Morgunblaðið - 02.10.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 21
Morgunblaðið/Ásdís
FRÁ tökum á Djöflaeyju Friðriks Þórs úti á Nesi í vor: „En ég vona bara að fólki finnist myndin
betri en bókin, ég væri ekki að þessu ef ég teldi mig ekki geta gert góða mynd úr þessum ef nivið."
Djöflaeyjan frumsýnd á morgun
Sigurður Bragason
1 Carnegie Hall
Norræn þjóð-
lög í bland við
meginlands-
rómantík
New York. Morgunblaðið.
NORRÆN sönglög settu mestan
svip á tónleika þeirra Sigurðar
Bragasonar barítonsöngvara og
Hjálms Sighvatssonar píanóleikara í
Weill sal Camegie tónleikahússins í
New York á sunnudagskvöldið.
Fyrri hluti dagskrárinnar hófst
með tveimur íslenskum þjóðlögum
og því næst söng Sigurður lög eftir
Pál ísólfsson og Sigvalda Kaldalóns,
Síbelíus, Grieg og fleiri norræn tón-
skáld.
Hápunkturinn vom þó þijú lög úr
Sögusymfóníu Jóns Leifs, söngur
Skarphéðins, Húskarlahvöt og Dauði
Þormóðar. í þeim náði Sigurður sér
verulega á strik.
Nokkur stutt sönglög eftir Atla
Heimi Sveinsson sem Sigurður söng
með leikrænum tilþrifum vöktu mikla
kátínu í salnum, en tónleikagestir
voru flestir íslenskir. Seinni hluti
tónleikanna var helgaður tveimur
rómantískum tónskáldum, Chopin og
Liszt og endaði Sigurður á lögum
þess síðamefnda við þijár sonnettur
Petrarca.
Þessir tónleikar Sigurðar em “deb-
ut“ hans í New York, en þeir hafa
verið í undirbúningi frá því í fyrra.
Hugmyndin kviknaði að sögn Sigurð-
ar á tónleikaferð í Washington sem
þeir Hjálmur fóm í síðastliðið haust.
Þeir félagar hafa undanfarin ár
haldið tónleika víða um Evrópu og
verið gestir á tónleikahátíðum vest-
anhafs og austan.
KVIKMYNDIN DJÖFLAEYJAN
eftir Friðrik Þór Friðriksson verð-
ur frumsýnd í Stjörnubíói á morg-
un, fimmtudag. Gengið hefur á
ýmsu við gerð myndarinnar og er
skemmstað minnast innbrots í
húsnæði Islensku kvikmyndasam-
steypunnar þar sem kynningarefni
um myndina og fleiru var stolið.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Friðrik Þór að þrátt fyrir ýmis
skakkaföll legðist frumsýningin
vel í sig. „Þetta er allt að koma.
Það gengur annars alltaf á ýmsu
við gerð kvikmyndar, maður má
eiga von á öllu.“
Aðspurður sagði Friðrik Þór
að ýmislegt væri öðruvísi í þess-
ari mynd en fyrri myndum sínum.
„Leikararnir eru framar í þessari
mynd en þeim fyrri og leikmynd-
in er líka meira áberandi. Þetta
er i fyrsta skipti sem við vinnum
með svona risaleikmynd, við
byggðum nánast kvikmyndaver
þarna út á Nesi. Það er allt öðru
vísi að vinna í slíku umhverfi en
úti í náttúrunni. Þetta er líka
dýrasta myndin, sennilega er hún
sú langdýrasta sem gerð hefur
verið á íslandi."
Kvikmyndin er byggð á skáld-
sögu Einars Kárasonar, Þar sem
djöflaeyjan rís (1983), sem naut
mikilla vinsælda og var færð upp
á leiksvið af Kjartani Ragnars-
syni. „Þessi saga hentar mjög vel
til kvikmyndunar", sagði Friðrik
Þór, „hún er bæði mjög dramatísk
í frásagnarhætti og svo eru per-
sónurnar afar litríkar og sterkar.
