Morgunblaðið - 09.10.1996, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.10.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 35 saga einhvers eins manns heldur margra, þar á meðal Einars Ámason- ar. Það má segja að stjórn Loftleiða hafi skipað mjög hæfir menn, sem allir höfðu ákveðna sérþekkingu og bættu hver annan upp þannig að saman gátu þeir lyft Grettistökum, sem þeir einir sér hefðu ekki getað. Út á við bar ef til viil ekki mikið á Einari Ámasyni en hlutur hans í þessari sögu var stór. Einar Arnason var kosinn í aðal- stjórn Flugleiða hf. við stofnun þess félags árið 1973. Árið 1979 óskaði hann að víkja úr aðaistjórn af heilsufarsástæðum, en sat áfram sem varastjórnarmaður til ársins 1988. Samtals sat hann 222 stjórn- arfundi Flugleiða hf. Það er nú svo að enginn fær ráð- ið sínum örlögum og heilsa er eitt sem ekki er í okkar valdi. Það var því mikið áfall þegar Einar varð að hætta störfum sem flugstjóri á árinu 1964 þar sem hann hafði greinst með Parkinsonsveiki. Hann var í blóma lífsins, aðeins 39 ára gamall, en hann gafst ekki upp. Hann réðst í útgerð og gerðist forstjóri og aðal- eigandi útgerðarfélagsins Borgar- kletts hf. og lét meðal annars smíða skip með og fyrir nokkra helstu afla- menn landsins og starfaði að sjávar- útvegsmálum um margra ára skeið með góðum árangri. En veikindin ágerðust. En sama er um loftið og sæinn að svipult er þeirra geð. Fararlán manna er misjafnt og mannheill ei öllum léð. Það var sárt að sjá þennan góða dreng smátt og smátt missa hæfnina til þess að tjá sig þótt honum lægi margt á hjarta og hugur hans væri heill. Hann hélt áfram að fylgjast með sínu gamla félagi og gladdist yfir gengi þess. Ég þakka honum vináttu og stuðning gegnum árin. Börnum hans og aðstandendum votta ég samúð mína og fyrir hönd stjórnar Flugleiða hf. og starfsmanna þess flyt ég látnum heiðursmanni þakkir fyrir samfylgdina og hans störf í J)róun íslenskra flugmála. Einar Árnason lagði sinn skerf af mörkum til þess að hrinda í framkvæmd víð- tækri byltingu í samgöngu- og at- vinnumálum þjóðarinnar sem við búum að enn í dag. Grétar Br. Kristjánsson. Með Einari Árnasyni er genginn einn af forvígismönnum flugstarf- semi á íslandi. Einar var þátttak- andi í byltingunni svokölluðu í stjórn Loftleiða hf. á árinu 1953 þegar ungir menn og framsæknir tóku við stjórnvelinum og leiddu félagið til ævintýralegrar framsóknar, gerðu félagið að stórveldi í íslensku at- vinnulífí og sem þekkt varð vestan hafs og austan. Eina íslenska fyrir- tækið sem þekkt er á vorum dögum á neytendamarkaði erlendis tengist flugstarfsemi. Byggist það á braut- ryðjendastarfsemi Loftléiða hf. á sínum tíma og átti Einar Árnason sinn þátt í þeirri uppbyggingu. Einar sat í stjórn Loftleiða hf. alla tíð, frá 1953 og þar til félagið var sameinað Flugfélagi íslands hf. og úr varð Flugleiðir hf. árið 1973. Mér er ljúft að votta að Einar var traustur og góður stjórnarmaður og með honum og öðrum stjórnarmönn- um var góð samvinna öll þau ár sem við unnum saman. Einar var ákaf- lega náttúrugreindur og ótrúlega glöggur á allar tölur, fljótur að átta sig á aðalatriðum hvers máls. Þessi einkenni hans komu sér vel í far- sælli lausn fjölda vandasamra og flókinna viðfangsefna sem leysa þurfti í miklum uppgangi og umsvif- um félagsins á stjórnarárum hans. Dagfarslega var Einar ákaflega þægilegur og viðkunnanlegur í allri umgengni og varð vel til vina. Langt fyrir tíma fram varð hann fyrir þeirri ógæfu að veikjast af sjúkdómi, sem ekki var varanlega læknanlegur. Hann gafst þó ekki upp en hélt áfram ótrauður að starfa að hugðar- málum sínum af þeim mikla áhuga og atorku sem honum var gefín. Með Einari er genginn drengur