Morgunblaðið - 26.09.1996, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 26.09.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 45 FRÉTTIR 19. landsfundur Kvenréttindafélags íslands í Hafnarfirði 27.-28. september Fjallað um af- nám mismununar gegn konum KVENRÉTTINDAFÉLAG íslands heldur sinn 19. landsfund í Hafnar- borg í Hafnarfirði 27.-28. septem- ber. Auk almennra landsfundar- starfa verður fjallað um samning Sameinuðu þjóðanna um afnám mis- mununar gegn konum og þátttöku kvenna í atvinnulífi. Dagskráin hefst klukkan 20 á föstudagskvöld með ávarpi formanns Kvenréttindafélags íslands, Bryndís- ar Hlöðversdóttur. Á laugardag hefst dagskráin klukkan hálfníu og klukk- an 11 flytur Elsa Þorkelsdóttir fram- kvæmdastjóri skrifstofu jafnréttis- mála erindi um samning Sameinuðu þjóðanna um afnám mismununar gegn konum, eða CEDAW. Spurt er hvernig samningurinn geti nýst sem tæki í jafnréttisbaráttu. Þá ijallar Brynhildur Flóvens lög- fræðingur um lagatúlkun íslenskra dómstóla í Ijósi CEDAW-sáttmálans og Sigríður Lillý Baldursdóttir skrif- stofustjóri í félagsmálaráðuneyti um alþjóðlega samninga og réttindi kvenna. Að því loknu verða pall- borðsumræður. Eftir hádegi flytur Lára V. Júlíus- dóttir lögmaður erindi um CEDAW- sáttmálann og þátttöku kvenna í atvinnulífinu og Aðalheiður Héðins- dóttir framkvæmdastjóri Kaffitárs ehf. og Inga Þyrí Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Atlantsfisks ehf. fjalla um sama efni. Þvínæst eru pallborðsumræður. Fundinum verður slitið klukkan 18 og klukkan 18.45 verður haldið í mótttöku forseta íslands á Bessa- stöðum. Þá má geta þess að Norræna ráð- herranefndin heldur ráðstefnu um konur og nýsköpun í atvinnulífi í Gautaborg 26.-27. september og einnig verður ráðstefna um ofbeldi, misnotkun og réttindi kvenna í Brig- hton á Englandi 10.-15. nóvember. Loks verður þing Alþjóðasamtaka kvenréttindafélaga haldið í Kalkútta 1.-9. desember. Fundur um vinstri- sameiningu RÖSKVA, samtök félags- hyggjufólks við Háskóla Is- lands, stendur fyrir málfundi í dag, fimmtudag, kl. 12.10 í stofu 101 í Odda. Á fundinum munu Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Þjóð- vaka, Jón Baldvin Hannibals- son, formaður Alþýðuflokksins og Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins, flytja erindi um sameiningu jafnaðarmanna og svara fyrir- spumum fundargesta. ísafjarðarbær Útboð Strætisvagnaakstur Bæjarsjóður ísafjarðarbæjar óskar eftir til- boðum í strætisvagnaakstur á leiðinni Suður- eyri - ísafjörður - Suðureyri. Útboðsskilmál- ar auk almennra skilyrða um almennings- akstur eru eftirfarandi: Verktaki aki frá Suðureyri alla virka daga og komi að Framhaldsskóla Vestfjarða kl. 7.50 ^ og fari af stað til Suðureyrar síðdegis sama dag. Verktaki skal leggja til bifreið sem tekur minnst 18 farþega og skal innheimta far- gjöld af farþegum 120 kr. fyrir einstakar ferð- ir en 100 kr. ef keyptar verða 10 ferðir eða fleiri. Bæjarsjóður greiðir verktaka fast gjald á mánuði en verktaki heldur andvirði greiddra fargjalda farþega. Miða skal tilboðið við að gerður verði samningur um verkið sem gildi til loka skólaárs 1997. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðin verða opnuð f fundarsal bæjar- stjórnar í Stjórnsýsluhúsinu mánudaginn 30. september nk. kl. 15. Bæjastjóri Isafjarðarbæjar, Kristján Þór Júlíusson. Til leigu við Ármúla 430 fm stór salur, eldhús og snyrtingar. Húsnæði sem hentar vel félagasamtökum, hægt að skipta í minni einingar. Auk þess 280 fm lager- og verslunarhúsnæði á jarð- hæð, sniðið fyrir heildsölu og verslun. Nánari upplýsingar veita: Ársalir ehf. - fasteignasala, sími 533 4200. Síðumúli — til leigu Mjög gott 113 fm skrifstofuhúsnæði, sem skiptist í 3 herbergi, eldhús og móttöku. Laust strax. Sanngjörn leiga. Nánari upplýsingar veita: Ársalir ehf. - fasteignasala, sími 533 4200. Vantar lagerhúsnæði Heildverslun vantar 100-130 fm lagerhús- næði