Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 19
Reuter
Brotlending í þorpi
RÚSSNESK Antonov 124-flutningavél brotlenti í þorpi skammt frá
Tórínó á ítaiiu í gær. Að minnsta kosti fjórir létu lífið, flugstjórinn
og einn úr áhöfn, auk tveggja á jörðu niðri en aðrir sem um borð
voru, rúmlega tuttugu manns, komust lífs af. Vélin, sem Aeroflot-
flugfélagið rússneska hafði á leigu, var á leið frá Moskvu og hugð-
ist flugstjóri vélarinnar lenda henni á flugvellinum í Tórínó. Var
vélin aðeins þriggja ára gömul. Ekki er vitað hvers vegna hún brot-
lenti í San Francesco ai Campo, sem er um hálfan kílómetra frá
flugbrautarendanum á Caselle-flugvelli í Tórínó. Getgátur hafa þó
verið uppi um að mistökum flugmannsins hafi verið um að kenna.
Rauðir khmerar ganga
stjórnarher á hönd
Battambang. Reuter.
HUNDRUÐ skæruliða Rauðra
khmera hafa ákveðið að sameinast
stjórnarhemum í Kambódíu og segja
um leið skilið við leiðtoga hreyfing-
arinnar, Pol Pot. Var þetta haft eft-
ir kambódískum embættismönnum í
gær. Talið er, að þetta muni flýta
fyrir samningum milli stjórnvalda
og Ieng Sarys, annars fyrrverandi
forystumanns í skæruliðahreyfing-
unni.
Sagt er, að fimm skæruliðaher-
deildir að minnsta kosti hafi gengið
stjórnarhernum á hönd 4. þ.m. en
viðræður standa enn yfir við Ieng
Sary, sem var á sínum tíma utanrík-
isráðherra í ríkisstjórn Rauðra
khmera.
Líklega eru nokkrar þúsundir her-
manna í þeim hérdeildum, sem hafa
nú gengið til liðs við stjórnarherinn,
og fólkið, sem þeim fylgir, fjölskyldur
þeirra og aðrir, er enn fleira. Hafa
þeir afhent stjómarhernum mikið af
vopnum, sem þeir höfðu nóg af, en
þá skorti hins vegar mat og lyf.
ERLENT
Breti og Kanadamaður fá Nóbelsverðlaun í hagfræði
Ábyrgð og efna-
hagslegir hvatar
Stokkhólmi. Reuter.
BRESKI prófessorinn
James Mirrlees og
Kanadamaðurinn
William Vickrey fá
Nóbelsverðlaunin í
hagfræði á þessu ári.
Var skýrt frá því í
Stokkhólmi í gær.
Eru þeim veitt þau
fyrir að hafa tengt
saman þjóðfélagslega
ábyrgð og efnahags-
lega hvata en samspil
þessara tveggja þátta
er nú haft mjög til
hliðsjónar við skatt-
lagningu.
Kenning þeirrá
Mirrlees og Vickréys
um „efnahagslega
hvata og ósamhverfar upplýs-
ingar“ er notuð þegar ekki verður
hjá því komist að taka ákvarðanir
þótt upplýsingarnar, sem þær
byggjast á, séu af ólíkum toga og
jafnvel ekki samhljóða.
Aukinn skilningur
á mörgum sviðum
í umsögn Konunglegu sænsku
vísindaakademíunnar, sem veitir
Nóbelsverðlaunin fyrir hönd
sænska seðlabankans, segir, að
rannsóknir þeirra Mirrlees og
Vickreys hafi snúist um einhver
líflegustu og skemmtilegustu svið
hagfræðinnar. í verkum sínum
fjalla þeir um það hvernig ríkis-
stjórnir, fyrirtæki eða önnur sam-
tök geti tekið mikilvægar og
stefnumarkandi ákvarðanir þótt
aldrei sé unnt að byggja á full-
komnum upplýsingum.
