Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 14

Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Hannaði grindverk fyrir gæruflutninga Vaðbrekka, Jökuldal - Kári Ólason á Arbakka í Hróarstungu hefur haft með höndum gæruflutninga frá slát- urhúsinu á Fossvöllum til skinna- verksmiðjanna á Akureyri undanfar- in fjögur haust. Auk þess er ekið í veg fyrir Kára gærum frá Vopna- firði og Breiðalsvík sem hann fer með til Akureyrar. Gærunum er hlaðið á bretti til að auðvelda lestun og losun bílsins. Var erfítt að fá gærumar til að vera kyrrar á brettunum auk þess sem fáar gærur komust á hvert bretti. Kári sá að við svo búið mátti ekki standa og hannaði grindverk á brett- in svo hægt væri að koma fleiri gærum á hvert bretti og staflamir yltu ekki um. Venjulegt bretti tók aðeins 200-250 gærur og auk þess hrundu staflamir iðulega af þeim, sem skap- aði vandræði við lestun og losun bíls- ins. Eftir að Kári smíðaði grindur á brettin tekur hvert bretti allt að 500 gæmm og staflarnir hrynja ekki. Pantanir berast í nýju brettin Nýju brettin sem Kári hannaði og smíðaði passa auk þess inn í boddíið á bílnum hjá honum. Kári hefur nú þegar smíðað samskonar bretti fyrir sláturhúsin, auk Fossvalla-hússins, á Breiðdalsvík, Vopnafirði, Selfossi, Kópaskeri og Laxá í Borgarfírði. Búið er að panta bretti hjá Kára fyrir sláturhúsin á Húsavík og í Borg- arnesi, en þessi sláturhús flytja öll gæmrnar ferskar til skinnaverk- smiðjanna á Akureyri. Kári sagði að þegar hann spyrði þá er hann hefur smíðað grindar- bretti fyrir hvernig þeim líkaði við þau, hefði svarið verið „að undarlegt væri að þetta hefði ekki verið fundið upp fyrir löngu“. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson KÁRI Ólason við þijú gærubretti. Lengst til hægri er gamalt úrelt grindarlaust bretti er aðeins tók 200-250 gærur. Kári stend- ur á bretti af nýju gerðinni og styður sig við fulllestað bretti. Fjarðarheiðar- vegur á áætlun Seyðisfirði - Framkvæmdir við nýja veginn um Fjarðarheiði ganga að óskum. Byggður er nýr vegur um Mjósund auk þess sem gamli vegur- inn verður styrktur og endurbættur til muna. Búið er að opna fyrir um- ferð um hann þó ekki megi hann teljast greiðfær enn sem komið er. Vegfarendur fara ekki lengur um hina illræmdu „Sprengibrekku" sem reyndist oft hinn versti farartálmi á vetmm vegna snjósöfnunar og hálku. Nýi vegurinn um Mjósund liggur ekki eins hátt yfír sjávarmáli. Hann verður beinni og mishæðaminni en gamli vegurinn auk þess sem gert er ráð fyrir að snjómokstur þar verði mun auðveldari og að betur gangi að halda veginum opnum að vetri. Vinnan við nýja vegarkaflann hófst í júlí í sumar og verður burðar- lagið klárað á þessu ári en bundið slitlag síðan lagt næsta sumar. Verk- ið gengur samkvæmt áætlun. Það er fyrirtækið Héraðsverk sem sér um framkvæmdir fyrir Vegagerðina. Til- boð þeirra í verkið hljóðaði upp á 83 milljónir króna. Nýir veg-arkaflar í Vopnafirði SKIPULAG ríkisins hefur hafið at- hugun á frummati Vegagerðar rík- isins á umhverfísáhrifum fyrirhug- aðrar lagningar Hlíðarvegar um Gljúfursá og Öxl í austanverðum Vopnafirði. A kortinu sést hvar ætlunin er að leggja nýja veginn miðað við þann gamla. Með framkvæmdunum er verið að leysa af hólmi gamla og burðarlitla vegi. I stað gamallar brú- ar yfír Gljúfursá verður sett stál- ræsi. Um Öxl færist umferðin úr hlaðinu og er með því stuðlað að öryggi ábúenda og dregið úr ryki og hávaðamengun. Stytting leiðar og betri lega vegar á að greiða fyrir umferð og stuðla að auknu umferða- röryggi. Vegagerðin gerir ráð fyrir að kostnaður við 2,1 km langan veg um Gljúfursá verði um 48 milljónir króna og vegna 1,1 km langs vegar við bæinn Öxl um 8 milljónir. S "V GESTIR í hófi systranna á St. Fransiskusspítalanum í tilefni af 60 ára starfsafmæli þeirra í Stykkishólmi. 