Morgunblaðið - 02.10.1996, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Enn deilt
umflak
Estoniu
Kaupmannahöfn. Morgunbiaðið.
MINNINGARGUÐÞJÓNUSTUR um
þá 852 sem fórust með ferjunni
Estoniu 28. september 1994 voru
haldnar víða um Svíþjóð, Finnland
og Eistland um helgina. Hafa í kjöl-
farið komið fram kröfur um að rann-
sakað verði hvers vegna hætt var
við að ná líkunum úr flakinu, eins
og Iofað var í fyrstu.
Ákvörðunin hafí gengið þvert á
venjur þegar um slys sé að ræða og
það sé aðstandendum þungbær raun
að geta ekki vitjað grafar látinna
ættingja. Þó ekki hefði verið hægt
að ná öllum líkunum, þykir ljóst að
mátt hefði ná mörgum þeirra. Einn-
ig hafa komið fram ásakanir um að
myndband, sem kafarar tóku í flak-
inu eftir slysið, hafí aldrei verið skoð-
að nákvæmlega og möguleikar á
björgun því ekki hugleiddir.
Ákveðið hafði verið að hylja flak-
ið í steinsteypu, en sökum ákafra
mótmæla aðstandenda hinna látnu
var hætt við framkvæmdina í vor.
---------» « «----
Nóbelsverðlaun í
bókmenntum
Reuter
AFGANSKIR flóttamenn bíða þess að þeim verði úthlutað tjaldi í Peshawar-flóttamannabúðunum
í Pakistan. Um 10.000 manns hafa komið i búðirnar á síðustu dögum og vikum.
Talebanar setja
Masood úrslitakosti
Kínverji og
Portúgali
líklegastir
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSK dagblöð telja líklegast að
Bei Dao, kínverskt ljóðskáld í útlegð
í París, eða portúgalski rithöfundur-
inn Jose Saramago, muni hljóta
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Tilkynnt verður hver hlýtur verð-
launin á morgun, fimmtudag.
Af öðrum rithöfundum sem tald-
ir eru hafa verið líklegir verðlauna-
hafar síðustu ár, má nefna Belgann
Hugo Claus, Carlos Fuentes frá
Mexíkó og Mario Vargas Llosa frá
Perú. í ár hafa svo bæst við nöfn
Hollendingsins Cees Noteboom, Al-
banans Ismael Kadare og V.S.
Naipaul frá Trínidad.
Jabal os-Siraj. Reuter.
ABDUR Razzaq, stjórnandi skæru-
liðasveita Taleban-fylkingarinnar,
setti í gær Ahmad Shah Masood,
yfirmanni herafla stjórnar Burha-
nuddins Rabbanis forseta Afganist-
ans, sem steypt var sl. föstudag,
úrslitakosti; ellegar gæfíst hann upp
eða sveitir hans yrðu þurrkaðar af
yfirborði jarðar, eins og að orði var
komist.
Masood fór með sveitir sínar til
vígis síns í Panjsher-dalnum þegar
Kabúl var að falla. Sveitir Razzaqs
héldu norður á bóginn og í gær höfðu
þær náð borginni Jabal os-Siraj fyr-
ir mynni Panjsher-dalnum, en hún
er 70 km norður af Kabúl og þar
var áður vígi Masoods.
Sendi Razzaq orðsendingu í gær
til Masoods þar sem sagði, að hætti
hann bardögum „yrði honum fyrir-
gefið“, ellegar hefði hann verra af.
Eftir að hafa náð Jabal os-Siraj
héldu Taleban áfram förinni og
hrintu allri mótspyrnu þar til að
Salang-göngunum kom. Þar voru
fyrir vel vopnum búnar og agaðar
sveitir Abduls Rashids Dostums
hershöfðingja, Jumbish-i-Milli her-
inn. Dostum hefur haldið sig utan
við átök Taleban og hersveita stjórn-
ar Rabbanis. Bjó hann sig þó undir
bardaga og hét því í gær, að stöðva
sókn Taleban norður á bóginn.
