Morgunblaðið - 09.10.1996, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 33 *
AÐSENDAR GREINAR
Alþj óðaverkefni
í sjávarútvegi
ÍSLENDINGUM
stendur nú til boða
þátttaka í sjávarút-
vegsverkefnum á ýms-
um stöðum í heiminum.
Þó þettá sé á margan
hátt spennandi er ljóst
að við getum ekki sinnt
öllum þessum verkefn-
um. Við verðum að
velja og hafna.
I þessari grein er því
haldið fram að ísl. út-
gerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtæki eigi fyrst um
sinn að einbeita sér að
Norður-Atlantshafinu,
og súður undir miðbaug
en heimurinn allur sé
hins vegar vettvangur íslenskra
sölu- og þjónustufyrirtækjanna svo
og þeirra er selja þekkingu tengda
sjávarútvegi.
Hvers vegna er þessi
afmörkun þá mikilvæg?
Þegar á reynir eru erlend verkefni
fyrirtækjunum svo dýr og tímafrek
að þau eru einungis á færi þeirra
allra sterkustu. Verkefnin kalla á
mikinn tíma fárra önnum kafinna
stjórnenda sem halda verða mörgum
boltum á lofti í einu. Þau fyrirtæki
sem lengst eru komin á þessari braut
hafa hins vegar breytt skipulagi sínu
og falið þessi verkefni sérstökum
starfsmönnum innan yfirstjórnar-
innar. Utanaðkomandi ráðgjafar
geta vissulega gegnt mikilvægu
hlutverki en ábyrgðin hvílir fyrst og
fremst á stjómendum fyrirtæícjanna.
Megin rök mín fýrir fyrrgreindri
skiptingu eru þessi:
• Við þekkjum hið
afmarkaða svæði best
og við höfum góð
stjómmála- og menn-
ingarieg tengsl víðast í
þessum heimshluta.
• Við erum áhuga-
verðir samstarfsaðilar
sakir smæðar landsins
og sérþekkingar í sjáv-
arútvegi.
• íjölmörg áhuga-
verð og hagkvæm verk-
efni bíða hér í kringum
okkur, ekki þarf að leita
langt yfír skammt.
Sj ávarútvegsfyrir-
tækin og forysta þeirra
verða sjálf að marka
brautina, ekki stjórnmálamenn eða
stjórnvöld þeirra aðilar eiga einungis
að fylgja eftir og styrkja starf fyrir-
tækjanna.
Erlend fjárfesting, segir
Jón Atli Krisljánsson,
gefur möguleika á
áhættudreifingu og
sveiflujöfnun.
Hvers vegna fjárfesting
erlendis?
Mikill ávinningur hefur verið í að
stækka ísl. fyrirtækin og á þetta
sérstaklega við um þá miklu hag-
ræðingu er mögulega hefur verið í
útgerðinni. Nú er hins vegar svo
komið að verð á skipum og aflaheim-
Jón Atli
Kristjánsson
ildum hér heima með beinum kaup-
um er orðið svo hátt að spyija má
hvort erlendir fjárfestingarkostir séu
ekki ódýrari. Það er einnig ljóst að
erlend fjárfesting gefur möguleika á
áhættudreifíngu og sveiflujöfnun er
telja verður mjög skynsamíega fyrir
íslensku fyrirtækin. Jafnframt virð-
ist það mjög álitlegt fyrir þau fyrir-
tæki er vilja hasla sér völl í veiðum
á uppsjávarfiskum svo sem síld,
makríl og kolmunna að gera það í
samvinnu eða með eignaraðild í þar-
lendum fyrirtækjum er komin eru
miklu lengra á þessu sviði en við.
Þannig má t.d. benda á að Hollend-
ingar eiga ný og sérhæfð veiði- og
vinnsluskip fyrir uppsjávarfísk sem
eru miklu fullkomnari skip en nokk-
urt þeirra er við eigum eða getum
eignast, því gildandi kerfi hjá okkur
er þannig, að ætti slíkt skip að hafa
veiðirétt í ísl. landhelgi þyrfti auk
smíðakostnaðar skipsins að úrelda
3-4 togara með 700-800 m. kr.
kostnaði.
