Morgunblaðið - 29.09.1996, Page 4
4 SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 22/09 - 28/09
ÉII!Éuiímsí
RÍKISSTJÓRNIN hefur
að tiliögu menntamálaráð-
herra ákveðið að Safnahúsið
við Hverfisgötu verði þjóð-
menningarhús í framtíðinni.
Hugmyndin er að þjóðmenn-
ingarhús hýsi fastar og tima-
bundnar sýningar frá helstu
söfnum.
► SÉRA Fióki Kristinsson,
sóknarprestur I Langholts-
sókn, tekur við þjónustu við
íslendinga á meginlandi Evr-
ópu 1. október. Hann iætur
af störfum við Langholts-
kirkju frá sama tíma.
► LÚS hefur greinst i
grunnskólum á höfuðborg-
arsvæðinu í haust. Lúsartil-
fellum hefur fjölgað frá ár-
inu 1980. Fjölgunin hefur
verið tengd almennari utan-
landsferðum.
HRAUNEY VE fékk net í
skrúfuna og varð afivana
skammt undan Landeyjar-
sandi um miðjan dag á föstu-
dag. Minnstu munaði að skip-
ið ræki upp í landsteina.
► STÖÐ 2 og Sýn hafa keypt
einkarétt á útsendingum frá
ensku knattspyrnunni frá og
með næsta keppnistímabili.
Enska knattspyrnan hefur
verið á dagskrá Ríkissjón-
varpsins í um 30 ár.
► SKAGFIRÐINGUR hefur
sagt upp 90 manns við land-
vinnslu fyrirtækisins. Halli
hefur verið á landvinnsiunni
frá árinu 1993.
► EMMA Bonino, fram-
kvæmdastjóri sjávarútvegs-
mála hjá Evrópusambandinu,
dvaldi hér í boði Þorsteins
Pálssonar, sjávarútvegsráð-
herra. Hún flutti erindi á
sjávarútvegsráðsstefnu og
fundi Mannréttindskrifstofu
íslands.
Tryggingafélögin
svara FIB
VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands og
Sjóvá-Almennar hafa tiikynnt lækk-
un á iðgjöldum bílatrygginga frá og
með 1. október. Tryggingatakar á
aldrinum 25 ára og eldri fá bestu
kjörin. Hins vegar greiða 17 til 20
ára tryggingatakar hærri iðgjöld.
Fleiri tryggingafélög undirbúa við-
brögð við lækkun iðgjalda bílatrygg-
inga.
Raforkusamningur
vegna álvers
LANDSVIRKJUN og Columbia
Ventures Corp. hafa náð samkomu-
lagi um grundvallaratriði raforku-
samnings vegna fyrirhugaðrar
60.000 tonna álverksmiðju Columbia
á Grundartanga. Fyrirtækið hyggst
hefja rekstur álvers á miðju ári 1998.
Álverinu verður aðeins tryggð orka
til að rekja verksmiðjuna á hálfum
afköstum í fyrstu en með fullum af-
köstum frá ársbyijun árið 1999.
Orkuþörf álversins verður um 900
gígavattstundir á ári eða álíka og
vegna stækkunar álvers í Straums-
vík. Fyrirhugaður raforkusamningur
við Columbia gildir til ársloka 2018.
Raforkuframleiðsla
á Nesjavöllum
REYKJAVÍKURBORG og Lands-
virkjun hafa gert samning um raf-
orkuframleiðslu á Nesjavöllum. Hita-
veita Reykjavíkur reisir virkjunina í
tveimur áföngum og sér um viðhald.
Hvor áfangi verður um 30 MW afl
og orkuframleiðsla hvors áfanga að
frádregnum eigin notum Hitaveit-
unnar verður um 200 gígavattstundir
á ári. Undirbúningur að framkvæmd-
inni er hafinn og forval hafið vegna
kaupa á vélasamstæðum frá Evr-
ópska efnahagssvæðinu.
Stofnkostnaður virkjunarinnar,
gufuveitu og raflínu að Korpu, er
áætlaður 5.230 milljónir króna.
Framkvæmdin verður fjármögnuð
með lántöku.
