Morgunblaðið - 29.09.1996, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
Iþróttavændið
Frá Birni Th. Björnssyni:
ÞEGAR keppnisíþróttir hófust í
sunnanverðri Evrópu, nautaleikarn-
ir á völlunum við Knossos og síðar
á gríska meginlandinu, í Delfí og
Ólympíu, var til þess stundað, að
tign og leikni mannslíkamans væri
sett í fagra umgerð, svo áhorfendur
nytu ekki aðeins yndis leikanna
sjálfra, heldur um leið unaðar fag-
urs umhverfís, náttúru og lista-
verka. Þegar síðan Rómverjar taka
upp íþróttahugsjón Grikkja, spara
þeir ekkert við sig og gera leikvang-
ana mikilfenglega og fagra. Circus
Maximus í Róm, hraðkeppnisbraut-
in mikla (þar sem nú heitir Piazza
Navona) tók 250 þúsund áhorfend-
ur í sæti, og var ekki aðeins með
völdum trjágróðri umhverfis, heldur
einnig með eyju í miðri braut þar
sem fagur runni af hávöxnum trjám
jók á tign staðarins. Og hvar sem
Rómverjar fóru norður álfuna,
reistu þeir mikilfenglega leikvanga,
svo sem stóra leikvanginn í Nimes
sem enn stendur að heilu og er enn
notaður. Þannig hélst sú fagur-
fræðilega íþróttahugsjón fram eftir
öldum, að leikunum sjálfum og
áhorfendum væri sýnd sú virðing,
að eitt færi með öðru, unaður leik-
anna og svalandi umhverfisfegurð.
En hvernig er þessari fornu og
fögru hugsjón nú komið?
Forystumenn íþróttahreyfingar-
innar, ef sæma ætti krambúðarmór-
al þeirra slíku sæmdarheiti, hafa
nú með öllu glatað bæði hugsjón
og sjálfsvirðingu fyrir íþróttanna
hönd. Allt er orðið fyrir peninga
falt. Kjósi einhver kjúklingakarl eða
svínaslátrari að klístra óhroða sín-
um umhverfis á veggi leikvangsins,
svo ekki séu nefndir olíubraskarar
og aðrir loðnari, þá er ekki leidd
að því hálf hugsun, að áhorfendur
þurfi að þola þessa viðurstyggð ljót-
leikans allt um kring. í handknatt-
leik hef ég meira að segja séð, að
leikmenn verða að hlaupa á pútum
og uppblásnum grísum um allt gólf.
Og fyrir ári eða tveim sá ég í sjón-
varpi að félag nokkurt hafði í tilbót
við hitt vændið selt rassana á leik-
mönnum sínum hæstbjóðandi. Þeir
tala um „íþróttahugsjónina" í ræð-
um, en stunda lágkúrulegt vændi í
raun. Orðabók Websters er löngu
fræg fyrir rétta og kjarnyrta skil-
greiningu hugtaka. Um vændi,
prostitution, segir þar: Prostitution
is „to sell oneself, one’s artistic or
moral integrity for low or unworthy
purposes". Að selja sjálfan sig, list
sína eða siðferðilega sjálfsvirðingu
til lítilmótlegra eða óvirðulegra
nota. Það er slíkt vændi og ekkert
annað sem hér er stundað.
Um daginn opnaði ég fyrir sjón-
varp og sá að yfír stóð íslenskur
knattspyrnuleikur. Sem gamall
Melavallarmaður langaði mig að
vita hveijir ættust við, KR og Val-
ur, eða Fram og Víkingur. Ég rýndi
eftir félagsmerki á leikmönnum, en
varð engu fróðari um keppinauta.
Þar til sjónvarpsmaðurinn beitti
aðdrætti, og þá sá ég framan á
bringu leikmanns hver var að
keppa: Olís!
Ég held að sundstaðir séu ekki
alveg jafnlangt leiddir og aðrir
íþróttastaðir í óvirðingu við gesti.
Samt eru þeir illilega smitaðir.
Stundum skrepp ég í ágæta sund-
laug í einu nági-annasveitarfélagi
Reykjavíkur. í sturtunni þar eru oft
aldnir heiðursmenn sem láta helti
eða skekkju í mjaðmagrind ekkert
hindra sig frá heilnæmi vatnsins.
Því varð ég í fyrstunni glaður, þar
sem ég sat í heitri laug og sá á
útklíndum vegg, að þar var auglýst
fullkomnasta grindarétting sem til
væri hér á landi. Kannski gömlu
vinirnir ættu sér þá bóta von. En
nei! Þegar ég las betur, var þetta
grindarétting á bílum, innan um
pútur og svín og annað drasl sem
ekkert kemur heilnæmi manneskj-
unnar við.
Afsiðun hefur ævinlega táknað
endalok menningarskeiða. Sú mikla
þjóðvitund sem hófst með ung-
mennafélagahreyfingunni og hinum
fyrstu íþróttasamtökum fól í sér
merka framsókn á nýrri þjóðmenn-
ingu íslendinga. Nú hefur siðblind-
an, íþróttavændið, bundið enda á
það þjóðarstolt. Mér sýnist áhugi
landsmanna á hvers konar íþróttum
þrátt fyrir allt það almennur, að
ég trúi því ekki að íþróttahreyfing-
in sé nauðbeygð til þess að draga
sig fram á slíkum skækjulifnaði.
BJÖRN TH. BJÖRNSSON,
listfræðingur.
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 43
^-Alþjóðlegt nám í Danmörku-^
Roskilde Efterskole er fyrir ungmenni á aldrinum 14-18 ára, frá
Danmörku, hinum Norðurlöndunum og öðrum Evrópulöndum.