góður sem eftirsjá er að. Eftirlifandi ættingjum er vottuð fyllsta samúð. Sigurður Helgason. HILMAR RÓSINKARSSON ÞIÐRIK BALD VINSSON + Hilmar Rósink- arsson var fæddur að Snæ- fjöllum á Snæ- fjallaströnd 2. ág- úst 1935. Hann lést á Landspítalanum 30. september síð- astliðinn. Foreldr- ar Hilmars voru Rósinkar Kolbeinn Kolbeinsson, f. 24. júní 1891 í Unaðsd- al, Snæfjallahr., d. 5. nóv. 1956, og Jakobína Rósink- ara Gísladóttir, f. 31. maí 1896 að Bæjum á Snæ- fjallast., d. 24. apríl 1960. Hilmar átti 9 systkini, þau eru Ólafur, f. 28. sept. 1917, d. 24. mars 1987, Gestur Odd- leifs, f. 23. ágúst 1920, býr í Keflavík, Guðmundur, f. 27. jan. 1924, d. 19. apríl 1989, Hann Hilmar frændi er dáinn, við vissum að hveiju dró síðustu dagana, en hann kenndi sér fyrst meins fyrir tveim mánuðum. Hann Hilmar, sem var svo stór og sterk- ur, hann var svo oft hér hjá okkur og aldrei hvarflaði að okkur að hann færi svo fljótt, en öll verðum við kölluð fyrr eða síðar. Hilmar bjó hjá foreldrum mínum hér áður og kynntumst við honum vel og var hann sem einn af fjöl- skyldunni og var notalegt að hafa hann með okkur um jólin og um aðrar hátíðar. Oft þegar ég kom heim til foreldra minna var Hilmar staddur þar og ósjaldan rökrædd- um við ýmis mál yfir kaffibolla og oftast fór hann með sigur í þeim rökræðum, því hann var mjög fastur fyrir og ef hann var búinn að mynda sér skoðun á málum varð honum ekki svo glatt haggað. Ég á eftir að sakna þess- ara stunda því allt var þetta í góðu gert. Hilmar bjó sér sérstaklega fal- Kristný Ingigerð- ur, f. 26. febr. 1927, býr í Garðin- um, Sigurborg María Jónný, f. 25. sept. 1928, býr í Reykjavík, Jósep. f. 15. júní 1932, bóndi, Fjarðar- horni, Bæjarhr., Strand., Elísabet, f. 26. sept. 1933, býr í Reykjavík, Sigríður Margrét, f. 14. nóv. 1937, býr í Keflavík, Haf- steinn Þór, f. 22. mars 1941, býr í Kópavogi. Hilmar var ókvæntur en lætur eftir sig einn son, Pétur André Hentze, f. 2. apríl 1966, býr í Danmörku. Útför Hilmars fór fram frá Keflavíkurkirkju 5. október síðastliðinn. legt heimili og var notalegt að koma til hans. Fyrir þremur árum urðu mikil umskipti í lífi Hilmars, þar sem hann fór að stunda samkomur hjá Veginum og frelsaðist. Þama fann hann eitthvað sem fyllti líf hans og varð söfnuðurinn hans önnur fjöl- skylda. Hilmar var mjög hamingju- samur að hafa fundið trúna og sagði hann á sjúkrahúsinu að á hvom veginn sem færi þá færi hann heim. Elsku Hilmar, takk fyrir allt. Kær kveðja, Rósa Ólafsdóttir. „Ó, sonur tilverunnar! Paradís þín er ást mín, þitt himneska heim- kynni endurfundir við mig. Stíg þar inn og hika ekki, þetta er það, sem þér hafði verið fyrirhug- að í konungsríki voru hið efra og voru æðsta veldi.“ (Bahá’u’lláh.) Elsku Hilmar, við kveðjumst um sinn. Þín frænka, Ólafía K. Ólafsdóttir. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end- urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl- unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur- eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer 5691181. Framvegis verður við það miðað, að um látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfiiegri lengd en lengd annarra greina um sama einstakling er miðuð við 2.200 tölvuslög eða um 25 dálksenti- metra í blaðinu. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eidra. Hins vegar eru birtar afmælisfrétt- ir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Word- perfect einnig auðveld í úrvinnslu. + Elskaður sonur okkar og bróðir, SINDRI KONRÁÐSSON, lést af slysförum þriðjudaginn 1. október. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. október kl. 13.