Morgunblaðið - 09.10.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.10.1996, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR JE MINN, nú er prestinn okkar líka farið að langa til Lúx. Morgunblaðið/Ásdís Rófumar orðnar stórar VEL hefur sprottið í matjurta- görðum sunnanlands í sumar. Guðmundur Sæmundsson rófna- bóndi á Eyrarbakka er að taka upp, mánuði fyrr en venjulega vegna þess hvað gulrófurnar hafa vaxið hratt. Sæmundur sonur Guðmundar segir að rófurnar séu að verða of stórar, fólk vilji ekki rófur sem eru yfir einu kilói. Vegna rigninganna í haust er garður Guðmundar á engjunum HÖRÐUR Bjamason, sendiherra ís- lands í Stokkhólmi, sat fund varnar- málaráðherra Norðurlandanna, sem lauk í Kalmar í Svíþjóð í gær. Þetta var í fyrsta sinn, sem ísland á áheyrnarfulltrúa á fundi sem þess- um. Að sögn Harðar hefur verið ákveðið að íslandi verði áfram boðið að senda áheyrnarfulltrúa á næstu fundi ráðherranna, sem eru haldnir tvisvar á ári. Hins vegar hafi ekki verið ákveðið hvort Ísland fái fulla aðild að fundunum eða hvort til greina komi að halda slíkan fund á Islandi, en norrænu ríkin skiptast á um að halda fundina. ofan við Eyrarbakka orðinn eitt forarsvað og varla hægt að kom- ast um hann á vélum. Sæmundur átti von á því að vera mánuð að taka upp þau 100 tonn sem hann áætlar að séu í garðinum. Þegar blaðamenn Iitu þar við voru þrír sjómenn í vinnu við að taka upp rófur, Þórarinn Jóhannsson og Ómar Helgason voru að hella róf- um í poka og Kjartan Helgason einn á bak við þá við sama verk. Fjallað um öryggismál í Evrópu Hörður segir að á fundi varnar- málaráðherranna hafi verið rætt m.a. um Eystrasaltssamstarfið, en hin norrænu ríkin hafa tekið að sér að þjálfa friðargæzlusveitir fyrir Eystrasaltsríkin. Þá hafí verið fjallað um samstarf í umhverfismálum og upprætingu jarðsprengna í stríðs- hrjáðum löndum. Loks hafi ráðherr- arnir rætt um ástand mála almennt í hinu evrópska öryggiskerfi. Hörður segir það ekki sízt vera síðastnefnda umræðuefnið, sem Island hafi hag af að fylgjast náið með. Sjálfstæðisflokkurinn Lands- fundur- inn hefst á morgun LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- flokksins verður settur í 32. sinn á morgun kl. 17.30 í Laugardals- höll í Reykjavík en þá flytur for- maður Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson forsætisráðherra, ræðu. Kjörorð fundarins er Einstakl- ingsfrelsi - Jafnrétti í reynd en jafnréttismál og samkeppnisstaða íslands verða helstu dagskrárefni landsfundarins að þessu sinni. Klukkan 21 á fimmtudagskvöld verða fimm opnir fundir um jafn- réttismál á Hótel Sögu og Grand Hótel og er þetta nýlunda í dag- skrá lan'dsfundar Sjálfstæðis- flokksins. Ráðherrar sitja fyrir svörum Á föstudag kl. 9 sitja ráðherrar flokksins fyrir svörum í Laugar- dalshöll. Eftir hádegi verður mælt fyrir stjórnmálaályktun og síðan verða framsögur og umræður um jafnréttismál kl. 15.30. Á laugar- dag kl. 13.30 flytur Friðrik Soph- usson fjármálaráðherra ræðu um samkeppnisstöðu íslands. Að því loknu verða ályktanir afgreiddar en drög að ályktunum 24 málefna- nefnda flokksins liggja fyrir sem starfshópar munu fjalla um meðan á fundi stendur. Kosningar á sunnudag Dagskrá sunnudags hefst með umræðum og afgreiðslu ályktana, kosið verður í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins fyrir hádegi og um kl. 16 á sunnudag er áætlað að kosn- ing formanns og varaformanns flokksins fari fram. Fundarslit eru áætluð um kl. 17. Varnarmálaráðherrar Norðurlanda Islandi boðið á næstu fundi Doktor í Grímsvatnaeldstöðinni Bjó sig undir þetta gos Dr. Magnús Tumi Guðmundsson SÍÐAN umbrot með gosi hófust í Gríms- vötnum hefur ungur jarðeðlisfræðingur, Magnús Tumi Guðmundsson, verið tíður gestur í hvers manns stofu, á sjónvarpsskermin- um, útvarpi og í blöðum. Vaknar þá gjarnan sú spurning hver hann sé þessi goskarl, sem skyndilega skaut upp á stjörnuhimin fjölmiðlanna. Það er ofur eðlilegt því það hefur komið í hans hlut að fljúga dag hvern yfir eldstöðvarnar í flugvél Flugmálastjórnar og leggja þar mat á framvindu eldsumbrotanna. Helgi Björnsson jöklafræðingur sagði blaðamanni Mbl. að menn hefðu komið sér sam- an um að best væri að sami maður færi í flugferðirnar