„Sem dæmi má nefna, að banki
þarf ekki að hafa tæmandi upplýs-
ingar um framtíðartekjur lántak-
andans; eigendur fyrirtækis hafa
oft ekki jafn góðar upplýsingar
um rekstrarkostnað og samkeppn-
isaðstæður op- framkvæmdastiór-
inn,“ sagði í umsögn akademíunn-
ar. Þar sagði einnig, að með störf-
um sínum hefðu þeir Mirrlees og
Vickrey aukið mönnum skilning á
trygginga-, lána- og uppboðs-
markaði; á innra skipulagi fyrir-
tækja, launa- og skattkerfum og
á almenna tryggingakerfinu, sam-
keppnisaðstæðum, pólitískum
stofnunum o. fl.
Rangt að refsa mönnum
fyrir dugnað
Vickrey er fæddur í Viktoríu í
Bresku Kólumbíu í Kanada árið
1914 og lauk námi frá Yale 1935.
Hann er prófessor við Columbia-
háskólann en kominn á eftirlaun.
Mirrlees fæddist í Minnigaff í
Skotlandi 1936 og kennir nú hag-
fræði við háskólann í Cambridge
á Englandi. Hann var hins vegar
við Oxford frá 1969 til 1995. Varð
hann fyrst kunnur fyrir umfjöllun
sína um skattlagningu tekna en
hann hafnaði þeirri 19. aldar kenn-
ingu, að allan tekjumun ætti að
jafna með sköttunum.
Hann hélt því fram, að stig-
hækkandi skattlagning hefði letj-
andi áhrif á vinnugleðina og end-
urskilgreindi vandamálið og út-
listaði þannig, að skattakerfið
ætti ekki að nota til að refsa mönn-
um fyrir dugnað.
• HYunoni
RENAULT
Greiðsliikjör til allt að /<> ináiiaða án úitbargjmar
IUH
GÓÐIR NOTADIR BILAR
Hyundai Elantra 1800, árg. '94,
5 g., 4 d., vínrauður, ek. 42 þús. km.
Verðkr. 1.050 þús.
BMW518Í, árg. '91,
5 g., grár, ek. 104 þús. km.
Verð 1.450 þús.
Nissan Sunny STW 4x4 1600,
árg. '94, 5 g., 5 d., vínrauður, ek.
63 þús. km. Verð 1.250 þús.
Fiat Punto 55s, árg. '95,
5 g., 3 d., gulur, ek. 19 þús. km.
Verð 760 þús.
Volvo 850 GLE 2000, árg. '93,
sjálfsk., 4 d., grár, ek. 73 þús. km.
Verð 1.890 þús.
Renault Mégane RT 1600, árg. '97,
5 g., 5 d., hvítur, ek. 12 þús. km.
Verð 1.370 þús. km.
Renault Nevada 4x4 2000, árg. '91,
5 g., 5 d., grár, ek. 94 þús. km.
Verð 980 þús.
1 ^sag/.—„ i tgar'st—
divíw jioi /t, arg. ui,
sjálfsk., blár, ek. 96 þús. km.
Verð 1.390 þús.
sjálfsk., 4 d., vínrauður, ek. 51 þús.
Verð 890 þús.
Hyundai Accent LS 1300, árg.
'95, 5 g., 3 d., grænn, ek. 17 þús.
km. Verð870þús.
Hyundai Pony GLS 1500, árg. '92,
5 g., 5 d., hvítur, ek. 68 þús. km.
Verð 630 þús.
Toyota Hi Lux SRS d/c 2400,
árg. ‘92, 5 g., 4 d., rauður, ek.
131 þús km. Verð 1.530 þús.
Hyundai Pony GLS 1500, árg. '93,
sjálfsk., 4 d., rauður, ek. 23 þús. km.
Verð 760 þús.
Opiö \ irku iUtg» frá kl. 9 - 18,
lan jiirtin jti 10 - 14
Hyundai H-100 2400, árg. '94,
5 g., 4 d., blár, ek. 50 þús. km.
Verð 1.050 þús.
Subaru Legacy STW1800, árg. 90,
5 g., 5 d., Ijósbrúnn, ek. 102 þús km.
Verð 890 þús.
IllíMílo'
VISA
Notaðir bílar
Suðurlondsbraut 14 Armúla 13
Miklð úrval
nýlegra
uppitökubíla.