Morgunblaðið - 09.10.1996, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Þórarinn B. Jónsson bæjarfulltrúi
Tvívegis lent í beinu „þotu-
rútuflugi“ frá Akureyri
ÞÓRARINN B. Jónsson, umboðs-
maður Sjóvár Almennra og bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur
tvívegis keypt sér farseðil til út;
landa í beinu flugi frá Akureyri. í
bæði skiptin hefur hann hins vegar
lent í því að þurfa að fara með
rútu til Keflavíkur og sömu leið til
baka, þar sem ekki hefur verið
hægt að fljúga beint frá Akureyri.
Þórarinn var í hópi 260 farþega
sem fóru með rútu frá Akureyri til
Keflavíkur sl. miðvikudagskvöld og
þaðan til Dyflinnar á fimmtudags-
morgun. Þegar komið var heim á
sunnudagskvöld var uppi sama
staða og þurfti vélin að lenda í
Keflavík, farþegarnir af lands-
byggðinni að gista eina nótt í
Reykjavík og halda með rútu norð-
ur á mánudagsmorgun. Þórarinn
var einnig í hópi þeirra ferðalanga,
sem ætluðu að fljúga utan í fyrsta
beina fluginu frá Akureyri fyrir 20
árum en lenti þá í sömu stöðu og
um helgina. í bæði skiptin voru það
náttúruöflin sem settu flugið úr
skorðum.
Hefur engan tilgang
að svekkja sig
„Ég lenti í fyrsta beina þoturútu-
fluginu með Ferðaskrifstofu Akur-
eyrar fyrir einum 20 árum og svo
aftur nú um helgina með Samvinnu-
ferðum- Landsýn. í fyrri ferðinni
var haldið til Kaupmannahafnar og
það var í raun yndisleg ferð og svo
var einnig með ferðina til Dyflinnar
um helgina. í bæði skiptin gerðu
ferðaskrifstofurnar allt til að létta
okkur leikinn.“
Þórarinn segir að vissulega hafi
flestir keypt ferðina vegna þeirra
þæginda að fljúga beint frá Akur-
eyri og sumir farþeganna hafi því
verið argir og þreyttir þegar henni
lauk. „En þetta var ljómandi
skemmtileg ferð og það hefur engan
tilgang að vera svekkja sig yfir hlut-
um, enda gat ferðaskrifstofan ekki
ráðið við þá stöðu sem upp kom.“
í þeim 260 manna hópi sem ferð-
ast þurfti með rútu frá Akureyri,
var fólk enn iengra að komið, m.a.
frá Siglufirði og allt austan frá
Neskaupstað.
Morgunblaðið/Kristján
Með tíkina Rögg á mótorhjólinu
MARÍ A Dröfn Garðarsdóttir fer
flestra sinna ferða á öflugu
mótorhjóli, sem kannski þykir
ekki í frásögur færandi nú á tím-
um. Það sem hefur hins vegar
vakið athygli margra íbúa á
Akureyri er að hún er ekki kona
einsömul á ferð, heldur ferðast
tíkin Rögg jafnan með henni og
situr þá fyrir framan Maríu á
hjólinu og lætur sér fátt um
finnast.
Morgunblaðið/Diðrik
Gulrót í heljargreipum
VOXTUR gulróta getur verið marg- varð mikil eftir gott haust, sú
breytilegur, hér á myndinni er ein þyngsta á myndinni er 520 grömm,
vafinn utan um aðra. Uppskeran sú lengsta 28,5 sentímetrar.
