Morgunblaðið - 02.10.1996, Side 18

Morgunblaðið - 02.10.1996, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Tony Blair ávarpar þing breska Yerkamannaflokksins Segist leggja mesta áherslu á menntamál Blackpool. Reuter. Reuter TONY Blair, leiðtogi Verkamannaflokksins, veifar til fulltrúa á þingi flokksins í Blackpool eftir að hafa flutt ræðu sína. Deilt um vöruflutninga Helsinki. Morgunblaðið. FLUTNINGAVERKAMENN TONY Blair, leiðtogi Verkamanna- flokksins, flutti ræðu á þingi flokksins í Blackpool í gær og kvaðst ætla að standa vörð um hagsmuni smáfyrirtækja og leggja áherslu á menntamál kæmist hann til valda í næstu kosningum. Hann lofaði ennfremur að hafa hagsmuni allra Breta að leiðarljósi, ekki að- eins vinstrimanna eða verkalýðsfé- laga. Blair kynnti stefnu sína og svo- kallaðan „framkvæmdasamning" við Breta á síðusta þingi Verka- mannaflokksins fyrir næstu þing- kosningar, sem verða innan sjö mánaða. Hann lofaði að gera Bret- land að „þekkingarstórveldi heims- ins“ og hvatti kjósendur til að fylkja sér um Verkamannaflokkinn til að binda enda á 17 ára valdatíma íhaldsflokksins. „Eg segi við bresku þjóðina, sýn- ið þor til að breyta núna, við leitum til ykkar,“ sagði hann við mikinn fögnuð flokksmanna sinna. „Ekki meiri sóun á þjóðarauðnum, ekki meiri spillingu ... ekki meiri lygar, ekki fleiri svikin loforð. Ég segi við íhaldsmenn, nú er komið nóg. Þetta er nóg, ljúkið ykkur af, farið burt.“ „F ramkvæmdasamningur “ boðaður Blair kynnti „framkvæmda- samning" við bresku þjóðina og lagði áherslu á eftirfarandi tíu atr- iði: • Útgjöldin til menntamála verði aukin miðað við þjóðarframleiðsl- una. • Dregið verði úr „velferðarút- gjöldum vegna misheppnaðrar fé- lagsmálastefnu". • Dregið verði úr skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu og þjónustan við sjúklinga bætt. • Gerðar verði ráðstafanir til að draga úr langvinnu atvinnuleysi. • Komið verði á umbótum í dóms- kerfmu þannig að helmingi skemmri tími líði þar til ungir af- brotamenn verði sóttir til saka. • Lántöku ríkisins verði haldið í lágmarki og áhersla lögð á að stemma stigu við verðbólgu. • Loforð um skattalækkanir verði efnd og lægsta tekjuskattsþrepið lækkað úr 24% í 10-15%. • Tryggt verði að færri nemendur verði í hveijum bekk. • Völd yfirvalda í Skotlandi og Wales verði aukin. • Tengslin við Evrópusambandið verði bætt. Blair lagði áherslu á að Verka- mannaflokkurinn myndi ekki falla í sömu gryfju og ríkisstjórnir Verkamannaflokksins á áttunda áratugnum í efnahagsmálum. Flokkurinn myndi ekki auka rík- isútgjöldin og hækka skattana. Aukin áhrif innan ESB Robin Cook, talsmaður Verka- mannaflokksins í utanríkismálum, gagnrýndi „þröngsýna þjóðernis- hyggju" stjórnar Ihaldsflokksins og hét því að auka áhrif Breta innan Evrópusambandsins (ESB) ef Verkamannaflokkurinn kæmist til valda. Cook ítrekaði þó að stjórn Verka- mannaflokksins myndi ekki ganga í efnahags- og myntbandalag ESB (EMU) nema því yrði beitt í barátt- unni gegn atvinnuleysi. Blair tók í sama streng og sagði að Verka- mannaflokkurinn myndi ekki fall- ast á aðild að EMU nema það þjón- aði hagsmunum Bretlands og yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Verkamannaflokkurinn er, eins og íhaldsflokkurinn, staðráðinn í að bíða eins lengi og hægt er með að taka endanlega afstöðu til aðild- ar að myntbandalaginu. Félagsmálasáttmálinn samþykktur Flokkana greinir hins vegar á um félagsmálasáttmálann um rétt- indi launþega og Cook og Blair sögðu báðir að Bretar myndu gang- ast undir hann fyrir lok næsta árs ef Verkamannaflokkurinn kæmist til valda. „Við gerum það vegna þess að Bretar geta ekki gegnt mikilvægu hlutverki í Evrópu þegar þeir dragast aftur úr öllum öðr- um,“ sagði Cook. Ihaldsflokkurinn er andvígur félagsmálasáttmálan- um á þeirri forsendu að hann leggi meiri byrðar á fyrirtækin og stuðli þannig að auknu atvinnuleysi. Verkamannaflokkurinn hefur ekki verið við völd í Bretlandi frá árinu 1979 en er nú með 20 pró- sentustiga forskot á íhaldsflokkinn. Blair vonast til þess tryggja Verka- mannaflokknum sigur í næstu kosningum með því að sækja inn á miðjuna. Finnlandi stöðvuðu á mánudag af- greiðslu á vöruflutningum frá Rúss- landi í sólarhring til þess að mót- mæla töfum í tollafgreiðslu Rússa á landamærum ríkjanna. Finnar telja að Rússar vilji með töfunum trufla starfsemi flnnskra flutnings- fyrirtækja. Vöruflutningar til Rúss- Iands eru orðin allstór atvinnugrein i Finnlandi eftir hrun Sovetríkjanna. Vörubílaferðir frá Finnlandi til Rússlandi hafa oft taflst á síðustu mánuðum vegna tregðu rússneskra tollyfirvalda. Þá hafa héraðsyfir- völd í Rússlandi krafíð finnska bíl- stjóra um margs konar aukagjöld til þess að fá leyfi til að fara um svæðin. Um síðustu helgi urðu vörubílar að bíða í allt að tvo sólarhringa eftir tollafgreiðslu hjá Rússum. Deilt um EMU- hæfni Italíu París. Reuter. JACQUES Chirac Frakklandsfor- seti dró í gær í efa að Ítalía yrði í hópi þeirra ríkja er tækju þátt í Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu frá upphafí árið 1999. Chirac sagði í gær á fundi með kaupsýslumönnum í norðurhluta Frakklands að hjólin snerust hratt hjá þeim ríkjum er hefðu gert átak í því að koma ríkisfjármálum sínum í viðunandi horf. „Það gæti tekið lengri tíma fyrir önnur ríki, sem hafa dregist aftur úr, svo sem ítal- íu,“ sagði Chirac. ítalir óánægðir ítalskir ráðamenn svöruðu þegar í stað og gagnrýndu Frakklandsfor- seta fyrir að blanda sér í ítölsk málefni. „Við hljótum að líta [um- mælin] alvarlegum augum. Þau eru alvarleg í ljósi þess að land okkur hefur lagt mikið á sig til að verða hluti af Evrópu," sagði Walter Veltroni, aðstoðarforsætisráðherra Ítalíu. Hann sagði Chirac hafa fullan rétt á að ræða málefni eigin ríkis en ætti ekki að blanda sér í innri málefni samstarfsríkja. „Við dæmum ekki stefnu ann- arra ríkja og væntum þess að önn- ur ríki geri slíkt hið sama,“ sagði Veltroni. Er talið að þessi deila kunni að varpa skugga á fransk-ítalskan leiðtogafund, sem hefst í Napólí á fímmtudagskvöld. Skömmu áður en Chirac flutti ræðu sína lýsti Romano Prodi, for- sætisráðherra Ítalíu, því yfir í sam- tali við blaðamenn í Róm að sum ESB-ríki, þar á meðal Frakkland og Þýskaland, óttuðust samkeppni frá hinum öfluga iðnaði Ítalíu. EÞ frystir fjárveitingu til ráðgjafarnefnda EVRÓPUÞINGIÐ hefur fryst fjár- veitingu til greiðslu ferðakostnaðar nefndarmanna í yfir 360 ráðgjafar- nefndum Evrópusambandsins. Þingið krefst þess að fundir nefnd- anna verði opnaðir almenningi og að nefndarmenn, sem eru sérfræð- ingar og embættismenn, tilnefndir af ríkisstjórnum aðildarríkjanna, gefi út yfirlýsingu um hagsmuna- tengsl, sem hugsanlega samrýmist ekki skyldum þeirra. Vegna þessarar deilu hefur fram- kvæmdastjóm ESB frá í sumar sent út boð á fundi ráðgjafarnefnda án þess að hin hefðbundna málsgrein, þar sem endurgreiðslu ferðakostn- aðar er heitið, fylgi með. Á þessu ári eru 20 milljónir ECU ætlaðar til endurgreiðslu ferðakostnaðar og þar af hefur þingið fryst 10 milljón- ir, eða sem svarar til um 840 millj- óna íslenzkra króna. Þingmenn hóta nú einnig að frysta alla fjárveitingu til nefndanna á næsta ári. I European Voice kemur fram að þegar núverandi fjárveiting verði uppurin, sem gæti orðið á næstu vikum, standi menn frammi fyrir tveimur kostum; að fundir ráðgjafanefndanna falli niður um sinn eða að ríkisstjórnir aðildarríkja ESB greiði ferðakostnað nefndar- manna. Slíkt myndi einkum koma niður á ríkissjóði aðildarríkja á út- jaðri sambandsins, t.d. Grikklands og Finnlands. Ekki opnir og lýðræðislegir starfshættir Ráðgjafarnefndirnar, sem eru 361 talsins, hafa talsverð áhrif á löggjöf Evrópusambandsins. Á síð- asta ári voru alls haldnir 1.467 fundir í þessum nefndum, þær fóru yfir 7.618 skjöl og tóku nærri því 3.400 ákvarðanir. Evrópuþingmenn halda því fram að starfshættir nefndanna séu ekki í samræmi við áherzlu ESB á opna og lýðræðislega stjórnsýslu, þar séu gerð samkomulög á bak við tjöldin, sem t.d. Evrópuþingið fái ekki að vita af, jafnvel þótt viðkomandi mál eigi að vera á sameiginlegu forræði þingsins og fulltrúa aðild- arríkjanna í ráðherraráðinu. ísland á aðild að fjölda nefnda ísland á aðild að stórum hluta ráðgjafarnefnda ESB, meðal annars vegna þess starfs, sem þær inna af hendi við mótun nýrra ESB- reglna, sem teknar eru upp í samn- inginn um Evrópskt efnahagssvæði. í flestum tilvikum greiðir ísland sjálft ferðakostnað nefndarmanna. Á því er þó sú undantekning að | fulltrúar í nefndum, sem tengjast j samstarfsáætlunum sem ísland greiðir hluta af kostnaði við, t.d. rannsókna- og menntamálaáætlanir ESB, fá ferðakostnað endurgreidd- an frá sambandinu. Deila Evrópu- þingsins og aðildarríkjanna gæti því orðið til þess að ísland yrði að greiða ferðakostnað viðkomandi fulltrúa, ákveði aðildarríki ESB að gera slíkt í stað þess að fresta nefndafundum þar til hnúturinn leysist. Mat Steingríms Sigurgeirssonar gagnrýnanda í Morgunblaðinu sunnudaginn 15. september 1996 Staðurinn „Þegar ég kom inn í þetta húsnæði í fyrsta skipti fannst mér sem að Primavera hefði loksins fengið þá umgjörð sem matargerðin þar ætti skilið." Maturinn „Eftir að hafa í tvígang farið í gegnum matseðil Primavera að miklu leyti verð ég að viðurkenna að ég fann fáa veika punkta en marga Ijúffenga rétti. Útfærsla er nær undantekningalaust allt að því fullkomin."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.