Morgunblaðið - 17.10.1996, Síða 1
84 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
237. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Arafat bregst
reiður við til-
lögum Israela
Kaíró, Jerúsalem. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi sjálf-
stjórnarsvæða Palestínumanna,
varð í gær ókvæða við nýjum tillög-
um frá ísraelum og sagði þá vilja
að borginni Hebron á Vesturbakk-
anum yrði skipt milli araba og gyð-
inga. Arafat veifaði skjalinu reiði-
lega, lýsti tillögunum sem „harm-
leik“ og líkti þeim við kynþáttaað-
skilnaðarstefnuna í Suður-Afríku.
„Þetta er til marks um herská
markmið ísraela í Hebron og hel-
bert kynþáttahatur, sem mann
hryllir við,“ sagði Arafat. „Enginn
vafi leikur á því að tillögurnar valda
uppnámi og ekki aðeins meðal Pal-
estínumanna ... einnig í araba-
heiminum og út um allan heim.“
Netanyahu kveðst
bjartsýnn
Talsmaður Benjamins Netan-
yahus, forsætisráðherra ísraels,
sagði að í tillögunum væri ekki
gert ráð fyrir skiptingu Hebron en
vildi ekki ræða þær frekar. Form-
legar viðræður um brottflutning
ísraelskra hermanna frá borginni
hefjast að nýju í dag og Netanyahu
kvaðst ekki efast um að þær myndu
bera árangur.
ísraelar lögðu tillögurnar fram í
fyrrinótt. Að sögn Arafats vill stjórn
Netanyahus að Hebron verði skipt
í tvo hluta og að Israelar áskilji sér
rétt til að geta handtekið Palestínu-
menn í arabíska borgarhlutanum.
„Hvilikt kynþáttahatur! Þetta
gerðist ekki einu sinni í Suður-Afr-
íku,“ sagði Arafat eftir að hafa les-
ið heiti gatna sem Israelar vilja að
tilheyri gyðingum.
400 gyðingar búa á meðal
100.000 araba í Hebron.
Hætta sögð
á valdaráni
Virtur sérfræðingur í varnarmál-
um, Zeev Maoz, prófessor og yfir-
maður herfræðistofnunar Tel Aviv-
háskóla, sagði í gær að Netanyahu
treysti ekki æðstu yfirmönnum ísra-
elska hersins, teldi þá halla undir
Verkamannaflokkinn og hefði því
ekki samráð við þá þegar mikilvæg-
ar ákvarðanir væru teknar. Þetta
hefði valdið mikilli óánægju meðal
hershöfðingjanna, sem kynnu að
reyna að steypa forsætisráðherran-
um ef hætta skapaðist á stytjöld í
Miðausturlöndum.
Stjórnmálamenn og fyrrverandi
hershöfðingjar sögðu ekkert hæft í
því að hætta væri á valdaráni. Þeir
viðurkenndu hins vegar að djúp-
stæður ágreiningur hefði komið
fram milli stjórnarinnar og æðstu
manna hersins.
Reuter
Reuter
ALEXANDER Lebed, yfirmaður rússneska öryggisráðsins (t.v.), á blaðamannafundi þar *em hann
vísaði á bug ásökunum Anatolís Kúlíkovs innanríkisráðherra (t.h.) um að hann hefði undirbúið valdarán.
Kúlíkov fyrirskipar hert öryggiseftirlit í Rússlandi
Framliðið þing-
mannsefni auglýst
Tókýó. Reuter.
FRAMLIÐNIR nienn mega ekki
kjósa í þingkosningunum i Japan
á sunnudag, samkvæmt kosninga-
löggjöf landsins, en reglurnar eru
hins vegar svo strangar að einn
stjórnarflokkanna verður að birta
sjónvarpsauglýsingar þar sem
framboð látins manns er kynnt.
Saburo Toida, fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, iést á kosninga-
ferðalagi í vikunni sem leið og
hann er enn á meðal frambjóð-
enda í auglýsingum Frjálslynda
lýðræðisflokksins sem sýndar eru
daglega. Ástæðan er sú að innan-
ríkisráðuneytið þvertekur fyrir
að auglýsingunum verði breytt,
forystumönnum flokksins til mik-
illar gremju.
Ráðuneytið segir að bannað sé
að breyta kosningaaugiýsingum
eftir að þær hafa verið lagðar
fram til útsendingar. Kosninga-
löggjöfin kveði og á um að ekki
sé hægt að fella niður auglýsingar
nema ailir frambjóðendur tiltek-
ins flokks í einu kjördæmanna
falli frá.
g«|BBj Mg&gapw1
Sakar Lebed um
valdaránsáform
Moskvu. Reuter.
