Morgunblaðið - 09.10.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 39
Umræða
skaðaði
ímynd
björgunar-
sveita
BJÖRGUNARSVEIT Ingólfs telur
engan vafa leika á að umræða um
meintar barsmíðar tveggja félaga í
sveitinni á tveimur ungum drengj-
um, sem komið hefur í ljós að átti
ekki við rök að styðjast, hafi skaðað
ímynd alls björgunarsveitarstarfs í
landinu, ekki síður en sveitarinnar.
Pyrir hendi sé mikið starf að
hreinsa sveitina og félaga hennar
af þessum áburði og vinna aftur
traust almennings.
Geta verið vamarlaus
Samkvæmt upplýsingum frá
Kristni Tanna Hannessyni tals-
manni Björgunarsveitar Ingólfs,
töldu sveitarmenn að hið sanna
kæmi í ljós frá upphafí, enda fjöldi
vitna að meintum atburði, en kusu
að tjá sig ekki efnislega um atvik-
ið, sökum alvöru þeirra ásakana
sem um ræðir og þess að málið var
þá til rannsóknar hjá lögreglunni í
Reykjavík.
„Ljóst er af þessu máli að ein-
staklingar, fyrirtæki og félagasam-
tök geta verið býsna vamarlaus
þegar óvægin fjölmiðlaumræða er
annars vegar. Þótt ekkert rangt eða
saknæmt hafi átt sér stað, getur
umræða af þessu tagi engu að síður
valdið miklu tjóni,“ segir Kristinn.
Meðan á rannsókn málsins stóð
var þeim félögum sveitarinnar sem
bomir voru sökum vikið tímabundið
úr starfi.
Forsendnr
fyrir flutningi
Landmælinga
brostnar
PÉTUR Jónsson, formaður atvinnu-
málanefndar Reykjavíkurborgar,
telur að forsendur fyrir flutningi
Landmælinga íslands til Akraness
séu brostnar reisi Columbia Ventur-
es stóriðju á Grundartanga líkt og
fyrirhugað sé, m.a. í ljósi samkomu-
lags Reykjavíkurborgar og Lands-
virkjunar um raforkuframleiðslu á
Nesjavöllum.
Pétur telur að ákvörðun um flutn-
ing ætti þess vegna að endurskoða
í ljósi nýrra aðstæðna í atvinnulífí á
Akranesi og nágrenni.
Pétur sagði á fundi borgarstjómar
nýlega að einu rökin fyrir flutningi
stofnunarinnar væru að fjölga at-
vinnutækifærum á Akranesi. „Ef af
framkvæmdum verður á Gmndar-
tanga fjölgar störfum í héraðinu.
Talið er að um 100-150 störf skap-
ist til frambúðar og margfeldisáhrif-
in munu auka atvinnu á Skaganum
og gera hana fjöibreyttari," sagði
hann.
Borgarfulltrúinn telur að tilkoma
álversins muni stuðla að fijálsum
flutningum fólks til Akraness í leit
að atvinnu en sagði flutning Land-
mælinga stuðla að nauðarflutning-
um starfsmanna stofnunarinnar.
HÍK mótmælir
niðurskurði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá fulltrúaráði
Hins íslenska kennarafélags:
„Fulltrúaráð Hins íslenska kenn-
arafélags mótmælir harðlega fyrir-
huguðum niðurskurði á fé til fram-
haldsskólanna og krefst þess að
fallið verði frá honum nú þegar.
Fulltrúaráðið lýsir undrun sinni
á vinnubrögðum menntamálaráð-
herra að hefja framkvæmd nýrra
framhaldsskólalaga með stórfelld-
FRÉTTIR
Þingmenn
sýni ábyrgð
við af-
greiðslu
fjárlaga
STJÓRN Verslunarráðs íslands
samþykkti á fundi sínum 7. október
sl. ályktun þar sem fagnað er fram-
lagningu fjárlagafrumvarpsins án
halla. Jafnframt er skorað á þing-
menn að sýna þá ábyrgð að hækka
ekki útgjaldaliði frumvarpsins.
Bent er á að hallarekstur ríkis-
sjóðs á undanförnum árum hafi
valdið skuldasöfnun hins opinbera
og haldið uppi vöxtum. Afleiðing-
arnar séu m.a. þær að vaxtagreiðsl-
ur ríkissjóðs nemi um 40 milljónum
króna á dag.
