Morgunblaðið - 17.10.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.10.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bandarísk öryggisstofnun Yilja breytingar áBoeing 737 EMBÆTTISMENN samgöngu- mála í Bandaríkjunum mæltu í gær með því að þegar yrðu gerðar umfangsmiklar breytingar á hlið- arstýrisbúnaði Boeing 737 far- þegavéla til að reyna að koma í veg fyrir óútskýrðar sviptingar í stillingu búnaðarins rétt fyrir lend- ingu. Loftferðaeftirlit Bandaríkjanna (FAA) lagði til breytingar í sömu veru í sumar og sagði talsmaður stofnunarinnar að nýju tillögurnar yrðu skoðaðar gaumgæfilega áður en tekin yrði afstaða til þeirra. Einar Sigurðsson aðstoðarmað- ur forstjóra Flugleiða sagði að breytingarnar sem bandarísku stofnanirnar mæltu með væru í mörgum liðum. Sumum þeirra hefði þegar verið hrint í fram- kvæmd hjá félaginu, aðrar ættu aðeins við eldri gerð véla en Flug- leiðir notuðu og loks væri enn beðið eftir fyrirmælum frá Boeing og FFA um nokkrar af breytingun- um. Þegar um væri að ræða atriði sem teldist mjög brýnt að laga væri umsvifalaust bannað að fljúga vélunum en svo væri ekki í þessu tilfelli. Flugleiðir myndu þegar grípa til frekari ráðstafana sem FAA færi fram á þegar og ef tilmæli bærust um slíkt frá stofnuninni. Það er Öryggisstofnun sam- göngumála í Bandaríkjunum sem leggur tillögurnar fram vegna þess að óskýrð flugslys hafí orðið, þ.á m. í Pittsburgh fyrir tveimur árum, en talið er að orsakir þess megi rekja til fyrmefndra sviptinga. Aðstoðarframkvæmdastjóri VSÍ um vinnutímatilskipun ESB 11-12 stunda yfir- vinna innan ramma HANNES G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands íslands, segist telja að 11 til 12 greiddir yfirvinnutímar á viku rúmist innan ramma vinnutíma- tilskipunar Evrópusambandsins. Að- ilar vinnumarkaðarins em nú að hefja viðræður um það hvemig laga megi kjarasamninga að ákvæðum tilskipunarinnar, sem kveður m.a. á um að vinnutími skuli ekki vera lengri en 48 stundir á viku að jafn- aði. Hannes segir að í tilskipuninni sé miðað við virkan vinnutíma, en hér á landi sé virkur vinnutími í dagvinnu yfirleitt ekki nema 37 stundir, þótt 40 stundir séu greidd- ar. Þijár klukkustundir vikulega fari í kaffitíma. Þá sé heldur ekki öll yfirvinna, sem greitt er fyrir, virkur vinnutími. „Svigrúmið er því ekki átta tímar, heldur á milli ellefu og tólf tímar í yfirvinnu," segir Hannes. „Það breytir ekki því að hér er víða í gildi samningsbundinn vinnutími, sem er miklu meiri en þetta.“ Markmiðið að hér verði breytingar Hann segir markmiðið með samningum um tilskipunina að hér verði breytingar á skipulagi vinnu- tíma og að meginreglan um 48 stunda vinnuviku verði virt. Hins vegar þurfí að gera ráð fyrir frávik- um í greinum, þar sem mikil árs- tíðabundin uppgripavinna sé, til dæmis í loðnuvinnslu. Hannes segir að einn fundur hafí þegar verið haldinn með ASÍ um aðlögun kjarasamninga að til- skipun ESB. „Á þessu stigi málsins er ekki útlit fyrir annað en að við og verkalýðshreyfíngin getum náð saman um texta, sem verður grund- völlur fyrir framkvæmd tilskipunar- innar,“ segir hann. Hannes segist ekki átta sig á þvi hvað Halldór Grönvold, skrifstofu- stjóri ASÍ, eigi við þegar hann seg- ir í Morgunblaðinu í gær að viðræð- ur um framkvæmd vinnutímatil- skipunarinnar tengist umræðum um launa- og kjaramál í víðum skilningi. „í okkar huga eru þetta aðskilin mál og það er ekkert þarna til kaups eða sölu að mínu mati,“ segir Hannes. Kirkjuþing Afnámi ævi- ráðninga mótmælt Á KIRKJUÞINGI í gær var rætt um frumvarp á Alþingi um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. I frumvarpinu er m.a. lagt til að æviráðning presta verði afnum- in og að prestar verði ráðnir til fimm ára í senn. Séra Einar Þór Þorsteinsson, sóknarprestur á Eiðum, lagði til á kirkjuþingi að prestar verði áfram æviráðnir en ekki staðbundnir, þannig að biskup geti á fímm ára fresti flutt presta á milli presta- kalla. Einar furðaði sig á því að ekki skyldi hafa verið haft samráð við stofnanir kirkjunnar hvað varðar niðurfellingu á æviráðningu en með því telur hann að Alþingi hafi brotið lög um kirkjuþing. Morgunblaðið/Þorkell Tillaga jafnaðarmanna um valdsvið þingsins Yilja efla eftirlits- hlutverk Alþingis Einbeittir við vinnuna ÞAU er ófá handtökin sem þarf við byggingu stórhýsis og ekki síst þegar framkvæmdahraðinn er mikill, eins