Morgunblaðið - 02.10.1996, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.10.1996, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Ráðstefna af tilefni 10 ára afmælis Reykjavíkurfundarins Merk tímamót á braut- inni til afvopnunar TÍU ára afmælis leiðtogafundar Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta og Míkhaíls Gorbatsjovs, síðasta leiðtoga Sovétríkjanna, í Reykjavík verður minnst með tveggja daga málþingi á Grand Hóteli í Reykjavík í dag og á morgun. Á ráðstefnunni munu bæði þátttakendur í fundinum og fræðimenn fjalla um það sem átti sér stað þegar Reagan og Gorb- atsjov ræddust við í Höfða 11. og 12. október 1986. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verða Donaid T. Regan, sem var starfsmannastjóri Reagans þegar leiðtogafundurinn var haldinn, og Richard Pipes prófessor við Har- vard-háskóla og sérfræðingur í Rússlandi, sem var ráðgjafi í Hvíta húsinu fyrstu tvö ár Reagans í emb- ætti. Báðir komu þeir hingað til lands í gær og náði Morgunblaðið tali af þeim. Regan sagði að Sovétmenn hefðu stungið upp á London og Reykjavík og valið hefði verið auðveit. „Reykjavík var góður kostur vegna þess að um er að ræða hlut- lausan stað, aðgengilegan frá bæði Sovétríkjunum og Bandaríkjunum," sagði Regan. „Með nokkrum fyrir- spurnum komumst við að því að íslenska stjórnin var reiðubúin til að vera gestgjafí. ísland var einnig öruggur staður til að hittast, öll örxggisgæsla yrði auðveld." I upphafi átti að vera um vinnu- fund að ræða til að undirbúa leið- togafund í Washington. Fljótlega kom þó í ljós að Gorbatsjov hafði ýmislegt í pokahorninu og skyndi- lega voru umfangsmiklar tillögur um að fækka kjamorkuvopnum og fjarlægja jafnvel ákveðna flokka þeirra að fullu til umræðu. Sam- komulag strandaði á deilu um geim- varnaráætlun Bandaríkjamanna. Hins vegar höfðu Sovétmenn stigið skref, sem ekki átti sér fordæmi. Fráhvarf frá fyrri háttum Sovétmanna „Leiðtogafundurinn í Reykjavík markaði fráhvarf frá fyrri háttum Sovétmanna að því leyti að þetta var að ég held í fyrsta skipti, sem þeir áttu frumkvæði að afvopnunar- samkomulagi," sagði Pipes. „Venjan var sú að við lögðum fram tillögur og þeir annað hvort samþykktu þær, eða höfnuðu þeim.“ Pipes kvaðst telja að hvatinn að tiliögum Sovétmanna hefði verið sá að þeir voru lafhræddir við geim- varnaráætlun Bandaríkjamanna, SDI. Bandarískir vísindamenn hefðu gert lítið úr henni, en Rússar borið „heilbrigða virðingu" fyrir getu Bandaríkjamanna ef þeir legðu sig fram. „Ég tel að afleiðingar Reykjavík- urfundarins hafi verið frekari af- vopnunartillögur Rússa, að þeir voru reiðubúnir til að semja frekar við okkur um meðaldrægar ------------ kjarnorkuflaugar og fleira,“ sagði Pipes. „Fram að þessu höfðu Rússar notað afvopnunar- málin tii að hafa taum- hald á Bandaríkjamönn- um, en eftir Reykjavíkurfundinn tel ég að þeir hafí horft á það með fullri alvöru að takmarka og fækka kjarnorkuvopnum. Þótt fundurinn í Reykjavík hafí mistekist opnaðist möguleikinn fyrir frekari viðræður. Ég held að Rússarnir hafí gert sér grein fyrir því að Reagan var stað- fastur maður, sem var full alvara, og hann mundi ekki láta ráðskast með sig.“ Pipes kvaðst telja að Rússar hafí gert sér grein fyrir þeim ágrein- ingi, sem var í Bandaríkjunum um Málþing um Reykjavíkurfundinn hefst í dag og munu Donald Regan, sem var starfs- mannastjóri Reagans, og Richard Pipes, pró- fessor við Harvard, flytja erindi. Þeir ræddu Reykjavíkurfundinn við Karl Blöndal. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson „ÞAÐ vantaði ekki nema svona mikið.“ Donald T. Regan, starfsmannastjóri Ronalds Reagans þegar leiðtogafundurinn var haldinn, lýsir því hvað Bandaríkjaforseti taldi stutt hafa verið í samkomulag um róttækan niðurskurð kjarnorkuvopna á Reykjavíkurfundinum. SDI. Innan Banda- ríkjastjórnar hefði Ric- hard Perie, sem tók þátt í Reykjavíkur- fundinum fyrir hönd vamarmálaráðuneytis- ins, verið hlynntur áætluninni, en Paul Nitze, afvopnunarsér- fræðingur Bandaríkja- stjórnar, og George Shultz utanríkisráð- herra hefðu talið að SDI ætti að vera agn í samningum. Lögðu Rússar gildru fyrir Reagan? ar, Höfði reyndist framúr- skarandi fundarstaður Þetta vissu Rúss: 1 sagði Pipes. „í Washington kvisast allt. Því hafí þeir hugsa með sér að Bandaríkja- menn gætu fengið allan þennan nið- urskurð - engar skammdrægar flaugar, helmingsniðurskurð lang- drægra flauga og kjarnorkuvopn Breta og Frakka yrðu ekki talin með - ef þeir aðeins féllu frá geim- vamaráætluninni. Þetta var gildra, en Reagan gekk ekki i hana. Reag- an var vanmetinn af mörgum.