Masood var ekki settur sérstakur
frestur til að gefast upp, en heimild-
ir hermdu, að Taleban-sveitunum
hefði verið skipað að hefja sókn
gegn sveitum hans og Dostums árla
í dag, miðvikudag.
Razzaq sagði þó í gær, að hann
vildi komast hjá stríði við sveitir
Dostums, en miðstöð þeirra er í
borginni Mazar-i-Sharif. Hernaðar-
fræðingar sögðu, að Masood og
Dostum kynnu að neyðast til að
grafa foman ágreining sinn og sam-
einast í baráttunni gegn sveitum
Taleban. Töldu þeir óvarlegt að af-
skrifa sveitir þeirra þrátt fyrir mik-
inn uppgang Taleban, sem náð hefur
um 25 héruðum Afganistans af 33
á sitt vald á undanförnum tveimur
árum. Dostum var um tíma varnar-
málaráðherra í stjórn Rabbanis og
átti aðild að misheppnaðri herbylt-
ingu í janúar 1994 en hún leiddi til
blóðugra bardaga við hersveitir
Masoods.
Ráðamenn víðs vegar um heim
létu í gær í ljós áhyggjur með þróun-
ina í Afganistan og voru Rússar þar
í fararbroddi. Borís Jeltsín Rúss-
landsforseti hvatti til þess að Sam-
veldi sjáljfstæðra ríkja beitti sér fyrir
aðgerðum er komið gætu í veg fyrir
vaxandi átök í Afganistan. Ottast
er að þau gætu breiðst að landamær-
um Úzbekístans og Tadjíkístans, en
þar eru svæði sem Talebanar gera
tilkall til og vilja innlima í Afganist-
an.
lugavegi 11%* síi
, M,. • . r' m - i - *É»iag i ;
A morgun og föstudag frá
kl. 15:00 - 18:00 Kynnir S
Vilbergsdóttir Faber Cas
myndlistavörur, þar á meðal
athyglisveröar nýjungar.
Vitekiptavinum er veittur 1Ð% afsláttur
igana sem kynningin fer fram. >*Wm
kyÉik
Aker og RGI sameinast
Þriðja stærsta
fyrirtæki Noregs
Ósló. Morgunblað- _____ _______
NORSKU útgerðarmennimir Kjell
Inge Rokke og Bjem Rune Gjelsten
tryggðu á mánudagskvöld samruna
stórfyrirtækjanna Aker og Resource
Group Intemational (RGI) og verður
nýja fyrirtækið, Aker RGI þriðja
stærsta fyrirtæki Noregs. Búist er
við að það taki formlega til starfa í
upphafi næsta árs, að ársvelta þess
verði um 190 milíjarðar ísl. kr. og
starfsmennimir um 17.000.
Stjómir fyrirtækjanna samþykktu
á mánudagskvöld samruna og er búist
við að hann verði formlega samþykkt-
ur á aðalfundum þeirra í nóvember.
Talið er að fyrirtækið verði metið á
um 100 milljarða ísl. kr. en í Noregi
eru aðeins Statoil og Norsk Hydro
stærri.
Rokke verður stærstur hluthaf-
anna, mun eiga 33% í nýja fyrirtæk-
inu. Samningaviðræður hafa staðið
yfir um nokkurt skeið en það sem
varð til þess að samningar náðust var
hærra mat á hlutabréfum í Aker, en
hvert þeirra er metið á sem svarar
til 2,15 hlutabréfa í RGI.
Við samrunann flytur RGI starf-
semi sína frá Hollensku Antilla-eyjum
til Noregs. Að sögn Gjelsten mun
Aker RGI einbeita sér að þrennu;
sementi, sjávarfangi og olíu- og gasi.