60 ára starfsafmæli St. Fransiskusspítala fagnað Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason RÚNAR Gíslason, forseti bæjarstjórnar, færði Renée príórinnu peningagjöf í tilefni tímamótanna. Stykkishólmi - Þess var minnst með veglegu hófi laugardaginn 5. október sl. að 60 ár eru liðin síðan að St. Fransiskusspítalinn hóf starf- semi í Stykkishólmi. Fjölmenni var samankomið á þessu tímamótum mættu m.a. heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, og land- læknir, Olafur Ólafsson. í ræðu Róberts Jörgensens, framkvæmdastjóra St. Fransiskus- spítalans, við þetta tækifæri kom fram að bygging sjúkrahússins hófst árið 1935 og lauk tveimur árum seinna. Síðan þurfti að bíða í meira en ár eftir starfsleyfi og kom það ekki fyrr en í september 1936 og á meðan var ekki hægt að nota spítalann. Spítalinn þjónaði allt fram til 1943 nánast eingöngu íbúum á Snæfellsnesi, en það ár tóku systumar upp samstarf við Kleppsspítalann í Reykjavík og stóð það samstarf til ársins 1961. Fyrsti sjúkrahúslæknirinn, Geir Jónsson, var ráðinn 1962, en áður höfðu héraðslæknar hvers tíma haft af- stöðu á spítalanum. Árið 1980 var gerður samningur milli ríkissjóðs, reglunnar og sveitarfélaga á upp- tökusvæði heilsugæslunnar um við- byggingu við gamla sjúkrahúsið. Síðasta breytingin í rekstri spítal- ans var þegar núverandi sjúkrahús- læknir, Jósep Ö. Blöndal, var ráð- inn. Með honum hófst þjónusta við fólk sem hefur verki í hreyfikerfum og má segja að upptökusvæði spít- alans á því sviði sé landið allt. Sú deild er fullnýtt þegar hún er opin, en hún er rekin sem „5 daga deild“. Þá hafa systumar rekið leikskóla í Qölda mörg ár og einnig prent- Tjóðrað fyr- ir vestan- áttina Flateyri - Menn voru við öllu búnir hér á Flateyri þegar veð- urspá gaf til kynna að vind myndi herða um 10-11 vindstig og miklar rigningar myndu fylgja í kjölfarið. Því voru björg- unarsveitarmenn víða á ferð um bæinn að binda og ganga frá lausahlutum sem gætu farið af stað í verstu vindhviðum. Á ferð sinni um bæinn rakst fréttaritari á tvo björgunar- sveitarmenn að bregða bönd á væntanlegt björgunarsveitarhús og tryggja að það færi hvergi í verstu hviðunum. smiðju, handavinnukennslu og sunnudagaskóla. Þá ávarpaði príórinnan, Renée Lonton, samkomuna. Hún las minn- ispunkta úr dagbókum systranna frá fyrstu dögum spítalans. Þar kom fram að sá tími var systurun- um erfiður. Þær þurftu að kynnast nýju fólki, menningu þess og dag- legu lífi. Oft kom upp misskilningur vegna tungumála. Þarna voru þær að upplifa allt aðrar og verri að- stæður en þær áttu að venjast frá heimalöndum sínum. Spítalinn hélt ekki vatni. í dagbók þeirra frá 16. september 1936 segir að stormur og rigning hafi verið alla nóttina. Sjúkrahúsið sem er nýtt er fullt af vatni frá efstu hæð og niður. Hitað var upp með kolum sem oft á tímum skorti og einnig var oft erfitt að ná í neysluvatn. Þetta létu þær sig hafa og gáfust aldrei upp. í dag starfa við sjúkrahúsið 11 systur frá 6 þjóðlöndum og er prest- ur þeirra Sr. Sean McTiernan frá írlandi. Margir fleiri fluttu ávörp og kom fram hjá þeim öllum þakk- læti til systranna fyrir þeirra óeigin- gjarna starf. Bárust þeim margar og góðar gjafir á þessum tímamót- um. Veglegar peningagjafir komu frá Iðnsveinafélagi Stykkishólms, Stykkishólmsbæ og heilbrigðisráðu- neytinu. Morgunblaðið/Egill Egilsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.