HARKA færðist í valdabaráttuna í
Kreml í gær þegar Anatolí Kúlíkov
innanríkisráðherra fyrirskipaði hert
öryggiseftirlit í stærstu borgum
Rússlands og sakaði Alexander
Lebed, yfirmann rússneska öryggis-
ráðsins, um að hafa lagt á ráðin um
valdarán með aðstoð Tsjetsjena.
Lebed vísaði þessu á bug og kvaðst
ætla að höfða mál gegn innanríkis-
ráðherranum.
Kúlíkov kvaðst hafa fyrirskipað
aukinn öryggisviðbúnað vegna upp-
lýsinga frá leyniþjónustunni um að
aðskilnaðarsinnar í Tsjetsjníju væru
að undirbúa árásir í Rússlandi.
„Lebed hefur ákveðið að láta til skar-
ar skríða og beita valdi í stað þess
að bíða eftir næstu forsetakosning-
um,“ sagði Kúlíkov á blaðamanna-
fundi í Moskvu.
Jeltsín óskar skýringa
„Vesalings maðurinn hefur mis-
skilið allt,“ sagði Lebed, sem hefur
háð harða valdabaráttu við Kúlíkov
og fleiri embættismenn í Kremi.
Daginn áður hafði Jeltsín krafist
þess að embættismennirnir hættu
að „munnhöggvast", en þeir hafa
einkum deilt um friðarsamningana
við tsjetsjenska aðskilnaðarsinna
sem Lebed undirritaði í ágúst.
Borís Jeltsín forseti, sem á að
gangast undir hjartaskurðaðgerð um
miðjan næsta mánuð, óskaði eftir ít-
arlegum upplýsingum um ásakanirn-
ar frá Viktor Tsjemomýrdín forsætis-
ráðherra. Fréttastofan RIA sagði að
Tsjernomýrdín hefði boðað yfirmenn
leyniþjónustunnar, vamarmálaráð-
herrann og Kúlíkov á sinn fund í dag
vegna málsins. Ekki var vitað hvort
Lebed yrði viðstaddur.
Kúlíkov hélt því fram að Tsjetsj-
enar hefðu lofað að sjá Lebed fyrir
1.500 skæruliðum til að aðstoða við
valdaránið í Moskvu. „Við höfum
uppiýsingar um að hann ætli að taka
sér frí bráðlega til að undirbúa
valdarán,“ sagði Kúlíkov og kvaðst
hafa afhent forsætisráðherranum
upplýsingar um áform Lebeds.
Hvalkálfi
bjargað
BJÖRGUNARMENN reyna að
bjarga hvalkálfi sem rak á land
nálægt Coolum á Gullströndinni
í Ástralíu í gær. Mönnunum tókst
að toga kálfinn til hafs eftir sjö
klukkustunda streð. Straumur-
inn hafði borið hann að landi
eftir að hann synti í hákarlanet.
London. Reuter.
BRESKA stjórnin kynnti í gær áætlanir sínar
um einhver ströngustu byssuiög í heimi en
samkvæmt þeim verður næstum öll skamm-
byssueign bönnuð í landinu. Er hér um að
ræða viðbrögð hennar við fjöldamorðunum í
Dunblane í mars sl. en þá myrti geðveill maður
16 börn og kennara þeirra.
Michael Forsyth Skotlandsmálaráðherra
sagði, að lögin myndu banna að minnsta kosti
80% af þeim 200.000 skammbyssum, sem leyfi
er fyrir í Bretlandi og verður óbreyttum borgur-
um aðeins leyft að eiga skammbyssur, sem
taka eitt skot og eru með hlaupvíddinni .22.
Bretar banna
skammbyssur
Eru þær aðallega notaðar í skotkeppni og skil-
yrðið er að þær verði geymdar í læstum hirslum
í húsakynnum byssufélaga. Auk þess verður
stórhert á kröfum um öryggi og gæslu hjá slík-
um félögum.
Foreldrasamtök í Dunblane gengust fyrir
undirskriftasöfnun þar sem krafist er algers
banns við skammbyssueign og söfnuðust
750.000 undirskriftir. Hefur Verkamannaflokk-
urinn gert það mál að sínu og talsmaður hans
í Skotlandsmálum, George Robertson, skoraði
á ríkisstjórnina að ganga alla leið og banna
skammbyssur án undantekninga. Börn Robert-
sons sækja skólann í Dunblane þar sem voða-
verkið var unnið.
Breska stjórnin gæti þurft að ganga lengra
en hún hefur ráðgert þar sem ýmsir af þing-
mönnum íhaldsflokksins eru hlynntir algjöru
banni við skammbyssum.