Morgunblaðið - 02.10.1996, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 39
FRÉTTIR
ÓLAFUR Ásgeirsson, skátahöfðingi ásamt fyrrverandi skáta-
höfðingjum, Páli Gislasyni á hægri hönd og Jónasi B. Jónssyni,
og Kristinu Bjarnadóttur aðstoðarskátahöfðingja og heiðurs-
verði skáta fyrir framan leiði Helga Tómassonar.
Skátar minnast
Helga Tómassonar
SKÁTAR minntust 25. september
sl. aldarafmælis fyrrverandi
skátahöfðingja síns Helga Tóm-
assonar, yfirjæknis. Skátahöfð-
ingi, Ólafur Ásgeirsson, lagði
blómsveig á leiði hans í Fossvogs-
kirkjugarði og minntist hans í
nokkrum orðum. Nokkrir fyrr-
verandi skátahöfðingjar og fleiri
skátar voru viðstaddir athöfnina
ásamt börnum Helga Tómassonar
og afkomendum.
FJÖLSKYLDA Helga Tómassonar og nokkrir skátanna við at-
höfnina. Á myndinni má þekkja t.d. dr. Þórarin Björnsson lengst
til vinstri, Ragnheiði Brynjólfsdóttur, ekkju Helga, Ragnhildi
Helgadóttur í miðið, Tómas Helgason til hægri við hana og
Franch Michelsen.
Dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Annir vegna
ölvunar og óláta
27.-30. sept
FJÖLDI skráðra atvika í dagbók
helgarinnar er 420. Talsvert annríki
var hjá lögreglumönnum. Af þessum
atvikum voru m.a. 11 líkamsmeiðing-
ar, 20 innbrot, 24 þjófnaðir, og 19
eignaspjöll. Afskipti þurfti að hafa
af 41 einstaklingi vegna ölvunarhátt-
semi á almannafæri og 36 sinnum
þurftu lögreglumenn að fara á vett-
vang vegna kvartana um ónæði og
hávaða að næturlagi, aðallega innan-
dyra í sambýlishúsum. Auk þess
þurftu þeir fimm sinnum að fara í
heimahús vegna heimilisófriðar.
Sex ökumenn, sem stöðvaðir
voru, eru grunaðir um ölvunarakst-
ur. Auk þeirra var 31 ökumaður
kærður fyrir of hraðan akstur.
Skráð umferðaróhöpp eru 30 tals-
ins, en af þeim eru meiðsli á fólki í
5 tilvikum.
Innbrot og þjófnaðir
í innbrotunum var m.a. farið í
bifreiðir. Þá var farið inn í fyrir-
tæki við Eyjaslóð, skrifstofu við
Suðurlandsbraut og nokkrar íbúðir.
Á einum staðnum var komið að
manni á þrítugsaldri. Styggð kom
að manninum og hljóp hann á brott,
án þess að taka neitt með sér.
Síðdegis á föstudag stöðvuðu
lögreg'umenn bifreið í Breiðholti. í
bifreiðinni voru hlutir, sem ætla
mátti að væru þýfi. í framhaldi af
því voru fimm handteknir og færð-
ir á lögreglustöð.
Nokkrir voru staðnir að hnupli á
föstudag og laugardag. M.a. voru
tvær konur um fertugt staðnar að
því að stela úr verslun í Mosfellsbæ.
Stúlka reyndi að hnupla bók og
penna í verslun í Kringlunni, piltar
reyndu að hnupla vörum í verslun
við Laugaveg og tvær stúlkur
reyndu að hnupla þar snyrtivörum.
Auk þessa þurfti að færa fernt á
stöðina eftir að þau höfðu reynt að
hnupla sælgæti í verslun við Lauga-
veg. Á laugardag voru 6 aðilar
staðnir að hnupli í verslun við
Laugaveg. Þá voru tveir eriendir
sjómenn staðnir að hnupli í sömu
verslun. Þeim var ekið að skipinu
og rætt við skipstjórann.
Sprautufíkill á Austurvelli
Síðdegis á föstudag sást til
tveggja ungra manna á Austur-
velli. Annar var að aðstoða við að
sprauta fíkniefnum í hinn. Þeir voru
handteknir. Um kvöldið fann veg-
farandi kannabisplöntu í blómabeði
við Lækjartorg. Hann lét lögreglu
vita. Plantan, sem var um 25 sm
há, var fjarlægð.
Sendiráðsbifreið var ekið á ljósa-
staur um miðjan dag á laugardag.
Ökumaðurinn er grunaður um ölv-
unarakstur. Hann var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild.
Þegar einn ölvaður eighimaður
af mörgum kom heim til sín á
laugardagskvöldið vildi eiginkonan
ekki hleypa honum inn. Við það
reiddist maðurinn, sló með hnefan-
um í gegnum rúðu og skarst á hendi
svo flytja varð hann á slysadeild. í
framhaldi af því fékk hann vistun
í fangageymslunum.