Að síðustu er bent á að enn séu
atriði í skattalöggjöf sem þurfi
breytinga við auk þess sem á næstu
árum þurfi að draga verulega úr
útgjöldum ríkissjóðs til að greiða
megi niður skuldir og skapa að-
stæður til skattalækkana.
Ályktun Verslunarráðsins hefur
verið send ijármálaráðherra, þing-
forseta og formanni fjárlaganefnd-
ar.
Kynning á
kvennasáttmála
„NÍTJÁNDI landsfundur Kven-
réttindafélags íslands fjallaði um
samning um afnám allrar mismun-
unar gagnvart konum og hvernig
fijáls félagasamtök eins og KRFI
geti best unnið að framgangi
hans,“ segir í fréttatilkynningu
KRFÍ.
Jafnframt segir: „Fundurinn
samþykkti að KRFÍ beiti sér fyrir
fræðslu og kynningu á kvenna-
sáttmálanum í samvinnu við yfir-
völd menntamála, dómsmála og
félagsmála og Mannréttindaskrif-
stofu íslands svo og önnur félaga-
samtök á sviði mannréttinda.
Fundurinn bendir á að kynningu
yrði m.a. að beina að dómurum,
einkum kennurum í lagadeild Há-
skóla íslands. Rétt þótti að vekja
athygli á að sáttmálinn er ekki í
Lagasafni við hlið annarra mann-
réttindasáttamála Sameinuðu
þjóðanna og Evrópuráðsins.
Fundurinn bendir á mikilvægi
hlutverks KRFÍ til að tryggja að
ákvæðum sáttmálans sé sem best
framfylgt. Sameinuðu þjóðimar
hafa allt frá stofnun árið 1945
lagt áherslu á nauðsyn þátttöku
fijálsra félagasamtaka í störfum
sínum. Því taldi fundurinn að ís-
lensk stjórnvöM ættu að hafa
samráð við KRFÍ við framkvæmd
kvennasáttmálans og tryggja fé-
laginu möguleika til að gegna eft-
irlits- og umsagnarhlutverki.
Fundurinn bendir jafnframt á
nokkur mikilvæg atriði á sviði
mannréttinda kvenna sem hafa
ekki verið sett í lög hér á landi
svo sem vemd gegn uppsögnum
þeirra sem leita réttar síns vegna
jafnréttisbrota sem og uppsögnum
vegna hjúskaparstöðu. Fundurinn
krefst úrbóta í þeim efnum. Fund-
urinn skorar á stjómvöld að koma
til samstarfs við KRFÍ til að hægt
verði að hrinda efni sáttmálans í
framkvæmd."
Ljósmynd/K.M.B.
Myndakvöld
FI frá Aust-
fjörðum
FYRSTA myndakvöld Ferðafé-
lags íslands í vetur verður í kvöld,
miðvikudagskvöldið 9. október,
kl. 20.30 í félagsheimilinu í Mörk-
inni 6 (stóra sal) og verður það
tileinkað ferðum um Austfirði.
ína Gísladóttir, fararstjóri og for-
maður nýstofnaðrar Ferðafélags-
deildar á Austfjörðum, sýnir frá
ferðum sumarsins.
Ina sýnir og segir frá fjöl-
breyttu svæði þar sem koma við
sögu ferðirnar: Borgarfjörður
eystri-Loðmundarfjörður-Seyð-
isfjörður er farin var í ágúst og
ferðin á Gerpissvæðið í lok júni.
í síðarnefndu ferðinni var farið í
Viðfjörð, Hellisfjörð, út á Barðs-
nes og víðar.
I upphafi myndakvöldsins mun
Höskuldur Jónsson kynna nýjar
sýningarvélar félagsins með
myndum af fossum Skógár en
vélamar bjóða m.a. upp á þann
möguleika að sýna tvær myndir
samtímis.
AUir era velkomnir og er að-
gangseyrir 500 kr., kaffi og með-
læti innifalið.
í STÓRURÐ við Dyrfjöll.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Tíu ára vígsluafmæli
NÝVERIÐ komu saman í Grafar-
vogskirkju nokkrir vígsluþegar
séra Sigurbjörns Einarssonar
biskups og minntust þess að tíu
ár eru liðin frá því þeir hlutu
vígslu sína. Hópurinn er sá fjöl-
mennasti sem hlaut vígslu í emb-
ættistíð séra Sigurbjörns.
