Morgunblaðið - 26.09.1996, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
551 6500
Simi
Sími
551 6500
LAUGAVEG 94
Sýnd kl. 4.45, 9 og 11.15. b. i. 16 ára.
■f
Sýnd kl. 7 og 11.10.
B. i. 16 ára.
liðið mætir til leiks á föstudaginn!!
Sýnd kl. 4.45, 6.50 og 9.
NORNAKLÍKAN
SVAÐILFORIIU
MARGFALDUR
MICHAEL KEATON
UNDIR borðhaldi spila þrír mexíkóskir tónlistarmenn.
Mexíkóskir
dagar í Grillinu
Þ- MEXÍKÓSKIR dagar verða í Grillinu á Hótel
Sögu til 29. september. Yfirmatreiðslumaður
Krystal hótelsins í Cancun, Alejandro Caloca er
gestur Grillsins í annað skipti en áður kom hann
vorið 1994 við góðar undirtektir gesta. Einnig
niunu þrír tónlistarmenn skemmta gestum Grillsins
" með þjóðlegri tónlist frá Mexíkó. Auk þess að heim-
sækja Reykjavík munu þessir aðilar heimsækja
aðrar höfuðborgir norðurlandanna á vegum Ferða-
málaráðs Mexíkó.
Morgunblaðið/Kristinn
ALEJANDRO Caloca leyfði gestum að smakka
á því sem í boði er á Mexíkóskum dögum og
var látið vel af veitingunum.
BIOBOCC?
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384
NETFANG: http://www.islandia. is/sambioin
FYRIRBÆRIÐ
SCH WAR ZENEQQEI
Sýnd kl. 6.50. B.i. 16 ára.
SÍÐASTA SINN!!
SAMBM9
SAAMWm
DIGITAL
Ein vinsælasta mynd ársins í USA
Nýjasta kvikmynd John Travolta, eins virtasta leikara samtímans, er stórbrotin
saga af manni sem skyndilega öðlast mikla hæfileika. Eru kraftar hans komnir til
að vera eða er aðeins um tímabundið ástand að ræða? Mögnuð mynd sem spáð
er tilnefningum til Óskarsverðlauna.
Aðalhlutverk: John Travolta, Kyra Sedgwick, Forest Whitaker og Robert Duvall.
Leikstjóri: John Turtletaub (While You Were Sleeping, Cool Runnings).
Illur hugur
P Tvær konur,
einn karlmaður,
niðurstaðan gæti
orðiö ógnvænleg.
Diabolique
Sýnd kl. 5.
ÍSLENSKT TAL
^ ^ ^
Flóttamaðurinn II
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LEIKARARNIR Benedikt Erlingsson og
Kristján Franklín Magnús sýna hetjulega takta.
Leikarar skylmast
► SKYLMINGANÁMSKEIÐ fyr-
ir leikara Þjóðleikhússins stendur
nú yfir í hinu gamla íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar við Lindar-
götu, þar sem litla sviðið og skrif-
stofur leikhússins eru til húsa.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er
finnski skylmingamaðurinn og
kennarinn við leiklistarskólann í
Helsinki, Seppo Kumulainen, en
hann hefur stjórnað skylminga-
aíriðum í ýmsum leikhúsum víða
um heim og er gestakennari við
Leiklistarskóla Islands. Að sögn
Guðrúnar Bachmann, leikhúsrit-
ara í Þjóðleikhússins, má segja
að námskeiðið sé nokkurs konar
endurmenntunarnámskeið fyrir
leikarana því flestir þeirra læra
skylmingar í skóla og nauðsynlegt
er talið að halda þeirri kunnáttu
við. 12 leikarar skráðu sig á nám-
skeiðið og komust færri að en
vildu.
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
KEÐJUVERKUN „CHAIN
REACTION" ★ ★
Leikstjóri: Andrew Davis. Handrit:
Josh Friedman, Michael Bortman
o.fl. Aðalhlutverk: Keanu Reeves,
Morgan Freeman, Rachel Weisz,
Fred Ward, Brian Cox. 20th Century
Fox. 1996.
ÞEGAR vel hefur tekist til með
spennutrylli eru menn í Hollywood
gjarnir á að endurtaka gamanið
eins og kunnugt er. En það er
kannski ekki alltaf eins augljóst
og í dæmi spennumyndaleikstjór-
ans Andrew Davis, sem gert hefur
Keðjuverkun með Keanu Reeves.
Áður gerði hann Flóttamanninn
með Harrison Ford á hröðum flótta
undan réttvísinni ranglega sakaðan
um morð. I nýju myndinni er Reev-
es á hröðum flótta ranglega sakað-
ur um morð. I Flóttamanninum lék
Tommy Lee Jones harðsnúinn FBI-
mann á eftir Ford. I Keðjuverkun
fer Fred Ward með það hlutverk.
Og hin persónulegu svik við aðal-
persónuna koma úr óvæntri átt í
báðum myndunum. Það er eins og
Davis hafi sent Flóttamanninn í
endurvinnslu og út hafi komið
Keðjuverkun, brúkleg en óspenn-
andi.
Jafnvel einstök atriði í uppbygg-
ingu spennunnar bera enduróm af
Flóttamanninum. Atburðarásinni
er hleypt af stað í báðum tilvikum
með einkar skemmtilega útfærðum
brelluatriðum; lestarslysi í fyrri
myndinni en gríðarlega öflugri
sprengingu í þessari. I báðum til-
vikum sleppa flóttamennirnir
naumlegan undan bráðum bana og
við tekur eltingarleikur upp á líf
og dauða. (Því má bæta við að
myndirnar eru báðar teknar að
vetrarlagi í Chicago!) Reeves er
sakaður um sprenginguna sem á
sér stað í rannsóknarstofu þar sem
hann ásamt vinum sínum í vísinda-
stétt hafa fundið nýjan orkugjafa.
Orkan er óþrjótandi en kostnaður
við hana enginn og einhveijir vilja
ekki uppfinninguna fram í dagsljós-
ið.
Keðjuverkun er samsæristryilir
en það vantar í hann neistann sem
gerir góðar brellusprengjur virkar.
Reeves er ekki sérlega vísinda-
mannslega vaxinn og virkar fremur
áhugalaus. Það er eins og hann
varði ekki sérlega mikið um niður-
stöður myndarinnar. Morgan Free-
man er alltaf ábúðarmikill og gefur
Keðjuverkun mikla vigt með fram-
komu sinni í hlutverki vísinda-
manns en Fred Ward er langt frá
því að ná eldlegri röggsemi Tommy
Lee Jones í hlutverki FBI-manns-
ins. Allir eru að leika mjög svo
ofnotaðar persónur spennumynd-
anna og bæta engu við.
Davis keyrir myndina áfram án
þess að ná að byggja upp neina
spennu af viti. Söguþráðurinn er
nokkuð óskýr en ekkert verri afsök-
un en hver önnut' til að sprengja
upp tvær góðar sviðsmyndir í byij-
un og í lokin. Þannig kemur Keðju-
verkun ekki á neinn hátt á óvart
án þess að vera mjög slakt
skemmtiefni í sjálfu sér. Maður
finnur bara sterkar til endurtekn-
ingarinnar en oft áður.
Arnaldur Indriðason