Morgunblaðið - 02.10.1996, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þróun í fólksflutning--
um til og frá íslandi
Aðfluttum
fjölgar en
brottflutt-
um fækkar
UPPSVEIFLA í þjóðarbúskapnum
hefur orsakað fjölgun aðfluttra
hingað til lands miðað við undan-
farin tvö ár og að sama skapi hef-
ur þeim fækkað sem flutt hafa
brott, segir Sigurður Á. Snævarr,
forstöðumaður hjá Þjóðhagsstofn-
un, í samtali við Morgunblaðið.
Brottfluttir fyrstu 8 mánuði árs-
ins voru 134 færri en á sama tíma
í fyrra og aðfluttum hefur fjölgað
um 428.
Samtals hafa 2.239 flutt til
landsins í ár en 2.471 frá því.
Sigurður segir tölfræðilega
sannað að tölur um aðflutta og
brottflutta endurspegli efnahags-
ástandið á hverjum tíma. „Kaup-
máttur hefur undanfarið farið vax-
andi og atvinnuleysi hefur minnkað
og það hefur í för með sér að fleiri
flytja til landsins en áður og færri
fara héðan.“
í fyrra voru brottfluttir óvenju
margir, að sögn Sigurðar, þótt
kaupmáttur hafí batnað snemma
árs. Hann telur skýringuna vera
meðal annars umræðu í þjóðfélag-
inu um betri launakjör í ýmsum
nágrannalöndum okkar.
MEÐ blaðinu í dag fylgir fjög-
urra síðna auglýsingablað frá
BYKO.
^ Morgunblaðið/Kristján
Is á siglingu inn fjörð
BORGARÍSJAKI norðan Hríseyjar vakti mikla at-
hygli sjófarenda og annarra sem leið áttu um Eyja-
fjörð í gær, enda sást hann einnig vel frá landi.
Erlendir ferðamenn sem voru í hvalaskoðunarferð
á bátnum Hrólfi, í eigu Sjóferða á Dalvík, fengu
mikið fyrir peninga sína. Auk hvalaskoðunar fór
Árni Júlíusson, skipstjóri á Hrólfi, með hópinn að
jakanum og var hann myndaður í bak og fyrir.
■ Borgarísjaki/14
Borgarráð
samþykkir
kaupá
Hvammsvík
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
kaup Hitaveitu Reykjavíkur á jörð-
unum Hvammi og Hvammsvík í
Kjós af Lögreglufélagi Reykjavíkur.
í bókun borgarráðsmanna Sjálf-
stæðisflokksins segir að margt
bendi til að fullyrðingar um áhuga
Reykjavíkurborgar á að kaupa
Hvammsvíkurland á sama tíma og
einstaklingur hafí boðið í það, hafi
haft áhrif á ákvörðun Lögreglufé-
lagsins að hafna tilboði hans. Að
þeirra mati hefði borgin ekki átt
að keppa við einstakling um kaup
á landinu. Þegar spurt var um
málið hafi R-listinn gefið til kynna
að engar yfirlýsingar hefðu verið
gefnar út um áhuga á kaupum
borgarinnar. Nú hafi stjórn veitu-
stofnana samþykkt að kaupa landið
og Ijóst sé að sá einstaklingur sem
sóttist eftir því geri það ekki lengur.
í bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlistans segir að ekki sé
vitað til að borgin hafi keppt við
nokkurn einstakling um kaup á
landi Hvammsvíkur.
Holland tekur upp heilbrigðisskoðun á öllum fiski frá íslandi
Talsverð óþægindi og kostn-
aður fyrir fiskútflyljendur
FRÁ OG með deginum í gær ber
að heilbrigðisskoða sérhverja send-
ingu af íslenzkum sjávarafurðum,
sem fiuttar eru inn til Evrópusam-
bandsins í gegnum Holland. Undan-
farin misseri hafa reglur um heil-
brigðisskoðun á landamærum verið
einna fijálsiegastar í Hollandi af
ríkjum ESB og hefur aðeins hundr-
aðasta hver sending verið skoðuð.
