Morgunblaðið - 02.10.1996, Síða 13

Morgunblaðið - 02.10.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 13 Egilsstaðabúar vinna að norrænu umhverfisverkefni Egilsstöðum - Egilsstaðabær er þátttakandi í norrænu verkefni um framkvæmdaáætlanir í um- hverfismálum í fámennum sveit- arfélögum. Verkefnið er unnið á vegum undirnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar. Egils- staðabær er eina íslenska bæjar- félagið í verkefninu en auk þess eru 17 sveitarfélög í Færeyjum þátttakendur. Umsjón með verkefninu fyrir hönd Egilsstaðabæjar hefur Sigurborg Kr. Hannesdóttir. Unn- ið er eftir handbók sem verkefnis- stjórinn Durita Brattaberg frá Færeyjum hefur unnið. Má segja að Egilsstaðabær sé tilraunasveit- arfélag í þessu verkefni. Samband íslenskra sveitarfélaga fylgist með og hefur það hlutverk að koma verkefninu áfram til ann- arra sveitarfélaga. Sorp-, frárennslis- og vatnsmálum komið í lag Sigurborg segir að verkefnið feli m.a. í sér að athuga stöðu bæjarfélagsins í sorpmálum, frá- rennslis- og vatnsmálum og í framhaldi af því að gera áætlun um það sem bæta þarf. Síðan er það bæjarstjórn sem forgangsrað- ar fyrirhuguðum framkvæmdum og gerir 5 ára áætlun. „Auk þessa hafa verið og eru í gangi ýmis smærri verkefni, s.s. bíllaus dag- ur, nytjamarkaður á Ormsteiti, flokkun sorps í leikskólanum og verið er að skipuleggja verkefni í Egilsstaðaskóla.“ Sigurborg sagði þátttöku í bíllausa deginum mjög góða, en 250 manns lýstu sig til- búna til þess að hvíla bílinn þenn- an dag og menn höfðu orð á því að greinilegur munur var á því hvað umferð var minni þetta há- degi en ella. Ný kynslóð temur sér nýjar reglur í sorpmálum Umhverfisverkefnið snertir iíka yngstu íbúa bæjarins en það eru einmitt þeir sem koma til með að taka við og temja sér ný og önnur vinnubrögð en þau sem áður þafa tíðkast í umhverfismál- um. í leikskólanum Tjarnarlandi er verið að gera úttekt á því hversu mikið af úrgangi kemur frá leikskólanum, hann flokkaður, vigtaður og mældur og í fram- haldi af því á að festa kaup á safnkassa sem staðsettur verður á lóð leikskólans. Auðvelt er að vinna með börn- unum og kenna þeim að bera umhyggju fyrir náttúrunni og vera meðvituð um að það skiptir máli hvernig úrgangi er skilað og rusii fleygt. A.m.k. vissi Sævar Atli Sævarsson leikskólanemandi að flokka átti ruslið í lifandi og dautt rusl. „Lifandi ruslið á síðan að fara í kassa og svo breytist það í mold,“ sagði Sævar Atli. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir BÖRN í leikskólanum Tjarnarlandi. HUGBÚNAÐUR FYRIR WINDOWS FRABÆR ÞJÓNUSTA g\ KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 Nýtt frá PROFUTURA Ekki fjárfesta bara í andlitinu. Upplifðu nýja tilfinningu með líkams- og baðlínunni frá PROFUTURA. PROFUTURA andlits- og augnkremið með NANOPART hefur lengið verð talin besta lausnin á hrukkum og ótímabærri öldrun í andlitunu. . Húðlínan frá PROFUTURA inniheldur dýrmætt NANOPART fyllt með mjög áhrifaríkum Sea Buckthorn olíum, sem MARBERT eru fyrstir til að nota í NANOPART, en það fer í dýpri lög húðarinnar þar sem áhrifin eru mest. PROFUTURA nærir og mýkir húðina, hún verður stynnari, teygjanlegri og glansandi falleg. Hvert krem fyrir sig hefur sjálfstæða eiginleika, þess vegna verður PROFUTURA serían ennþá áhrifaríkari. PROFUTURA húðvörur, þú sérð og finnur áhrifin. MARBERT Morgunblaðið/Egill Egilsson Líf og fjör í leikfimi Flateyri - Það var líf og fjör í íþróttahúsi Flateyrar á dögun- um. Hér voru samankomin börn úr leikskólanum á aldrinum 2-6 ára í sínum öðrum leikfimitíma. Það er óhætt að segja að leikfimi- tíminn hjá þeim hafi ekki verið hefðbundinn. Þarna gat að líta nýstárlegar aðferðir yngri kyn- slóðarinnar í körfuboltatroðslu þar sem boltinn var ekki lengur þátttakandinn heldur gerandinn sjálfur. Vandaður BALENO WAGON 4WD fyrir aðeins 1.580.000,-kr. BALENO WAGON með framhjóladrifi aðeins 1.450.000,- kr. MEÐ: aflmikilli 16 ventla vél • toppgrind • vindkljúf með hemlaljósi • þjófavöm • hæðarstiliing á ökumannssæti • öryggisloftpúðum fyrir ökumann og farþega í framsæti • vökvastýri • upphituðum framsætum • samlæsingum • veltistýri • rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum útispeglum • tvískiptu aftursætisbaki • útvarpi/segulbandi með 4 hátölurum • styrktarbitum í hurðum • skolsprautum fyrir framljós • samlitum stuðurum. Geturðu gert betri bilakaup? SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. „Nú er Súkkon orðin stór“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.