Blóðsúthellingar í
Landinu helga
HÖRÐ átök blossuðu upp á milli
Palestínumanna og ísraelskra her-
manna á Gaza-svæðinu og Vestur-
bakkanum á mið-
vikudag vegna
þeirrar ákvörðunar
stjómar Benjamins
Netanyahus, for-
sætisráðherra ísra-
els, að opna jarð-
göng í námunda við
helgan stað músl-
ima í Jerúsalem. 68
höfðu fallið á iaug-
ardag - 54 Palest-
ínumenn og 14 ísraelar - og eru
þetta hörðustu átök sem geisað hafa
á svæðum Palestínumanna í þrjá ára-
tugi. ísraelar sendu skriðdreka á
Vesturbakkann í fyrsta sinn frá því
þeir náðu honum á sitt vald í stríðinu
1967. Hörðustu átökin voru nálægt
byggðum gyðinga á Gaza og Vestur-
bakkanum og þau stefndu fímm ára
friðarumleitunum í Miðausturlöndum
fyrir milligöngu Bandaríkjanna í
mikla hættu. Hart var deilt á ísraela
í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
vegna atburðanna.
Taleban nær Kabúl
á sitt vald
AFGANSKA hreyfingin Taleban náði
Kabúl, höfuðborg Afganistans, á sitt
vald á föstudag og lýsti yfir því að
stofnað hefði verið íslamskt ríki. Eitt
af fyrstu verkum liðsmanna Taleban
var að hengja Najibullah, fyrrverandi
forseta, sem var steypt af stóli árið
1992. Hreyfingin skipaði sex manna
ráð sem á að stjóma landinu til bráða-
birgða. Fregnir hermdu að Burha-
nuddin Rabbani forseti og ráðherrar
í stjóm hans hefðu komist undan og
væm 25 km norðan við höfuðborgina.
HJARTASÉRFRÆÐ-
INGAR ákváðu á miðviku-
dag að gera hjartaaðgerð á
Borís Jeltsin, forseta Rúss-
lands, en frestuðu henni í
sex til átta vikur. Andstæð-
ingar forsetans kröfðust
þess að hann segði af sér
sökum heilsubrests. Alex-
ander Lebed, yfirmaður
rússneska öryggisráðsins,
varaði við því að hætta væri
á uppreisn í hernum vegna
þess að hermenn hefðu ekki
fengið laun sín greidd.
► HERMENN stjórnarinn-
ar á Sri Lanka drápu 450
tamílska uppreisnarmenn,
þeirra á meðal margar kon-
ur, i stórsókn í átt að vígi
þeirra í Kilinochchi á föstu-
dag. Áður höfðu hundruð
Tamíla fallið í sókninni, sem
hófst fyrir viku.
► WILLIAM Perry, varnar-
málaráðherra Bandaríkj-
anna, hafnaði á fimmtudag
kröfu Frakka um að Evr-
ópumaður færi með yfir-
stjórn hersveita Atlants-
hafsbandalagsins í suður-
hluta Evrópu en ekki
Bandaríkjamaður. Hann
sagði ennfremur að nokkr-
um ríkjum yrði boðin aðild
að bandalaginu á sérstökum
fundi á næsta ári.
► LEVON Ter-Petrosyan,
forseti Armeniu, lét hand-
taka marga af andstæðing-
um sínum á fimmtudag og
skriðdrekar voru sendir á
götur Jerevan til að kveða
niður mótmæli stjórnarand-
stæðinga.
Fyrrverandi stj órnarformaður Byggðastofnunar
um skýrslu Ríkisendurskoðunar
Ómerkilegt og illa unnið
„MÉR finnst þetta ómerkilegt og
illa unnið. Þetta virðist vera unnið
í þeim eina tilgangi að sverta menn
og þar á meðal mig,“ sagði Matthí-
as Bjamason, fyrrverandi alþingis-
maður, um skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um Byggðastofnun, en Matthí-
as var stjómarformaður stofnunar-
innar í átta ár en hætti á síðasta ári.