Frá vinstri: Séra Gunnþór
Ingason, séra Vigfús Þór Árna-
son, frú Magnea Þorkelsdóttir,
séra Sigurbjörn Einarsson bisk-
up, séra Pétur Þórarinsson, og
séra Hjálmar Jónsson. Á mynd-
ina vantar séra Vigfús Ingvar
Ingvarsson sem ekki komst frá
Egilsstöðum og séra Sighvat
Birgi Emilsson sem býr í Noregi.
um niðurskurði og kæfa þannig í
fæðingu yfirlýstan tilgang laganna
um að efla starfsnám og bæta allt
skólastarf.
Fulltrúaráðið varar sérstaklega
við niðurskurði á fé til smærri fram-
haldsskóla úti á landi. Þeir mega
illa við niðurskurði auk þess sem
hann er aðför að jafnrétti til náms.
Framhaldsskólarnir eru nú þegar
í fjársvelti. Það þarf þvert á móti
að auka fé til þeirra til að þeir geti
veitt nemendum þá menntun sem
lög gera ráð fyrir.
Fulltrúaráðið bendir á að það er
skylda stjórnvalda á hveijum tíma
að sjá þjóðinni fyrir menntun til að
hún geti leitt samfélagið til móts
við nýja tíma í alþjóðlegri sam-
keppni.“
Alþjóðlegur
geðheilbrigðis-
dagur á morgun
ALÞJÓÐASAMBAND um geðheil-
brigði, með stuðningi frá Alþjóða
heilbrigðisstofnuninni, hefur und-
anfarin ár gengist fyrir því að heil-
brigðisyfírvöld í hveiju landi gerðu
10. október að alþjóðlegum geðheil-
brigðisdegi.
Fyrir ári stafesti heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra að 10.
október ár hvert yrði tileinkaður
geðheilbrigðismálum hér á landi. í
tilefni þessa dags hefur ráðherra
beint þeim tilmælum til Land-
læknsiembættisins, Sálfræðingafé-
lags íslands, Geðlækningafélags
íslands, Geðhjálpar, Geðverndarfé-
lags íslands og Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga að minnast
þessa dags með því að vekja at-
hygli á málefnum geðsjúkra.
Hörður Torfa
með útgáfu-
tónleika
I TILEFNI útgáfu á nýjustu plötu
sinni, Kossinn, heldur Hörður Torfa
útgáfutónleika í Loftkastalanum í
kvöld, miðvikudagskvöldið 9. októ-
ber, kl. 21.
Hörður hefur tónleika sína einn
með nokkrum lögum en síðan stígur
á sviðið hljómsveit hans, Allir yndis-
legu mennimir, og munu þeir leika
öll lögin af nýju plötunni auk hljóm-
sveitarútgáfu af nokkurm eldri laga
Harðar.
Hljómsveitina skipa ásamt Herði,
Hjörtur Howser á hljómborð, Jens
Hanson, sem blæs í saxófón og
fleira, Björgvin Gíslason á raf-
magnsgítar, Friðrik Sturluson á
bassa og Eysteinn Eysteinsson leik-
ur á trommur og sér um allan áslátt.
Tónleikamir í Loftkastalanum
marka upphaf árlegrar tónleika-
ferðar Harðar um landið sem stend-
ur til 2. nóvember.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn
í frásögn Morgunblaðsins af
Spænsku kvöldi Kaffileikhússins
misritaðist nafn Einars Kristjáns
Einarssonar gítarleikara. Beðizt er
afsökunar á þeim mistökum.
Rangt föðurnafn
í frétt um fegursta býli EyjaQarð-
arsveitar, Espihóli var rangt farið
með föðurnafn eins ábúanda,
Guðnýjar en hún er Kristinsdóttir,
ekki Kristjánsdóttir eins og sagt
var. Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
Rangt föðurnafn
Á baksíðu Morgunblaðsins var frétt
um komu Óðins til Reykjavíkur og
var farið rangt með föðunafn
Svandísar sem tók á móti maka
sínum en hún er Konráðsdóttir ekki
Hákonardóttir. Beðist er velvirðing-
ar á mistökunum.