til að bera saman frá degi til dags. En Magnús Tumi hefur einmitt gert Grímsvötnin og bygg- ingu þeirra að sínu sérsviði. „Ég á Helga mikið að þakka“, sagði Magnús þegar þetta var nefnt við hann. „Það var hann sem kynnti mér jöklarannsóknir og sérstaklega Grímsvötnin, svo ég heillaðist af þessu viðfangsefni". Mínar rannsóknir í Grímsvötnum hafa verið í góðri samvinnu við hann. Bygging Grímsvatnanna er hluti af doktorsverkefni mínu. Meðan ég var í námi hafði ég feng- ið vinnu við rannsóknir þar. Á undanförnum 10 árum hefur Raunvísindastofnun Háskólans kortlagt botninn undir ísnum á Grímsvatnasvæðinu með íssjá. Þegar ég kom heim 1989 og eftir að ég lauk námi 1992 fórum við aftur ofan í gosin sem hafa verið á þessu svæði. Fórum nákvæmar ofan í gögnin frá eldsumbrotunum frá 1934 og 1938, svo við þekkjum nú Grímsvötnin og nágrenni þeirra miklu betur en áður var. Sú vinna hefur skilað sér. Þess vegna erum við miklu betur undir það búnir sem nú er að gerast. Við vitum að það gýs á nákvæmlega sama stað og 1938 og getum því betur en annars hefði orðið gert okkur grein fyrir því sem er að gerast. Getum lagt skikkanlegt mat á vatnsöflunina í Grímsvötnum, að- stæður á eldstöðvunum og þróun gossins." - Það er engv líkara en að þú hafir sniðið ailt þitt nám og rann- sóknavinnu að því að búa þig undir þennan atburð. Er þetta ekki þín óskastund?" „Það má segja það. Að ég hafi óvart verið að því og því er maður fljótari að átta sig. Það var strax ákveðið að ég mundi fljúga yfir, það væri það sem ég gæti best gert. Við Frey- steinn Sigmundsson jarðeðlis- fræðingur á Norrænu eldfjalla- stöðinni höfum tekið það að okkur saman að fljúga og að leggja mat á aðstæður á staðnum. Jarð- skjálftafræðingarnir fylgjast með gosóróanum og í ljósi þessa alls er reynt að ráðleggja Vegagerð og öðrum. Á kvöldin hefi ég svo reynt að leggja mat á mælingar dagsins, reikna út og fara betur yfir þetta, því lítill friður er fyrr en þá.“ - Það er auðvitað enginn friður fyrir okkur fréttafólki um leið og þið eruð komnir úr fiugferð? „Maður lendir stundum í við- tölum, sem er töluvert aukaálag, ► Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur er 35 ára gamall Reykvíkingur, fæddur 1961. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1981. Hann stundaði nám í jarðeðlis- fræði við Háskóla Islands 1982-86 og lauk þar BS prófi. Þá hélt hann til doktorsnáms í jarðeðlisfræði við University College í London og lauk því 1992. Doktorsverkefnið var Bygging Grímsvatnaeldstöðv- arinnar, en við rannsóknir þar hafði hann unnið meðfram námi í samvinnu við Helga Björnsson jöklafræðing, sem bauð honum vinnu við Raunvísindastofnun er hann kom heim. Frá 1995 hefur Magnús verið dósent í afleysingum við HI, leyst af Sigfús Johnsen. Kona Magnúsar Tuma er Anna Líndal myndlistarmaður og eiga þau tvö börn. en reynir samt að missa ekki sjón- ar af því að eldgosið er það sem máli skiptir. Og auðvitað er nauð- synlegt að almenningur fái sem áreiðanlegastar uppiýsingar. Und- anfarna 2 til 3 daga hafa erlendir fréttamenn bæst við. Áhuginn er mikill enda fylgir alltaf hætta at- burðum eins og eldgosi.“ - Heidurðu að þetta verði iang- vinnt gos? Komi kannnski sker eða hæð upp úr jöklinum? „Það er ómögulegt að segja til um eldvirknina á þessari stundu. Þetta virðist vera endurtekning á gosinu 1938, sem olli miklu hlaupi á Skeiðarársandi. Gos- ið var þá að mestu um garð gengið þegar hlaupinu lauk. Gosefn- in nú hlaðast ofan á hrygginn sem þá myndaðist. Hlaðist hef- ur upp 200-250 metra hátt fjall ofan á hitt, svo móbergsfjallið undir jöklinum hefur hækkað. En gosið þyrfti að vera æði langvinnt til þess að það stæði upp úr. Ekkert gos á sögu- legum tíma hefur myndað þarna móbergsstapa. - Er þetta ekki bara eins og jólin hjá þér, að fá gos þar sem þú hefur verið að búa þig undir? „Fyrir mig, sem hefi mjög mik- inn áhuga á eldgosi undir jökli, er það vissulega spennandi. En það eru blendnar tilfinningar vegna þeirrar eyðileggingar og hættu sem geta fylgt. Þá held ég að að staðan sé nokkuð tauga- strekkjandi fyrir þá sem bíða hlaupsins niðri á sandinum." Blendnar til- finningar vegna hætt- unnar sem getur fylgt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.