Morgunblaðið - 17.10.1996, Side 35

Morgunblaðið - 17.10.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 35 I I I 1 ! I I I 1 i i 1 i i i i < < < < < ( i < MINNINGAR eftir að sjá hana meir og ekki verða fleiri símtölin út til að heyra í henni. Það var svo skrítið að þegar við töluðum við hana áður en hún fór á spítalann, var eins og hún vissi að hún ætti ekki eftir að koma heim aftur og það var rétt, en amma var mjög næm á marga hluti og vissi þvi oft meira en maður sjálfur. Hún var mjög lokuð á tilfinningar sínar og það var ekki hennar sterka hlið að láta þær í ljós því ef maður spurði hvernig hún hefði það eða hvernig henni liði var svarið alitaf mér líður vel, það er ekkert að mér. Að kvarta yfir hlutunum gerði hún heldur aldrei. Amma var baráttukona mikil allt til dauðadags. 8. júní 1988 missti hún elsku afa en þá dó stór hluti af henni sjálfri um leið, það var eins og heimurinn hefði hrunið enda voru amma og afi mjög samrýnd og háð hvort öðru. Fjarlægðin var mikil á milli enda bjó amma í London þann- ig að það var ekki hægt að hoppa upp í næsta strætó til að fara í heim- sókn, í staðinn var meira um síma- samband og það var ekki svo sjaldan að maður hringdi og spurði hvað hún væri að gera að svarið væri ég er að pússa gluggana og skipta um eldhúsgardínur, því þannig var amma hún, þurfti alltaf eitthvað að vera að gera. Ef hún var ekki að þrífa eða eida þá var hún að hugsa um aðra, skipti þá ekki máli hvort það var fjölskyldan, nágrannar eða sjúklingar sem höfðu farið til London í hjartaaðgerð. Því eins og áður hef- ur komið fram aðstoðaði hún íslend- inga sem fóru til London í hjartaað- gerð og heyrði maður ekki svo sjald- an sagt: „Eg er að fara upp á Bromp- ton spítala að hitta íslendinga,“ og skipti þá ekki máli á hvaða tíma sólarhringsins það var. Amma átti mikið af ættingjum og vinum hér heima fyrir utan fjölskyld- una sem eiga eftir að sakna hennar mikið og það er svo skrítið að hugsa til þess að nú þegar líða fer að jólum þá á maður ekki eftir að senda henni neinar smákökur í jólaboxi sem henni þótti svo gott að fá. En nú hafa leið- ir okkar skilið tímabundið og minn- ingar það eina sem eftir er, en við vitum að elsku amma er sátt því nú er hún komin þangað sem hún hefur beðið eftir, til elsku afa. Elsku amma, takk fyrir að hafa verið til. Nú legg ég aupn aftur ó Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt, Æ virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka, þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson) Hafðu þökk fyrir allt og allt, þín elskandi barnabörn. Anna, Guðrún, Karl og Reynir. Frú Anna Cronin lést á Hamm- ersmith sjúkrahúsinu í London 12. ágúst sl. Ég kynntist þeim sæmdarhjóinum Önnu og James árið 1978 þegar við hjónin fórum með dóttur okkar í hjartaskurðaðgerð í Brompton Hosp- ital í London. Tókst með okkur Önnu góð vinátta. Anna var einstök mann- eskja, alltaf tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd og nutum við hjónin og dóttir okkar hjartahlýju hennar. Má þar nefna að þær fimm vikur sem dóttir okkar var á sjúkrahúsinu kom Anna alltaf færandi hendi með leik- föng eða góðgæti og studdi James hana í þessu fómfúsa starfi. Viljum við hjónin þakka Önnu allar sam- verustundimar sem við áttum saman á heimili hennar í London sem stóð okkur alltaf opið með hennar frá- bæm gestrisni og hlýju og allar heimsóknirnar til okkar í Keflavík. Sendum við hjónin fjölskyldu hennar innilegustu samúðarkveðj- ur. Guð