Morgunblaðið - 02.10.1996, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 25
Bósa saga myndlýst
„EIGI veit ég þann mann,“ segir hún,
„að ég vil heldur eiga en þig af þeim
sem ég hef séð.“
MYNPLIST
Listhúsið Foid
MYNDVERK
Tryggvi Ólafsson. Opið virka daga
frá 10-18. Laugardaga 10-17, sunnu-
daga 14-17. Til 6 október. Aðgangur
ókeypis.
BÓSA sögu og Herrauðs úr
fornaldarsögum Norðurlanda
þekkja að vonum margir, þvl þau
berorðu lofnismál er hún inniheldur
hafa upptendrað hugi og hold
ungra um margar aldir. Vakið upp
gaman meðal pilta, meyjar farið
hjá sér við lestur hennar og kinnar
blóðgast.
Frásögninni er fylgt úr hlaði
með svohljóðandi forspjalli: „Þessi
saga hefst eigi af lokleysu þeirri
er kátir menn skrökva sér til
skemmtanar og gamans með
ófróðlegum setningum heldur
sannar hún sig sjálf með réttum
ættartölum og fornum orðskviðum
er menn hafa iðulega af þeim hlut-
um er í þessu ævintýri eru skrifað-
ir.“
Út er komin á vegum Máls og
menningar lítil bók í lystilegum
umbúðum er inniheldur þessa
margfæðu frásögn, og hefur
Tryggvi Ólafsson málari í Kaup-
mannahöfn myndlýst hana með
dregnum strikum og hannað fal-
lega kápu. alveg eðlilega í funheit-
um litum. í því tilefni bauð listhús-
ið Fold málaranum að sýna lýsing-
arnar í húsakynnum sínum auk
annars smálegs er hann hefði nýtt
í pokahorninu, og var sýningin
opnuð sl. laugardag.
Þar eru á veggjum 37 verk, sem
skiptast í pennateikningar, mál-
verk og þrykk, auk nokkurra blek-
teikninga í glugga sem eru lýsing-
ar við ljóðabók Rögnvaldar Finn-
bogasonar „Að heilsa og kveðja",
sem innan tíðar kemur út hjá For-
laginu.
Langt er síðan Tryggvi mótaði
með sér sérstæðan stíl í teikningu
og málverki, sem hann hefur þróað
á ýmsa vegu í myndverkum sínum,
og byggist á táknum sem hafa
yfir sér ófreskan blæ frekar en að
vera opin og auðlesin. Þessi tákn
fléttar hann saman og gefur meira
í skyn, en að hann kortleggi heild-
ina samviskusamlega. Hann gefur
þannig hverjum og einum tækifæri
til að lesa í táknin, ráða duldar
vísanir svo sem hugarflugið býður,
en miðlar þeim ekki klárt og skýrt
til viðkomandi. Það má þannig tala
um táknsæi í þessum vinnubrögð-
um, en það er giska annað og fjar-
lægara en hjá upphafsmönnum
stílbragðanna eða áhangenda
þeirra svo sem Einari Jónssyni
myndhöggvara.
Annars vegar eru það hin líf-
rænu strik sem ráða ferðinni og
hrifmáttur þeirra, hins vegar sam-
spil dökkra og ljósra flata, en
meginveigurinn er þó öðru fremur
heildarsýnin. í fyrra fallinu kemur
þetta vel fram í öllum línumyndum
hans, en seinna fallinu einkum í
túskmyndum eins og „Flug“ (4),
„Land“ (13) og „Totern"
(18).
Tryggvi þræðir kunnar
slóðir í litlum pentverkum,
svo og þrykkjum, og öll
er framkvæmdin líkust
millispili, eða forleik að
viðameiri átökum og pa-
taldri við stærri flat-
armál...
MYNDVEFNAÐUR
í kynningarhomi sýnir
Hólfríður Bjartmarsdóttir
frá Sandi i Aðaldal nokkur
ofin verk sem hún hefur
gert á undanförnum árum.