og raunin er með nýja viðbyggingu við Borgar- kringluna. Hún á meðal annars að hýsa þriggja sala kvikmynda- hús og er stefnt að því að fram- kvæmdum Ijúki að mestu um miðj an næsta mánuð. Skipveijarn- ir á Jonnu SF taldir af SKIPVERJARNIR þrír á Jonnu SF 12, sem fórst undan Meðallands- fjörum á sunnudagskvöld, eru nú taldir af. Víðtæk leit að mönnunum hefur ekki borið árangur. í fréttatilkynn- ingu frá sýslumanninum í Vík segir að leit verði þó haldið áfram og fjör- ur gengnar daglega næstu daga og með reglulegu millibili næstu vikur. Skipveijar á Jonnu voru Jón Gunnar Helgason skipstjóri, 41 árs, kvæntur fjögurra barna faðir; Vign- ir Högnason, 32 ára vélstjóri, lætur eftir sig sambýliskonu, tvö börn og tvö fósturbörn; og Guðjón Kjartan Viggósson, 18 ára háseti. BLAÐINU í dag fylgir tólf síðna auglýsingablað frá Hagkaupi. Tillaga á kirkjuþingi Þáttur leikmanna verði aukinn HEIMILD þingnefnda til að halda rannsóknarfundi fyrir opnum tjöldum var eitt þeirra atriða, sem deilt var um á Alþingi í gær, er frumvarp fimm þingmanna jafn- aðarmanna um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis var tekið til fyrstu umræðu. Fyrsti flutningsmaður frum- varpsins er Jóhanna Sigurðardótt- ir. Hún sagði brýnt að nefndir þingsins fengju aukið vald til að efla eftirlitshlutverk löggjafar- valdsins með framkvæmdavald- inu. Staða þingsins gagnvart lög- gjafarvaldinu væri veik, þrátt fyr- ir að samkvæmt stjómarskrá eigi hið þjóðkjöma löggjafarþing að vega þyngst meðal valdastofnana stjórnkerfísins. Lýsti Jóhanna þessari stöðu þingsins með því að segja að það starfaði sem fram- kvæmdavaldsþing. Þær breytingar sem lagðar væru til með frumvarpinu myndu bæta nokkuð úr þessu ástandi. Þingnefndirnar fengju vald til að taka upp mál að eigin frumkvæði og efna til sérstakrar rannsóknar um valin mál. Slík rannsókn færi fram fyrir opnum tjöldum, nema nefndin ákvæði annað. Nefndin hefði rétt til að krefjast nauðsyn- legra gagna er málið vörðuðu og heimta skýrslur, munnlegar og skriflegar, af embættismönnum og öðrum. Endurskoðun í gangi í umræðum um frumvarpið kom fram mikill áhugi þingmanna á að efla hlutverk þingsins og starf þingnefndanna, en nokkrir þing- menn lýstu efasemdum um ágæti þess að láta rannsóknarfundi nefnda fara fram fyrir opnum tjöldum, eins og lagt sé til í frum- varpinu. I Bandaríkjunum og víðar hafa slíkir opnir rannsóknarfundir tíðkazt lengi (hearings) og þó sum- ir þingmenn hefðu lýst hrifningu sinni á slíku fyrirkomulagi sögðu aðrir að slíkt hentaði lítt íslenzkum aðstæðum. Ólafur G. Einarsson, forseti Al- þingis, kvað það lítilli furðu sæta að þar að lútandi stjómarskrár- ákvæði hefði verið beitt í miklu hófi (síðast 1956) sem heimilaði Alþingi að setja á fót sérstakar rannsóknarnefndir þar sem um pólitískar rannsóknarnefndir væri að ræða. Því væri eðlilegt að ágreiningur væri um beitingu þeirra. Annars sagðist Ólafur fagna frumvarpinu þar sem það væri til þess fallið að halda umræð- um um starfshætti þingsins og valdsvið þess á lofti sem ekki væri vanþörf á. En hann benti á að um þessar mundir væri unnið að heildar- endurskoðun á þingskaparlögum og heppilegast væri að allar breyt- ingartillögur þar að lútandi yrðu meðhöndlaðar samtímis sem hluti af heildarendurskoðuninni. Að því leyti væri frumvarpið ótímabært. NEFND sem fjallað hefur um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar að undanfömu mun leggja fram nokkrar tillögur um breytingar á starfsháttum kirkjuþings. Lagt verður til að þáttur leik- manna í stjóm kirkjunnar verði aukinn með því að fjölga fulltrúum þeirra á kirkjuþingi; þeir verði 13 talsins en vígðir menn verði 9. Einn- ig verður lagt til að biskup íslands njóti ekki lengur atkvæðisréttar á kirkjuþingi og meirihluti nefndar- innar er þeirrar skoðunar að biskup skuli ekki gegna embætti forseta kirkjuþings. „Óeðlilegt er samkvæmt stjórn- sýslulögum að biskup gegni bæði embætti forseta kirkjuþings og kirkjuráðs," sagði séra Gunnar Kristjánsson í samtali við Morgun- blaðið en hann á sæti á nefndinni. „Ef stjómsýslu verður létt af bisk- upi mun hann betur geta sinnt andlegum málum, hinum eiginlegu biskupsstörfum,“ sagði hann. Framvarp liggur fyrir Alþingi um stöðu, stjóm og starfshætti kirkjunnar. Ef þau verða að lögum mun stjórnsýsla kirkjunnar aukast til muna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.