“ Regan var á sama máli um gildi -------- fundarins í afvopnunar- málum. „Eins og ég mun benda á hér á ráðstefnunni [í dag] markaði fundurinn merk tímamót á brautinni til kjarnorkuafvopnunar," sagði Regan. „Hann sannaði að tveir Ieiðtogar, sem sitja saman, gætu tekið ákvarðanir, sem kæmu öllu mannkyni til góða. Það var þetta, sem Reagan og Gorbatsjov gerðu. Það er miður að í Bandaríkjunum skyldi íran-kontra-málið hafa yfir- tekið og yfírskyggt Reykjavíkur- fundinn. Þess vegna leiddu menn ekki nægilega hugann að því hvað þessum tveimur mönnum varð í raun ágengt hér. Ég held hins vegar að nú geri fólk sér grein fyrir gildi þessa fundar . . . Reykjavík var RICHARD Pipes, prófessor við Har- vard-háskóla. einn þátturinn í því að binda enda á kalda stríðið." í upphafi var talað um leiðtogafundinn sem vonbrigði og mi- stök. Regan sagði að sú túlkun skrifaðist á reikning íjölmiðla. „Dagblöðin, einkum bandarísk, voru fljót að kenna Bandaríkjafor- seta um að fundurinn hefði mistekist," sagði Regan. „Þegar þátttak- endumir gengu út úr Höfða voru þeir graf- alvarlegir á svip og niðurlútir og hefði það að hrapa að niðurstöð- um verið ólympíugrein hefði bandaríska pressan unnið gull- ið með yfírburðum því að hún hrap- aði því miður að rangri niðurstöðu." Don Regan var gagnrýndur harkalega í skýrslu hinnar svoköll- uðu Tower-nefndar um íran-kontra máiið, sem snerist um það að Banda- ríkjastjórn seldi írönum vopn gegn því að bandarískir gíslar yrðu látnir lausir og lét féð renna í vasa kontra- skæruliða, sem börðust gegn stjóm sandinista í Nicaragua, og sagði af sér í kjölfarið, eða í febr- ------ úar 1987. Regan sagði að þetta mál ætti ekki að vega of þungt þegar arfleifð Re- agans yrði metin. Hins vegar hefði verið farið í ^“““ kringum lögin og það væri rangt. Tilgangurinn helgaði ekki alltaf meðalið og réttara hefði verið að fara þá leið að breyta lögunum. Hann sagði að það sem væri merkilegt við Reykjavíkurfundinn væri ekki samkomulagið, sem aldrei varð, heldur tillögurnar, sem lagðar voru fram. „Þegar þessir hlutir voru einu sinni komnir á borðið varð ekki snú- ið aftur,“ sagði Regan. „Framvind- an varð að vera frá þeim grunni og fram á við.“ Þegar fundinum lauk leyndu von- brigðin sér ekki og sagði Regan að það hefði ekki síst átt við um Reag- an Bandaríkjaforseta. Sterkar tilfinningar til Reykjavíkurfundar „Hann var alvörugefínn," sagði Regan. „Ég man þegar við komum saman í bílnum frá bandaríska sendi- ráðinu til Keflavíkur. Hann sagði í síbilju með höndina á lofti: „Það vantaði ekki meira en þetta, svona lítið, við vorum svona nálægt sam- komuiagi“,“ sagði Regan og sýndi með þumli og vísifíngri hve stutt var I samkomulag. „Eftir fundinn hugsaði hann til Reykjavíkur með sterkum tilfinning- um því að hann gerði sér grein fyrir því hve langt þeir höfðu náð og jafn- framt hverju hefði verið hægt að áorka miðað við þann tíma, sem leið frá Reykjavíkurfundinum þar til samkomulag var loks í höfn. Það var í raun óþörf töf og hægt hefði verið að ganga frá þeim málum hér. En ég get sagt þér annað: Reagan kunni mjög vel að meta gestrisni íslenskra stjómvalda og að Íslending- ar hefðu lagt sig fram um að gæta öryggis, en um leið að tryggja þægi- legar aðstæður á fundarstað. Höfði reyndist framúrskarandi fundarstað- ur.