Hólmfríður er vel kunn
fyrir myndvefnað sinn og
er ein þeirra er endurnýj-
aði íslenzkan vefnað eftir
að ný viðhorf ruddu sér
rúms innan Myndlista- og
handíðaskóla íslands á sjö-
unda áratugnum. Margir
þeirra er mikið kvað að á
þessum árum og næsta
áratug eru að mestu horfn-
ir til annarra starfa og sinna vefn-
aði helst í hjáverkum, sem telst
mikill skaði fyrir íslenzka þjóð-
menningu og jafnframt þjóðarbúið
í heild. Þar með fer góð grunn- og
framhaldsmenntun fyrir lítið og
jafnframt fórnfúst starf fræðar-
anna er að stórum hluta til lögðu
fram krafta sína fyrir hugsjónina
eina.
Þótti rýninum rétt að minna á
þetta, því að hæfileikarnir að baki
þessum vefnaði eru meira en auð-
sæir, einkum fyrir hina mettu og
fáguðu litameðferð, hreinan og
ómengaðan vef. Hins vegar virðist
æfingaskortur há listakonunni
nokkuð í teikningu og útfærslu
myndformanna. En það kemur ekki
að sök í vefum eins og „Eineyg,
Tvíeyg og Brúneyg" (6) og „Dóttir
Yrsu“ (7). Báðir vefirnir vísa til
mjög upprunalegra og jarðtengdra
kennda, sem eru verðmætasta eign
hvers metnaðarfulls þjóðfélags.
Bragi Ásgeirsson
Afmælissýning á Louisiana
Picasso og
klassískur innblástur
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
PICASSO-sýning í afmælisgjöf
myndi víst gleðja flesta listunn-
endur og þá líka Knud W. Jensen,
stofnanda Louisiana. I tilefni átt-
ræðisafmælis hans hefur safnið
opnað heillandi sýningu á verkum
meistarans og nokkrum fornum
listmunum frá löndunum í kring-
um Miðjarðarhaf en af klassískri
list þess svæðis hreifst Picasso
alla tíð. Um er að ræða
200 verk og spanna þau
tímabilið 1906-1960, flest
eru frá fjórða og fimmtá
áratugnum. Þar sem lögð
er áhersla á þau verk Pic-
assos er sýna klassískan
innblástur er þarna nóg
af glaðlegum myndum því
að sögn Steingrim Laurs-
en, sem setti sýninguna
upp, leitaði Picasso gjarn-
an í klassísku áttina þegar
hann var ástfanginn og
þá mildur og blíður. „Þá var skap-
ið ekki eins óheft og oft annars",
bætti Laursen við, þegar hann
kynnti sýninguna blaðamönnum.
Verkin á sýningunni eru fengin
að láni víða að. Sífellt verður erf-
iðara að fá verk lánuð, því trygg-
ingar eru gífurlegar og eigendur
æ meðvitaðri um að verkin þola
ekki hnjask. Það sýnir því stöðu
Louisiana að tekist hefur að koma
sýningunni upp enda sagðist
Laursen vera kominn með sigg á
hnén af að skriða fyrir eigendum
verkanna. Þarna eru meðal ann-
ars verk úr Picasso-safninu í Par-
ís sem aldrei áður hafa verið lán-
uð út.
„Ef rekja ætti allar þær slóðir,
sem ég hef fylgt," sagði Picasso
eitt sinn, „mynda þær líklega útl-
ínur mínótárs." Mínótárinn, hálf-
ur maður og hálft naut, er eitt
af táknum klassískrar Miðjarðar-
hafslistar og mínótárnum bregð-
ur víða fyrir í myndum Picassos.
Meðal annars krýpur hann við
sofandi stúlku og auðvelt er að
ímynda sér hvað muni gerast á
næstu sekúndu. Nútímalegustu
stytturnar á sýningunni, stilfærð-
ar kvenverur úr Ieir, eru frá
þriðja árþúsundi fyrir Krist og
þar eru líka tveir fornir leirhaus-
ar frá Spánarskaga sem Picasso
eignaðist ungur og sem fylgdu
honum alla ævi.