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Lilja Helgadóttir, Konráö Jóhannsson, Svanhildur Konráðsdóttir, Hrafnkell Konráðsson, Jóhann Helgi Konráðsson, Aðalheiður Konráðsdóttir og aðrir ástvinir. + Þiðrik Baldvinsson fæddist í Hægindi í Reykholtsdals- hreppi 16. mars 1911. Hann lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 26. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Borgarneskirlqu 5. október. 26. september síðastliðinn lést Þiðrik Baldvinsson á Dvalarheimili aldraðra í Borgamesi. Horfinn er á braut einlægur, hjartahlýr, bros- mildur Diddi. Ég varð þess aðnjót- andi að búa á heimili þessa afa- bróður míns þegar ég sótti skóla í Borgarnesi veturinn 1983. Diddi var kátur maður og á fimmtudags- kvöldum í skammdeginu var ekki óvanalegt að spilaborðið græna væri dregið fram og hann og Inga kona hans byðu unglingnum mér að taka í spil. Þá var oft kátt og ekki verra þegar skálin með rúsín- unum og súkkulaðibitunum gekk hringinn. Diddi var blíður maður og þegar ég hugsa til þess dags sem ég kvaddi þau hjónin eftir veturset- una þá kemur kökkur í hálsinn. Diddi átti sér skrifborð og sat oft við það. Það er því svo ógleyman- legt í minningunni þegar hann kallaði í mig að skrifborðinu dag- inn sem ég fór og dró upp úr einni skúffunni stórt brúnt umslag og rétti mér. í umslaginu var það stærsta súkkulaðistykki sem ég hafði fengið. Þetta var slík einlæg gjöf og henni fylgdi svo mikil hlýja að ekki verður lýst. Diddi varð þess aðnjótandi að geta notið mikilla samvista við systur sína Guðnýju seinni árin eftir að hún flutti í Borgarnes. Það leið varla sá morgunn að Diddi tæki ekki krókinn til systur sinnar. Þar blómstraði systkinakærleikur- inn yfir sykruðum pönnukökum og kaffi. Þá sjaldan ég kom til Guðnýjar frænku var það aldrei svo að ekki hefðu hún og Diddi eitthvað verið að sýsla. Diddi var árrisull maður og oft búinn að ganga bæinn á enda áður en aðrir fóru á stjá. Hann á hrós skilið fyrir þá alúð sem hann lagði í að snyrta umhverfi bæj- arbúa. Þeim bregður við þegar Diddi er farinn. Ég samhryggist ykkur, elsku amma og afi og Guðný frænka. Ég samhryggist þér, Inga mín, og þinni fjölskyldu. Ykkar Kolfinna Jóhannesdóttir. + Ástkaer eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN JÚLÍA SIGURJÓNSDÓTTIR, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, mánudaginn 7. október sl. Alexander Guðjónsson, Aðalheiður Alexandersdóttir, Magnús Ingi Ingvarsson, Hulda Alexandersdóttir, Magnús Nikulásson, Svanhildur Alexandersdóttir, ÁgústB. Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Minningarathöfn um STURLU JÓNSSON fyrrv. hreppstjóra frá Súgandafirði, fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudag- inn 10. október kl. 10.30. Útför fer fram frá Suðureyrarkirkju laug- ardaginn 12. október kl. 14.00. Eva Sturludóttir, Guðni Þ. Jónsson, Sigrún Sturludóttir, Þórhallur Halldórsson, Kristín Sturludóttir, Guðbjörn Björnsson, Jón Sturluson, Sigurbjörg Björnsdóttir, Eðvarð Sturluson, Arnbjörg Bjarnadóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, fóstur- faðir, tengdafaðir og afi, HELGI SKÚLASON leikari, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 10. október kl. 15.00. Blóm og kransarvinsamlegast afþakk- aðir en bent er á líknarfélög. Helga Bachmann, Hallgrímur Helgi, Sigrfður Kristinsdóttir, Skúli Þór, Anna-Lind Pétursdóttir, Helga Vala, Þórdis Bachmann og barnabörn. Innilegustu þakkir og kveðjur til allra, sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og útförföðurokkar, bróðurog mágs, ERLENDAR GEIRS ÓLAFSSONAR, Mávabraut 7, Keflavík, áðurtil heimilís i'Vestmannaeyjum. Ólafur Geirsson, Gunnlaugur Óskar Geirsson, Óskar Ólafsson, Jóhanna Agústsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.