Morgunblaðið - 02.10.1996, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.10.1996, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐip 121. LÖGGJAFARÞING Avarp forseta Islands, Olafs Ragnars Grímssonar, við setningii Alþingis í gær ÓLAFUR Ragnar Grímsson gengur í fyrsta sinn í þingsal Alþingis sem forseti íslands. Morgunblaðið/Kristinn Alþingi íslendinga var sett með hefðbundnum hætti í gær Heildarendurskoðun boðuð á starfsháttum Alþingis SETNING Alþingis íslendinga, 121. löggjafarþings, fór fram í blíð- skaparveðri í gær. Að lokinni messu í Dómkirkjunni, þar sem sr. Sváfnir Sveinbjamarson, prófastur á Breiðabólstað, predikaði, var gengið til þings. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setti þingið í fyrsta sinn á kjörtímabili sínu. Ragnar Arnalds, sem hefur lengstan starfsaldur þingmanna, stýrði kjöri þingforseta. Olafur G. Einarsson var endurkjörinn forseti Alþingis og tók við fundarstjórn. Að loknu ávarpi sínu frestaði hann þingfundi, sem verður fram haldið í dag kl. 13:30. Þá fer fram kjör varaforseta þingsins, kosið verður í fastanefndir og hlutað um sæti þingmanna. Klukkan níu í kvöld flytur forsætisráðherra stefnuræðu sína. Umræðum um hana verður útvarpað og sjónvarpað beint í Rík- isútvarpinu. Þingforseti sagði í ávarpi sínu þennan þingsetningarfund marka þau tímamót, að þetta væri í fyrsta skipti sem nýkjörinn forseti lýð- veldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, setti þingið. Hann lýsti vilja Alþing- is til að eiga gott samstarf við nýkjörinn forseta íslands og ítrek- aði þakkir alþingismanna til fyrr- verandi forseta, frú Vigdísar Finn- bogadóttur, fyrir farsæl störf í þágu þjóðarinnar. Húsnæðismál Alþingis voru þingforseta hugleikin i ávarpi sínu. Hann vakti athygli á því, að nú væri að ljúka endurbótum á húsum þeim við Kirkjustræti, sem eiga að þjóna sem skrifstofuhúsnæði fyrir alþingismenn og starfsfólk Alþing- is. Þess er vænzt, að hægt verði að taka húsnæðið í notkun fyrir lok þessa mánaðar. Lýsti þingforseti sérstakri ánægju með hversu vel hefði tekizt til með endurgerð hús- anna. Ýmis vandamál, sem hljótast af því, að þingið starfar í átta hús- um, eru hins vegar enn óleyst. Nýjungar í starfsáætlun Nýrri starfsáætlun Alþingis verður dreift til þingmanna í dag. Þingforseti kaus að vekja athygli á þremur atriðum í henni. I fyrsta lagi er gert ráð fyrir þinghléi vik- una 21.-25. október. Í öðru lagi stendur til að fella niður þingfundi í eina viku í lok nóvember og aftur í fyrri hluta aprílmánaðar, en það er nýmæli. Þennan tíma skal nota til nefndastarfa, en þingforseti sagði það hafa verið orðið brýnt, að nefndunum yrði tryggður rýmri tími til starfa þegar drægi að lokum þingstarfa fyrir jól og að vori. Þriðja atriðið er einnig nýjung, en hún er sú, að nefndastörfum ljúki a.m.k. tveimur vikum fyrir þing- frestun að vori, til að þingið hafi betri tíma til að fjalla um og af- greiða mál sem nefndirnar skila áliti um. Þannig gerir starfsáætlun ráð fyrir að nefndastarfi ljúki 30. apríl, en þingfrestun verði 16. maí. Þessar breytingar á starfshátt- um þingnefnda munu þó aðeins vera fyrirboði heildarendurskoðun- ar á starfsháttum þingsins. Þing- forseti sagðist mundu beita sér fyrir endurskoðun á þingskapalög- um, með það fyrir augum að koma starfsháttun^ þingsins í nútíma- legra horf. „Ég hef áður úr þessum stól sagt, að við getum ekki vikið okkur undan þeirri skyldu að taka á fjölmörgum atriðum í okkar starfsháttum sem eru úr takt við tímann og eru í reynd dæmi um úrelt vinnubrögð,“ sagði Ólafur. Nefndi hann það fyrirkomulag sem hefur verið á útvarpi og sjónvarpi frá Alþingi, sem hann segir ekki vera til þess fallið að glæða áhuga almennings á störfum þingsins. Hins vegar lét þingforseti í Ijós sérstaka ánægju með það sem gert hefur verið fram að þessu til að bæta