“ Regan bætti því við að Reagans ætti að minnast fyrir þátt hans í að bylta samskiptum risaveldanna: „Hann var maðurinn, sem batt enda á kalda stríðið með staðfestu sinni og vilja sínum til samninga. í öðru iagi færði hann Bandaríkja- mönnum mikla hagsæld á níunda áratugnum og hann blés okkur anda í brjóst, anda, sem hafði vantað um nokkum tíma, og í þeim anda gátum við orðið stolt af sjálfum okkur og horft björtum augum til framtíðar- innar." Á íslandi í heimsstyrjöldinni Regan er ekki að koma í fyrsta sinni til íslands. Hann kom hér fyrst þegar hann var yfírmaður í land- gönguliði Bandaríkjahers í júlí árið 1941 og var fram í mars 1942. „Ég þekki til héma, en Reykjavík hefur breyst mjög mikið á þessum áratugum," sagði Regan. „Það eru til dæmis miklu fleiri tré í Reykjavík nú en vom um miðja öldina. Eftir að hafa verið hér haust og vetur getur veðrið hins vegar ekki komið mér á óvart.“ Hann kvaðst hafa leitað uppi staði, sem hann þekkti, í fyrri heimsókn. „Þá naut ég leiðsagnar Geirs Hall- grímssonar,“ sagði Regan. „Við vor- um í grennd við útvarpsmöstur og stöðulón þegar við komum að steyptu skýli, þar sem börn voru að leik. Þegar betur var að gáð sá ég að þetta var vélbyssustæði, sem mín herdeild hafði reist. Landherinn hafði ---------- styrkt það og nú léku sér þar börn.“ Pipes og Regan tala báðir á málþinginu í dag, en það hefst klukkan 8:30 og lýkur klukkan 14:30. ““““ Regan mun ásamt Max M. Kampelman, sem einnig tók þátt I viðræðunum á íslandi, fjalla um reynslu Bandaríkjamanna á leiðtoga- fundinum. Pipes mun íjalla um áhrif fundarins á endalok kalda stríðsins ásamt Dr. Sergei Rogov, stjómanda Rannsóknarstofnunar á Bandaríkj- unum og Kanada í Moskvu. Á morgun verður fjailað um yfir- standandi breytingaskeið í sam- skiptum Bandaríkjamanna og Rússa fyrir hádegi og samstarf og ágrein- ing í samskiptum þjóðanna eftir hádegi. Þetta var gildra, en Reagan gekk ekki í hana Slitlag víða að hruni komið REKSTARSTJÓRAR Vega- gerðarinnar hafa lýst áhyggj- um yfír ástandi slitlags á þjóð- vegum, og segja það víða að hruni komið. Helgi Hallgríms- son vegamálastjóri segist skilja áhyggjur rekstrarstjór- anna, en telur ástandið ekki verra en áður. í ályktun sem rekstrarstjór- arnir sendu frá sér segir að framlög til viðhalds hafi ekki hækkað í takt við aukna þungaflutninga og því hraki slitlagi á þjóðvegum ár frá ári. Þeir telja einnig að vali á efni í efri burðarlög vega sé ábótavant. Helgi segir að dæmi séu til um slæmt ástand slitlaga, en það heyri til undantekninga. „Stundum fer í burðarlög efni sem ekki stenst kröfur og vafalaust kemur fyrir að eftir- lit sé ekki nógu gott, en yfir- leitt held ég svo sé ekki. Rekstrarstjórarnir fá fyrstir að heyra það ef vegir eru ekki góðir, því þeir eru í nánastri snertingu við vegfarendur af öllu starfsfólki Vegagerðar- innar. Mér fínnst ekki að veg- ir séu verri en þeir voru, en mörgum vegfarendum finnst það því þeir hafa kynnst því hvernig þeir eiga að vera og geta verið, það er að segja með bundnu slitlagi og sæmi- lega sléttir yfirferðar allt ár- ið.“ Vegagerðin vinnur _ nú í samstarfi við Háskóla íslands að rannsókn á auknu álagi á vegi vegna þungaflutninga. Borgin selur fyrirtæki BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að fela sérfræðihópi um sölu borgarfyrirtækja að ganga frá stofnun og skrán- ingu hlutafélagsins Malbiks og grjótnáms. Stefnt er að því að hlutafélagið taki yfír eignir og skuldbindingar frá 1. nóvem- ber 1996. Jafnframt var samþykkt að fela sérfræðihópi um sölu borgareigna að ganga frá stofnun og skráningu hlutafé- lags um rekstur Húsatrygg- inga Reykjavíkur enda fallist Vátryggingaeftirlitið á breytt rekstrarfyrirkomulag. Auk borgarsjóðs eigi Rafmagns- veita Reykjavíkur og Vatns- veita Reykjavíkur 1% hlut hvor í félaginu. Sérfræðingahópn- um verður jafnframt falið að kanna möguleika á sölu hluta- bréfa í félaginu, verði það sett á stofn. Kaupfélag ís- firðinga gjaldþrota HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða samþykkti í gær að Kaupfélag ísfirðinga yrði tekið til gjald- þrotaskipta. Kristinn Bjarnason héraðs- dómslögmaður hefur verið skipaður skiptastjóri og kemur hann til ísafjarðar í dag og tekur við bústjórn, að sögn Péturs Sigurðssonar, stjórnar- formanns Kaupfélags ísfirð- inga. Skuldir Kaupfélagsins umfram eignir nema tugum milljóna, að Péturs sögn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.