En ég vona bara að fólki finnist
myndin betri en bókin, ég væri
ekki að þessu ef ég teldi mig ekki
geta gert góða mynd úr þessum
efnivið. Annars er hún fræg sagan
af geitunum tveimur á öskuhaug-
unum, önnur er að borða bókina
en hin filmuna og segir: Mér
finnst bókin betri. Maður er að
berjast við þetta.“
Uppboð hjá Bruun
Rasmussen
Asgrímsmynd
seld fyrir
26.000 danskar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Á UPPBOÐI Bruun Rasmussen
fyrir helgi var mynd eftir Ásgi’ím
Jónsson slegin á 26 þúsund dansk-
ar krónur. Matsverðið var 20 þús-
und. Að sögn Peter Christmas
Moller hjá uppboðshúsinu var
myndin að öllum líkindum seld ís-
lenskum kaupanda.
Christmas Moller sagði íslensku
verkin hafa gert það gott á uppboð-
inu og öll sex hefðu selst. Alltaf
væri áhugi á íslenskum verkum
einstakra íslenskra málara í Dan-
mörku, eins og sést hefði á því að
megin verk Gunnlaugs Blöndals,
Kiki de Montparnasse, hefði verið
seld dönskum safnara. Eðlilega
væri þó mestur áhugi meðal ís-
lenskra kaupenda.
Af öðrum verkum á uppboðinu
má nefna að stórt málverk eftir
danska málarann Henry Heerup
seldist fyrir 280 þúsund danskar
krónur. Eigandinn keypti verkið
fyrir 200 krónur 1945 af lista-
manninum, sem helst vildi gefa
honum verkið. Dýrasta verkið var
11 metra há myndastytta úr járni
eftir danska myndhöggvarann Ro-
bert Jacobsen, en hún seldist á 2,9
milljónir danskar krónur. Einna
mesta athygli vakti blýantsteikning
eftir Picasso, sem metin var á
150-175 þúsund, en seldist á 400
þúsund. Með henni fylgdi vottorð
ættingja listamannsins að hún væri
ósvikin. Tvær aðrar teikningar eftir
listamanninn voru boðnar upp.
HYunoni
©
■UM
Greiðslukjör til allt að 36 rnánaða án útborgunar
RENAULT
GOÐÍR MOTAÐm BILAR
Hyundai Sonata V6 3000,
árg. ‘92, sjálfsk., 4 d., grár, ek.
19 þús. km. Verð 1.260 þús.
Renault 19 RN 1400, árg. ‘96,
5 g., 4 d., hvítur, ek. 20 þús.
km. Verð 1.090 þús.
Toyota Corolla 1600, árg. ‘93,
sjálfsk., 4 d., grár, ek. 78 þús.
km. Verð 990 þús.
Mazda 626 GLX2000, árg.
‘88, sjálfsk., 5 d., blár, ek. 120
þús. km. Verð 550 þús.
ek. 104 þús. km. Verð
þús.
Hyundai Elantra 1800, árg
‘94, 5 g., 4 d., grár, ek. 37
þús. km. Verð 1.050 þús.
Renault Clio RN 1200, árg.
‘92, 5 g. 5 d., grænn, ek. 49
þús. km. Verð 610 þús.
Toyota Corolla XL 1300, árg.
‘90, sjálfsk., 5 g., grár, ek. 90
þús. km. Verð 630 þús.
Renault Nevada 4x4 2000,
árg. ‘91,5 g., 5 d., hvítur, ek.
78 þús. km. Verð 970 þús.
Hyundai H-100 2400, árg. ‘94,
5 g., 4 d., blár, ek. 50 þús. km.
Verð 1.050 þús.
Toyota Touring XL 1600,
árg. ‘91, 5 g., 5 d., blár, ek.
117 þús. km. Verð 890 þús.
Toyota Hi Lux D/C SR-5 2400,
árg. ‘92, 5 g., 4 d., rauður, ek.
131 þús. km. Verð 1.530 þús.
V/SA
Notaðir bilar
Suiurlandsbraut 14 Armúla 13
Mikið úrval
nýlegra
uppttökubíla.
MMC Lancer GL 1300, arg.
‘93, 5 g., 4 d., hvítur, ek. 23
þús. km. Verð 890 þús.
Hyundai Accent 1300, árg.
‘96, 5 g., 5 d., rauður, ek. 20
þús. km. Verð 890 þús.
Hyundai Pony GLSi 1500, árg.
‘93, sjálfsk., 4 d., rauður, ek. 23
þús. km. Verð 760 þús.