Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 40

Morgunblaðið - 09.10.1996, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand BREF HL BLAÐSINS Krínglan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Skattlagning út í bláinn Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur: ÞEGAR laun erfiðisins er ekki leng- ur að finna sökum letjandi, fremur en hvetjandi, skattaumhverfis er illa komið fyrir einni þjóð. Þegar hinn íslenski launamaður þarf að taka lán til þess að framfleyta sér og sínum er eitthvað að. Hinum ýmsu ráðamönnum hefur orðið tíð- rætt um það upp á síðkastið hversu mjög landsmenn hafi eytt um efni fram. Hvernig væri að þessir góðu menn kæmu um stund niður úr fíla- beinsturninum og litu augum lífs- kjör þorra almennings í landinu sem er nær því að sligast undan skatt- byrði og ber lítið annað úr býtum heldur en aukið vinnuálag og lægri laun, laun sem duga vart eða ekki til framfærslu? Hinn mikli þrýstingur á sparnað innan hins opinbera hefur leitt af sér næstum ómannúðlegt vinnuum- hverfi og nægir þar að nefna hinar ýmsu spamaðarherferðir í heil- brigðisþjónustugeiranum og umönnun ýmiss konar þar sem mönnun er í lágmarki sökum „sparnaðar" og fólk útkeyrt af vinnuálagi. Þessi annars sérkenni- legi sparnaður étur sjálfan sig upp með vinnuforföllum starfsfólks, lé- legri þjónustu sem og hugsanlegum langvarandi áhrifum er kunna að felast í nokkurs konar vélrænni umönnun er ég hygg að enginn vilji hafa til frambúðar. Manneskjan, hvort sem hún er ung eða gömul, þarfnast umhyggju er verður ekki mæld í einingum eða normum, per mínútur og sekúndur, hvorki hjá þessari kynslóð frekar en annarri. Sú framtíðarsýn er felst í því að hlúa að hornsteini samfélagsins, fjölskyldunni, með öllum ráðum þarf að koma til sögunnar. Hér ætti til dæmis að veita verulegan skattaafslátt er hjón eignast sitt fyrsta barn í stað þess að veita meiri afslátt fyrir íjárfestingu í steinsteypu. Einnig þarf að hefja aftur á loft fyrrum frumkvæði Reykjavíkur- borgar, að greiða foreldrum fyrir að dvelja heima með börnum sínum. Fæðingarorlof þarf að lengja og heimgreiðslur að koma á móti, til tveggja ára aldurs, svo tilfinninga- legum þörfum ungra barna sé hægt að sinna af foreldrum þeirra sem eru þess alla jafna best umkomin. Þetta getur jafnvel mótað líf hins unga borgara fyrir lífstíð, þ.e. að hinum tilfinningalega þætti sé sinnt af alúð í upphafi. Öll tveggja ára börn á landinu ættu síðan að eiga þess kost að umgangast, félaga sína á sama aldri í leikskólum landsins. Það gefur augaleið að ef foreldr- ar ættu þess kost að dvelja heima með börnum sinum til tveggja ára aldurs myndi rýmkast til á vinnu- markaði og atvinnuleysi ef til vill minnka. Hið sama þarf að gilda hvað varðar fólk í námi, hvatning til þess að dvelja fyrstu tvö árin með börnum sínum þarf að vera til staðar. Námið getur beðið í tvö ár en tilfinningar barnsins ekki. Skattlagning er tæki til stjórnun- ar og því fyrr sem stjórnmálamenn finna færar leiðir til þess að hefja á loft hin sönnu gildi, gildi er vara munu til framtíðar til handa kom- andi kynslóð, því færri sámfélags- leg vandamál munu verða oss fjötur um fót. Vonandi er þess einnig að vænta að verkalýðshreyfingin rói öllum árum í átt til mannvænlegra samfélags, í komandi kjarasamn- ingum, og sjái til þess að umsamin laun að loknum skattgreiðslum dugi hveijum vinnandi manni til fram- færslu. GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR, Látraströnd 5, Seltjarnarnesi. Beiðni um úrsög’ii úr Þjóðkirkjunni Frá Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur: ÉG, UNDIRRITUÐ, hef tekið þá ákvörðun að segja mig úr Þjóðkirkj- unni þar sem ég sé mér ekki fært að taka þátt í né tilheyra stofnun sem ekki tekur ábyrgð á ástandinu innan kirkjunnar. í mörg ár hef ég barist við að koma sannleikanum og lífs- reynslu minni á framfæri til ábyrgra aðila. Ég áleit það vera skyldu mína sem ábyrgur þjóðfélagsþegn og sem einstaklingur innan Þjóðkirkjunnar. Ólafi Skúlasyni hefur ekki tekist að sanna sakleysi sitt og situr því á bisk- upsstóli sem _ meintur kynferðisaf- brotamaður. Ég mun ekki ganga í annað trúfélag og vona ég að sá dagur renni upp að hægt verði að treysta Þjóðkirkjunni til að horfast í augu við sannleikann og hún verði fær um að taka á máli eins og mínu. Hveijum getum við treyst ef við get- um ekki treyst prestunum okkar? SIGRÚN PÁLÍNAINGVARSDÓTTIR. Stundum ligg ég vakandi á nóttunni og spyr: Þá talar rödd til mín sem segir: „Reyndu að „Hvað get ég gert til að hindra það að líf mitt slappa af í hornunum.“ líði svo hratt?“ Hvað skal segja? 33 Væri rétt að segja: Þetta er hollt, þótt að það sé vont á bragðið. Svar: Orðið þótt er orðið til úr þó at, svo þótt að er eins kon- ar tvítekning (þó að að). Því er rétt að segja annað hvort: Þótt það sé vont eða: Þó að það sé vont. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.