Morgunblaðið - 02.10.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIINININGAR
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 35
ótrúlegustu skúffum og kössum, því
allt í einu hafði hún tíma, var lífið
að færast í fyrra horf. Arna var
farin að vinna aftur í leikskólanum
og leikhúsið rétt að fara í gang,
búin að vinna þar eitt kvöld. Ein-
hvern veginn trúði maður að allt
væri á réttri leið.
Að eiga ekki eftir að setjast sam-
an og spjalla yfir kaffibolla eða
freyðivínsglasi eins og okkur fannst
svo notalegt er erfið tilhugsun, en
minningarnar verða vel geymdár.
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg, og svala sálu nú,
kom, sól, og þerra tárin,
kom, hjartans heilsulind,
kom, heilög fyrirmynd,
kom, ljós, og lýstu mér,
kom, líf er ævin þver,
kom, eilífð, bak við árin.
(Þýð. V. Briem.)
Elsku Arna, ég vil þakka þér ein-
staka vináttu, tryggð og allan þann
stuðning sem þú hefur veitt mér.
Eg trúi að fundum okkar beri sam-
an aftur. Þín vinkona,
Sigrún.
Á kertinu mínu ég kveiki í dag
við krossmarkið helgi og friðar,
því timinn mér virðist nú standa í stað,
en stöðugt þó fram honum miðar.
Ég finn það og veit að við erum ei ein,
að almættið vakir oss yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Við flöktandi logana falla nú tár,
það flýr enginn sorgina lengi.
Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár,
hún brýtur þá viðkvæmu strengi,
er blunda í hjarta og bijósti hvers manns.
Nú birtir, og friður er yfír,
því ljósið á kertinu lifir.
Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör
sem gist hefur þjáning og pínu.
Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl,
sem eygir í hugskoti sínu,
að sorgina við getum virkjað til góðs,
í vanmætti sem oss er yfir,
ef Ijósið á kertinu lifír.
(Kristján Stefánsson.)
Við sendum öllum ástvinum Örnu
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Gerður, Guðrún, Valgerður,
Margrét, Þórdís, Bryndís,
Elísabet.
Okkur vinnufélagana við leik-
skólann Krakkakot í Bessastaða-
hreppi langar til að minnast hennar
Örnu okkar í nokkrum orðum. Það
var ólýsanleg tilfinning að mæta til
vinnu á mánudagsmorguninn 23.
september síðastliðinn, vitandi það
að stórt skarð væri komið í hópinn
þar sem Arna var ekki lengur á
meðal okkar. Við erum innilega
þakklátar fyrir þær stundir sem við
höfum átt með henni hér í leikskól-
anum við störf og leiki. Arna var
sérstaklega dugleg sem leikskóla-
kennari og náði góðu sambandi
bæði við börnin og foreldrana. Hún
kom alltaf fram við alla sem jafn-
ingja, hvort sem það voru smábörn
eða aðrir. Hennar mikli styrkur kom
vel í ljós í veikindum hennar. Hún
vildi ekki að veikindin hefðu áhrif
á starfið á leikskólanum og hlífði
því öllum í kringum sig við því
hvernig henni oft á tíðum leið.
Okkur er sérstaklega minnisstæður
síðasti skipulagsdagur við leikskól-
ann sem jafnframt var hennar síð-
asti vinnudagur. Engin okkar átti
von á því að svo yrði. Hún tók þá
fullan þátt í undirbúningi fyrir vetr-
arstarfið og var full áhuga og at-
orku. Hennar verður sárt saknað
af börnunum, foreldrunum og
starfsfólkinu. Okkur finnst vel við
hæfi að láta litlu bænina sem farið
er með í upphafi og lok hverrar
kristilegu stundar á föstudögum í
Krakkakoti vera niðurlag þessara
kveðjuorða til góðs leikskólakenn-
ara og vinkonu.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús þér ég sendi,
bæn frá mínu bijósti sjáðu,
blíði Jesús að mér gáðu.
(Asmundur Eiríksson).
Elsku Andrés, Ása, Arnþór Ingi
og Auður Ásta, megi góður Guð
styrkja ykkur og blessa um alla
framtíð.
Vinnufélagar á Krakkakoti.
Leikárið hófst mjög ánægjulega
hjá okkur í vetur, Arna var mætt
aftur til starfa. Hennar var sárt
saknað þegar hún fór í veikinda-
leyfi síðastliðinn vetur en nú höfð-
um við fengið leiðtogann okkar aft-
ur.
Arna setti vissulega svip sinn á
starfið í leikhúsinu enda hafði hún
starfað þar í 20 ár í fata- og dyra-
gæslu. Eins og hún sagði stundum
sjálf þá var hún eiginlega orðin ein
af mublunum í framhúsinu. En
Arna var engin mubla. Hún var
mikill dugnaðarforkur sem aidrei
gat setið aðgerðarlaus. Hún var
alltaf komin fyrst í málin ef eitt-
hvað þurfti að gera hvort sem það
voru kjaramál samstarfsmanna
hennar, gjafakaup eða handavinna.
Arna skipti aldrei skapi og hafði
alltaf gaman af því að spjalla um
heima og geima og segja okkur
sögur af fjölskyidunni sinni sem hún
var svo stolt af. Það var með ein-
dæmum hvað hún var orkumikil og
lífsglöð. Ef eitthvað kom upp á þá
reddaði hún hlutunum án nokkurra
láta og hafði þannig góð áhrif á
alla sem í kringum hana voru.
En skjótt skipast veður í lofti.