Breytingin veldur útflytjendum því
talsverðum óþægindum og kostnaði.
Áður en EES-samningurinn gekk
í gildi hafði Holland einna strangast-
ar reglur um heilbrigðisskoðun af
ríkjum ESB. Við gildistöku samn-
ingsins túlkuðu hollenzk stjórnvöld
hann hins vegar svo að ekki þyrfti
að taka sýni nema úr hundruðustu
hverri sendingu af íslenzkum fiski.
Önnur ESB-ríki hafa tekið sýni úr
hærra hlutfalli sendinga. Fiskútflytj-
endur hafa því haft tilhneigingu til
að beina afurðum sínum til hol-
lenzkra hafna, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins.
Ónnur aðildarríki ESB, einkum
Frakkland og Spánn, telja sig hafa
misst viðskipti af þessum sökum og
kvörtuðu til framkvæmdastjórnar
sambandsins. Hún taldi að Hollend-
ingar hefðu undanfarin misseri ekki
framfylgt þeirri reglu að hafa heil-
brigðisskoðunina í sama horfi og var
fyrir 1. júlí 1992. Þessi regla gildir
til bráðabirgða þar til heilbrigðis-
skoðun og gjaldtaka fyrir hana verð-
ur samræmd í öllum ríkjum ESB.
Samræming um áramót,
afnám á næsta ári
Sú samræming mun eiga sér stað
um næstu áramót og verða þá tekin
sýni úr 20% allra sendinga af flestum
fisktegundum en úr annarri hverri
sendingu af skelfiski. Ísland hefur
átt í viðræðum við ESB um að hinar
nýju heilbrigðisreglur verði teknar
upp í EES-samninginn þannig að
íslendingar taki að sér heilbrigðis-
skoðun á ytri landamærum EES en
á móti verði íslenzkar sjávarafurðir
undanþegnar landamæraeftirliti við
innflutning til ESB.
Bram Mout, deildarstjóri á skrif-
stofu Eimskips í Rotterdam, segist
telja öfgakennt að taka nú skyndi-
lega upp skoðun á hverri einustu
fisksendingu á sama tíma og samn-
ingaviðræður fari fram um afnám
eftirlitsins. íslenzkir innflytjendur
verði hins vegar að una því. Mout
segir þetta munu hafa mikla skrif-
finnsku og seinkanir í för með sér.
Námsmenn telja sér úthýst af menntaþingi
Ræða menntastefnu á
tjaldþingi á laugardag
Námsmannahreyfingarnar eru
óánægðar með fyrirkomulag
menntaþings sem menntamálaráðu-
neytið hefur boðað til í Háskólabíói
næstkomandi laugardag og hafa
ákveðið að halda sitt eigið mennta-
þing á sama tíma í stóru samkomu-
tjaldi þar skammt frá.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, for-
maður Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands, segist líta svo á að mennta-
málaráðherra hafi úthýst náms-
mönnum af þinginu. SHÍ, BÍSN,
SÍNE, INSÍ og Félagi framhalds-
skólanema hafi einungis verið gefínn
kostur á að hengja upp veggspjöld
og afhenda bæklinga en ekki hafi
verið gert ráð fyrir þeim sem fullgild-
um þátttakendum í menntaþinginu.
„Af 59 einstakiingum sem ýmist eru
með framsögu eða sitja í pallborði
á þinginu er aðeins einn námsmaður
og hann á að tala um dóp, eða nán-
ar tiltekið hlutverk framhaldsskól-
anna í forvörnum,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir að eftir að ljóst hafi
verið hversu lítið rými námsmanna-
hreyfmgunum var ætlað hafi hann
bókað sal fimm í Háskólabíói fyrir
óháð málþing námsmanna. Leyfi
hafi verið veitt með því skilyrði að
menntamálaráðuneytið hefði ekkert
við það að athuga. Það leyfi hafi
fengist en siðan verið dregið til baka.