ásamt skrifstofuaðstöðu til leigu mið- svæðis í Reykjavík. Til greina kemur að deila aðstöðu með öðrum. Upplýsingar í síma 561 9477. Höfum fengið í sölu eða leigu einstaklega snyrtilegt og skemmtilega hannað skrifstofu- húsnæði, alls ca 680 fm. Á jarðhæð ca 110 fm opið rými en 570 fm afstúkað rými á 2. hæð. Fallegar innréttingar. Parket. Glæsilegt útsýni. Hús með gott auglýsingagildi, góða aðkomu og næg bílastæði. Upplýsingar í síma 511 1600. Hóll - Leigulistinn, Skipholti 50B, 105 Reykjavík. Flosi ÍS-15 Til sölu er Flosi ÍS-15 sem er 33,8 m stáibát- ur smíðaður í Noregi 1964 með 800 hestafla Mirrlees Blackstone aðalvél frá 1982. Bátur- inn sem hefur leyfi til veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á þessu fiskveiðiári selst með veiðileyfi og hálfum síldarkvóta. Rúm- tala bátsins'eru 809,9 rúmmetrar. Nansen ÍS-16 Til sölu er Nansen ÍS-16 sem er 34,6 m stál- bátur smíðaður í Noregi 1966 með 801 hest- afls Stork aðalvél frá 1982. Báturinn sem hefur leyfi til veiða úr norsk-íslenska síldar- stofninum á þessu fiskveiðiári selst með veiðileyfi, aflahlutdeild hans í þorski, ýsu og hálfum síldarkvóta. LM skipamiðlun ■WT Friðrik J. Arngrímsson hdl. M löggiltur skipasali, w Skólavörðustíg 12, Reykjavík, sími 562 1018 ATVINNUHUSNÆÐI í Seljahverfi - til sölu/leigu Gott skrifstofuhúsnæði á 2. hæð, skiptist í 6 herbergi, rúmgott eldhús og snyrtingu með sturtu. Laust strax. Nánari upplýsingar veita: Ársalir ehf. - fasteignasaia, sími 533 4200. Til sölu eða leigu Rekstur keilubrauta Keilufélags Suðurnesja, Hafnargötu 90, Keflavík er til sölu eða leigu. Upplýsingar í síma 422 7274 eftir kl. 20.00. Landsst. 5996092619 VII singar Pýramítinn - andleg miðstöð I.O.O.F. 5 = 1789267 = Dd I.O.O.F. 11 = 1789268V2 = 90 ss^ Hjálpræóis- herinn Kirkjustrætí 2 í kvöld kl. 20.30. Lofgjörðarsamkoma. „Bergmál frá Hornafjaröarferð". Allir hjartanlega velkomnir. Bændagisting Kiðafelli Ertu á leið í bæinn? Góð og ódýr gisting og morgun- matur. Aðeins hálftíma keyrsla frá Reykjavík. Uppl. í s. 566 6096. Dagsferð 29. sept. Kl. 9.00 Fjallasyrpan, 10. áfangi; Hvirfill, lokaáfangi. Gengið upp í Grindarskörð og á fjallið. Gengið með vesturbrún Lönguhlíðar og niður Vatnshlíð- arhorn hjá Kleifarvatni. Verð 1.000/1.200. Helgarferð 27.-29. sept. 1. Kl. 19.00 Landmanna- laugar-Hattver. Gengið úr Laugum yfir í Hattver sem er fallegur en fáfarinn staður. Það- an er farið yfir í Hrafntinnusker og aftur til Lauga, allt á einum degi. Erfið ferð. Verð 6.600/7.200. 2. Kl. 20.00 Básar, haustlita- ferð. Verð 4.900/5.600. Netfang: http://www.centrum.is/utivist í kvöld 26. september kl. 20.30 verður Vilhelmfna Magnúsdótt- ir með erindi um „FYRRI LÍF" í Pýramýtanum. Mætið timanlega. Miðar seldir við innganginn. Eftirtaldir aðilar starfa nú með Pýramítanum: Bíbí Ólafsdóttir, sambands- og læknamiðlun, lestur í tarotspil, fyrri líf. Erla Huld, sambands- og lækna- miðlun, iljameðferð með kristöll- um, orkujöfnun, orkusteinameð- ferð, fyrirbænir og kristallafjar- heilun. Ellen Sveinsdóttir, heilun, hug- leiðsla, fyrirbænir. Hermundur Sigurðsson, talna- speki, tarotlestur, fyrri líf. Kristín K., esóterísk stjörnukort. Sigurveig Buch, spámiðill, les í bolla, tarotspil, víkingakort, dul- skyggni- og rúnaspil. Ragnheiður Ólafsdóttir, teikni- miðill og ráðgjöf. Þeir sem vilja kynna sér starf- semi Pýramítans eru velkomnir á ókeypis kynningarfundi á mánudagskvöldum kl. 20.30. Hugleiðslu- og bænahringur öll þriðjudagskvöld kl. 20.30. Nánari upplýsingar í símum 588 1415 og 588 2526. Pýramítinn, Dugguvogi 2. Litaljósritun Opið frá kl. 13.30-18.00. Ljósfell, Laugavegi 168, Brautarholtsmegin. MYND-MÁL Myndlistarnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Undirstöðuatriði og tækni. Málað með vatns- eða olíulitum. Upplýsingar og innritun eftir kl. 14 alla daga. Rúna Gísladóttir, listmálari, sími 561 1525.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.