Morgunblaðið - 17.10.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.10.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 19 ERLENT Hvetja til að Dúman stað- festi START-2 Moskvu. Reuter. ÍGOR Rodíonov og William Perry, varnarmálaráðherrar Rússlands og Bandaríkjanna, hvöttu til þess í gær, að START-2 samkomulagið um takmörkun langdrægra kjarna- vopna, yrði staðfest óbreytt og skjótt í rússneska þinginu. Bandaríkjaþing hefur staðfest START-2 samkomulagið sem leitt gæti til þess, að kjarnaoddum fækk- aði niður í þriðjung þess sem þeir voru við iok Kalda stríðsins. Rodíonov sagðist vilja að sam- komulagið yrði staðfest þrátt fyrir efasemdir um gildi þess í Rússlandi og fyrirhugaða stækkun Atlants- hafsbandalagsins (NATO) til aust- urs. „Ég er ekki einungis hlynntur staðfestingu þess, heldur er ég fylgjandi því, að nýtt samkomulag, START-3, verði gert til þess að halda áfram fækkun vopna,“ sagði Rodíonov. Perry kom í gær í jjriggja daga heimsókn til Moskvu. I dag ávarpar hann Dúmuna, neðri deild rúss- neska þingsins, þar sem hann mun freista þess að sannfæra þingmenn um ávinning þess að staðfesta START-2. Flestir andvígir Rodíonov neitaði að spá um hvað þingið gerði, sagði ræðu Perrys Talebanar hafna úrslitakostum stjórnar Rabbanis Hvatt til friðarsamninga Kabúl. Rcuter. HART var barist norður af Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær en Talebanar virðast hafa stöðvað að mestu sókn stríðsherrans Ahmed Shah Masoods. Utanríkisráðherra Burhanuddins Rabbanis, forsætis- ráðherrans sem Talebanar hröktu frá Kabúl, hvatti þá í öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna til að yfírgefa borg- ina til að komist yrði hjá blóðbaði en þeir höfnuðu tilmælunum. Andstæðingar Talebana hafa hót- að að hrekja þá á brott frá Kabúl með valdi. Ráðherrann, Abdul Rahim Ghafoorzai, hvatti til þess að fengið yrði alþjóðlegt löggæslulið til að halda uppi lögum og reglu í höfuð- borginni. Færu Talebanar á brott gæti það leitt til þess að viðræður hæfust milli stríðandi aðila um mynd- un þjóðstjórnar. Fundur Talebana og Dostums Stjómvöld í íran hvöttu í gær til friðsamlegra lausna á deilunum og Pakistanar reyna ákaft að miðla mál- um. Heimildarmenn sögðu að fulltrúi Talebana hefði í gær í fyrsta sinn átt fund með einum af öflugustu stríðs- herrunum í norðri, Abdul Rashid Dostum, sem hefur lýst yfir stuðningi við Rabbani og Masood en ekki stutt þá með hermönnum. Viðstaddur fund- inn var einnig pakistanskur ráðherra og stríðsherra úr röðum shíta- múslima, Karim Khalili. Ekki er vitað hve mikið mannfall hefur orðið í bardögunuum að undan- fömu en Alþjóða rauði krossinn í Genf skýrði frá því í gær að um 800 manns hefðu særst norðan við Kabúl og sjúkrahús væru yfirfull. geta ráðið miklu og einnig lund þingmanna, sem flestir virðast vera andvígir samkomulaginu. Perry sagði, að niðurstaða þings- ins hefði engin áhrif á áform um stækkun NATO. Það yrði dýru verði keypt, staðfestu Rússar ekki START-2. Kostnaður við að halda vopnunum við yrði á endanum miklu meiri en kostnaðurinn af eyð- ingu þeirra. Reuter WILLIAM Perry og ígor Rodíonov, við upphaf þriggja stunda fundar þeirra í Moskvu í gær. Bauð Rúss- um héruð í Lapplandi URHO Kekkonen, forseti Finn- lands, bauð sovéskum ráða- mönnum norðausturhéruð Lapplands í skiptum fyrir landssvæði, sem Finnar töpuðu í Vetrarstríðinu við Viborg við botn Finnskaflóa, samkvæmt frétt í Svenska Dagbladet. Málið náði ekki fram að ganga því að Leoníd Brezhnev Sovét- leiðtogi hafnaði tillögunni. Þessu er haldið fram í nýrri bók Juhani Suomi um þriðja kjörtímabil Kekkonens. Kekkonen bar upp tillöguna fyrst árið 1968 í Moskvu er Sovétmenn reyndu að fá Finna til þess að taka upp stjórn- málasamband við Austur- Þýskaland. Setti hann það sem skilyrði að Finnar fengju