Picasso er kannski þekktastur
fyrir snúin andlit og skrýtna
kroppa sem hann málaði óspart
seinni æviárin. Það er þó allt ann-
að sjónarhorn, sem fæst á meist-
arann með því að skóða Louis-
iana-sýninguna nú því þar eru
mörg frábær dæmi um teikni-
snilli hans. Víða má sjá að teikn-
ingar liggja að baki málverkun-
um. Að sögn Laursens koma
klassísk áhrif ekki aðeins fram i
að Picasso sótti innblástur í klass-
iska list, heldur mótaðist mynd-
mál hans af henni.
Picasso og Miðjarðarhafslistin
er ekki aðeins hrífandi sýning,
heldur er hún alveg í anda þeirr-
ar hugmyndar er liggur að baki
Louisiana. Eins og Laursen sagði
er hún enn eitt dæmi um að sá
andi dafnar enn í húsinu. Hug-
mynd Knuds W. Jensens var að
stofna safn um nútímalist og
áhrifavalda hennar. Ekki er hægt
að hugsa sér betra dæmi um út-
færslu þessarar hugmyndar en
Picasso-sýninguna. Eftir áratugi
er hugmynd stofnandans enn
fersk og gefur tilefni til áhuga-
verðra sýninga.
Hvalreki fyrir
garðeigendur
BÆKUR
Garðyrkja
STÓRA GARÐABÓKIN
- ALFRÆÐI
GARÐEIGANDANS
Ritstjóri Ágúst H. Bjarnason, aðstoð-
arritstjórar Óli Valur Hansson, Þor-
valdur Kristinsson. Útgefandi: For-
lagið. Prentvinnsla, prentun, bók-
band: Prentsmiðjan Oddi hf. 542
blaðsíður.
STÓRA garðabókin, sem kom út
fyrr í sumar, er einhver mesti hval-
reki sem rekið hefur á fjörur ís-
lenzkra áhuga-
manná um garð-
rækt. Hún leysir
af hólmi þær
tvær bækur, sem
um áratuga skeið
hafa verið eins
konar biblíur
þeirra sem áhuga
hafa á garðrækt
og ræktun mat-
jurta, Skrúð-
garðabók og
Matjurtabók Óla
Vals Hanssonar og fleiri. Þótt þær
tvær bækur séu í raun sígildar hafa
orðið svo miklar breytingar í ís-
lenzkri garðrækt undanfarin ár að
þörf var orðin fyrir nýja, sem gerir
þeim skil. Breytingarnar eiga m.a.
rætur að rekja til þess, að ræktend-
ur eru sífellt að bæta við nýjum teg-
undum jurta, enda hafa ytri skilyrði
til ræktunar batnað með stórauknum
gróðri til skjóls og aukinni þekkingu
og reynslu sívaxandi hóps manna,
sem leita gleði og hugsvölunar í
ræktun í þeirri firringu og fjölmiðlaf-
ári sem einkennir nútímann.
íslenzkar aðstæður
Útgáfa Stóru garðabókarinnar
verður að teljast til afreka í ís-
lenzkri bókagerð, jafnt vegna efnis-
taka, myndskreytingar, prentunar
og alls frágangs. Hún er í mjög stóru
broti og er prýdd um 3 þúsund lit-
myndum. Hún er byggð á alfræða-
bók Konunglega garðyrkjufélagsins
í Bretlandi um garðrækt (The RHS
Encyclopedia of Gardening), en efn-
ið er sniðið frá grunni að íslenzkum
aðstæðum og ýmsir kaflar eru samd-
ir sérstaklega fyrir ísland. Alis hafa
um 30 sérfræðingar lagt til efni I
íslenzku útgáfuna og tugir annarra
kunnáttumanna á ýmsum sviðum
komið að henni, m.a. með korta-
gerð, þýðingum, prófarkalestri, sér-
fræðiráðgjöf og láni á ljósmyndum,
en Helgi Bragason tók myndir sér-
staklega fyrir bókina.
í formála sínum fyrir bókinni lýs-
ir Ágúst H. Bjarnason hlutverki
hennar m.a. þannig: „Þeir sem til-
einka sér efni Stóru garðabókarinn-
ar sjá að hún er einkum ætluð al-
menningi sem hefur yndi af ræktun.
