Morgunblaðið - 17.10.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 23
LISTIR
* _____________
Sinfóníuhljómsveit Islands flytur Esju, sinfóníu Karls 0. Runólfssonar, í fyrsta sinn í 28 ár
„Sannkölluð
tónakrás“
„ESJA á eftir að koma tónleikagest-
um í opna skjöldu enda er hér á
ferð sannkölluð tónakrás, samin af
mikilli fagmennsku. í mínum huga
er um hreina uppgötvun að ræða
en ég hafði hvorki heyrt tónskálds-
ins né verksins getið áður,“ segir
bandaríski hljómsveitarstjórinn
Andrew Massey, sem mun standa
í eldlínunni á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskólabíói
í kvöld, en umræðuefnið er sinfónía
Karls 0. Runólfssonar, Esja op. 57,
sem verður nú leikin í fyrsta sinn
á tónleikum frá því hún var frum-
flutt árið 1968.
.Vegna anna hafði Massey ekki
tök á að byija að kynna sér verkið
fyrr en í liðinni viku. „Eg hefði að
ósekju kosið rýmri tíma því ég er
alltaf að uppgötva eitthvað nýtt á
hveijum degi. Það er með ólíkindum
að þetta verk hafi verið látið safna
ryki í allan þennan tíma, því það
er vel þess virði að vera flutt reglu-
lega. Eg hef til að mynda í hyggju
að bæta því við efnisskrá mína í
Bandaríkjunum.“
Að sögn Masseys er Esja maka-
laust fjölbreytt og vel uppbyggð
sinfónía, þar sem skiptast á drunga-
legir, gleðilegir og feikilega lagræn-
ir kaflar - „ég stend mig stöðugt
að því að raula hina ýmsu kafla.“
Greinir hljómsveitarstjórinn áhrif
úr ýmsum áttum, svo sem frá Síbel-
íusi, Wagner og Grieg, en áréttar
að Karl hafi bersýnilega haft per-
sónulegan stíi. Endurspeglist hann
ekki síst í ríkri áherslu á málmblást-
urshljóðfæri en, sem kunnugt er,
var Karl jafnframt trompetleikari,
meðal annars í Sinfóníuhljómsveit
íslands. „í Esjunni fá básúnuleikar-
arnir til dæmis virkilega að láta Ijós
sitt skína.“
Hvað skrifaði hann fleira?
Massey telur margt benda til að
Karl 0. Runólfsson hafi ekki notið
sannmælis sem tónskáld. „Eftir að
hafa kynnst Esju brennur aðeins
ein spurning á manni: Hvað skrif-
aði hann fleira? Hugsanlega gæti
maður átt von á fleiri gullmolum.“
Tónlist í leynum er sérstakt
áhugamál Masséys sem hefur lengi
kostað kapps um að draga góð tón-
verk, sem einhverra hluta vegna
hafa fallið í gleymskunnar dá, fram
í dagsljósið. „Mín reynsla er sú að
yfirleitt falla þessi tónverk hlust-
endum vel í geð, þótt þeir viti ekki
hvaðan á þá standi veðrið þegar
þeir skoða efnisskrána. Eftir kynni
mín af Esju hef ég ástæðu til að
ætla að fleiri tónverk af þessu tagi
sé að finna á íslandi."
Massey ber jafnframt lof á Sin-
fóníuhljómsveit íslands - það sé í
raun fáranlegt að ekki stærri borg
en Reykjavík geti státað af hljóm-
sveit í svona háum gæðaflokki. „Ég
var um tíma aðalstjórnandi Fíl-
harmóníuhljómsveitar Rhode Is-
iand, sem er mun stærra samfélag
en Reykjavík, en hún komst ekki í
hálfkvisti við Sinfóníuhljómsveit ís-
lands.“
Mjög færir hljóðfæraleikarar
Að mati Masseys eru hljóðfæra-
leikararnir mjög færir, ekki síst
strengjadeildin, og þótt það séu ekki
nema sex selló á sviðinu gefi Sinfón-
íuhljómsveit góðum hljómsveitum
með tíu selló ekki þumlung eftir.
Jafnframt kemur fram á tónleik-
unum í kvöld píanóleikarinn Miklos
Dalmay sem hlýtur TónVakann,
tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins, í
ár. Er hann fæddur í Ungverjalandi
og hefur starfað við tónlistar-
kennslu og -flutning í heimalandi
sínu, í Svíþjóð og síðustu árin á
íslandi. Er Dalmay nú búsettur á
Flúðum og kennir við tónlistarskóla
Árnessýslu, auk tónlistarskóla á
höfuðborgarsvæðinu.
Benjamín
dúfa hlýtur
Gullna
fiðrildið
KVIKMYNDIN Benjamín dúfa
eftir Gísla Snæ Erlingsson hlaut
um helgina „Gullna fiðrildið".
Það eru verðlaun fyrir bestu
kvikmyndina á alþjóðlegri kvik-
myndahátíð barna og unglinga-
mynda í Kerman í íran. Varafor-
seti Irans afhenti Gísla Snæ
Erlingssyni verðlaunin í beinni
útsendingu í íranska sjónvarp-
inu.
Baldur Hrafnkell Jónsson hjá
Bladur Film sem framleiðir
myndina sagði í samtali við
Morgunblaðið að þessi verðlaun
væru kærkomin. „Þau koma á
mjög góðum tíma því við erum
að fara með myndina á einn
stærsta kvikmyndasölumarkað í
heimi, MIFED í Mílanó á Ítalíu.
Væntanlega munu þessi verð-
laun ásamt hinum sex sem
myndin hefur fengið hjálpa okk-
ur enn frekar við að dreifa
henni. Þessi verðlaun gefa okk-
ur líka von um að komast inn á
Arabíumarkað. Myndin hefur
ekki enn borgað sig en við bú-
umst við að hún geri það, dreif-
ing erlendis er grundvöllurinn
að því.“ I lok þessarar viku
hefst dreifing á myndinni hér á
landi sem sölumyndband.
Benjamín dúfa hefur nú verið
sýnd á kvikmyndahátíðum víða
um heim og þegar hlotið 7 al-
þjóðlegar viðurkenningar.
Myndin heldur áfram ferðalagi
um kvikmyndahátíðir heimsins
og á eftir að taka þátt í a.m.k.
á þriðja tug þeirra.
ÚR KVIKMYNDINNI Benjamín dúfa. Guðbjörg Thoroddsen og
Sigfús Sturluson í hlutverkum sinum.
Helena
RlIBíNSTElN.
Kynnum
haustlitina
í dag og á
morgun.
Glæsileg snyrtitaska
ásamt vöru fylgir
þegar keyptir eru 2
eða fleiri hlutir af
haustlitunum.
Fjöldi annarra
tilboða.
Bankastræti 8, sími 551 3140
VOGABÆR
190 Vogar Sími: 424 6525
Létt og kólesterólskert
yo*GÁ
IWFA
Létta útgáfan af hinni
vinsælu Voga kryddídýfi