Morgunblaðið - 02.10.1996, Síða 1
72 SIÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTOBER 1996
*<VÍ
I......
J
'
-
-
^ájr
IfaVoifccUi
Fundur í Washington um friðarferlið í Miðausturlöndum
ESB gagnrýnir Isra-
elsstióm harðlega
Washington. Reuter.
Keuter
YASSER Arafat, Hussein Jórdaníukonungur, Bill Clinton
og Benjamin Netanyahu í gönguferð við Hvíta húsið.
Danska þingið sett
Gegn eitri
og ofbeldi
Kaupmannahöfn. Reuter.
POUL Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, lýsti í
gær yfir stríði á hendur mótor-
hjólagengjum og eiturlyíjasölum í
landinu og sagði að lögreglan
myndi fá stóraukin völd í barátt-
unni sem framundan væri.
Kom þetta fram hjá Rasmussen
við setningu danska þingsins í gær
en Danir hafa miklar áhyggjur af
stórauknu ofbeldi í landinu. „Fólk
er hrætt við mótorhjólagengin sem
skeyta engu um líf og limi annarra
í átökum sín í milli. Fólk er hrætt
við ofbeldið og eiturlyfin sem seid
eru að öllum ásjáandi á götum
úti,“ sagði Rasmussen. „Við meg-
um ekki sætta okkur við þetta, við
verðum að geta lifað óhrædd í
þessu landi.“
Innflytjendalög
hert
Meðal tillagna Rasmussens er
að i eiturlyfjamálum verði sönn-
unarbyrðinni snúið við þannig að
eiturlyfjasalar, sem teknir eru með
.mikið fé, verði sjálfir að sýna fram
á hvernig það er tiikomið. Þá vill
hann að í stórum málum geti lög-
reglan hlerað síma og gert húsleit
án sérstaks úrskurðar og hann vill
herða mjög innflytjendalöggjöfina.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
átti í gær fund með leiðtogum Isra-
els, Palestínumanna og Jórdaníu þar
sem rætt var um friðarferlið í Mið-
austurlöndum og hvernig koma
mætti í veg fyrir, að það færi út um
þúfur. Evrópusambandið gaf í gær
út sína harðorðustu yfirlýsingu til
þessá og gagnrýndi ísraela fyrir að
hafa ekki staðið við gerða samninga.
Clinton átti fund með Hussein
Jórdaníukonungi I fyrrakvöld og í
gær ræddi hann við Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra Israels, og
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna. Komu þeir síðan allir saman
til fundar og var búist við, að hann
stæði fram eftir kvöldi.
Varað við
bjartsýni
Bandarískir embættismenn segja,
að ekki sé að búast við miklum ár-
angri af fundinum og Natan Shar-
ansky, ráðherra í ísraelsstjórn og í
för með Netanyahu, sagði, að kröfu
Ciintons um að brottflutningur ísra-
elsks herliðs frá Hebron á Vestur-
bakkanum yrði dagsettur hefði verið
hafnað. Það þótti þó góðs viti, að
þeir Arafat og Netanyahu settust
einir að hádegisverði I gær þar sem
þeir ræddu sín mál.
A-Jerúsalem
„tilheyrir ekki ísrael"
„Evrópusambandið skorar á
stjórnvöld í ísrael að styðja ekki frið-
arferlið með orðunum einum, heldur
með því að standa við gerða samn-
inga,“ sagði í yfirlýsingu ESB í gær
og það vakti sérstaka athygli, að
itrekuð var sú afstaða sambandsins,
að Austur-Jerúsalem „tilheyrði ekki
Israel". Var haft eftir háttsettum
embættismanni í ESB, að þetta væri
í fyrsta sinn, sem þessi afstaða birt-
ist opinberlega á prenti.
Morgunblaðið/RAX
Yfir 100
metra djúp-
umjökul-
sprungum
LITLAR flugvélar virðast agn-
arsmáar í samanburði við djúpar
jökulsprungurnar í Vatnajökli.
Eldgos hófst 14 til 6 km langri
sprungu undir jöklinum á milli
Bárðarbungu og Grímsvatna á
ellefta tímanum á mánudags-
kvöld. Yfir sprungunni voru að
myndast þrír greinilegir sigkatl-
ar aðeins um hálfum sólarhring
síðar. Tveir sigkatlanna voru um
2 km í þvermál og 100 m djúpir
um miðjan dag í gær. Ef gosið
heldur áfram og veldur Gríms-
vatnahlaupi gætu vegir og brýr
á Skeiðarársandi verið í hættu.
Jökullinn 600 m þykkur
Magnús Tumi Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur á Raunvís-
indastofnun Háskólans, sagði að
áætlað væri að 30 til 50 milljónir
rúmmetra af gosefni hefðu kom-
ið upp með gosinu á um 15
klukkutimum í gær. Hins vegar
tók hann fram að töluvert væri
í að gosefni kæmist upp í gegnum
jökulinn enda væri hann um 600
m þykkur.
■ Eldsumbrot/26-27