Matthías sagði að opinberir aðilar
íjölluðu ekki jafn ítarlega um reikn-
inga nokkurrar stofnunar eins og
Byggðastofnunar. Yfir stofnuninni
væri þingkjörin stjórn sem undirrit-
aði reikninga ásamt forstjóra, lög-
giltum endurskoðendum og Ríkis-
endurskoðun. Reikningamir væru
þar að auki sendir forsætisráðherra
og hann legði fram skýrslu á Al-
þingi um Byggðastofnun þar sem
hún væri rædd í þaula. „Skýrslunni
fylgir upptalning á öllum lánum,
lántakendur og lánsupphæðir og
öllum styrkjum. Ég veit ekki til að
það sé nokkur lánastofnun í þjóðfé-
laginu sem birtir reikninga sína
með sama hætti. Þetta hefur verið
gert árlega, en nú er allt í einu
gerð einhver úttekt. Ég spyr: Er
Ríkisendurskoðun ekki að gera út-
tekt á sjálfri sér? Þetta er auðvitað
skrípaleikur, en hveijir standa fyrir
honum verður að spyija aðra um
en mig.“
Gagnlegt starf
Um þá gagnrýni Ríkisendurskoð-
unar að skort hafi á skýra stefnu-
mörkun af hálfu Byggðastofnunar
sagði Matthías: „Þegar hefur þurft
að styrkja byggð, sem hefur verið
í hættu, hefur Byggðastofnun farið
í það verk eftir því sem aðstæður
hafa leyft. Lánastofnanir vinna hins
vegar ekki í neinni samvinnu við
Byggðastofnun og stjóm hennar
hefur oft rætt um að lánastofnanir
þurfi að taka upp slíkt samstarf."
Matthías sagði fráleit þau rök
Ríkisendurskoðunar að ekki væri
víst að styrkja ætti byggð á Vest-
fjörðum vegna þess að meðaltekjur
þar væru svo háar og atvinnuleysi
lítið. Hann sagði að nokkrar áhafn-
ir skipa á Vestfjörðum væm með
mjög há laun og þær lyftu meðaltal-
inu. Atvinnuleysistölur á Vestfjörð-
um segðu heldur ekki alla söguna.
Menn gætu þá alveg eins sagt að
það mætti ekki styrkja atvinnulíf á
Patreksfirði vegna þess að það
gengi vel á ísafirði.
Matthías sagðist vera sannfærð-
ur um að Byggðastofnun hefði gert
mikið gagn með starfi sínu. Það
hefði hins vegar ekki allt tekist sem
áformað hefði verið og sumum
ákvörðunum stofnunarinnar hefði
hann verið andvígur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BLÓÐ rennur úr Pétri Helga-
syni í Blóðbankanum í gær.
Rýr innistæða
í Blóðbankanum
INNISTÆÐA landsmanna í Blóð-
bankanum er heldur rýr um þessar
mundir og því eru landsmenn hvatt-
ir til að gefa blóð. Víða má nú sjá
auglýsingar frá bankanum þar sem
fram kemur að blóðgjafahópurinn
þarfnist endurnýjunar.
Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir
Blóðbankans, segir að oftast séu
til á lager um 400-600 einingar
af svokölluðu rauðkornaþykkni en
nú séu aðeins til um 250-300 ein-
ingar. Ekki þurfi mikið að bera
út af til þess að ástandið verði
alvarlegt.
Virkir blóðgjafar hér á landi eru
á bilinu átta til tiu þúsund manns,
eða um þijú til fjögur prósent
þjóðarinnar og gefur hver einstakl-
ingur 450 millilítra blóðs í senn.
Sá skammtur jafngildir einni ein-
ingu blóðs. Blóðið er síðan skilið í
þijá bióðhluta; rauðkornaþykkni,
blóðvökva og blóðflögur.
Sveinn segir það mikið örygg-
isatriði að eiga nóg af blóði. „Þegar
við auglýsum með þessum hætti
erum við að vekja athygli á þvi að
það þarf ekki stórslys eða sérstakar
uppákomur til þess að það lækki
verulega í lager okkar af blóði. Við
þurfum blóð á öllum sviðum heil-
brigðisþjónustunnar og dagleg
notkun er umtalsverð þó að ekki
komi stórslys til. Við þurfum að
meðaltali 50-70 blóðgjafa á hveij-
um degi, bara til að standa undir
grunnþörfinni," segir Sveinn.
Sjónvarpið 30 ára á mánudag
Sjónvarpað tvö kvöld
í viku fyrst í stað
ÞRJÁTÍU ár eru liðin
á mánudag frá því að
Sjónvarpið hóf út-
sendingar. Pétur
Guðfinnson sem hefur
starfað sem fram-
kvæmdasljóri Sjón-
varps frá upphafi seg-
ir margt hafa breyst
frá stofnun þess árið
1966.