Hægt er að stunda nám í 8., 9., 10 og 11. bekk í skólanum. Nútíma
kennsluhættir, allir nemendur vinna á eigin tölvu, í tengslum við
tölvuvætt bókasafn, innranet og alnet.
Allir bekkir fara í tvær námsferðir á ári, t.d. til Hvíta Rússlands,
Spánar, Englands eða Indlands.
Ýmiskonar tómstundastarf: Blak og körfubolti, fótbolti, handbolti,
tennis, leikfimi, hlaup, sund og aðrar íþróttir. Mörg íþróttamót.
Einnig teikning, málun, leiklist, söngur og tónlist. Allir nemendur
búa í skólanum.
Kynningarfundur í Reykjavík í lok október. Hringið eða skrifið og
fáið bækling. Sími 00 45 46 32 17 57, símbréf 00 45 42 37 00 57.
Roskilde Efterskole, Th. Bredsdorffs Allé 25,
DK-4000 Roskilde.
í nóvember
Frá Árna Björnssyni:
„SELTJARNARNESIÐ er lítið og
lágt lifa þar fáir og hugsa smátt.“
Svo orti Þórbergur forðum, en
ljóð hans um nesið var fast á efnis-
skrá þeirra ljóða, er sungin voru í
ölteiti stúdenta í æsku sendanda
bréfs þessa.
Síðan hefur nesið hvorki hækkað
né stækkað, en þar lifa nú ekki leng-
ur fáir tómthúsmenn og grásleppu-
kallar í lágreistum torfkofum, held-
ur fjöldi gildra og góðra borgara í
hátimbruðum glæsihúsum, og kom-
ast þangað færri en vilja.
En hvað um hugsunina? Hefur
hugarheimur Seltirninga víkkað og
stækkað með híbýlunum? Séu orð
og gerðir meirihluta bæjarstjórnar
þar skoðaðar, vakna um það nokkr-
ar efasemdir.
Flest byggðarlög kringum
Reykjavík eiga innan landamerkja
Hvað á að
gera við
Nesstofu?
sinna einhver sögu- og menningar-
verðmæti og íbúar flestra hafa reynt
að sýna þeim nokkrum sóma og þar
með undirstrika gildi þeirra fyrir
byggðarlagið og aðra er áhuga hafa.
A Seltjarnarnesi er eitt hið merk-
asta þessara verðmæta, en það er
Nesstofa. Enginn einn staður á
landinu hefur að geyma jafnsögu-
lega höfðun til íslenskrar læknis-
fræði og þetta hús. Því hafa lyfja-
fræðingar og áhugamenn um sögu
læknisfræðinnar lagt grunn að því
að koma þar upp myndarlegu safni
um sögu læknis- og lyfjafræði á
íslandi.
Nesstofa er fallegt hús, sem
stendur á einum fallegasta stað á
Seltjarnarnesi, þó nokkuð hafí verið
þrengt að því á undanförnum árum
og nú kreppir enn að. Séu þau áform
lögð til hliðar, er ennþá mögulegt
að skipuleggja svæðið kringum hús-
ið þannig að það fái notið sín í fram-
tíðinni og að hægt verði að byggja
upp minjasafn um íslenska læknis-
fræði, sem bæði verði fræðunum og
byggðarlaginu til sóma.
Skorað er á íbúa Seltjarnarness
að koma í veg fyrir að búraháttur
meirihluta bæjarstjórnar verði til
þess að álit Þórbergs á andlegheit-
um þeirra, festist við þá um alla
framtíð.
ÁRNI BJÖRNSSON,
læknir og áhugamaður um
sögu læknisfræðinnar.
16.930
Flug og hótel
kr. 19.930
Lundúnaferðir Heimsferða hafa sannarlega slegið í gegn og
nú bjóðum við glæsilegt tilboð í nóvember fyrir þá sem vilja
tryggja sér góðan aðbúnað og spennandi ferð til þessarar
höfuðborgar Evrópu. Við erum stolt af að kynna nú nýtt hótel,
frábærlega staðsett, skammt frá Oxford stræti með góðum að-
búnaði fyrir farþega okkar. Bókaðu ferðina þína strax og tryggðu
þér sæti til þessarar höfuðborgar Evrópu og njóttu um leið
öruggrar þjónustu íslenskra fararstjóra Heimsferða í London.
m mci * RftYMONDWEIL. SEIKQ * CITIZEN « PIPPPDDT. CIJCCI
1956 1996
1 í tilefni 40 ára afmælis verslunarinnar bjóðum við 20-50% afslátt dagana
30. sept.-5. október af öllum vörum s.s. úmm, klukkum og skartgripum.
1 Þeir sem versla fyrir 5000,- kr. eða meira fá vandaða quartz verkjaraklukku
í kaupauka.
• Getraun í sýningaglugga RAYMOND WEIL úr í verðlaun.
GENEVE
- 40 ár á sama stað -
GARÐAR ÓLAFSS0N
úrsmiður - Lækjartorgi - s. 551 0081.
Tmr.r.1 • raymondweil.* PiippnnT* seikqi • PiERRE R49
.MAIN
QMEGA.
Aðeins 80 sæti á sértilboði
Flugsæti. Verð með flugvallarsköttum, 4. og
11. nóv., mánudagur til fimmtudags.
Hvenær er laust?
4. nóv. - 32 sæti
7. nóv. - 17 sæti
11. nóv. - 37 sæti
14. nóv. - 21 sæti
22.930
Verð kr.
M.v. 2 í herbergi, lnvemess Court með morgunverð,
4. og 11. nóv., 3 nætur.
26.930
Verð kr.
Invemess Court, 14. nóv., 4 nætur, m.v. 2 í herbergi.
HEIMSFERÐIR
m
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600