Kjell Inge Bjorn Rune
Rokke Gjelsten
Aker var stofnað um miðja síðustu
öld og framleiðir aðallega sement og
annað byggingarefni, auk þess sem
það hefur reist olíuborpalla.
RGI var upphaflega útgerðarfyrir-
tæki, stofnað á síðasta áratug. Það
hefur einnig látið til sín taka á fast-
eignamarkaði, í skipasmíðum, í fram-
leiðslu á útivistarfatnaði og á fjár-
málamarkaði. Er það á fáum árum
orðið eitt umsvifamesta fyrirtæki í
eigu Norðmanna en stærstu hluthaf-
arnir eru Rokke og Gjelsten.
Í febrúar sl. keypti RGI um 40%
hlutabréfa í Aker og Gjelsten varð
stjómarformaður. Hefur verðmæti
hlutabréfa í Aker hækkað úr um 900
ísl. kr í um 1.300 ísl. kr. á hálfu ári.
ERLENT
Yopnahlé
á enda?
EINN af lpiðtogum mótmæl-
enda á N-írlandi, sem tengsl
hefur við vopnaða hermdar-
verkamenn, sagði í gær að
flokkur hans myndi endurskoða
afstöðu sína til vopnahlésins
sem ríkt
hefur í
héraðinu.
Fulltrúi
mótmæl-
endafanga
sem sak-
felldir hafa
verið
hryðjuverk
sagði þá
ekki styðja GerryAdams
vopnahlé
lengur vegna árása sem
sprengjumenn úr röðum kaþó-
likka hafa staðið fyrir í Eng-
landi.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, stjórnmálaarms kaþólsku
hermdarverkasamtakanna IRA,
svaraði áskorun Cahals Dalys
kardínála, æðsta manns kirkju
írskra kaþólikka, um frið með
því að saka bresku stjórnina um
að tefja fyrir samningum.
Bandaríkja-
menn kaupa
fleiri bækur
BÓKSALA eykst nú mest í
Bandaríkjunum en hefur
minnkað í Bretlandi, að sögn
stjórnanda bókasýningarinnar í
Frankfurt. Hann sagði Breta
hafa sýnt slæmt fordæmi í ESB
. með því að afnema verðsamráð
á bókum, þetta hefði valdið því
að litlar bóksölur þar berðust í
bökkum en verð samt hækkað
nokkuð.
Flestir titlar voru gefnir út í
Kína í fyrra, 103.000 en Bretar
voru næstir með 95.000.
Rússar auka
fíkniefna-
kaup
TVÆR milljónir Rússa nota
fíkniefni að staðaldri og um 15%
af íbúunum hafa notað slík efni,
að sögn embættismanna í gær.
Hefur fjöldi notenda tvöfaldast
á áratug vegna meira framboðs
og aukinna umsvifa glæpa-
flokka. Fíkniefnin koma einkum
frá Afganistan.
Fjöldamorð-
ingi fyrir rétt
MARTIN Bryant, sem varð 35
manns að bana í Port Arthur á
Tasmaníu I aprfl, kom fyrir rétt
í gær en neitaði öllum sakargift-
um. Miklar öryggisráðstafanir
voru gerðar til vernda Bryant,
m.a. stóð hann bak við skothelt
gler. Bróðir eins fómarlambsins
var viðstaddur og æpti hótanir
í garð sakbomingsins.
Laun greidd í
mótorhjólum
KOLANÁMUMENN í Úkraínu
fá nú greidd uppsöfnuð iaun í
mótorhjólum með hliðarvagni,
nóg mun vera til af þeim.
Stjórnvöld segja að ekki sé til
neitt fé til að borga skuldina,
fyrirtæki séu ófær um að greiða
á réttum tíma fyrir kolin sem
þau noti. Fjölmiðlar segja að
bændur á samyrkjubúum hafi
greitt námumönnum fyrir kol
með kartöflum og sykurverk-
smiðjur greiði laun með sykri.