„Sjónvarpað var
fyrstu mánuðina tvö
kvöld í viku, nokkra
tima í senn og fyrst
Pétur
Guðfinnsson
væri að hafa íþótta-
rás eins og fþrótta-
stjóri Sjónvarps telur
æskilegt, en að mínu
mati á fremur að
eyða fjármunum í ís-
lenskt efni,“
Vetrardagskrá
Sjónvarpsins hefst
næstkomandi þriðju-
dag og segir Pétur
að áhorfendur muni
taka eftir breytingum
á framsetningu dag-
skrár, m.a. verður
aðal-veðurfréttatími
dagsins framvegis kl.
19.50 og kynning-
arþulur sjónvarpsins
um sinn náði dagskrá-
in aðeins til Faxaflóa-
svæðisins en aðeins
um 8.000 sjónvarps-
tæki voru til í Iandinu,“ segir
Pétur.
munu að öllum líkindum verða
minna á skjánum en verið hefur.
Alþjóðlega skeið-
meistaramótið í Berlín
Þýskur sig-
ur í gæð-
ingaskeiði
Berlín. Morgunblaðið.
ÍSLENDINGAR hafa staðið sig vel
á alþjóðlega skeiðmeistaramótinu
sem nú er haldið á Harðarbóli í
útjaðri Berlínar í Þýskalandi. En
þótt íslenskir keppendur röðuðu sér
í 4 af 5 efstu sætunum í gæðinga-
skeiði tókst ekki að meija íslenskan
sigur í gæðingaskeiði á laugardags-
morguninn.
Litlu munaði á sigurvegaranum
Ule Reber Þýskalandi, sem keppti
á Vinu frá Brautartungu, og Jó-
hanni R. Skúlasyni sem keppti á
Redda frá Lykkegarden. Ule var
með 9,14 en Jóhann 0,02 lægri.
Næstir komu Angantýr Þórðar-
son á Stóra-Jarpi frá Akureyri með
9,09, Hinrik Bragason á Viljari frá
Möðruvöllum, 9,08 og kona hans,
Hulda Gústafsdóttir í 5. sæti á Víði
frá Brimnesi með 9,05. í næstu sjö
sæti komu 5 íslendingar en alls
tóku 22 þátt í gæðingaskeiðinu.
Eftir forkeppni í gæðingakeppn-
inni er Jóhann G. Jóhannesson efst-
ur sem einungis er keppt í A-flokki.
Er hann á þýskfæddu hryssunni
Lokku frá Störgaf, en þau hlutu í
einkunn 8,51. Næstir eru Reynir
Aðalsteinsson á Hnekki frá Varma-
læk með 8,48 og Daníel Deres frá
Þýskalandi á Mætti frá Króki, 8,37.
Átta af þeim tíu sem í úrslit fara
eru Islendingar.
Fyrsta kvöldið hófst dagskráin
á ávarpi Vilhjálms Þ. Gíslasonar,
útvarpsstjóra, þá var viðtal tekið
við Bjarna Benediktsson, þáver-
andi forsætisráðherra, síðan var
sýnd mynd eftir Oswald Knudsen
um byggðir íslendinga á Græn-
landi fyrr á öldum. Að því loknu
las Halldór Laxness kafla úr
Paradísarheimt, þá söng Savanna
tríóið nokkur lög, svo var sýndur
breskur spennuþáttur, Dýrling-
urinn, og að lokum var á dagskrá
fréttaþátturinn, Úr liðinni viku.
Pétur segir stefnu sjónvarpsins
vera að efla innlenda dagskrár-
gerð enn frekar. „Ákjósanlegt
Afmælisdagskrá
í tilefni afmælisins verður
sýndur á mánudagskvöld þáttur
í umsjón Ómars Ragnarssonar,
þar sem hann stiklar á stóru í 30
ára sögu Sjónvarpsins í léttum
dúr.
Síðar í vetur verða á dagskrá
fjórir þættir í umsjón Þorgeirs
Gunnarssonar þar sem rifjaðir
verða upp helstu efnisflokkar
sjónvarpsins í gegnum tíðina,
fréttir, íþróttir, leikrit og tónlist.
Fyrsti þátturinn verður sýndur í
nóvember og nefnist Fréttir í 30
ár.