn úr hópnum er horfmn um aldur fram. Minningarnar frá áhyggjulausum skólaárum streyma um hugann. Eiríkur var skýr og fjörugur drengur, efnilegur íþrótta- maður og góður félagi. En lífið varð honum erfiður skóli og þó hann hafi gengið annan veg en flest okkar, þá var það honum alltaf mikils virði að tilheyra hópnum. Við kveðjum hann í fullvissu um að nú líði honum vel og að hæfileik- ar hans fái að blómstra. Sendum aðstandendum samúðar- kveðjur. Skólafélagar. RAGNHILDUR PETRA HELGADÓTTIR Okkur langar að kveðja þig með örfáum línum. Við áttum margar og góðar stundir, sem við munum ávallt geyma í minningunni um þig. Það var sárt að sjá hvernig líf almættið valdi fyrir þig, því að við sem þekktum þig best, vitum svo vel hve mikið öðruvísi það hefði getað verið. Þú varst svo hlýr og hugsunar- samur, sem sýndi sig best þegar þú varst ömmu þinni og afa innan handar. Við trúum því að afí þinn leiði þig þann veg, sem nú er framundan og vitum að á leiðarenda verða ánægjulegir endurfundir með móður þinni. Hún amma þin þakkar, að Guð hafi leyft þér að koma, en á eftir að sakna þín, eins og við öll, því það er nú einu sinni svo, að við vilj- um bæði halda og sleppa í senn. Far nú sæll í friðarlandið bjarta farsæll þar, munt gleyma allri þraut og göfug sál þin guð í kærleik skarta hans gjöful hönd þig leiði rósarbraut. (Þorfinnur Jónsson.) Árnheiður og Steinunn. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) + Ragnhildur Petra Helga- dóttir fæddist á Selfossi 3. nóvem- ber 1968. Hún lést af slysförum 16. september síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Skálholtskirkju 25. september. Elsku systir okkar og vinkona. Þegar fregnin kom um að þú værir farin frá okkur varð það okk- ur mikið reiðarslag. Það er okkur því mikil huggun að minnast þín eins og þú varst. Vandamálin urðu að engu þegar þú varst nálæg og alltaf hægt að leita til þín ef eitthvað bjátaði á. Alltaf varst þú tilbúin að bæta byrð- um á bak þitt ef einhver leitaði til þín, jafnt innan sem utan fjölskyld- unnar. Við sáum öll hvað drengirnir þín- ir voru hændir að þér og hvað þú varst þeim mikil móðir. Sama má segja um öll önnur börn sem þú umgekkst, þau hændust öll að þér og litu á þig sem móður. Þér voru gefnir svo margir list- rænir hæfileikar sem þú gast alltaf notað til að gleðja okkur og aðra samferðamenn. Einnig svo ótrúleg orka og lífskraftur að öll verkefni sem þú tókst að þér Ieystust eins og af, sjálfu sér. Á þinni stuttu ævi fórst þú ótrúlega víða og tókst á við mörg ólík verkefni, en hvar sem þú varst eignaðist þú vini sem á þessum erfiðu dögum eru okk- ur ómetanlegur styrk- ur. Elsku Peta, við þökkum þér fyrir allar góðu stundimar sem við áttum með þér. Þær munu lifa með okkur um ókomna framtíð. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Systkinin Rauðaskógi og fjölskyldur og Björn Breiðfjörð Kristþórsson. Minnismerki úr steini Steinn ér kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki. Áralöng reynsla. BiS. HELGASON HF ISTEINSMIÐJA LAUGAVEGS APÓTEK Laugavegi 16 HOLTS APÓTEK Álfheimum 74 eru opin til kl. 22 Naeturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Laugavegs Apótek
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.