Líkamsmeiðingar
Ölóður maður réðst á dyravörð á
skemmtistað í miðborginni aðfara-
nótt laugardags. Maðurinn var
handtekinn og vistaður í fanga-
geymslum. Maður kom inn á mið-
borgarstöð lögreglunnar um nóttina
og sagði að á hann hefði verið ráð-
ist. Hann var með áverka á fæti.
Maðurinn var fluttur á slysadeild,
en par, sem átt hafði þátt í aðför-
inni að honum, var handtekið
skömmu síðar.
Slagsmál brutust út á skemmti-
stað við Lækjargötu aðfaranótt
laugardags. Flytja þurfti tvo menn
á slysadeild og vista þijá í fanga-
geymslum. Skömmu síðar gaf sig
fram enn einn maður með áverka
eftir slagsmál þar. Hann var einnig
fluttur á slysadeild.
Aðfaranótt sunnudags var ölvuð
kona flutt í fangageymslu eftir
slagsmál á vínveitingastað við
Lækjargötu. Kona var flutt á slysa-
deild eftir að hafa fengið hátal-
arabox í höfuðið á skemmtistað við
Álfheima.
Aðfaranótt mánudags var verð-
mætum rænt af manni í Borgar-
túni. Við það fékk hann skurð á
enni.
Síðdegis á laugardag var tilkynnt
að bam hefði andað að sér gasi frá
einnota kveikjara í húsi í Breið-
holti. Sjúkrabifreið var kvödd á
vettvang og hlúð var að barninu.
Um 3.000 manns voru í miðborg-
inni aðfaranótt laugardags þegar
flest var. Unglingar undir 16 ára
aldri sáust þar ekki á meðal og svo
var einnig aðfaranótt sunnudags.
Þá var helmingi færra fólk á svæð-
inu.
Rimahverfi
Óraunhæf umfjöllun fjölmiðla af
„ástandi" mála í Rimahverfi er íbú-
unum verulegt áhyggjuefni. Endur-
teknar og ýktar frásagnir hafa
beint kastljósinu ómaklega að
hverfinu. Dæmi er um að „frétt“
hafi verið komið á framfæri við
ijölmiðil sem söluvöru. Vegna um-
fjöllunarinnar hafa líkur á ófriði á
meðal hóps unglinga aukist og hún
hefur valdið óróa meðal íbúa í hverf-
inu. Á sama tíma hafa átt sér stað
sambærilegir eða jafnvel alvarlegri
atburðir annars staðar, sem ekki
hafa kallað á athygli fjölmiðla.
Maureen
Reagan
flytur
erindi
MAUREEN E. Reagan mun flytja
fyrirlestur í Ráðhúsi Reykjavíkur
föstudaginn 4. október kl. 15.30
sem ber yfirskriftina „Women’s
Quiet Cpnflict: A report from the
Front“. í erindi sínu mun hún fjalla
um ýmsar leiðir til þess að styðja
konur til þátttöku í stjórnmálum
og opinberu lífi og að því búnu
taka þátt í umræðum og fyrir-
spurnum úr sal. Fundarstjóri verð-
ur Þórunn Sveinbjarnardóttir,
stjórnmálafræðingur. Fundurinn
er opinn öllum sem áhuga hafa á
málefninu.
Tíu ára afmælis leiðtogafundar
Reagans og Gorbatsjovs verður
minnst í Reykjavík með tveggja
daga málþingi dagana 2. og 3.
október. Yfirskrift fyrri dags mál-
þingsins er „Leiðtogafundurinn í
Reykjavík 1986 - 10 árum síðar“.
Seinni daginn verður fjallað um
samskipti Bandaríkjanna og Rúss-
lands og áhrif þeirra á þróun
heimsmálanna. Tilgangur mál-
þingsins er að minnast leiðtoga-
fundarins sem fram fór í Höfða
11. og 12. október 1986, stærsta
alþjóðlega viðburðarins sem teng-
ist nafni Reykjavíkur og íslands.
Meðal gesta sem heimsækja
ísland af þessu tilefni er Maureen
E. Reagan, dóttir Ronalds Reagan,
fyrrum forseta Bandaríkjanna,
sem verður sérlegur fulltrúi föður
síns á málþinginu.
Maureen E. Reagan er vel þekkt
sem stjórnmálaskýrandi og fjöl-
miðlakona í Bandaríkjunum og er
eftirsóttur fyrirlesari. Maureen E.
Reagan hefur tekið virkan þátt í
stjórnmálum á síðustu þremur ára-
tugum og gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Repúblikanaflokk-
inn. Hún er ötul baráttukona fyrir
bættri stöðu kvenna í stjórnmálum
og hefur með ýmsum leiðum stutt
konur til þátttöku á þeim vett-
vangi.
Heyrnar-
skertir þinga
ÞEMADAGAR NHS, Nordiske
hörselskadades samarbetskomm-
itte, verða haldnir í Reykjavík, á
Hótel Lind 3.-5. október 1996.