Vi- borg og nágrenni í staðinn. Til þess að ýta undir áhugann bauð hann þeim héruðin Enare og Utsjoki í Lapplandi -sem deila að mestu landamærum með Noregi- í kaupbæti. Suomi segir, að Kekkonen hafi ekki sagt neinum finnsk- um ráðamönnum frá tillögum sínum, ekki einu sinni Mauno Koivisto forsætisráðherra. Hefðu tillögur Kekkonens komið fram í dagsljósið hefðu þær ekki aðeins leitt til heift- ugra deilna heima fyrir, heldur einnig á alþjóðavettvangi, að sögn sagnfræðinga. Talabani treyst- ir stöðu sína Baghdad. Reuter. HERSVEITIR Kúrdaleiðtogans Jalals Talabanis efldu í gær stöðu sín við mikilvægustu borg Kúrda- héraðanna í írak, Arbil. Taiabani sagði í viðtali við tyrkneska sjón- varpið á þriðjudagskvöld að herir hans myndu þó ekki reyna að taka borgina með áhlaupi en bíða og sjá hvað kæmi út úr friðartilraunum Bandaríkjamanna. íröskum leiðtogum þykir sem þeir hafi, þvert á eigin vonir, engan ávinning haft af því að styðja sveit- ir Massouds Barzanis, leiðtoga Lýð- ræðisflokks Kúrdistans (KDP), fyr- ir hálfum öðrum mánuði. Þær náðu þá Arbil og fleiri borgum úr klóm sveita Talabanis sem er leiðtogi Þjóðfylkingar .Kúrdistan (PUK). Barzani hefur síðan gætt þess vandlega að leggja áherslu á sjálf- stæði sitt gagnvart Saddam Huss- ein íraksforseta þrátt fyrir stuðn- inginn. „íraskt herlið ver Arbil,“ sagði Talabani í viðtalinu. „Ef við gerum árás mun það leiða til samvinnu milli KDP og íraska liðsins". Á sunnudag endurheimtu sveitir Talabanis Sulaimaniya, næst stærstu borg Kúrdahéraðanna. Hafa þær síðan endurheimt nær öll þau landssvæði, sem þeir misstu í átökunum við sveitir Barzanis. Á mánudag hvöttu stjórnvöld í Bagdad deiluaðila til sátta og buð- ust til að miðla málum. Irönsk stjórnvöld mótmæltu því, að þau stæðu á bak við sókn Talabanis en andstæðingar hans segja hann njóta hernaðaraðstoðar Irana. Bandarísk stjórnvöld hafa varað jafnt íraka sem Irana við að skipta sér af deilum Kúrda. Hafa þau freistað þess að undanförnu, að fá fylkingarnar tvær, KDP og PUK, til að semja um frið og sameinast um að efla hlut Kúrda í norðurhlut- anum í stað þess að berast á bana- spjót. Perúski herinn leitar skæruliðaforingja Skínandi stígnr fær- ist í aukana Lima. Reuter. UM 2.000 perúskir hermenn hafa á síðustu dögum leitað að for- ingja skæruliðasamtakanna Skín- andi stígs í Andesfjöllum en þau hafa verið að færa sig upp á skaft- ið að undanförnu með morðum oghryðjuverkum. í leitinni að skæruliðaforingj- anum, Oscar Ramirez Durand eða „félaga Feliciano", hefur herinn náð á sitt vald fjórum æfingabúð- um skæruliða og handtekið 11. Hafa sex skæruliðar og þrír her- menn fallið í átökum. Hugsanlegt er talið, að Ram- irez hafi gengið hermönnunum úr greipum en samtökin hafa verið að færast í aukana upp á síðkastið eftir áfallið, sem þau urðu fyrir 1992 þegar leiðtogi þeirra, Abimael Guzman, var handtekinn. Talið er, að hernaður Skínandi stígs og annarrar smærri hreyfingar, Tupac Am- aru, hafi kostað 30.000 Perú- menn lífið frá 1980 og beint fjár- hagstjón er metið á 1.650 millj- arða ísl. kr. Sony KV-29X1 sjónvarp frá Japis að verðmæti 109.650 kr. JAPIS Ferð fyrir 2 til Dublin með Samvinnuferðum-Landsýn að verðmæti 70.000 kr. ggmyj[j[/fg/i[j jp.[ g[j (jgý[J Francital hlífðarjakki frá Skátabúðinni að verðmæti 12.990 kr. SKATABUÐIN -SkAKAK FKAMMK 5.-14. Heimsbyggðin Bók frá Máli og menningu að verðmæti 7.980 kr. hver. Mál iff I og menning Þú færð SAFNK0RT á næstu ESSO-stöð SAFNKORT ESSO - enginn kostnaður, aðeins ávinningur! <0)i Olíufélagið hf —50 ára ~ í Safnkortspotti októbermánaðar eru margir girnilegir vinningar eins og sjá má - og enn er tími til að vera með. í hvert skipti sem þú notar Safnkortið fer nafnið þitt í pottinn og möguleikar þínir aukast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.