Gagnkvæmni
í fjárfestingum
Sé það rétt greining að verðlagn-
ing veiðiréttinda og skipa sé komin
úr böndum getur það varla talist
fysilegt fyrir útlendinga að fjárfesta
hér. Þess vegna mætti slaka á núver-
andi hömlum. Hins vegar er þessi
umræða ekki sérlega áhugaverð í
dag. Það sem gerði þessa umræðu
athyglisverða fyrir nokkrum árum
var fjársvelti sjávarútvegsins og sem
afleiðing af því getuleysi til að þróa
greinina. Mikil breyting hefur orðið
á þessu. I dag má almennt segja að
fjármagn er fáanlegt til góðra verka
og markaðsskráðu fyrirtækin hafa
flest hver mikla og fjölbreytta mögu-
leika á að afla fjármagns.
Hvaða erlendur fjárfestir myndi
líka vilja fjárfesta í ísl. sjávarútvegi
nema lausn finnist á „afgjaldsum-
ræðunni“.
Höfundur er hagfræðingur.
Dropi í hafið?
UNDANFARIN ár
hefur geisað stríð á
Balkanskaga. Þetta
stríð hefur bitnað á þeim
sem síst skyldi, almenn-
ingi sem á enga sök á
átökunum. Nú hefur
komist á friður og mikið
uppbyggingarstarf haf-
ið á þessu svæði. Veiga-
mikill þáttur í þessari
uppbyggingu er að
endurreisa menntakerf-
ið, því menntun er jú
grundvöllur fyrir velferð
þjóðar.
Stúdentaráði Há-
skóla íslands hefur bor-
ist hjálparbeiðni frá
nemendum við Há-
skólann í Sarajevo.
Þar hafa byggingar,
námsgögn, tæki og
bækur eyðilagst og
því erfiðleikum
bundið að hefja
kennslu á ný. Stúd-
Stúdentaráði hefur
borist hjálparbeiðni,
segir Guðríður
Sigurðardóttir, frá
stúdentum í Sarajevo.
entaráð Háskóla íslands hefur því,
ásamt stúdentaskiptafélögunum AI-
ESEC, ELSA, IAESTE og IMSIC,
ákveðið að bregðast skjótt við og
standa fyrir söfnun á kennslugögn-
um og fjármagni til kaupa á slíku.
Nú þegar hefur ríkisstjóm íslands
ákveðið að styrkja þetta átak og við
vonum að fleiri aðilar hér innanlands
geri slíkt hið sama. Staðreyndin er
sú að okkar framlag er
einungis dropi í hafið
fyrir heildarþörfina, en
dropi þó og eftir því
sem fleiri leggja söfn-
uninni lið því stærri
verður dropinn.
Dagana 10.-11.
október munu stúdent-
ar vera með söfnunar-
stöðvar þar sem tekið
verður á móti fjárfram-
lögum og kennslugögn-
um. Fyrri daginn verð-
um við í tíu byggingum
háskólans á milli kl.-*^,
9.00 og 17.00. Síðari
daginn verðum við með
béekistöðvar í stóru
tjaldi við Ingólfstorg þar sem stúd-
entar taka heilshugar á móti þeim
sem vilja leggja söfnuninni lið.
Ég vil hvetja landsmenn alla til
að leggja sitt af mörkum og hafa
það í huga að margt smátt gerir
eitt stórt.
Höfundur er nemi í HÍ og situr í
Stúdentaráði fyrir hönd Vöku, fls.
Guðríður
Sigurðardóttir
Verum seö
Endurskinsklemmurnar veröa gefnar á meðan að birgðir endast frá og meö þriðjudeginum 8. okt. 1996
Nú þegar skammdegiö færist yfir
er riauösynlegt aö fara varlega og
sjást í umferðinni. Allir þurfa aö
nota endurskinsmerki jafnt ungir
sem aldnir.
Starfsfólk Shellstöövanna ætlar aö
leggja sitt aö mörkum til aö auka
öryggi viöskiptavina sinna í
umferðinni meö því aö gefa þeim
endurskinsklemmur. Klemmurnar
eru fallegar og auðvelt er aö setja
þær á og taka af og þær skemma
ekki föt.
það fólk er séð sem sést.
Shell í næsta nágrenni
latum siá okkur
bi Swjí
I (Z fasf,
r!lháncJuJ'f
■ "’si'eSe 0„
I &