starfshættina; nefndi hann uppbyggingu gagnabanka Alþing- is, en heimasíða þingsins hlaut nýlega viðurkenningu Samtaka tölvu- og fjarskiptanotenda sem bezta íslenzka upplýsingasíðan á tölvunetinu. í lok ávarpsins þakkaði þingfor- seti Félagi íslenzkra landslagsarki- tekta fyrir þá ræktarsemi við Al- þingisgarðinn, er félagið sýndi með því að standa að uppsetningu minn- ingarskjaldar í tilefni aldarafmælis Alþingisgarðsins, elzta skrúðgarðs á Islandi. Viðfangsefnin kunna að reyna á þolrifin FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson ávarpaði þingheim við setningu Alþingis í gær. í upphafi ávarps síns sagði forsetinn: „Al- þingi skipar veglegan sess í sögu þjóðarinnar. Engin önnur stofnun vísar jafn skýrt til uppruna íslend- inga og örlaga landsmanna á liðn- um öldum. Eftir endurreisn var Alþingi vettvangur sigra í baráttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði, lýðrétt- indum og alhliða framförum. Hér var staðfestur árangur í langri og oft erfíðri sókn fólks í landinu til aukins réttar og bættra kjara.“ Síðar sagði forsetinn m.a.: „íslenskt þjóðfélag hefur tekið miklum stakkaskiptum á síðustu áratugum. Þær breytingar hafa haft margvísleg áhrif á stöðu og viðfangsefni Alþingis. Að vissu leyti heyr þingið nú varnarbaráttu til að tryggja að það vald sem því ber samkvæmt lýðræðisgrundvelli íslenskrar stjórnskipunar flytjist í reynd ekki smátt og smátt til sér- fræðistofnana framkvæmdavalds- ins eða til starfsliðs og stjórnenda hagsmunasamtaka. Þessi þróun er ekki einstök fyrir okkar samfélag. Við þennan vanda er glímt í þjóðþingum allra þróaðra lýðræðisríkja og brugðist við með mismunandi hætti... Vandi þjóðþinga á okkar tímum felst í þeirri þversögn að annars vegar styrkist krafan um aukið lýð- ræði og opnari stjómunarhætti og hins vegar hafa samtök sérhags- muna efist að skipulagi og sérfræði ásamt því að embættisstofnanir framkvæmdavaldsins verða sífellt öflugri bakhjarl ríkisstjórna sem löngum vilja beita þingin agavaldi. I þessari þraut er engin lausn án erfiðleika eða togstreitu. Hollt er að minnast þess að grundvöllur lýðræðis og lýðveldis í stjórnskipan okkar íslendinga er að valdið er hjá fólkinu, þjóðinni sjálfri. Ekki aðeins á kjördag á nokkurra ára fresti, heldur ávallt og ævinlega. Það er í samræmi við þennan lýðræðislega grundvöll stjórnskip- unarinnar að þjóðin velur sjálf for- seta lýðveldsins. Umboð hans er frá fólkinu í landinu. Við embættis- tökuna 1. ágúst síðastliðinn sagði ég að starf forseta Íslands fælist fyrst og fremst í þjónustu við þjóð- ina. Einungis dómgreind, lífs- reynsla og lifandi tengsl við fólkið í landinu gætu vísað forseta rétta leið í starfi. Þessa leiðsögn árétta ég nú, en minni jafnframt á að þótt kjördæmi og stjórnmálaflokkar eigi hlut að skipan Alþingis þá er þjóðin sjálf herra okkar allra. Almannahagur er sú viðmiðun sem mestu máli skiptir.“ Undir lok ávarps síns sagði for- seti íslands: „Á komanda vetri bíða þingsins mörg erfið úrlausnarefni. Mikilvægt er að varðveita þann stöðugleika í verðlagsmálum sem haldist hefur í rúman hálfan ára- tug. Einnig þarf jafnt og þétt að ná jafnvægi í viðskiptum okkar við umheiminn, draga úr erlendum skuldum og styrkja hér innanlands í senn rekstrargrundvöll ríkissjóðs og fjárhagsstöðu heimilanna. Þessi viðfangsefni kunna á næst- unni að reyna á þolrif þings og þjóðar vegna ólíkra viðhorfa til þess hvernig best er að nýta þann ávinning sem er í vændum og að hluta er ávöxtur þeirra fórna sem almenningur hefur fært á undan- förnum árum. Erfiðleikar hafa löngum fært íslendinga saman en með betri tíð hefur á stundum losn- að um samfylgdina. Nú ríður á að þing og þjóð beri gæfu til að finna leiðir sem í senn styrkja efnahags- lífið og bæta lífskjör heimilanna.“ > \ I; I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.