Óður til
framtíðar
FIMMTÍU ár voru nú fyrir
skömmu liðin frá því fyrirtækið
Möl og sandur hf. hóf starfsemi
á Akureyri. í tilefni af því gerði
Jóhann Ingimarsson listaverk
sem afhjúpað var á lóð fyrirtæk-
isins, en það nefnist Óður til
framtíðar, „þar sem hringurinn
er tákn eilífðarinnar og hinnar
undarlegu hringrásar, sem flest-
ir virðast háðir,“ sagði sagði
listamaðurinn við afhjúpun
verksins. „Hringurinn er óendan-
legur. Hann hefur hvorki upphaf
né endi. Hann er einnig ham-
ingjutákn," sagði Jóhann um leið
og hann óskaði fyrirtækinu vel-
Morgunblaðið/GS
farnaðar. Á myndinni eru þeir
Jóhann og Þórarinn Krisfjánsson
formaður stjórnar Malar og
sands við listaverkið.
MorgunDiaoio/ ixnstjan
Brugðið á leik
FÉLAGARNIR Jóhann Þor-
steinsson og Haraldur Hannes-
son brugðu á leik á hjólabrett-
unum sínum á Ráðhústorgi í
gærdag. Töluverður áhugi er
fyrir íþróttinni meðal akur-
eyrskra unglinga sem gjarnan
fara með brettin sín í miðbæinn
og leika þar listir sínar fyrir
gesti og gangandi.
Sjálfsbjörg
Kjarabætur
til örorku-
og ellilíf-
eyrisþega
STJÓRNARFUNDUR Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra á Ak-
ureyri og nágrenni sem haldinn
var í vikunni samþykkti ein-
róma að lýsa yfir sérstöku
þakklæti til Verkamannafé-
lagsins Hlífar í Hafnarfirði fyr-
ir að hafa I kröfugerð sinni
fyrir gerð næstu kjarasamn-
inga, gert sérstaka kröfu um
að jafnframt verði samið við
stjórnvöld um að örorku- og
ellilífeyrislaun fylgi iaunaþróun
í landinu og að frítekjumörk
skuli hækka samsvarandi öðr-
um lágmarkslaunum.
Þá skorar stjórn Sjálfsbjarg-
ar á öll önnur stéttarfélög að
veija og semja um kjarabætur
til handa þeim félögum sem
nú njóta örorku- og ellilauna.
Samstarfs-
verkefni í
skóla- og
menningar-
málum
BÆJARRÁÐ hefur staðfest
samkomulag milli menntamála-
ráðuneytis og Akureyrarbæjar
vegna samstarfsverkefna við
Grænland og Færeyjar.
Samkomulagið felur í sér að
Akureyrarbær hafi fyrir ís-
lands hönd umsjón með sam-
starfsverkefni á sviði menning-
ar- og skólamála sem löndin
þijú hafa gert samning um.
Menningarmálanefnd og
menningarfulltrúa hefur verið
falið að hafa umsjón með fram-
kvæmd verkefnisins fyrir hönd
bæjarins.
Veitingarekstur
Skíðastaða
Unnið við
drög að út-
boðsgögnum
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
hefur samþykkt að fela Eiríki
Björgvinssyni, íþrótta- og tóm-
stundafulltrúa og ívari Sig-
myndssyni, forstöðumanni
Skíðastaða, að vinna drög að
útboðsgögnum varðandi veit-
ingareksturinn á Skíðastöðum
í Hlíðarfjalli.
Eiríkur segir alls óvíst hvort
einhver aðili hefur yfirleitt
áhuga á veitingarekstrinum og
því sé nauðsynlegt að kanna
hvernig landið liggur í þeim
efnum. „Um leið og við leitum
að hagkvæmni varðandi rekst-
urinn, viljum við jafnframt
tryggja að hugsanleg breyting
komi niður á þjónustunni."
Eldsvoði
Óhapp af
manna-
völdum
ÓHAPP af mannavöldum varð
þess valdandi að eldur varð laus
í útihúsum á bænum Stað-
arhóli í Eyjafjarðarsveit á
sunnudagsmorgun. Málið er
fullupplýst.
Enn hafa upptök eldsvoða í
skemmtistaðnum 1929 fyrir
skömmu ekki fundist, en málið
er enn í rannsókn.