Til dæmis er gerð nákvæm grein
fyrir verklagi og vinnuaðferðum svo
að almennir garðræktendur eiga að
geta gengið að flestum verkum í
garði sínum án þess að leita teljandi
hjálpar hjá sérfræðingum. Ekki er
til þess ætlast að lesendur gleypi
fróðleikinn allan í einu, enda er bók-
in þannig úr garði gerð að auðvelt
er að tileinka sér hana smám sam-
an, allt eftir því hver hugðarefnin
eru. Bent skal á, að bókin er öðrum
þræði uppsláttarrit og því skipta til-
vísanir miklu máli ef hún á að koma
að fullum notum.“
Bókinni er skipt í tvo hluta, sá
fyrri er um uppbyggingu og ræktun
í görðum, en sá síðari um útbúnað
og aðstæður til ræktunar. Fyrri hlut-
inn skiptist í fimmtán kafla; skipulag
í görðum, tré, runnar, klifurplöntur,
rósir, fjölæringar, sumarblóm, stein-
hæðir, laukar og hnúðar, tjarnir og
lækir, grasflatir, kryddjurtir, mat-
jurtir, ræktun undir þekju og kaktus-
ar og aðrar safaplöntur. Kaflarnir
skiptast svo í undirkafla.
Síðari hlutinn er í átta köflum;
verkfæri og tæki, gróðurhús og
gróðurreitir, mannvirki í görðum,
jarðvegur og áburður, veðrátta og
ræktun, fjölgun, vandkvæði í ræktun
og ágrip af grasafræði. Þá er sér-
stakur kafli um árstíðabundin störf,
orðaskýringar og atriðaskrá.
Nýjar víddir
Bókin er mjög handhæg í notkun
fyrir lesandann og í upphafi hennar
eru leiðbeiningar, sem koma sér vel.
Uppsetning er mjög skipuleg og
Ijöldi skýringarmynda fylgir um
hvernig skuli vinna ýmis verk í garð-
inum, t.d. klippingu rósa, runna og
þannig má lengi telja. Skýringar-
myndirnar eru einn helzti kostur
bókarinnar, enda handhægar og ljós-
ar í flestum tilvikum.
Bókin er rituð á vönduðu og skýru
máii, en stundum er orðfæri full-
fræðilegt fyrir leikmanninn, en þá
má fletta upp í orðskýringakafl-
anum. Prófarkir eru greinilega lesn-
ar af kunnáttu og vandvirkni.
Vafalaust munu margir, sérstak-
lega byijendur í garðrækt, finna þar
lausn á ýmsum vandamálum, sem
bögglast hafa fyrir þeim og það
getur undirritaður fullyrt hvað sjálf-
an hann varðar. Einnig má nefna
greinargóðar leiðbeiningar um rækt-
un ýmissa nýrra tegunda, sém marg-
ir hafa áreiðanlega talið vonlaust
að rækta á Islandi. Bókin opnar því
nýjar víddir í ræktun og eflaust
munu margir notendur hennar reyna
fyrir sér með nýjungar í eigin garði.
Ritstjóri bókarinnar bendir á það
í formála, að ekki sé um handbók
um tegundir að ræða, þótt fjöl-
margra sé getið (alls um 2.500 teg-
undir og yrki) og við hvaða aðstæð-
ur þær dafni bezt. Þetta er alveg
rétt en leita má þá í atriðaskránni
að tegundarheitinu. Það kann að
kosta nokkra fyrirhöfn og jafnvel
talsverða, þar sem tilvísun ef ef til
vill í marga kafla bókarinnar.
Stóra garðabókin nýtist garðeig-
andanum allan ársins hring og óhætt
er að taka undir þá umsögn útgef-
anda, að hún sé fróðleiksnáma. Út-
gáfan verður að teljast til meirihátt-
ar tíðinda fyrir þá fjölmörgu, sem
áhuga hafa á ræktun, enda mikill
metnaður lagður í verkið af hálfu
allra þeirra sem að því stóðu.
Björn Jóhannsson
Gæðavara,
mikið úrval,
hagstætt verð,
örugg þjónusta.
= HÉÐINN =
VEBSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260