Arna er farin og við sém eftir sitjum
skiljum ekki tilganginn. Við eigum
erfitt með að trúa því að hún mæti
ekki syngjandi í vinnuna á næstu
sýningu. Stórt skarð hefur verið
höggvið í hópinn en minningarnar
munum við alltaf eiga.
Elsku Andrés, Ása, Arnþór Ingi,
Auður Ásta, foreldrar og aðrir ást-
vinir, Guð veiti ykkur styrk á þess-
um erfiðu tímum.
Ef á rninum ævidegi
ástvinum ég sviptur er,
Guðs son mælir: „Grát þú eigi,
geymdir eru þeir hjá mér.
Aftur gefa þér skal þá,
þar sem hel ei granda má.“
(Þýð. H. Hálfd.)
Blessuð sé minning Örnu.
Fyrir hönd starfsfólks Þjóðleik-
hússins,
Samstarfsfólk í framhúsi.
• Fleiri minningargreinar um
Örnu Steinþórsdóttur bíða birt-
ingar ogmunu birtast í blaðinu
næstu daga.
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
ALFREÐ GUÐMUNDSSON
fyrrverandi
forstöðumaður
Kjarvalsstaða,
lést í Borgarspítalanum 24. september.
Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni í dag kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á góðgerðarfélög.
Guðrún Árnadóttir,
Guðmundur S. Alfreðsson.
Ástkær faðir minn,
HREIÐAR GUÐJÓNSSON
málarameistari,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Haðarstíg 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 4. október kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hans, láti
Heilsugæslusjóð Hrafnistu, Hafnarfirði,
njóta þess.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Róbert Árni Hreiðarsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
BERGRÓSAR JÓHANNESDÓTTUR.
Asgeir Asgeirsson,
Elsa K. Ásgeirsdóttir,
Jóhannes Asgeirsson,
Bergrós Ásgeirsdóttir,
Jakob F. Ásgeirsson
og barnabörnin
Guðrún íris Þórsdóttir,
Jón Ólafsson,
Kolbrún K. Karlsdóttir,
t
Innilegar þakkir færum við ykkur öllum
sem sýnduð okkur samúð og vinarhug
við fráfall eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS ÁSMUNDSSONAR
trésmiðameistara,
Langagerði 78.
Auður Magnúsdóttir,
Ásmundur Ólafsson,
Hiimar Ólafsson, Aðalheiður Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
RÚTUR ÓSKARSSON,
Svalbarði 12,
Hafnarfirði,
sem lést í Landspítalanum 24. septem-
ber sl., verður jarðsunginn frá kirkju
Fíladelfíusafnaðarins, Hátúni 2, fimmtu-
daginn 3. október kl. 13.30.
Sigriður Karlsdóttir,
Karl Rútsson, Anna Þorsteinsdóttir,
Óskar Loftur Rútsson, Helena Kolbrún Leifsdóttir,
Sumariiði Jóhann Rútsson, Kristjana Guðrún Guðbergsdóttir,
Ingi Borgþór Rútsson, Gréta Rögnvaldsdóttir,
Rútur Sigurður Rútsson
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTJÁN GUNNAR
HILDIBERG JÓNSSON,
málarameistari,
Hringbraut 115,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 3. október kl. 13.30.
Sigríður Þorbjörnsdóttir,
Jón Kristjánsson, Ólöf Jónsdóttir,
Pétur Kristjánsson, Laila Schjetne,
Arndis Kristjánsdóttir, Sveinn Hörður Blomsterberg,
Sesselja Kristjánsdóttir, Magnús Óskarsson,
Steinar Jakob Kristjánsson, Svandís Óskarsdóttir,
Anna Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi okkar,
SVAVAR ÁRMANNSSON
aðstoðarforstjóri,
Álfheimum 48,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 4. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á Krabbameinsfélagið.
Ingibjörg Egilsdóttir,
Ármann Jakobsson,
Hildur Svavarsdóttir, Halldór Svavarsson,
Ásta Svavarsdóttir,
Ingibjörg Svavarsdóttir,
Brynja og Ingibjörg Halldórsdætur.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur og fjölskyldum okkar
samúð og hlýhug í veikindum og síðan
við andlát og útför ástkærs drengsins
okkar,
SÆMUNDAR BJARNASONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Flug-
leiða, Dagvistar barna, fjölskyldu okkar,
nágranna og vina, séra Jóns A. Bald-
vinssonar í London, lækna og hjúkrun-
arfólks barnadeildar 12E, Landspítala, Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna og starfsfólks veitingastaða okkar.
Megi góður guð blessa ykkur öli.
Hrafnhildur Ingimarsdóttir, Bjarni Óskarsson,
Sigurgisli Bjarnason, Óskar Björn Bjarnason,
Birta Fróðadóttir,
Ingimar Ingimarsson, Sigríður Sigurgísladóttir,
Auður Sæmundsdóttir, Francisko Domingos,
Óskar Á. Sigurðsson, Karin Mc. Quillan,
Fróði Jóhannsson, Steinunn Guðmundsdóttir,
+
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda
samúð um ástkæran föður okkar
tengdaföður, afa og langafa,
GÍSLA HALLGRÍMSSONAR,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
áðurtil heimilis
að Grænumörk 3,
Selfossi,
Guð blessi ykkur öll.
Svanhildur Gfsladóttir, Róbert Sigurmundsson,
Rögnvaldur Gíslason, Sigriður Andersen,
Hansína Gisladóttir, Ólafur Egilsson,
Sigrfður Gi'sladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.