blessi minningu þína, kæra vinkona. Ingibjörg Magnúsdóttir. Mig langar að minnast hennar Önnu minnár, sem gaf mér um- hyggju þegar ég þarfnaðist hennar. Eg kynntist Önnu og Jimmy þeg- ar ég fór í mína fyrstu utanlands- ferð í þeim tilgangi að fyigja móður minni í hjartaaðgerð í Hanimersmith sjúkrahúsið í London. Ég þakka Maríu og Páli sem ég hitti þar að kynna mig fyrir þeim Önnu og Jimmy. Þau tóku mér opnum örm- um, umvöfðu mig með svo miklum kærleika þessi tíu ár sem ég var að koma nokkrum sinnum með sjúkl- inga, að mér fannst ég vera ein af fjölskyldunni. Anna mín var þeirrar gæfu aðnjótandi að láta gott af sér leiða, að hjálpa öðrum, liðsinna og veita þeim íslensku sjúklingum og þeim sem komu með þeim stórkost- lega umhyggju. Jimmy og drengirnir þeirra tóku mikinn þátt í hennar hjálpsemi. Anna vann í fullu starfi utan heimil- isins og hún fékk góða aðstoð frá Jimmy um helgar er hún var að aðstoða landa sína. Þá var hann á fullu heima að ryksuga, skrúbba og bóna. Hann fór líka í heimsókn- ir til íslensku sjúklinganna með henni eða einn. Éinnig minnist ég þess að hún matreiddi oft mikið magn. Og eftir að fjölskyldan var byijuð að borða, þá tók hún til skammt af mat á bakka, pantaði leigubíl og færði þeim sjúklingum sem voru einir og þeim sem höfðu litla matarlyst á sjúkrahúsfæðunni matinn. Margir gistu á heimili þeirra og oft var það margt um manninn að þau sváfu á gólfinu í borðstofunni. Anna og Jimmy gáfu mér mikið af krafti, orku, styrk og kærleika, þessi skipti sem ég naut þeirra hjálp- semi og gestrisni. Kæru Bíbi, Jóhanna, John, Benni, Bill, George, Phil og fjölskyldur. Við vottum ykkur innilega samúð vegna fráfalls ykkar yndislegu móður. Erna S. Einars og fjölskylda. Hæð 87cm^ Breidd lOOcm _ Dýpt!57cm ■EHjimr Hæð B7cm reidd 130cm Dýpt 57cm flfeðl reynrEC ^Hæð (87cm Breidd 55cm Dýpt|57cm 515 4000y Skiptiboro^ 515 4030y Hólf og gðlf, afgreiðsla 555 4411y Almenn afgreiBsla 562 9400y Almenn afgreiðsla 568 9400; Almenn afgrei&sla^ 800 40007 Grænt númef MÁNAÐARTILBQÐ 266 litra Skiptiborö: Versiun, Breiddinnl, Kópavogi: Verslun, Dalshrauni 15, Hafnarflröl: Verslun, Hringbraut 120, Reykjavík: Byggt & Búiö, Kringlunni: Grænt símanúmer BYKO: SIÐASTA HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐIÐ! ea Viltu margfalda lestrarhraðann oe afköst í starfi? m Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í námi? Ef svar þitt er jákvætt við annarri ofangreindra spum- inga skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestramámskeið ársins sem hefst miðvikudaginn 23. október n.k. Skráning er í síma 564-2100. HIFtAÐLJEÍSTT^XRSKÖLIIVJIV Opnum kl.8 1 alla virka dasa ^ ai i a viiivti 'Vpótekið Skeifunni Höfum á boðstólum, auk lyfja, allar almennar apóteksvörur svo sem hjúkrunarvörur, heilsuvörur, hreinlætisvörur, snyrtivörur, barnavörur, linsuvökva o.fl. __Opið virka daga kl. 8-19 og laugardaga kl. 10 - 16 Mikil áhersla er lögð á að veita góða lyfjafræðilega þjónustu og faglegar upplýsingar um lyf og lyfjanotkun. Skeifan Apótek SKEIFUNNI 8, REYKJAVÍK SÍMI: 588 1 444, FAX 588 1 443 I R I H E I IVÍ S i; N I) I N G ARI'ION U S I A v i r k \ i) a <; ,\ o <; i. a ii <; \ n n a <; a -cngu [íkt! KANEB) KYNNING HUÐGRtlNING MEÐ 1ÖLVU I DAG OGÁMORGUN KL. 13-18 SNYRTIVÖRUVERSLUNINNI i LAUGAVEGSAPÓTEKI. . ALLIR VELKOMNIR SÉRf-RÆÐINGUR ERÁ KANEBO A STAÐNUM. Kanebo Art through Technology Japaaskar snyrrivörur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.