NHS eru samtök heyrnarskertra á
Norðurlöndum og hefur Félagið
Heyrnarhjálp verið aðili að samtök-
unum um margra ára skeið. Félag-
ið annast framkvæmd þemadag-
anna. Yfirskrift þemadaganna er:
Aðgengi heyrnarskertra að fram-
halds- og háskólanámi.
Formaður NHS, Svein Ludvig-
sen frá Tromsö í Noregi, setur
ráðstefnuna, Svein er jafnframt
þingmaður. Frummælendur verða:
Nicolina Dahl frá Færeyjum, hún
mun segja frá kynnum sínum af
háskólanámi sem ungur heyrnar-
skertur nemandi, Ágústa Unnur
Gunnarsdóttir kennslustjóri, sem
mun fjalla um menntunarmögu-
leika heyrnarskertra á Islandi; hún
mun m.a. segja frá þeirri þjónustu
sem Menntaskólinn við Hamrahlíð
býður heyrnarskertum nemendum
upp á, Lára Stefánsdóttir fram-
haldsskólakennari mun í erindi
sínu fjalla um alnetið og notkunar-
möguleika þess fyrir heyrnar-
skerta. Fulltrúar frá aðildarfélög-
um NHS munu greina frá því
hvernig búið er að heyrnarskertum
ungmennum í framhalds- og há-
skólanámi á Norðurlöndum í dag
og rætt verður um hvert stefnir í
þessum málum.
Fyrirlestrar og umræður verða
rittúlkuð og tónmöskvi fyrir heyrn-
artækjanotendur verður á staðn-
um.
Virkjun skap-
andi hugsunar
NÆSTA námstefna Stjórnunarfé-
lags íslands verður haldin þriðju-
daginn 15. október frá kl. 9-17 á
Scandic Hótel
Loftleiðum.
Námstefnan ber
heitið Virkjun
skapandi hugs-
unar í fyrirtækj-
aumhverfi og er
leiðbeinandi Igor
Bytterbier frá
Hollandi.
Bytterbier
hefur verið feng-
inn af fjólþjóðafyrirtækjum og
fræðslustofnunum til að fjalla um
ólíkar aðferðir til virkjunar hug-
vits. Igor Bytterbier er með meist-
aragráðu í viðskiptum frá Antwer-
pen-háskóla. Hann starfar nú sem
framkvæmdastjóri fyrir COCD,
stofnun fyrir „þróun skapandi
hugsunar í samfélaginu", en stofn-
unin er leiðandi aðili á þessu sviði
í Beneluxlöndunum og hefur starf-
að í mörgum Evrópulöndum, auk
Asíu.
Stjórnunarfélag íslands hefur
undanfarin ár staðið fyrir nám-
stefnum með erlendum fyririesur-
um frá Asíu, Evrópu og Bandaríkj-
unum. í vetur stendur félagið fyr-
ir átta slíkum námstefnum.
Fyrirlestur á
vegum Nýrrar
dögunar fell-
ur niður
Fyrirhugaður fyrirlestur Páls Ei-
ríkssonar, á vegum Nýrrar dögun-
ar sem vera átti annaðkvöld;
fimmtudagskvöld, í Gerðubergi,
fellur niður af óviðráðanlegum
ástæðum. Fyrirlesturinn sem fjall-
ar um endurtekna sorg verður að
öllum líkindum á dagskrá seinna
í vetur.
Fyrirlestur um
íslenskan mat
FÉLAG nýrra íslendinga heldur
félagsfund fímmtudagskvöldið 3.
október kl. 20.30 á 2. hæð, í Mið-
stöð nýbúa, í Faxafeni 12.
Fundir félagsins fara fram á
ensku og eru öllum opnir. Að
þessu sinni heldur Siggi Hall,
matreiðslumeistari, erindi og
svarar síðan spurningum um ís-
lenskan mat og matarvenjur ís-
lendinga.
Fyrirlestur
um guðfræði
og menningu
S-Ameríku
DR. VITOR Wetshelle prófessor í
trúfræði við The Lutherian School
of Theology at Chicago, Banda-
ríkjunum, heldur opinberan fyrir-
lestur í kapellu Háskóla íslands,
Aðalbyggingu, fimmtudaginn 3.
október nk. kl.10.15.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og nefnist „Latin American
theology and culture" eða Guð-
fræði og menning S-Ameríku.
Dr. Westhelle er fæddur og
uppalinn í Brasilíu og starfaði sem
prestur þar áður en hann hóf
kennslu í Bandaríkjunum. Fyrir-
lesturinn er öllum opinn.
LEIÐRÉTT
Eigínmaður rangnefndur
í FRÉTT um andlát Aðalbjargar
Tryggvadóttur í blaðinu í gær, var
eiginmaður hennar sagður hafa
heitið Ólafur Bjarni en hann hið
rétta er að hann hét Óskar Bjarni
Bjarnason. Hlutaðeigendur eru
beðnir afsökunar á þessum leiðu
mistökum.
Iroi-
Bytterbier