„Úti í kuldanum"
Eftir þetta hafi námsmenn ákveð-
ið að halda sitt þing „úti í kuldan-
um“, í tjaldi á grasbalanum á milli
Hótel Sögu og Suðurgötu. „Þar
munum við velta upp einhveijum af
þeim spurningum sem menntamála-
ráðherra virðist hafa gleymt að heija
á íslenskt menntakerfi. Þar má með-
al annars nefna mál eins og gildi
menntunar, loforð og efndir," segir
Vilhjálmur.
Aðstoðarmaður menntamálaráð-
herra, Ásdís Halla Bragadóttir, sem
hefur unnið að undirbúningi mennta-
þingsins, segir það misskilning hjá
Vilhjálmi að ráðuneytið sé að bola
námsmönnum út úr Háskólabíói.
„Menntaþingið er það umfangsmikið
að það er haldið í öllum sölum Há-
skólabíós og það hefur verið ljóst í
margar vikur að Háskólabíó yrði
allt upptekið þennan tiltekna dag,“
segir hún. Ásdís Halla segir að for-
svarsmenn bíósins hafi ekki verið
búnir að lofa námsmönnunum sal
fimm. Þeir hafí hinsvegar ætlað að
athuga hjá ráðuneytinu hvort allir
salir væru uppteknir eða hvort hægt
væri að leigja út salinn fyrir málþing
námsmannanna en það hafí ekki
reynst mögulegt. Rangt sé að leyfi
hafí verið afturkallað.
Ásdís Halla segir að menntaþing-
ið sé öllum opið, líka námsmönnum,
og öllum sé fijálst að spyija um það
sem þeir vilji. Aðspurð um álit sitt
á tjaldþingi námsmanna segir hún:
„Þeim finnst þetta menntaþing ekki
taka nægilega vel á þeim málum sem
þau hafa mestan áhuga á núna og
þá fínnst mér það sjálfsagt og eðli-
legt mál að þau haldi sitt eigið þing.“
Krislján Jóhannsson fær góðar
undirtektir í Chicago Lyric
„Salurinn
ætlaði að rifna“
KRISTJÁN Jóhannsson söng í
frumsýningu á óperunni II Trittico
(Þríundin) eftir Puccini í óperuhús-
inu Chicago
Lyric á mánu-
dagskvöldið við
góðar undirtektir
áheyrenda sem
fylltu 3.500
manna húsið.
Randver Þor-
láksson leikari,
sem var við-
staddur frum-
sýninguna, sagði
í viðtali við Morgunblaðið að Krist-
ján hafi vafalítið slegið í gegn í
Chicago-borg með þessari sýningu
og væri hann þó vinsæll þar fyrir.
„Salurinn ætlaði að rifna eftir
hvern þátt sýningarinnar en þeir
eru þrír eins og nafnið gefur til
kynna. Kristján söng hlutverk ten-
órsins í - fyrsta þættinum, Kufl-
inum, en hann hefur aldrei verið
fluttur í Chicago áður vegna þess
að erfitt hefur verið að fínna
söngvara í hlutverkið en það er
mjög kröfuhart, einkum hvað
varðar leik. Og það er víst að
menn hér í óperunni voru ánægðir
með Kristján; blaðafulltrúi hennar
sagði við mig að hann hefði aldrei
heyrt hann syngja jafnvel en Krist-
ján hefur sungið hér nokkrum
sinnum á síðastliðnum árum. Það
var svo bandaríska söngkonan
Katherine Malsetino sem fór með
sópranhlutverkin í öllum þremur
þáttunum og stóð hún sig sömu-
leiðis mjög vel.“
Leikstjóri uppfærslunnar var
Norðmaðurinn Stein Vinge en það
voru mestmegnis Norðmenn sem
stóðu að sýningunni. Hljómsveit-
arstjóri var Bruno Bartoletti sem
er einn virtasti hljómsveitarstjóri
Bandaríkjanna og hefur starfað
sem listrænn stjórnandi við
Chicago Lyric í um 40 ár.
Kristján mun syngja í II Trittico
í Chicago fram í byijun nóvember.
Kristján
Jóhannsson